Ísafold - 02.06.1915, Síða 1

Ísafold - 02.06.1915, Síða 1
Kemur út tvisvar i viku. Yerð árg. 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1V8 dollar; borg- ist fyrir miðjan júlí erlendis fyrirfram. Lausasala 5 a. eint. L Uppsögn (skrifL) bundin yið áramót, er ógild nema kom- in sé til útgefanda fyrir 1. oktbr. og sé kaupandi skuld- laus við blaðið. XLII. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 2. júní 1915. 40. tölublað Alþýöufél.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9 Borgaratjóraskrifstofan opin virka daga 11—8 og 5—7 Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og 4—7 Bæjargjaldkerinn Lanfásv. 5 kl. 12—8 og 5« íslandsbanki opinn 10—21/* og 51/*—7. K.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 árd.—10 siðd. Alm. fundir fid. og sd. 81/* siðd. Landakotskirkja. Guðsþj. 9 og 6 á helgum Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn 11-21/*, 51/*—6'/*. Bankastj. 12-2 Landsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—8 Landsbúnaðarfélagsskrifstofan opin frá 12—2 Landsféhirðir 10—2 og 5—6. Landsskjalasafnið hvern virkan dag kl. 12—2 Landsslminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. Uáttúrugripasafnið opið l1/*—21/* á sunnud. Pósthúsið opið virka d. 9—7, sunnud. 9—1. Bamábyrgð Islands 10—12 og 4—6 Btjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsimi Reykjavíkur Pósth,3 opinn daglangt 8—10 virka daga, helga daga 10—9. Vifilstaðahælib. Heimsóknartimi 12—1 l»jóðmenjasafnið opið sd., þd. fmd. 12—2, Nafnstuldur. Margt ber við skrítið á þessum tímum í stjórnmálunum. Einn af skrítnustu viðburðunum var það, þeg- ar minni hluti flokksstjórnar Sjálf- stæðisflokksins tók sig til á dögun- um og ætlaði að reka meiri hlut- ann, en heyktist á þegar þeim herr- um var sýnt fram á vitleysuna í þessu. Nú ólmast þeir með bæxlagangi miklum og vilja reyna að telja fólki trú um, að þessi »ráðstöfun< væri á viti bygð. Meðal annars vilja þeir nú halda því fram, að þeir séu gild- ari meðlimir flokksstjórnarinnar en hinir. En eins og s'kýrt er frá annars- staðar í blaðinu er sú staðhæfing ekkert annað en blekkingartildur. Þeir eru, þessir herrar, að prédika það syknt og heilagt, að peir séu Sjálfstæðisflokkurinn. Þeir vilja telja raönnum trú um, að peir hafi fylgi allra Sjálfstæðismaona í pörum sin- um. En því fer mjög fjarri að svo sé. — Um þingmenn Sjálfstæðisflokksins er það að segja, að oss er eigi kunn- ugt að nokkur þeirra utan sjömenn- inganna fylgi þeim að málum, nema ef væri bróðir Sig. Eggerz, gamall Heimastjórnai;maður. Aftur hallast tnikill meiri hluti hinna þingmannanna, sem vér höfum heyrt um, eindregið að máli þrímenninganna, og öðrum dettur eigi í hug að hallast að því, sem Vog-Bjarna-comp. hefir tekið upp. Um kjósendur höfum vér frétt líkt víða um landið. Þeir eru alger- lega fráhverfir stefnu Vogbjarnacomp.: að berjast gegn öllu og gera ekki neitt. Enda munu einhverjir sjö- menninganna hafa fengið þau kveðju- orð úr kjördæmum sínum, að þeir munu eiga bágt með að staðhæfa, að kjósendur fylgi þeirra pólitík. Hér í Reykjavík hefir þeim tekist að fá nokkra menn á sitt band; hefir það verið gert með taumlausum blekk- ingum og skröksögum um það, sem í uppástungum þrímenninganna fel- ist, skákandi í því skjólinu, að þeir geti eigi varið sig fyrir álygunum, vegna þagnarskyldu sinnar. Á meðan menn halda að þessir menn skýri þeim satt frá, er eigi að furða þótt þeir kunni að áfellast þri- menningana að einhverju leyti. — Kjósendum, sem ekki er kunnugt hvað hér er um að ræða, er ekki láandi þótt þeir séu einhverjir, sem standa í þeirri meiningu, að það sé eigi tilbúningur einn, sem í þá er borið nótt og nýtan dag af mönn- um, sem atti að vera hægt að trúa. En þegar sannleikurinn kemur allur í ljós, mun vera óhætt fyrir Vog- bjarnacomp. að framseija bú sitt til þrotabúsmeðferðar. Eitt af því sem Vogbjarnacomp. gasprar mest um er það, að peir standi sem merkisberar Sjálfstæðis- stefnunnar, þeir haldi fram stefnu flokksins, en hinir hafi svikið hana. Þetta er ein af ófyrirleitnustu blekk- ingartilraununum. Það hefir áður verið sýnt fram á, að þeir hafa allir vikið jrá slefnu peirri, sern Sjálýstœðisjlokkurinn hafði á siðasta pinqi um jyrirvarann. Og hvernig hafa þeir haldið við stefnu flokksins að öðru leyti ? Vér skulum taka hér tvö dæmi: I stefnuskrá flokksins, sem birtist í Isafold 8. október 1913, og með- al annara standa undir nöfn Ben. Sveinssonar, Björns Kristjánssonar og Skúla Thoroddsen segir um stjórnarskrármálið þetta: »Enda þótt ágreiningur geti að sjálfsögðu verið um einstök atriði þessara breytinga, þá teljum vér þó fengnar með þeim svo miklar réttar- bætur, að eigi beri að tefla málinu enn í tvísýnu, sérstaklega þar sem svo margt annað af bráðnauðsynleg- um umbótum bíður úrlausnar og þarf á öllum tímum og kröftum þings og þjóðar að halda, óskiftum. Teljum vér þvi sjálfsagt, að stjórnar- skrárfrumvarp síðasta þings verði samþykt óbreytt á aukaþinginu*. Þetta var svo gert og sleginn var- nagli við þvi, sem þinginu þótti at- hugavert við staðfestingarskilyrði konungs. Þegar svo virðist mögu- leiki á að komast út úr deilunni við konungsvaldið á oss fulltryggan hátt, hvað gera þá þessir menn ? í stað þess að fyl%ja, stefnu flokksins og efna loforð sín við kjósendur sína, berjast þeir öllum árum fyrir því að ajstýra því að út úr deilunni verði korr.ist, og vilja »tefla málinu í tví- sýnu«, já, enn meira, verða stjórnar- skránni að qrandi. Og svo ætlast þessir menn til að þjóðin trúi þeim fyrir að halda uppi stefnu Sjálfstæðisflokksins ! í 5. gr. i sömu stefnuskrá segir svo: »Það teljum vér grundvöll undir öllu heilbrigðu stjóruarfari } landinu, að heimtuð sé fulikomin ráðvendui og réttlæti af öllum þeim, er með umboð þjóðarinnar fara, em- bættismönnum sem öðrum, og full- um lagajöfnuði sé haldið uppi fyrir æðri sem lægri. Að því viljum vér vinnac. Þegar svo ráðherra fer að reyna að gera gott úr forsómun þeirri, sem verið hefir á þessu atriði, og fer að skerpa eftirlitið með nokkrum em- bættismönnum og koma á reglu um fjárgreiðslur þeirra í landssjóð, þá ráðast þessir menn á hann með níð- andi og lítilsvirðandi orðum fyrir þessar ráðstafanir. Hann er lítils- virtur af þeim fyrir að jramkvama einn aðalliðinn i stefnuskrá jiokksins. Og svo ætlast þessir menn til að þjóðin trúi þeim fyrir að halda upp stefnu Sjálfstæðisflokksins! í ritstjórnargrein í sama tbl. ísa- foldar, sem ávarpið birtist, er merg- urinn í stefnuskránni taiinn: stilliles; sjáljstœðisstefna. Um það, að stefn- an ætti að vera sú, voru allir ein- huga. Nú bjóða þessir menn þjóðinni upp á þá stefnu, að berjast með æs- ingum og blekkingum gegn sinni eigin stefnuskiá og láta standa sig að því að vilja ?era ekki neitt. Ög svo ætlast þessir menn til að þjóðin trúi þeim fyrir að halda uppi stefnu Sjálfstæðisflokksins! Nei, pessir menn $eta ekki haldið uppi þeirri stefnu. Og um suma þeirra má óhætt fullyrða að þeir hafa verið flokknum manna óparjastir, en verið þoldir í flokknum vegna þess, að þeir hafa þózt fylgja stefnu flokksins — í munninum. Margt skrafið má eftir þá tína, en enqin verk. Að þeir vilji ræna merki æriegrar og góðrar stefnu til óláta sinna er máske skiljanlegt. En pjóðin er heil- brigð í hugsunarhætti sínum og hefir eigi gleymt máltækinu: »Oft er flagð undir fögru skinnic. Hversu vel sem þeir reyna að hylja nekt sína undir skinninu, mun þjóðin ekki láta glepja sér sýn. Undanhald sjömenn- inganna. Þvi er nú haldið fram af ýmsum, að síðasta þing hefði átt »að setja aftur inn« í stjórnarskrána orðin »í rikisráðic. Þá hefðum vér komist fram hjá öllum torfærum með hana. Staðfesting myndi þá hafa fengist orðalaust. Þeir sem þessu halda fram, gæta þess ekki, að með þessu varð alls ekki komist hjá þvf að gefa út fyrir- vara um ríkisráðssetu ráðherrans. Þeir gæta þess ekki, að umræðurn- ar í ríkisráði 20. okt. 1913 hefðu þá staðið án mótmæla, og þá hefði — með réttu — orðið litið svo á, sem alþingi hefði fallist á þær skoð- anir, sem þar komu fram. Það er með öllu óskiljanlegt, að þeir menn, sem nú halda þvi fram, að stjórnarskráin megi ekki staðfest- ast, nema konungur (Danir þá um leið?) viðurkenni beint, að uppburð- ur mála vorra fyrir konungi sé ís- lenzkt sérmál, skuli um leið prédika það, að petta hafi verið eina bjarg- ráðið — að setja orðin aftur inn — eða var pá ekki þörf neinnar beinn- ar viðurkenningar? Því var slegið föstu af konungi og forsætisráðherra Dana í ríkisráði 20. okt. 1913, að íslendingar gætu ekki ákveðið neitt um uppburð »sér- málanna* nema með samþykki Dana. Varð á nokkurn hátt komist hjá að mótmæla því? Var oss ekki jafn- nauðsynlegt að fá Dani til að falla frá þeirri kenningu, hvort sem ríkis- ráðsákvæðið var sett inn i stjórnar- skrána aftur eða sérstakan konungs- úrskurð ? Hver er munurinn? Munurinn er sá, að ef þingið hefði sett ákvæðið inn aftur mót- mæla- og athugasemdalaust, þá hefði það þar með viðurkent réttleysi sitt til þess að ákveða nokkuð um flutn- ing islenzkra mála fyrir konungi — án samþykkis Dana, og þar með gengið inn á dönsku skoðunina. Hvort sagt er að »setja innc eða að »hætta við að fella burtc ríkis- ráðsákvæðið, gildir einu — og það þýðir ekkert að fara í felur á bak við orð í þessu efni. Það vita allir, að ekkert hégóma-atvik getur komið þinginu til þess að »hætta viðc að framkvæma verk, sem hefir staðið á stefnuskrá hins ráðandi flokks í 10 ár — o& báðir flokkar loks orðið sam- mála um að aiskileqt vœri að jram- kvœma. En ef þingið hefði látið ríkisráðs- fundinn 20. okt. eins og vind um eyrun þjóta og samþykt stjórnar- skrána óbreytta, þá hefði þó mátt halda því fram, að orð og ummæli téðs ríkisráðsfundar væru marklaus og oss óviðkomandi — hversu hald- gott sem það hefði orðið. En lítil bót hefði orðið að bjarg- ráðinu þvi, að setja aftur inn ríkis- ráðsákvæðið. Þingið 1914 varð að halda fast við þá stefnu, sem upp var tekin 1913 og um leið mótmæla ríðisráðs- fundinum 20 okt., eins og gert var. Og það er rétt, sem Sig. Eggerz heldur fram, að ef konungur hefði staðfest stjórnarskrána 30. nóv. orða- laust, eftir að hafa heyrt fyrirvaraDn, þá hefði hann um leið fallið frá dönsku skilmálunum frá 20. okt. En þar sem konungur hélt fast við þessa dönsku skilmála, með því að halda fram auglýsingunni til Dana, þá var það rétt af Sig. Eggerz að neita að skrifa undir staðfestinguna. Um þetta eru allir sjálfstæðismenn sammála. En svo virðist sem leið- irnar ætli að skilja, þegar á að fara að tala um lausn deilunnar við Dani. Það virðist svo sem Sig. Eggerz, og þeir sem honum fylgja að mál- um, álíti fað beztu lausn, að láta deilumálin falla niður. Sigurður mun hafa gert ráð fyrir að verða ráðherra áfram — 'ætlað þinginu 1915 að fela sér embættið aftur og þá þózt geta tekið við því á ný, þrátt fyrir það þótt hann væri bú- inn að segja því af sér vegna sund- þykkis við konung. Með öðrum orðum: Sig. Eggerz ætlaði að stýra þinginu til undanhalds eftir stjórnar- skárósigurinn 30. nóv. — og biðj- ast friðar af konungsvaldinu.1) Þetta mundi í hverju öðru þing- ræðislandi vera álitin ótæk lausn. hnflnn ráðherra mundi láta sér koma til hugar að taka ajtur við cmbœtti af konungi, nema pví að eins að kon- ungur hejði látið undan og enginn þingmeirihluti mundi taka í mál að styðja nokkurn ráðherra, nema því ’) Að Sig. E. hefír gert ráð fyrir því, að halda ráðhenaembættinu, má ráða af því að hann auglýsti ekki sýslumannsembættið i Borgarfjarðar- sýslu fyr en um leið og hann fór frá völdum. að eins að konungur færi að vilja flngsins. En svo er að sjá sem sjömenningarnir telji þetta góða ís- enzku i Þrimenningarnir fullyrða að hægt sé að fá fyrirvara þingsins fullnægt, og þeir vilja gera sitt ítrast til þess að það fáist. X. Gullfossi fagnað. Erindi þau, sem hér fara á eftir, lefir Hannes Blöndal ort. Færði hann Gullfossi ljóðið á sunnudag og hafði Samúel Eggertsson skrautritað, en Stefán Eiríksson hinn oddhagi hafði skorið umgjörðina mjög hag- lega og Jón Haldórsson trésmiður felt hana saman. Lagið við erindin er: Þú stóðst á tindi Heklu hám. Velkominn Guilfoss hingað heim þig hylla íslands vættir góðar! Þér fagna hjörtu heillar þjóðar, því vona fylling þú ert þeim. Þú ert vort fremsta framamerki, vort frægsta tákn um dáð í verki. Þin koma boðar landsins lýð að ljómi’ af nýrri og betri tíð. Sigl þú nú heill um höfin blá til heilla vorri þjóð og landi. Hamingjudís við stjórnvöl standi, og hættum öllum hrindi frá. Þú ætíð skyldir á það minna: ef allar hendur saman vinna þá fyrst má verða gaían greið og Grettistökum velt úr leið. H. S. B. Ýms erl. tíðindi. Breyting á brezka ráOuneytinu. Eftir því sem síðustu brezk blöð herma frá, stóð til, að foringjar ihaldsmanna, þeir Bonar Law og Balfour o. fl., tækju sæti í Asquith stjórninni, meðan á ófriðnum stæði. Edward Holrn, fyrrum háskóla- kennari i sagnfræði við Khafnar há- skóla er nýlátinn, 82 ára að aldri. Fólksþingskosning í Færeyjum. Samúelsen sýslumaður, sem verið hefir fólksþingsmaður Færeyinga sið- ust árin féll við kosningarnar 7. maí fyrir 25 ára gömlum lögfræðiskandi- dat færeyskum Edw. Mortensen. Ólafur Árnason kaupmaður lézt í Landakotsspítala i nótt kl. 3 eftir 6 daga legu. Ólafur varð 52 ára gamall. Mikill söknuður að þessum dugnaSármanni. Æfiminning kemur í næsta blaði

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.