Ísafold - 03.07.1915, Side 4
4
ISAFOLD
hnven. Engin íkýrsla er fengin um
skaða þann, er hann hefir valdið.
Annarsstaðar gengur alt í snma
þófinu.
Viðureignin á Galiipoliskaga.
London 30. jdní.
F.ftirfarandi skýrsla frá Sir ]an
Hamilton hershöfðingja um viður-
eignina á Gallipoliskaga var birt 30.
júni:
Það ráð var tekið í dag, að þoka
áfram vinstra heravminum fyrir suð-
austan Krithia og láta hann snúast
um stað nokkurn um eina milu frá
sjónum og sækja fram hálfa mílu að
vestanverðu til þess að ná nýjum
stöðvum er sneru mót svæði því
sem vér höfutu náð í austri.
Bardaginn byrjaði kl. 9 að morgni
með ákafri skothrið frá hinum stóru
fallbyssum Frakka og Breta, en síð-
an tóku léttari fallbyssurnar við. í
skothriðinni voru margar af gaddavírs-
girðingum óvinanna eyðilagðar. Kl.
io.4B náðum vér tyrknesku vigi hjá
Saghir Dere með áhlaupi. Það hafði
lengi gert oss skráveifur.
Stórskotahríðin stóð er.n góða
stund, en síðan réðst fótgönguliðið
fram og tók þrjár skotgrafaraðir fyrir
vestan Sajhir Dere. Fyrir austan
gjána náðum vér tveim skotgrafa-
röðum, en lið vort gat ekki komist
lengra áfram hægra megin vegna
þess að Tyrkir veittu þar drengilegt
viðnám.
Klukkan 11,30 höfðum vér náð
því svæði sem vér ætluðum oss og
búist þar fyrir. En Gurkha sveitir
sóttu enn þá lengra fram og náðu
á sitt vald hæð fyrir vestm Krithia.
Sú hæð hefir rriikla hernaðarlega
þýðingu. Höfðum vér þá þokað lið-
inu fram um 1000 metra. Vér gerð-
um áhiaup á skotgrafiinar til hægri
síðari hluta dagsins, en tókst ekki
að hrekja óvinina úr skotgryfjunum.
Þeir höfðu þar margar vélbvssur og
fallbyssur til varnar.
Um nóttina gerðu Tyrkir gagn-
áhlaup en þeim var hrundið
Vér höfum náð því svæði sem
vér ætluðum oss að undanteknum
þeim eina stað, sem fyr er áminst
og auk þess komið vinstra herarm-
inum míklu lengra áfram en gert
var ráð fyrir i fyrstu.
Viöureignin í Austur Afríku.
London 1. júlí.
Svohljóðandi opinber tilkynning
var birt 1. júlí:
Nú eru komnar nánari fregnir um
viðureignina fyrir vestan Viktoria
Nyanza vatnið. Aðaláformið var að
ráðast á Bukoba bæði frá landi og
frá vatninu. Landliðið fór fyrst af
stað frá Kagera-fljótinu 30 mílur frá
Bukoba og þurfti að sækja fram yfir
fen og flóa. Hitt liðið varð að fara
á gufuskipum frá Kisumu þvert yfir
vatnið, 340 mílur.
Það þarf á góðri stjórn að halda
í slíkum leíðangursferðum, enda
reyndist og svo í þetta sinn og
tókst árásin þ. 22. júní ágætlega.
Óvinirnir veittu drengilegt viðnám,
enda höfðu þeir fengið liðsauka;
einkum börðust Arabar hraustlega.
Að lokum brast flótti í lið óvinanna
og flýðu þeir þá óðfluga. í húsi
yfirforingja Þjóðverja fundu menn
herfána Múhamedsmanna. Sá fáni
var saumaður í Norðurálfunni.
Engar skemdir urðu í bænum
nema á þeim húsum sem viggirt
voru og á öðrum varnarvirkjum.
Lord Kitchener símaði til Tighe
hershöfðingja, sem stjórnar liði Breta
í Austur-Afríku, og óskaði honum
til hamingju með sigurinn og bað
hann færa Stewart undirhershöfðingja
og liði hnns þakkir fyrir þann þiit,
sem það átti í sigrinum.
Erl. slmfregnir
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Kaupmannahöfn, I. júli
Þjóðverjar og Austurrikismenn
hafa vaðið inn í Kússland norðan
við Lemberg.
Svartfellingar hafa tekið Skutari.
Rússneska þingið (duman) hefir
verið kvatt saman.
Fregnin um það, að ítalir ætli að
taka þitt í herferðinni gegn Tyrkj-
um, er enn eigi staðfest opinbeilega.
Kaupmannahöfn 2. júlí.
ítilir he j i sókn hjá Insonzo.
Þýzkur tunduibátaspillir hefir sokkið.
Rússar hörfa undan í Galiz'u og
Suður Póllandi.
Kaupm.höfn, 3. júli.
Áhlaupum Ilala hjá Isonzo hrundið.
Sjóorusta hefir staðið hjá Gotlandi
(milli Þjóðverja og Rússa) en mslit
hennar ókunn.
Bretum miðar áfram hji Hellu-
sundi.
Bókarfregn.
Iðunn, hin nýja, er komin, 1.
bindið. Fer vel úr hlaði. Efni
margbreytr, lipurt og létt.
Guðm. Geðmundsson skáld ríður
á vaðið íheftinu mð sumailjóð þau,
er leikin voru í Iðnaðarmannahúsinu
á sumardaginn fyrsta. Þýðingar eru
þar eítir Agúst H. Bjarnason og
Einar Hjörleifsson. Auk þess ritar
Agúst tvær frumlegar ritgerðar:
»Lífið liðandi stund« og »Heims-
myndin nýja«. fón Ólafsson byrjar
á »Endurminningum æfintýramanns*
og ritar og um fleira. Kvæði er
þar eftir fakob Thorarensen, ritfregn-
ir eftir Ágúst og Jón o. s frv.
Skósmiður.
A Hellissandi undir Jökli er eng-
inn skósmiður, en nægileg atvinna
væri þar fyrir 1 skósmið. Væri þvi
æskilegt ef einhver, sem þann starfa
stundar, og er vel að sér í iðn sinni
flytti þangað Bezt að hann gæti
stundað sjó ef þyrfti.
Til þess að fyrirbyggja að fleiri
en 1 skósmiður flytti á Sand, geta
lysthafendur snúið sér til Daniels
Bergmann verzlunarstjóra þar, sem
fúslega gefur upplýsingar.
Nýtfzku dans!
Ef nógu margir þátttakendur gefa
sig fram, kennir undirritaður nýtízku
dans i Reykjavík í sumar, svo sem
Boston parisien, One Step, Fishwalk.
Leblond.
(Fullnuma í París og dansskóla pre-
mier-lautinants Svaes í Kristianíu).
Listi liggur frammi i Bókverzlun
ísafoldar.
Aggerbecks Irissápa
or óvUt.i«inanleg» gó® fyrir hiiftina. Uppihald
allra kvenna. Bezta ftarnasápa. Bfftjift kanp-
menn yftar nm haca.
Brúkuð góð skilvinda til
sölu fyrir hálfvirði. Semja má við
söðlasmið Markús Þorsteinsson Frakka-
stíg 9.
ísafold.
Nýir kaupendur að
41. árgangi ísafoldar (1915) fá i
kaupbæti, um leið og þeir greiða
andvirði árgangsins (4 kr.) 2 af
neðantöldum 3 bókum eftir frjálsu
vali:
1. Fórn Abrahams (éoohls.)
eftir Gustaf Jansson.
2. Heljargreipar (280 bls.)
eftir Conan Doyle.
3. Mýrakotsstelpuna og
Guðsfriðinn eftir Selmu Lagerlöf
í þýðingu Björns heit. Jónssonar.
Nýir kaupendur utan Reykjavíkur,
er óska sér sendan kaupbætirinn —
verða að greiða í burðargjald 30 au.
Ella eru menn vinsamlega beðnir
vitja kaupbætisins í afgreiðslunni.
A 11 i r viðurkenna, jafnt stjórn-
mála-andstæðingar sem aðrir, að
ísafold sé fjölbreyttasta og efnismera
blað landsins, pai blaðið, sem ei%i ei
hœi’t án að vera — það blað, sem
hver íslendingur verður að halda, er
fylgjast vill með í því, er gerist utan-
lands og innan í stjórnmálum, at-
vinnumálum, bókmcntum og listum
Talsími 48.
Til hægðarauka geta menn
út um land sent andvirðið í fri
merkjum.
ísafold er -blaða bezt.
ísafold er fréttaflest.
ísafold er lesin mest.
Þrátt fyrir verðhækkun á efni
selur Eyv. Árnason
lang ódýrastar, vandaðastar
og fegurstar
Líkkistur.
Lítið á birgðir mínar og sjáið mis-
muninn áður en þér festið kaup
annarsstaðar.
Sími 44.
Æskan
barnablað með myndum.
Afgreiðslustofa: Pappírs & ritfanga-
verzlunin á Lauqavegi 19 Reykjavík.
P. O. Box 12. Talsími J04.
Elzta, bezta, ódýrasta og útbreidd-
asta barnablað á íslandi. Kostar 1
kr. 20 au. árg. 12 blöð (8 siður hvert)
og auk þess tvöfalt jólablað skraut-
prentað. Nýir kaupendur og útsölu-
menn fá sérstök hlunnindi.
The North British Ropework Co.
Kirkcaldy
Contractors to H. M. Government
búa til
rússnesfear og ítalsfear
fisfeilínur og færi
alt úr bezta efni og sérlega vandað.
Fæst hjá kanpmönnum.
Biðjið því ætíð um
Kirkcaldy fiskilínur og færi,
hjá kaupm. þeim, er þér verzlið við,
og þá fáið þér það sem bezt er.
Nærsveitamenn
eru vinsamlega beðnir að vitja
Isafoldar í afgreiðsluna, þegar
þeir eru á ferð í bænum, einkum
Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem
flytja mjólk til bæjarins daglega.
Afgreiðslan opin á hverjum virkum
degi kl. 8 á morgnana til kl. 8 á
kvöldin.
á hvítri og misSitri vorull
I Verzi. VON,
Laugavegi 55.
Hall’al DÍ8temper & Greneral Parpose Varnish að eim
húið fil hjá: SISSONS BHOTHERS & Co. LTD., Hull & Lonúon. Um
boðsmann okkar, hr. Kr. O. Skaitfjörft, verðnr að hitta I Reykjavlk
eða á Patreksfirði, sumarlangt; hanu lætnr í té fullar upplýsingar.
BER SEM GULL AF EIR AF
ÖLLUM VEGGJAFÖREUM. —
Að fegurð - af þvl að hús-
gögn og inymlir koma svo greini-
l»ga fram við hið hreinlega &
hlýlega útlit hans.
A ð li a 1 d i - af þvi að hann
setnr grjúti-harða húð á vegg-
ina ocr þá má hreinsa með þvf
að þvo léttilega úr volgu vatni.
Að hreinlæti - af því að
hann drepur allar bakteríur og
skaðleg skordýr. Borinn á með
hreiðnm pensli, sérstaklega þar
til gerðnm. — Sparar 40°/a af
vinnukostn., miðað við olíufarfa.
SlSSONS'
ENERALj|luRPOSE
ÍVRNISH
Þett.a lakk (gljá-
kvoða) er með lágu
vetði en að haldi og
útliti er það frekast
sem lakk getur orð-
ið. Það epriogur
ekki í sterkasta
sólarhita né i harð-
asta frosti, og er
jafn gljáandi í rign-
ingn sem i þuiru
veðri. Það er hald-
gott og fljótlegt íð
þvo og jafn hentugt
utanhúss sem innan.
Fæst hjá Verz!. Björn Kristjánsson og Slippfélaginu
í Reykjavík og Sigf. kaup'm. Bergmann í Hafnarfirði.
Bændur!
Biðjið kaupmann yðar um hið á<æta
Mc. Dougalls baðlyf
fri A. Gudmundsson,
2 Commercial-Street Lækjargötu 4
Leith. Reykjavík.
(Talsími 282, Pósthólf 132).
Sá sem einu sinni hefir notað þetta fjárbað, vill ekki annað upp frá því.
TJímanak 1915
ftjrir ísíenzka fiskimenn
fæsí fjjá Þóksöíum.
M i n n i ngarritið
um Björn Jónsson, fyrra bindi með mörgum myndum, er komið út og
fæst í bókaverzlunum. Verð: 1.50.