Ísafold - 23.09.1914, Síða 3
I S A F 0 L D
289
Fólkstalan þar í árslok 1911 var
51,819,000. Koma þá á hvern mann
kr. j,8o í óqulltryqðum seðlum.
Ef ógulltrygðir seðlar eru útgefnir
framyfir þessar 400 milj., verður
bankinn að svara ríkissjóði 5% árs-
vexti af viðbótinni, sem mun vera
venjulegir útlánsvextir bankans, og
hvötin því ekki nein að gefa meira
út frá hagsmunahlið bankans skoðað.
Minsta seðilstærðin er 50 krónur
(austurr.) það er kr. 37,80. Samkv.
því getur gnægð af gulli verið
í umferð meðal almennings þar, þar
sem minsti seðillinn er svona hár.
Bankanum stjórnar bankaráð; velur
keisarinn 5 menn í ráðið, en hlut-
hafar 12 menn.
Svona var seðlaútgáfuréttar fyrir-
komulagið í þessum löndum 1910,
en auðvitað hefir það getað breyzt
eitthvað síðan, en tæplega í grund-
vallaratriðunum.
Af þessum má sjá, að öll ríkin
sjá fyrir því að nægt gull sé í land-
inu, bæði í bönkunum og í umferð,
þó þau geri það sitt á hvern hátt.
Það mun og vera regla flestra banka,
að spyrja þann, sem tekur fé úr
bankanum, hvort hann vilji heldur gull
eða seðla. A Þýzkalandi og á Eng-
landi er þetta venja. í Danmörku
mun seðlunum vera otað fram í
bönkunum.
Þessu til samanburðar vil eg þegar
taka fram að bankar íslands hafa
nú leyfi til að gefa út 30 kr.
á hvern mann í landinu í ógullmyntar-
trygðum seðlum, sem eru í raun
oq veru óinnleysanlegir, sem síðar mun
skýrt verða.
Framh.
Slysför. „
í gærkveldi druknaði á Hjalteyri
Jón Þórðarson skipstjóri, frá Ráðagerði.
Var á leið frá skipí sínu, botnvörp-
ungnum Skallagrími út í Snorra
goða, er lá þar við bryggju, en hafði
skrikað fótur á bryggjunni og féll útaf
henni. Báti var þegar skotið út, en
bátverjar gátu hvergi séð til Jóns.
Eftir 11/2 klst. fanst likið — var
slætt upp.
Jón heit. var einn af dugmestu
veiðiskipstjórum vorum, maður á
bezta aldri og því að honum mikill
mannskaði.
Jón skilur eftir sig ekkju, Önnu
Sigmundsdóttir, og eina dóttur.
Likið verður flutt hingað suður.
Eldsvoöi.
Aðfaranótt 16. þ. m. brann íbúð-
arhúsið á Galtalæk við Heklu til
kaldra kola, með öllum innanstokks-
nrunum. Þess er getið til, að kvikn-
að hafi í öskukassa, sem stóð í eld-
húsinu. Alt var óvátrygt. Tjónið
tttetið á 16000 kr.
Reykiavíknr-annáll.
Valurinn handsamaði botnvörpung
nálaegt Ólafsvík á sunnudag. Fór hann
tneð hann til Stykkishólms og var hann
sektaður þar.
Forberg landsímastjóri meiddist tals-
vert austur á hóraði fyrir skömmu.
®}ó hann hestur og á Forberg 3—4
v*kur í þessum meiðslum.
Matthías Þórðarson þjóðmenjavörð-
ar er nýkominn úr sumar-ferðalagi sínu
ani Norðurlönd. Hefir hann kynt sór
fornmenjarannsóknir og annað, er að
starfi hans lýtur og lætur hið bezta
yfir förinni.
Aðkomumenn: Jón Proppó kaupm.
frá Ólafsvík.
Aðstoðarmaður í stjórnarráðinu (3.
skrifstofu) er Björn Pálsson cand. jur.
nýlega orðiun.
Hjúskapur. Jón Þorsteinsson skósm.
c8 jgfr. Steinunn Þorvarðsdóttir.
---------— I Om--------
Friðslit
Breta og Þjóðverja.
Síðasta samtal þýzka kanzlarans við
sendiherra Breta í Berlin.
í skýrslum sem sendiherra Breta
í Berlin, Sir E. Goschen, sendi Grey
utanríkisráðherra þ. 8. ágúst, segir
hann frá síðustu dögum sínum í
Berlín og brottför. Hann segir þar
m. a. frá síðasta samtalinu sem hann
átti við v. Bethmann Hollveg, eftir
að friðslita-tilkynningin var komin
frá Bretum. Farast honum svo orð :
»Kanzlarinn var í mestu geðs-
hræring er eg kom, og byrjaði þeg-
ar á ávarpsræðu til mín, er stóð 20
mínútur. Hann sagði, að skref það
er stjórn hans hátignar (Bretakon-
ungs) hefði stigið, væri hræðilegt,
borið saman við tilefnið; fyrir eitt
einasta orð, »hlutleysic( orð, er svo
mjög hefði verið að engu haft á
ófriðartimum, fyrir dálitið pappírs-
blað segði Bretland vinveittri þjóð
stríð á hendur, þjóð sem eigi ætti
hærri ósk en lifa í vináttu við Breta.
Alt sem hann hefði verið að vinna
í þessa átt yrði að engu gert með
þessu hræðilega tiltæki, og stjórn-
málastefna sú, er hann hefði helgað
sig, eins og eg vissi, frá því hann
tók við embætti, væri nú að hrynja
eins óg spilahús. Það sem við hefð-
um gert væri óheyrt;; það væri- líkt
og að vega aftan að manni, sem
væri að verja sig fyrir tveim tilræð-
ismönnum. Hann teldi Stóra-Bret-
landi að kenna alla þá hræðilegu at-
burði, er kynni af þessu að leiða.
Eg mótmælti þessari ræðu ein-
dregið og sagði, að eins og þeir
hr. v. Jagow (innanríkisiáðherrann) og
kanzlannn væru að reyna að koma
mér í skilning um, að vegna hern-
aðarframkvæmda hefði verið spurn-
ing um líf eða dauðac fyrir Þjóð-
verja að fara yfir Belgíu og þar
með brjóta hlutleysi hennar — þá
vildi eg koma þeim í skilning um,
að það sé líka »spurning um líf eða
dauða« fyrir sæmd Bretlands að
halda hátiðlega gerða samninga og
gera alt sem í þess valdi stæði til
að verja hlutleysi Belgíu, ef á það
yrði ráðist. Þenna samning yrði
Bretland að halda, því að hvaða traust
mundi nokkur maður annars bera
eftirleiðis til loforða, sem Bretar
gæfu? Kanzlarinn svaraði: »En
hvað mundi kosca að halda þenna
samning? Hefir brezka stjórnin
ihugað það ? Eg benti hinum há-
göfga kanzlara eins skýrt og eg gat
á að óttinn við afleiðingarnar mundi
naumast vera talinn afsökun fyrir
að brjóta hátíðlega gerða samninga,
en hann var svo æstur, svo auðsjá-
anlega yfirþyrmdur af fréttinni um
fyrirætlanir vorar og svo illa fyrir-
kallaður til að hlusta á nokkur rök, að
eg stilti mig um að bera eldivið á
bálið með því að færa fleiri rök fyr-
ir minu máli. Þegar eg var að fara
sagði hann, að þetta greidda högg
Bretlands, að sameina sig óvinum
Þjóðverja, væri því þyngra, sem
þýzka stjórnin hefði fram í síðustu
forvöð unnið 1 sambandi við Breta
ogreyntað hjálpa þeim til að varðveita
friðinn milli Austurrikis og Rúss-
lands.
Eg sagði, að þetta væri að eins
einn þátturinn í sorgleik þeim, er nú
væri að gerast, þar sem upp úr
slitnaði milli tveggja þjóða einmitt
þegar viðskiftin hefðu verið orðin
meiri og betri en um margra ára
skeið. Til allrar óhamingju hefði
ekki, þrátt fyrir erfiðismuni frá okkar
hálfu, verið hægt að vernda frið
milli Rússa og Austurríkismanna og
ófriður grafið um sig, svo að þar
væri nú komið, að við gætum eigi
setið hjá, ef við á annað borð stæð-
um við gefin loforð, þótt því miður
leiddi af því skilnað við fyrri sam-
verkamenn. Og mundi hann skilja,
að engum félli það eins þungt og
sér«.
Nýmæli.
Frh.
Hjá stórveldunum.
Lesarinn verður ráðherra.
Nú stendur ekki lítið til, lesari
sæll! Eg ætla að gjöra þig að ráð-
íerra!
Náttúrlega ættir þú það margfald-
ega skilið þú vitri og reyndi bóndi,
)ú ungi áhugasami maður, þú elsku-
ega ungfrú og prýði allrar sveitar-
innar, að eg gerði þig að virkilegum
ráðherra, að borðalagðri hágöfgi tr.eð
bátslaga fjaðrahatt — en því miður
er eg ekki svo fjölkunnugur. En
eg get gjört annan galdur. Eg get
gjört þig að ráðherra hérna á papp-
írnum og ef þú vilt fylgjast með
mér í huganum þá skaltu sanna að
það er alveg eins skemtilegt og
miklu ábyrgðarminna.
Þessi er þá byrjunin: ráðherrann
okkar er horfinn, algjörlega gleymdur,
hefir blátt áfram aldrei verið til og
pú ert orðinn ráðherra-----
En þau umskifti!
Það væri náttúrlega skemtilegt ef
við töluðum um flokksfundinn þegar
allir stóðu á öndinni og fleiri en einn
vildu verða ráðherra, en þú einn
varðst hlutskarpastur allra. Gaman
væri það lika að minnasl á förina
út yfir pollinn, er þú fórstað heimsækja
kóng og drotningu og spjallaðir við
hans hátign um fánann og stjórnar-
skrána eða hvaða stjórnmál það nú
voru, sem þú hafðir til meðferðar.
í þetta sinni megum við ekki vera
að þvi. Nú kallar margt að fyrst
þú ert orðinn ráðherra svo við höfum
ekki tíma til slíkra útúrdúra. —
Þinginu er slitið og öllu því arga-
þrasi. Nú átt þú að taka til starfa
og leysa öll ráðherrastörf af hendi
þér sjálfum til dýrðar og landinu til
blessunar. Við skulum gjöra ráð fyrir
að þú sleppir við allar áhyggjur af
stríðinu, því fæstir ráðherrar lenda í
því gjörningaveðri. Þú sleppur þá
við alla þá fyrirhöfn að síma sifelt
eftir skýrslum um vöruverð i öllum
kaupstöðum, öll heilabrot um það
hversu hefta megi óþarft gróðaprang
kaupmanna, sem vilja græða á öllum
vandræðunum, sem stríðinu fylgja,
sleppur við ábyrgðarmikið kaup-
menskubrask til þess að útvega land-
inu vörur með sæmilegu verði, slepp-
ur við margs konar áhyggjur, meðal
annars þær, að mega búast við því,
er minst varir, að eitthvert stórveldið
hremmi Danmörku og siðan ísland
— eða að Island skilji við Danmörku
og verði frjálst ríki! Eg veit nú
reyndar að þér þætti ekki margt að
því að halda í stjórnartaumana ef
siglt yrði á“þann sjó!
Sögulegt væri það óneitanlega, en
hræddur er eg um, að þér þætti efnin
lítil til stórræðanna þegar ekki er
úr öðru verulegu að spila en dönskum
skuldum. Þingið okkar hefir ekki
safnað i fjársjóði undanfarin ár. Það
vill láta bændur koma sér upp forða-
búrum eða fyrningum svo þeir séu
ekki á hjarni staddir þó eitt harðinda-
ár dynji yfir, en ekki dettur því það
í hug að sjálfu landinu kunni að vera
nauðsynlegt að komast líka í fyrningar
svo þess gerist ekki ætíð nauðsyn
að hlaupa til Danmerkur og biðja
um nýtt lán, þó [eitthvað beri útaf1).
:) Það var einu sinni sú tíðin, að
þingið kom landinu í álitlegar fyrn-
ingar er það dró satnan viðlagasjóð-
inn. En honum er stjórnað svo,
að féð er alt i útlánum og þvi að
minstu handbært fé, sem grípa megi
til í viðlögum.
Nei, þvi þykir sjálfsagt að fátækir
hændur séu forsjálir og leggur sektir
á þá ef þeir freistast til þess að setja
illa á, en sjálfir þingmennirnir vilja
fiafa kaup sitt og engar refjar fyrir
að eyða hverjum eyri sem reitist í
landsjóðinn og þykjast miklir menn
ef þeir ekki bæta nýrri skuld við
þær sem áður voru. Þetta eru þeirra
búhyggindi.
Þú ert að vísu orðinn ráðherra,
en rekur þig fljótlega á að í raun-
inni ert þú orðinn ráðsmaður í íé-
lausu, mér liggur við að segja —
þrotabúi.
Þú sleppur þá við alt siríðið og
heldur, ef til vill, að þú getir nú
átt góða daga í ráðherrasætinu og
haft þér það til dægrastyttingar að
kalla sjálfan þig hágöfgi, skoða nýja
einkenningsbúninginn (sem reyndar
er al-danskt innlimunareinkenni) og
telja þúsundirnar, sem þjóðin geldur
þér í kaup. Nei, þér verður naum-
ast kápan úr því klæðinu. Nú verður
þú að duga eða drepast. Það er
ætlast til þess að þú leysir mörg
störf af hendi, sért bæði mikilvirkur
og velvirkur, að öðrum kosti hellir
þingið þér óðara úr stólnum við
lítinn orðstír.
Við skulum nú lita á aðalatriðið.
Hvað var það sem freistaði þín til
að seilast eftir völdunutu í landinu?
Mér dettur ekki í hug að það hafi
verið eintóm hégómagirni eða löng-
un til þess að græða fé. Nei, góðan
dreng dregur það eitt að hann þyk
ist eiga erindi í valdasessinn, þykist
sjá ýms heillaráð þjóðinni til fram-
fara og viðreisnar. Þú vildir ná i
völdin til þess að geta hrundið
þessum þínum áhugamálum í fram-
kvæmd og greitt þannig lanðslýðnum
götuna. Til hins tekur enginn þó
þú vildir jafnframt hafa heiður og
sóma fyrir það að hafa gerzt leiðtogi
lýðsins og unnið honum gagn í hví-
vetna.
Þegar kyrðin er komin eftir þingið
og þú situr einn í tómstundum
þinum, þá koma þessar gömlu fram-
tíðar og framfarahugsjónir til þín
eins og gamlir kunningjar í heilum
hópum. En sennilega hafa þær tekið
kynlegri breytingu. Áður en þú
varðst ráðherra voru allar þessar hug-
myndir brosleitar og heillandi, en
nú eru þær allar þungbúnar og með
alvörusvip svo þér stendur nálega
stuggur af þeim. Þú finnur það
glögt að það er sitt hvað að láta
hugann stjórna landi og lýð og alt
ganga eins og í sögu og hins vegar
að framkvæma hlutina í raun og veru.
— — Þér hefir ef til vill dottið í
hug að láta nú eitthvað verða úr því
að veita á Flóann, það hefir hvort
sem er lengi verið á döfinni. Þú
hefir lesið það, sem um það hefir
verið ritað og þér lízt vel á fyrir-
tækið. Þú hefir séð í huganum alt
láglendisflæmið verða að sífrjóu flæði-
engi, séð frjóvgandi vatnið hverfa
og koma eftir vild. Þú hefi séð
stóreflis landflæmi utan áveitusvæðis-
ins breytast í skrúðgræn tún, kartöflu
og rófna-akra, nýbýli rísa upp hundr-
uðum saman. En hvar er nú vissan,
er á skal herða, um að ekki geti
út af borið, að þetta dýra fyrirtæki
geti ekki mishepnast og hvar eru
peningarnir til þess að gjöra það með ?
Eg býst við að lítið sé í landssjóðn-
um til þeirra stórræða. Og hvernig
er . svo pekking þín sjálfs á jarðrækt
og áveitumálum ? Ætli að þér veitti
af að auka hana dálítið til þess að
þú ættir þó auðveldara með að
dæma um málið?
Þér virðist það einsætt að þú
verðir á ný að athuga vandlega alt
málið frá rótum og ekki sizt erfið-
leikana. Þetta tekur alt tíma og
nú eru ekki nema 10 mánuðir til mesta
pings.
Og hvernig taka svo landeigendur
í Flóanum í málið? Vilja þeir
ganga að sanngjörnum samningum
við landið svo að það hafi sitt upp
borið, eða á landið að taka allar jarð-
irnar lögnámi eftir föstum reglum?
Hvar er svo fé til þess ? Alt þyrfti
þetta helzt að vera klappað og klárt
á fám mánuðum.
Hvernig er það lika með nýjustu
mælingarnar þar eystra? Hefir það
ekki komið upp úr kafinu að ýmis-
legt sé að athuga við fyrri mæling-
arnar? Skyldi þetta breyta málinu
að mun ?
Það er sannarlega margt að varast
og hvernig áttu að fá alt þetta sam-
vizkusamlega til lykta leitt á nokkr-
um mánuðnm? — — —
— — Þér höfðu komið ýms ráð
til hugar til þess að bæta úr fjármál-
um landsins, greiða fyrir ýmsum
fyrirtækjum, verzlun o. fl. Gömlu
hugmyndirnar standa þér að vísu
skýrt fyrir huskotssjónum og þér
finst að þær hljóti í aðalatriðunum
að vera réttar. En hvað eru þær,
er betur er að gáð? Ekkert annað
en lauslegar hugsjónir manns, sem
litla reynslu hefir í þessum efnum
og litla þekkingu til þess að gjöra í
Ef til vill reynast þær allar loft-
castalar þegar þær eru athugaðar
ofan í kjölinn og auk þess er ekki
ílaupið að því. Hér ber að sama
brunni og fyr: Það er ekki mögu-
legt að framkvæma þessar hugsjónir
nema að alt málið sé rannsakað vand-
lega frá rótum og helzt þarft þú
sjálfur að vera því starfi vaxinn, að
minsta kosti geta glögglega dæmt
um málið. Svo getur þú ekki einu
sinni þetta, nema með því að læra
sjálfur margt og mikið, tala við ýmsa
menn hér og erlendis og hver veit
hvað.
Og það er örstutt til næsta þings!
-----Þá var það ekki neitt smá-
ræði sem þingið hafði falið þér að
gjöra. Oiiu sem þingmennirnir
treystust ekki til að ráða fram úr
vísuðu þeir til sljórnarinnar, bókstaf-
lega málum í tugatali. Alt átt þú
að undirbúa þetta undir næsta þing
og sum málin þurfa ítarlega rann-
sókn, ef sá undirbúningur á að vera
í nokkru lagi. Það verður óhjá-
kvæmilegt fyrir þig að kaupa fræði-
bækur í ýmsum greinum frá útlönd-
um og alt tekur það tíma, að eg
ekki tali um að lesa þær og hagnýta
sér.
-----Þá má ekki gleyma að þú
ert þó sjálfsagður foringi flokks þíns.
Það þarf að athuga alla stefnu hans
svo hún verði eitthvað annað en
loftkastalar og orðin tóm. Hvernig
ætlar þú að bræða þetta svo öllum
líki og að það verði jafnframt land-
inu til heilla og velgengni? Hvernig
ætlar þú að sjá hag og áliti flokks
þíns borgið hjá kjósendunum, hvemig
sjá við hælkrókum andstæðinganoa ?
Það er engum blöðum um það
að fletta að þú sér ekki fram úr því,
sem þú hefir að gjöra. Meira að
segja, þó þú værir afkastamaður og
ynnir alla daga frá morgni til kvölds,
þá kemur þú ekki öllu þessu f verk
á rúmum 10 mánuðum, ekki svo að
vel sé af hendi leyst.
Þú vaknar upp úr öllum þessum
hugleiðingum. Það er annað sem
kallar að. Þú þarft að fara utan á
konungsfund til þess að bera upp
fyrir honum »lög og mikilsvarðandi