Ísafold - 06.01.1915, Blaðsíða 1
Kemur út tvisvar
í viku. Verð árg.
4 kr., erlendis 5 kr.
eða l^doliav; borg-
istfyrit miðjan júli
erleudis fyrirfram
Lausasala 5 a. eint.
U ppsögn (skrifl.)
bundln viðáramót,
er ógild nema kom-
ln só tll útgefanda
fyrir 1. oktbi. og
sé kaupandi skuld-
laus við blaðið.
XLII. árg.
Reykjavík, miðvikudaginn 6. janúar 1915
l.tölublað
ALlþýðufél.bókasafn Templaras. 3 kl. 7—9
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 11 -3
og 5—7
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og -?
Bæjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 ög
íslandsbanki opinn 10—2x/a og 51/*—7.
K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8 árd.—1C ;í'd.
Alm. fundir fid. og sd. H1/* sibd.
Landakotskirkja. öubsþj. 9 og 6 á hol: x
Landakotsspítali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 11-21/*, 61/*—61/®* Bankastí. 12 2
Landsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—B
Landsbúnaðarfélagsskriistofan opiu frá ‘-2
Landsfóhirbir 10—2 og 5—6.
Landsskialasafnib bvern virkan dag kl. h-:
Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
N&ttúrugripasafnib opib l1/*—21/* á sunnu \,
Pósthúsib opib virka d. 9—7, sunnud. 9—1.
Samábyrgb Islands 10—12 og 4—6
Stjórnarrábsskrifstofurnar opnar 10-4 dagl.
Talsími Reykjavikur Pósth. 3 opinn daglangt
8—10 virka daga, helga daga 10—9.
Vifilstabahælib. Heimsókuartími 12—1
Þjóbmenjasafnið opið sd., þd. fmd. 12—2,
Hjörtur Hjartarson yfirdóms
lögmaður, Bókhl.stig io. Sími 28.
Venjul. heima i2l/2--2 og 4—5l/a.
Skrifstofa
Eimskipafélags Islands.
Landsbankanum (uppi).
Opin daglega kl. 5—7.
Talsími 409.
Sameignarstefnan
og
ófriöurinn.
(Niðurl).
Enskur niaður, Ernil Davies að
nafni, hefir nýlega ritað grein um
þetta efni. (»The Collectivist State
in the Making* heitir hún). Htin
iýsir tilraunum, sem gerðar hafa ver-
ið i þessa átt um allan heim, og eru
níu tíundu hlutar bókarinnar skýrslur
um slík fyrirtæki — staðreyndir, sem
ekki verða til baka bornar. Fyrir-
tækin, sem bókin lýsir, eru afarmörg
og margvisleg. Mun óhætt að full-
yrða að hve nær Sem einhver held-
ur því fram, að einhver grein
framleiðslu eða verzlunar sé ekki
framkvæmanleg af hálfu hins opin-
bera, þá megi hnna dæmi í bók
þessari, sem sannar hið gagnstæða.
Hér skal nú sýndur útdráttur úr
fáeinutn dæmum sem fyrirkoma i
bókinni og hefi eg tekið útdráttinn
eftir enska blaðinu »The Clarion«.
Margnr borgir á meginlandi Norð-
urálfunnar selja kjöt til neytenda,
ýmist við sannvirði eða með mjög
litlum hagnaði. Mutichen í Þýzka-
landi hefir átt kjötsöluhús og rekið
kjötverzlun siðan 1764, og selur að
jafnaði um 10000 kjötskrokka á áti.
Budapest varði 1911 360,000 kr. til
að koma upp sölubúðum og selja
þar kjöt, alifugla, egg og smjör.
Á Ítalíu eru yfir 20 brauðgerðar-
hús, sem bæjarsjóðir eiga og reka.
Eitt þeirra er í borginni Verónu.
Þar eru framleidd 35.000 brauð á
dag (hvert brnuð rúrn 3 pd.), en
ibúar borgarinnar eru ekki nema
73.000. Árangurinn af stofnun
þessa brauðgerðarhúss var meðal
annars sá, að brauð féllu að mun í
verði og urðu mun betri vara en
áður. Brauðgerðarhúsið »græðir« að
eins um 1000 kr. á ári. En hve
mikið bæjarbúar græða á lækkuðu
verði og auknu næringargildi sést
auðvitað ekki á jafnaðarreikningnum.
Budapest stofnsetti brauðgerðarhús
fyrir fáum árum og hefir það þrifist
vel. Það brauðfæðir nú tíunda hluta
bæjarbúa, eða 80.000 mantts (nálega
jafntnarga menn og alla íslendinga).
Margar borgir i Þýzkalandi selja
matvöru við lægra verði en kauþ-
tnenn. 145 borgir verzla með jarð-
epii og margar þeirra með ýmsa
aðra jarðarávexti. Fjörar borgir eiga
kúabú og selja mjólk beint til neyt-
enda. Nokkrar aðrar borgir kaupa
tnjólk í stórkaupum af bændum og
selja aftur í smásölu til neytenda,
með litlum hagnaði.
Tvær borgir, Ulin og Nýja Ulin
hafa gert samninga við samvinnufé-
lag, sem hmdbúnað rekur og hefir
félagið skuldbundið sig til að nuka
svínarækt sína úr 1000 upp i 3000
á ári, en borgirna'r kaupa öil svínin.
Skrokkarnir eru svo seldir með
innkaupsverði kjötkaupmönnum, sem
undirgangast að selja kjötið og
tíeskið með því verði sem bæjar-
stjórnin ákveður.
Ríkisstjórnir rússneska rekur fjölda
verzlunarhúsa í Síberíu, fyrir reikn-
ing ríkissjóðs. Þar er selt: vélar,
verkfæri, kornmatur og trjáviður.
Verzlunarhús þessi eru 118 að töfu
og ársveltan 40 miljónir kr.
Fjöldi borga á Ítalíu og Rússlandi
rekur verzlun með lyfjavörur og á
Prússlandi ákveður landsstjórnin verð
á öllum lyfjavörum, sem seldar eru
í einkaverzlunum.
Margar borgir i Norðurálfunni
halda uppi matsölu og kaffihúsum.
Ein þeirra er Torquay á Englandi,
hálfu stærri bær en Rvík.
Mjög hafa séreignarsinnar barist á
móti því, að bæjarfélög legði stund
á jarðrækt, einkum á Englandi. í
ýrnsum öðtum löndum hafa þó
borgir slík fyrirtæki með höndum.
Múnchen á 500 ekrur1) af landi og
rekur þar jarðrækt. Frankfurt á vín-
garða, sem eru 30 ekrur að stærð.
Þ.tr er meðal annars ræktað alt vín
handa veitingahúsi, sem bærinn á
einnig.
Á Bretlandi er tnjög rík mót-
spyrna móti því, að bæja- og sveita-
félög eignist land, til hvers sem nota
skal. Betur er það mál á veg kom-
ið í ýmsum öðrum löndum. Borg-
in Freisburg i Breisgau á Þýzkalandi
á 77% af öllu landi, sem umdæmi
bæjarins nær yfir. Borgirnar Kob-
lenz, Augsburg og Stettin eiga hver
um helmiug lands í umdæmi sínu
og ýmsar aðrar borgir meiri eða
minni landeignir. Frankfurt byrjaði
á landkaupum 1897 og varði þá til
þess 23 miljónum króna (ibúar 415
þúsund). Nú eru landeignir þeirrar
borgar virtar á 270 miljónir króna.
Hún á skógarlönd mikil og hefir í
tekjur af þeim 140 þús. kr. á ári.
Uliti hefir þrefaldað landeigtiir sínar
á 8 árum og haft á þeim tíma tek-
jur af þeim sem nema samtals 820
þúsund krónum.
Sumar borgir á Þýzkalandi greiða
öll bæjargjöld af þeim tekjum, sem
þær hafa af löndurn sínum og meira
að segja er svo langt komið hjá
!) Ein ekra ensk (acre) er nál a/5
úr hektara. (1 ha. = 2.47 acres).
sumum, að í stað þess að taka skatta
af bæjarbúutn borga þær þeim pen-
inga — hlutdeild í ágóða aflöndum
sínum, sem afgangs eru eftir að öll
gjöld i bæjar þarfir ern greidd.
Klingenburg greiðir hverjum borgara
hátt á þriðja huudrað krónur á ári á
þennan hátt og lætur auk þess í té
ókeypis eldivið og hálm. Hagenadu
í Elsass (bær á stærð við Rvík) greið-
ir öll bæjargjöld með afrakstrinum
af landeignum sinum. í stórher-
togadæminu Baden voru árið 1899
121 og i Bavaria 1898 526 bæja- og
hreppafélög, sem voru algerlega laus
við skatta og álögur, vegna þess að
þau áttu landeignir, sem gáfu af sér
nægjanlegan arð til þess að standast
almenn útgjöld.
Brezka stjórnin hefir ákveðið að
verja 70 miljónum króna til þess að
byggja íveruhús fyrir verkamenn og
þykir mörgum það undur mikil og
ills viti. En það er þó ekki nærri
heltningur þess fjár, sem Paris sam-
þykti 1912 að veita i satna augna-
miði og var þó friður á þá. Borgin
Ztirich í Sviss (ibúar 180 þús.) hefir
með höndum húsbyggingar og land-
kaupafyrirtæki svo mikil, að þegar
þeim er lokið á bæjarsjóður fjórða
hluta allra húsa og landa í borginni.
Borgin Buenas Aires í Suðurameriku
(íbúar 880 þás.) hefir í smíðum 10
þúsutid hús fyrir verkamenn. Smá-
bær í Yorkshire á Englandi, sem
Balton nefnist (ib. 12000 — færri
en i Rvik) hefir samþykt fjárveitingu
til húsabygginga að upphæð 1 milj.
200 þús. kr.
Þetta eru að eins örfá dæmi af
aragrúa sem telja mætti. Þá er að
líta á sameignarfyrirtæki sem þjóðirn-
ar kosta af ríkissjóðum sinum. At-
hugaverðastar af hagskýrslum, sem
nefndar eru í bók Davies eru lands-
reikningar ýmsra þjóða, sern sýna
hvaða eignir ríkin eiga gagnvartrik-
isskuldunum.
Rikisskuldir Bretlands eru fullar
13 þúsund miljónir króna, en eign-
ir ríkissjóðs 3 þúsund milj. Mis-
munur 10 þúsund miljónir. Rikis-
sjóðurinn á að eins pósthúsin, hluta-
bréf í Suez-skurðinum og nokkrar
þjóðjarðir. Svo erfitt hefir sameign-
arstefnan átt uppdráttar þar, þegar
hið opinbera átti í hlut.
Búlgaría þurfti á láni að halda
1910 og gaf út landsreikning sem
sýndi að skuldir rikisins voru 300
milj. króna, en eignir ríkissjóðs 950
miljónir, sem stóðu i járnbrautum,
landeignum, höfnum, skipaskurðum,
ritsímum og talsímum.
Ríkisskuldir Dana eru 325 milj.
kr. en ríkiseignir 680 miljónir, þar
af í ríkisjárnbrautum fullar 260
miljónir króna.
Frakkland er hlaðið meiri ríkis-
skuldum en nokkur önnur þjóð og
nerna þær fullum 25 þúsund milj.
króna. En á milli 1950 og 1960
verður ríkissjóður orðinn eigandi að
öllutn járnbrautum i landinu, sem
verða þá meira virði en nemur öll-
um ríkisskuldunum. Nú þegar hefir
Frakkland 720 milj. kr. í tekjur á
ári af atvinnurekstri, sem ríkissjóð-
ur kostar.
Ríkisskuldir Ungverjalands eru
4680 milj. kr. en eignirnar 5256
milj. i fasteignum.
Prússland á landsjóðseignir sem
eru 7200 milj kr. meira virði en
allar skuldirnar og nema tekjunar af
þessum eígnum 350 milj. kr. á ári,
en það er nálægt helmingi allra út-
gjalda landsjóðsins.
»Það er augljóst af þessum fáu
dæmumc, segir blaðið, »að við (þ. e.
Bretar) erum svo mjög hlaðnir skött-
um og álögum vegna þess, að föður-
landsvinirnir, sem stjórnað hafa land-
inu hafa gert öll lönd og atvinnu-
vegi að einkaeign, til hagnaðar ein-
stökum mönnum.c
Vátryggingar reknar fyrir hönd
ríkissjóða hafa orðið drjúg tekjugrein
í mörgum löndum. Rikisvátrygging
Nýja-Sjálands hefir lækkað iðgjöld
af lausafé um 10 °/0 og iðgjöld af
ibúðarhúsum um 3 3 V2 °/o• Skjótast-
ar hafa framfarirnar orðið i þessari
grein á Italiu. Þar hafa þær ráð-
stafanir verið gerðar, að eftir 10 ár
eru öll einka-vátryggingarfélög úr
sögunni þar í landi. Iðgjöld hafa
þegar lækkað nllmikið, vegna sparn-
aðar, sem leitt hefir af þvi, að sam-
kepnis-erindrekar hafa verið settir frá
stöðu þúsundum saman.
Forstjórn rikis- og bæjarfélaga hefir
gripið inn í nálega allar greinar at-
vinnureksturs og fyrirtækja, tekið til
lifandi manna og danðra. Likbrensla
i einka-líkbrenslustofum í Lundún-
um kostar 200—300 kr., en 90 kr,
í líkbrenslustofu sem bærinn Man-
chester á og að eins 18 kr. í bæn-
um Karlsruhe á Þýzkalandi. í Sviss
annast ríkið allar greftranir og í sum-
um fylkjunum eru þær veittar ókeyp-
is. Ef óskað er einhverrar viðhafnar
fram yfir venju og brýna nauðsyn,
er stundum lítilsháttar borgun tekin
fyrir það. Bæjarfélag Parísar annast
greftranir í stórnm stil.
Þetta litla sýnishorn verðui að
nægja að þessu sinni. En full þörf
er þess, að almenningur væri betur
fræddur í þessum efnum og meira
gildi mundi það hafa fyrir lif manna
og líðan, en fornfræða-grúsk, ættar-
tölur, trúmálastagl og söguþvættingur,
sem nú (sem áður) tekur upp mest-
an hluta bókmenta okkar íslendinga.
Péíur G. Guðmundsson.
Siðustu simfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezku utanríkisstjórninni
í London.
Bandamenn ná skotgryfjum.
London, 22. des. kl. 1.25 síðd.
Opinber frönsk tilkynning hermir
það, að brezka liðið hafi gert áhlaup
og náð aftur mest öllu því svæði er
það hafði áður mist.
Hjá Lihons gerðu Þjóðverjar 4
áhlaup hvert á fætur öðru til að ná
aftur skotgryfjum, er vér höfðum
tekið, en þeim mistókst það.
Vér gerðum áhlaup fyrir norð-
vestan Puissaleine og komumst i
fremstu skotgryfjur óvinanna. Vér
unnum og á í St. Mard-skógiuum.
Rússar í Galiciu.
London, 22. des. kl. 1,30 sd.
Frá aðalherstöðvum Rússa er til-
kynt, að i Mlawa-héraði hafi óvin-
irnir hörfað undan á milli Lauten-
burg og Neidenburg.
í Galizíu hefir her vor algerlega
stöðvað framsókn Austurríkismanna,
og sækir nú fram til sigurs. Vér
höfum algeilega ónýtt tilraunir setu-
liðsins í Przemysl að brjótast gegn-
um umsátursher vorn, og höfum
hrakið það inn fyrir viggirðingar
kastalans. Óvinirnir biðu mikið tjón.
Herforingjaráðið i Kákasus til-
kynnir, að viðureign vor við Tyrki
gangi oss i hag.
Frakkar vinna alstaðar á.
London 22. des. kl. 5 sd.
Opinber frönsk tilkynning síðdeg-
is i dag:
Á milli Lys og Aisne rákum vér
af oss áhlaup Þjóðverja á Carency
og tókum hús hjá Blagny. í Lihons-
héraði rákum vér af höndum oss
þrjú áhlaup Þjóðverja. Vér höfum
unnið lítið eitt á fyrir austan og
vestan Tracy le Val.
í Champagne og i Aisne hjá
Perthes les Hurlus tókum .ér 3
þýzk vígi og samsvarar það 1500
metra skotgryfjulengju.
Vér treystum stöðvar þær, sem
vér náðum fyrir norðaustan Beause-
jour og tókum allar skotgrafir við
Colvaire-hálsinn.
í Bolante-skóginum náðum vér
aftur a/8 hlutum af því svæði, er
vér höfðum mist.
Milli Argonne og Meuse unnum
vér dálítið á hjá Vanquois.
Fyrir norðan Malincourt-skóginn
komst lið vort yfir gaddavírsgirðing-
ar og tók nokkrar skotgrafir óvin-
anna og heldur þeim.
Frá Frökkum.
London, 23. des. kl. 11.40 árd.
Opinber frönsk tilkynning gefin
út i gærkvöld:
Vér höfum rekið af höndum oss
áköf gagnáhlaup, sem óvinirnir gerðu
að oss í gærkvöldi frá Puissaleine
og suður fyrir Noyon.
Fyrir sunnan Varennes gátum vér
tekið oss stöðvar hjá Bourcuelles.
Vér héldutn áfram stefnunni i dag
og trygðum oss sigurinn hjá Bour-
cuelles og fyrir vestan Vanquois.
Annarstaðar eru engar nýjungar
að frétta.
Rússar taka fanga.
London, 23. des., kl. 12,11 e. h.
Herforingjaráð Rússa tilkynnir: Á
vestri bakka Weichsel, milli Neðri-
Weichsel og Pilitza voru margar
grimmar orustur háðar á mánudag-
inn, og hrintum vér af höndum oss
áhlaupum Þjóðverja í þvinær öllum
orustunum.
A einstaka smásvæðum létu Rúss*
ar undan síga til þess að taka sér
betri vigstöðvar. Þýzkt iið komst
yfir ána hjá Zakrzewo, en Rússar
gerðu gagnáhlaup og ráku það til