Ísafold - 06.01.1915, Qupperneq 2
2
í SAFOLD
Mardi-fljótsins. Óvinirnir mistu
marga menn og 9 vélbyssur.
Milli Pilitza og Efri-Weichsel er eng-
ing breyting nema í Skomronno-
héraðinu. Þar höfðu Austurríkismenn
komist yfir ána, en Rússar gerðu
gagnáhlaup og ráku þá yfir hana
aftur. 18 foringjar og 1000 liðs-
menn gáfust upp.
í Galizu gengur Rússum vel. Þeir
unnu óvinunum mikið tjón hjá
Razlece. Setuliðið í Przemysl gerði
enn útrás en Rússar hröktu það inn
í kastalann aftur og unnu þeim
mikið tjón.
Dresden,
beitiskipið sem Englendingar eru nú
að elta, er bygt árið 1908 og er
3544 smálestir að stærð og fer 27
sjómílur á klukkustund. Á því eru
16 fallbyssur og 4 vélbyssur. Skip-
verjar eru 361.
Nurnberg, sem sökt var hjá Falk-
landseyjum var einnig bygt 1908 og
var 3396 smálestir að stærð og fór
23,5 sjómilur á klukkustund. Það
hafði 10 fallbyssur og nokkrar vél-
byssur. Skipshöfnin 322.
Stjórnin flutt aftur til Parfsar.
Poincare forseti kom aftur til
Parísarborgar 9. þ. m. og allir ráð-
herrar hans og þeirra fylgdarlið og
situr nú stjórnin framvegis i Paris,
nema hermálaráðherrann, hann verð-
ur kyr í Bordeaux fyrst um sinn.
Frökkum miðar áfram.
London 23. des. kl. 6.20 sd.
Eftirfarandi opinber frönsk til-
kynning var send út síðdegis í dag:
Vér höfðum dálitinn framgang í
Belgíu í gær milli sjávar og vegar-
ins milii Nieuport og Westende í
héruðunum við Steenstraete og Bix-
schoote. Þar tókum vér skóg nokk-
urn, nokkur hús og vígi. Fyrir
austan Bethune tókum vér aftur með
hjálp brezka liðsins þorpið Givenchy.
í Arras héraði hindraði þoka allar
hernaðarframkvæmdir í héraðinu
við Perthe les Hurlus tókum vér
eftir töluverða skothrið síðasta hluta
þeirrar línu, sem vér höfðum náð
nokkru af þ. 21. þ. m. Miðaði oss
þannig 800 metra áfram. í síðustu
skotgryfjunum, sem vér tókum, náð-
um vér hríðskotabyssum. Vér rák-
um af höndum vor áköf gagnáhlaup.
Framsókn höfum vér haft í La
Grurie skógi, um 400 metra. Vér
sprengdum upp tvær þýzkar skot-
grafalínur og náðum þeirn. Orusta
stendur við Boureuillers.
London 23. des. kl. 10.55 síðd.
Herstjórn Rússa i Kákasus tilkynn-
ir: Tyrkir hafa verið sigraðir í Van-
héraði og hafa þeir beðið mikið
mannfall. Rússar tóku nokkrar fjalla-
byssur.
Bretakonungur hefir fengið nokkr-
ar bifreiðar til sjúkraflutninga i jóla-
gjöf frá Maharajah og Owaliur til
brezka flotans og hersins. Maha-
rajah og Begum af Behopal hafa
gefið sjúkraskip og mahnrajah’inn
hefir gefið 38 þús. sterlingspurd í
hjálparsjóð Breta.
Norddeutsche Allgemeine Zeitung
segir, að Þýzkalandi stafi mikil hætts
af þvi að aðflutningar á saltpétri séu
teptir. Skortur mundi verða á Nitro-
gen, sem gerir uppskeruna minni og
orsakar skort á skotefnum og sprengi-
efnum. Sama blað kveður og nauð-
synlegt að strangari reglur sé settar
viðvikjandi verði á kornvöru, áður
en það verði of seint.
Aðallandstjórnin í Suður-Afríku
tilkynnir að fleiri uppreistarmanna
hafi verið teknir höndum.
Frá Frakklandi.
London 24. des. kl. 1.30 síðd.
Opinber fiönsk tilkynning hljóðar
svo: Vér höfum nær alstaðar hald-
ið þeim stöðum sem vér höfðum
tekið milli Meuse og Argonne. Fram-
verðir vorir eru komnir að gadda-
virsgirðingum óvinanna við Salient,
suðvestur af Bois de Forces, fyrir
austan Cuisy við veginn, sem liggur
að Bois de Boureuilles.
Austurríkismenn bíða lægra hlut.
London 24. des. kl. 2,30 e. h.
Rússneska herstjórnin tilkynr.ir:
Á vinstri bakka Weichsel-fljóts,
milli þess, er það sveigir niður á við,
og Pilitzafljóts, var áhlaupum Þjóð-
verja hrundið og biðu þeir ógurlegt
manntjón. Hersveitir vorar yfirgáfu
að eins ómerkilegar stöðvar í þeim
tilgangi að ná sér betri stöðvum.
Með gagnáblaupum hrundum vér
sameinuðu liði Þjóðverja, sem sótti
yfir Bzurafljótið skamt frá Zahrzew.
Óvinirnir mistu fjölda manns og 9
vélbyssur tókum vér herfangi.
í Staowronno-héraði fóru Austur-
ríkismenn yfir Nianfljótið, en voru
þar umkringdir. 18 fyrirliðar og
rúmlega þúsund hermenn gáfust upp.
Austan við Pxzenborz hjá Pilitza
tókum vér 17 fyrirliða og þúsund
hermenn höndum.
í Galizíu höldum vér áfram við-
ureigninni með ágætum árangri. Aust-
urríkismenn hafa beðið feikna mann-
tjón.
Deildir af setuliðinu í Przemysl
hafa aistaðar verið hraktar aftur inn
til vígjanfla með miklu manntjóni.
Viðureignln á Frakklandi á aðfangadaginn.
London 24. des. kl. 6.50.
Opinber frönsk tilkynning, sem
hingað kom í kvöld, segir:
Milli Lys og sjávar sóttum vér
fram með því að grafa oss neðan-
jarðargöng á sandhólunum, og hrund-
uin áhlaupum óvinanna framan við
Lombaertsyde.
Belgiskar liðsveitir hafa brotist yfir
á hægri bakka Yser sunnan við
Dixmude og komið sér þar fyrir hjá
bryggjusporði.
í Aisne-béraði hafa Zouavar hrund-
ið hreystilega af sér áhlaupum óvin-
anna í allan dag og héldu skotgryfj-
um Þjóðverja hjá Suisaleine-veginum,
er vér höfðum tekið 21. þ. mán.
í Champagne-héraði sóttum vér
fram á ýmsum stöðum í gærdag og
treystum stöðvar vorar i Craonne-
héraði og hjá Rheims.
Norðvestan við Mesuil les Hurreus
tókum vér 400 metra Inngar skot-
grafir óvinanna og hrundum gagn-
áhPupum.
í La Grurieskógi í Argonnehéraði
unnum vér á.
í Aprenrr.ent-skógi veittist stór-
skotalið vort að ýmsum skotgryfjum
óvinanna svo þeir urðu að yfirgefa
þær.
í Woevre-héraði þaggaði stórskota-
lið vort niður í stórskotavígjum
óvinanna. Norðaustan við St. Die
var góð framsókn af hálfu fótgöngu-
liðs vors og kom það sér fyrir á svæði
því, er það hafði unnið.
Rússar tilkynna sigra.
London, 25. des. kl. 11.45 f. h.
Rússneska herstjórnin tilkynnir,
að Rússar hafi alstaðar verið sigur-
sælir í gær. Greinilegasta sigra
unnu þeir hjá Nidafljóti og hjá
Dunajetz og í Karpatafjöllum.
Milli neðri Weichsel og Pilitza
gerðu Þjóðverjar alvarlegar tilraunir
til þess að komast yfir árnar Bzura
og Rawka í þeim tilgangi að kom-
ast til Skiernewice. Með gagnáhlaup-
um ráku Rússar óvinina öfuga yfir
árnar aftur til eldri vígstöðva þeirra,
og unnu þeim hroðalegt tjón. í
Skiernewice-héraði einu voru taldir
1000 dauðir Þjóðverjar.
Rússar sóttu fram í Opoczno-
héraði.
Sunnan við Veichsel í Galizíu
tóku Rússar 66 fyrirliða, 3600 her-
menn, 3 fallbyssur og 10 vélbyssur,
dagana 20. og 21. þ. m.
í Karpatafjöllum tóku þeir enn-
fremur 30 fyrirliða og 1500 her-
menn, meðan þeir hröktu Austur-
ríkismenn aftur á bak.
Nálægt Przemysl gerðu Austur-
ríkismenn nýjar útrásar tilraunir en
biðu ósigur. Framvörðum óvinanna
var gereytt.
Frá Egyptalandi.
Herstjórninni í Egyptalandi hafa
verið fengin umráð yfir sjúkraflutn-
ingalestum, fyrir örlyndi Rauð-
krossa-félagsins egypzka, sem veitti
1000 sterlingspund í þessu augna-
miði.
Þýzk flugvél yflr Dover.
Þýzk flugvél sást yfir Dover i
dag og varpaði niður sprengikúlum.
Ein sprengikúlan kom niður í húsa-
garði manns nokkurs og sprakk þar,
en gerði ekkert tjón. Brezkir flug-
menn eltu óvininn þegar i stað,
en mistu sjónar á honum i þoku.
Rússar skjóta á Batum.
Rússneskir spengileyðar skutu á
þorp á strönd Svartahafsins sunnan
við Batum, þar sem tyrkneskt
herlið hafði verið dregið saman.
Fjórum fullhlöðnum flutningabátum
söktu þeir þar.
London 25. des. kl. 6.10 sd.
Eftirfarandi opinber frönsk til-
kynning var send út síðdegis í dag:
í Belgíu hafa við og við orðiö stór-
skotaliðsorustur. Frakkar sóttu dá-
litið fram í nánd við Vernelles og
fyrir norðaustan Albert og tóku
þorpið La Boiselle. Vér höfum haft
dálítinn framgang fyrir norðan Roye,
í nánd við Lihons. Þessi áhlaup
hafa verið gerð af miklum móð og
höfum vér alstaðar unnið á.
Fyrir sunnan Oise, í héruðunum
Ailly og Plateau Nouvrou, hefir
stórskotalið vort skotið á varnargarða
óvinanna.
í nánd við Berry au Bac höfum
vér haft dálítinn framgang og áköf
gagnáhlaup óvinanna hafa algerlega
mishepnast. Fyrir norðan Mesuil
les Hurlus tókum vér skóg, þar sem
óvinirnir höfðu góðar varnir, skamt
fyrir austan þær skotgryfjur, sem lið
vort hafði nýlega tekið. Á þessu
svæði höldum vér nú allri fyrstu
varnarlínu óvinanna. í Argonne
höfum \ér sótt fram í Bois de la
Grurie við Bagatelle Fontaine Ma-
.dame og hjá St. Hubert. Fimm
áhlaupum. óvinanna hefir verið hrund-
ið. í Apremontskóginum hefir stór-
skotalið vort neytt óvinina til þess
að yfirgefa nokkrar skotgryfjur. í
Neðri-EIsass höfum vér sótt 1500
metra fram frá Cirey les Vesouge.
London 26. des. kl. 2 sd.
Rússneska stjórnin tilkynnir þ. 25.
þ. m. að engin breyting hafi orðið
á vinstri bakka Weichselfljóts eða í
Galiciu. Það var sókn af hálfu
Þjóðverja aðfaranótt 24. og allan
daginn, einkum í héröðum við Soc-
haczen cg Bolinow, en þeim var
hrundið og þeir biðu mikið mann-
tjón. Orusta heldur áfram á bökkum
Pilicafljóts.
London 26. des. kl. 2.13 sd.
Opinber frönsk tilkynning, send
út að kvöldi þ. 25. des. segir að
bandamenn} hafi haft dálitinn fram-
gang við Nieuport. Áhlaupum óvin
anna við Lena var hrundið. í mprg-
un tókum vér skotgryfju í nánd við
Puisaleis og héldum þar velli, þrátt
fyrir áköf gagnáhlaup óvinanna. I
gærkvöldi voru óvinirnir hraktir í
Vogesafjöllum við Téte de Faux.
Frökkum veitir betur.
London 26. des. kl. 8.5 síðd.
Opinber frönsk tilkynning send
út síðdegis í dag hljóðar svo. í hér-
aðinu við Perthes þaggaði stórskota-
lið vort niður i fallbyssum óvinanna,
sem skutu á skotgryfjur, sem lið
vort hafði nýlega tekið. í efri-
Elsass hafði lið vort góðan framgang
í dag. Við Sernay komumst vér að
gróðrarstöðum á hæðum fyrir vestan
bæinn. Vér höldum enn þessum
aðstöðum vorum, þrátt fyrir mörg
gagnáhlaup. Vér tókum lítinn skóg
við Aspach le Bas og hæðirnar sem
gnæfa yfir Carspach að vestanverðu.
Öllum öðrum áhlaupum óvinanna
hefir verið hrundið.
Rúsear vinna á.
London 27. des. kl. 11,45 árch
Frá aðalherbúðum Rússa er til-
kynt, að engin veruleg breyting hafi
orðið vestan við Weichsel. Milli
Neðri-Weichsel og Pilicza er ekki
barist eins ákaft og áður nema í
héraðinu meðfram Pilicza, þar stend-
ur enn grimm orusta. Hjá Neðri-
Nida er barist við Austurríkismenn
sér í lagi. Rússar tóku þar til fanga
68 foringjar og um 4000 liðsmenn
þ. 24. þ. m.
Viðureignin í Galicíu gengur al-
staðar Rússum í hag.
Rússar taka fanga.
Gifurlegur ósigur Austurrikismanna.
London 28. des. kl. 12,05 sch
Frá aðalherstöðvum Rússa er til-
kynt:
Orustan í gær milli Bzura og
Rawka var eingöngu stórskotaliðs-
bardagi. Oss tókst að hrinda af oss
áhlaupum Þjóðverja.
Að kvöldi 25. þ. m. ráku Rússar
Austurríkismenn úr Wislica við
Neðri-Nida og yfir ána. 25. þ. m.
brutu Rússar Austurríkismenn á bak
aftur milli Tuchow og Lupeny.
Þar tóku Rússar 10 vélbyssur,
43 foringja og liðlega 2500 manns.
Næsta dag eltu Rússar Austurríkis-
menn,*sem hörfuðu undan, og tóku
þá ennfremur 8 vélbyssur og um
1000 fanga og settust að á vinstri
bakka Biala.
Hjá Dukla voru Austurríkismenn
hraktir frá síöðvum sínum milli Dukla
og Zmigrod og hörfa nú óðfluga
undnn.
í siðustu orustum i þessu héraði
hafa Austurrikismenn beðið geysilegt
tjón og skiidu eftir 10,0000 fanga í
höndum Rússa.
Framsókn bandamanna.
London 27. des. kl. 5,30 síðd.
Eftirfarandi opinber frönsk tilkynn-
ing var gefin út siðdegis í dag:
Frá sjó og til Champagne-héraðs-
hefir ekkert gerst til tiðinda.
Hjá Perthes gerðu fjandmennirnir
ákafa skothríð á skotgrafir, sem þeir
höfðu mist, og reyndu að taka þær
með fótgönguliðsáhlaupi, en þeir
voru þegar brotnir á bak aftur.
Vér höium unnið dálítið á fyrir
sunnan St. Hubert, þar náðum vér
eitthvað 200 metra svæði. Óvinirnir
yfirgáfu nokkrar skotgrafir er voru í
gjá-
Milli Meuse og Moselle hrundum
vér af oss tveim áhlaupum Þjóðverja.
Loftskip kastaði 10 sprengikúlum
á Nancy. Ekkert gagn var að því
frá hernaðarlegu sjónarmiði. Flug-
vélar vorar hafa kastað sprengikúl-
um á loftskipaskýlin hjá Frescaty,
nálægt Metz.
í Efra-Elsass hefir lið vort sótt
fram á hæðunum hjá Cernay.
Sjóorusta hjá Helgolandi.
Barist f lofti og legi.
Brezkir flugmenn ráðast á þýzk herskip.
London, 27. des.
Flotamálastjórnin kunngerir, að
25. þ. m. hafi þýzk herskip legið
fyrir atkerum á Schillig höfn fyrir
framan Cuxhaven og réðust þá 7
brezkir loftbátar (seaplanes) á þau.
Árásin byrjaði i dögun og var
lagt upp við Helgoland. Létt beiti-
skip, tuudurbátaspillar og kafbátar
fygldu loftbátunum. Undir eins
og Þjóðverjar á Helgoland sáu
þessi skip, réðust út á móti
þeim 2 Zeppelinsloftför, 3 eða 4
loftbátar og nokkrir kafbátar. Brezku
skipin urðu að bíða þar í nánd til
þess að taka á móti flugmönnunum
er þeir kætnu aftur. Tókst nú sjó-
orusta milli alira nýjustu beitiskipa
ögru megin og loftbáta og kafbáta
hinu megin. Með því að sigla hratt
tókst vorum mönnum að komast
hjá kafbátunum og 2 Zeppelinsloft-
skipum veitti Undaunted og Arethusa
létt að stökkva á flótta með fallbyssu-
skotum. Loftbátum óvinanna tókst
að kasta niður sprengikúlum nálægt
skipum vorum, en hittu ekkeit
þeirra.
Brezku skipin biðu 3 klukkustundir
við strendur óvinanna án þess væri
ráðist á þau af ofansjávarskipum og
og tóku á móti 3 flugmönnum og
loftbátum þeirra óskemdum. Aðra
3 flugmenn tóku kafbátar, er látnir
voru bíða eftir þeim, eins og ráð
hafði verið gert fyrir. Loftbátum
þeirra var sökt.
Sex flugmenn af sjö komust þann-
ig heilu og höldnu heim. Loftfarar-
foringinn Francis E. T. Hewlett er
ekki kominn fram. Loftbátur hans
sást nauðuglega staddur eitthvað um
8 mílur frá Helgoland og menn vita
ekki hver hafa orðið örlög þessa
djarfa og kæna loftfara.
Menn geta ekki-metið hvern skaða
sprengikúlur brezku flugmannanna
hafa gert, en þeim var öllum kastað
niður á staði sem hafa hernaðarlega
þýðingu.
í flugvél yfir Brussel.
Síðastliðinn fimtudag fór flug-
sveitarforingi Davies til Brússel 1
flugvél til þess að kasta 12 sprengi-
kúlum á loftskipaskýli, sem sagt var
að í væri þýzk Perseval loftskip:
Átta sprengikúlum var varpað niður í
byrjun árásarinnar og halda menn að 6
þeirra hah hitt markið, en hinum var
varpað niður á leiðinni heim. Það var
ekki hægt að sjá hve mikið tjón
sprengikúlurnar unnu, með því að
reykjarmekki lagði upp úr skýlinu.
2 blöð koma út af Isa-
folcl í dag, nr. 1 og 2.
Reynið Boxcalf-svertuna
,Sun6
og þér brúkið ekki aðra skósvertu
úr því.
Fæst hvarvetna á íslandi hjá kaup
mönnum.
Kuchs litarverksmiðja *
Kaupmannahöfn.
f m