Ísafold - 18.12.1915, Síða 1
-----------------------
■> Kemnr út tvisvar
i vikn. Yerð 4rg.
4 kr., erlendie 5 kr.
eöa l‘/t dollar; borg-
iit fjrir miðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lamasala 5 a. eint.
XLII. árg.
ísafoldarprentsmiðja
Ritstjörl: Úlnfur Björnsson,
Talsimi nr.
Reykjavík, laugardaginn 18. desember 1915.
~—--------■—
Uppsðgn (skrifL)
bnndin við ár&mðt,
er ógild nema kom-
in sé tíl ntgefand*
fyrir 1. oktbr. og
sé kanpandi sknld-
lans við blaðið.
— -------s —_r .r 1
101. tölublaÖ
Al^ýDufél.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9
Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 11-8
Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og i -7
Bæjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og ó
íslandsbanki opinn 10—4.
K.P.U.M. Lest.rar-og skrifstofa 8Ard,—10 siöO.
Alm. fundir jBd. og sd. 81/* siöd.
Landakotskirkja. Guösþj. 9 og 6 á helguxn
Landakotsspítali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12.
iLandsbókasafn 12—8 og 6—8. Útlán 1—8
Lttndsbúnaöarfólagsskrifstofan opin frá 12—2
Landsféhir^ir 10—2 og 5—6.
Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—2
Landsstminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—J2 og 4—7.
NáttúrugripasafniO opið Vja—21/* á sunnud.
'PósthúsilS opió virka d. 9—7, sunnud. 0—1.
©amábyrgb Islands 12—2 og 4—6
StjórnarráOsskrifstofurnar ópnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.8 opinn daglangt
8—10 virka daga, helga daga 10—9.
Vífilstaöahæli?). Heimsóknartimi 12—1
Þjóbmenjasafniö opih sd., þd. fmd. 12—2.
H. Andersen & Sön
klæðaverzlun,
Aðalstræti 16. Slmi 32.
Stofnsett 1888.
ÞAR ERU FÖTIN SAUMIIÐ
FLEST,
ÞAR ERU FATAEFNIN BEZT.
mTETTrnTTrmmnri
Torfi I Ólafsdal.
Þá er fallið þetta vígið,
— þrotlaust geisar heims vors stríð,—
frá oss mesta höfuð hnígið,
Iiér sem varði búandlýð.
Betra spor af bændum stígið
tbirzt hefir ei um mína tíð.
Er sem dauðir gæti grátið —
grátið missi þvílíks manns.
Hvað er hringlið, fumið, fátið
fjöldans þessa strjála lands?
Bétur hefðum hundrað látið
heimalninga, en missa hans!
Lífið hans var langa æfi
landi sínu að vinna bót;
valdi fyrst hvað var við hæfi,
vildi sjá það festa rót,
þreyttist ei, þó þjóðin svæfi,
því að koma’ á styrkan fót.
Verkin hans að telja tölum
trautt eg þekki nokkurn mann;
búnað lands i bygð og dölum
bætti enginn jafnt sem hann;
meðan feitu fé vér smölum
framkvæmd hans ei gleymast kann.
Vann og eins í orði og verki,
aldrei þreyttist sál né hönd;
ótal rit og mannvitsmerki
minna á staka framtaks-önd;
vitið, dáðin, viljinn sterki
vildi greiða sérhver bcnd.
Sama snildin úti’ og inni
öllum Ijúf og hugum kær,
hvar sem hanu með húsfrú sinni
hafði ráðin, nær og fjær.
Sjaldan grær í manna minni
merkilegri rausnarbær.
Heiðrið, skáld, í skyldum óði
skörungmann í Ölafsdal,
þar sem hann með frægðarfljóði
fræddi lengi snót og hal.
Nú er ýallinn quminn qóði;
qrípi merkið bœndaval!
Matth. Jochumsson.
Erl. símfregnir
Opinber tilkynning
frá brezkn utanríkisstjórninni
i London.
French lætur af
herstjórn.
Er gerður að yfirhershðfðingja
heima fyrir.
Sir Douglas Haig tekur við herstjórn
i Frakkiandi.
London 15. des.
Sir Douglas Haig hershöfðingi
hefir verið skipaður eftirmaður Sir
John French til þess að hafa yfir-
herstjórn í Frakklandi og .Flæm-
ingjalandi.
Síðan ófriðurinn hófst fyrir 16
mánuðum, hefir Sir John French haft
ákaflega erfitt og hvíldarlaust starf
við það að stýra liði bandamanna í
Frakklandi og Flæmingjalandi, og
hefir nú, eftir eigin beiðni, verið
leystur frá þvi starfi.
Stjórn hans hátignar viðurkennir
fyllilega hið ágæta starf, sem Sir
John French hefir af hendi leyst, og
i þakklætis skyni hefir hún með sam-
þykki konungs gert hann að yfirhers-
höfðingja liðsins heima fyrir og Sir
John French hefir tekið það starf
að sér.
Hans bátign konungurinn hefir
haft þá ánægju að sæma Sir John
French aðalsmanns nafnbót.
Til Yina minna og samborgara!
í nafni mínu og minna nánustu
leyfi eg mér eftir landssið að votta
yður, vinir og samborgarar, nær og
fjær, hjartanlegustu þakkir fyrir yðar
einstöku ástúð og fágætu rausn okk-
ur til handa á 80. afmælisdegi mín-
um, 11. nóv.
Slík rausn og sæmd yfirgengur
mig svo og auðmýkir, áttræðan
mann, að mér er »tregt tungu að
hræra«, enda finst mér allur sá heið-
ur gangi langt fram verðleikum min-
um.
Hins vegar gleður mig það hug-
boð, að þessi heiður og rausn verði
hvöt og fyrirmynd meiri manna,
sem borgi fyrir sig með meiri anda-
gift og þeim skörungskap, sem mér
á mfnum dögum hefir ekki auðnast
að sýna — nema með fáum og
veikum frækornum eða útsæði.
Trúið þessu, elsku vinir! Svo og
því, að jarðves; eigum vér góðan —
ef ekki skortir sáðmennina. Trúið
því einnig, að félag vort er á fögru
framfaraskeiði.
Eg kveð svo yður með hjartans
samúðarkveðju; kveð lífið, þegar þar
að kemur, með gleði, og þó með
tárum, því það er sárt að skilja sam-
vistir við vini, þótt ekki sé nema í
næsta hús að venda.
En þótt eg sé úr sögunni, hefir
það minsta þýðing; því
»Þótt bili hendur
er bœttur galli,
eý merhið stendur
pótt maðurinn Jalli«.
JTlaííf). Jocfjumssoti.
Bændur svara,
ísafold birtir í dag tvær svargrein-
ar úr bændahóp við aðfinningum
þeim, sem bólað hefir á i blöðun-
um, við framkomu fulltrúa þeirra á
þingi.
Til ísafoldar sjálfrar taka þessi
svör ekki verulega, með því að að-
finuingar vorar beindust nær ein-
vörðungu að afskiftum þin’gbænda af
dýrtíðarmálunum i sumar, og hafa
þær enn eigi vsrið hraktar.
En vér viljum nota tækifærið til
að taka undir það, að sízt er holt
þjóðfélagi voru að til stéttarigs komi
milli bænda og kaupstaðabúa og um
leið fullyrða, að tilefni hefir eigi
verið til þess gefið af vorri hálfu,
eins og vikið hefir verið að í svar-
greinunum til Borgfirðings um dag-
inn.
Bæjarstjórnarkosningar eiga fram
að fara hór í bænum í næsta
mánuði. Kosningadagurinn ekki ákveð-
inn enn. Fimm fulltrúar ganga nú úr
bæjarstjórn. Það eru Tryggvi Gunn-
arsson, Jón Þorláksson, Arinbjörn Svein-
bjarnarson, frú Katrín Magnússon og
!oks Geir Sigurðsson skipstjóri sam-
kvæint hlutkesti á síðasta bæjarstjórn-
arfundi.
Ekkert er hljóðbært enn um, hverir
þessara fulltrúa muni gefa kost á sjer
af nyju.
Kjörstjórn við bæjarstjórnarkosn-
ingar næst skipa auk borgarstjóra,
bæjarfulltrúarnir Sighv. Bjarnarson og
Sveinn Björnsson.
Látinn er hér í bænum þ. 13. þ ra.
N. S. Bertelsen málari, roskinn að
aldri, Bertelsen var danskur að ætt,
en hafði dvalist hór í bæ undir 40 ár.
Mun hafa verið fyrsti verulega kunn-
andi maður f sinni iðn, sem hér var
kostur á.
Hann var hvæmtur Jórunni Jóns-
dóttur systur J. O. Y. heitins Jónssonar
kaupmanns og áttu þau mörg börn.
Síðustu árin var Bertelsen farinn mjög
að heilsu.
Aðkomnmenn: Sigurður Eggerz
sýslumaður.
Gnðsþjónnstnr: í fríkirkjunni: Eng-
in guðsþjónusta á morgun.
í dómkirkjunni á rnorgun kl. 12 síra
Bjarni Jónsson (altarisganga). Engin
síðdegismessa.
Sjálfstæðisfélagsfnndnr verður
haldinn í kvöld í Goodtemplarahúsinu
mr^~~ii—•.....
■
Jólaverzlunin
er langfjörugust hjá
Árna Eiríkssyni,
Austurstræti 6
Glaðnings- og Jólavörurnar,
Yefnaðar- og Prjónavörurnar,
Hremlætis- og hottavörurnar
hvergi fjölskrúðugri, ódýrari eða betri.
■
HTl...----II—......;■■ ■ IW.
Kjötkvarnir, Brauðhnífar,
Ofnhlifar
og ýms þessháttar búsáhöld, sem öllum eru nauðsynleg, geta verið
ákjósanlegnstu jólagjafir,
sérstaklega þegar þau eru keypt þar sem þau eru bezt. Að þeim þarf
ekki lengi að leita. Þau fást ávalt hjá
Jes Zimsen.
Erlendar símfregnir
frá fréttaritara tsafoldar og Morgunblaðsins.
Kaupmannahöfn 16. des.
V
Þjóðverjar virðast ætla að hetja sókn á vesturvígstöðv-
unum.
Ógrynni liðs hefir farið vestur um Luxemburg.
Viðsjár milli Grikkja og Þjóðverja af því að Grikkir hafi
látið bandamenn brjóta hlutleysi sitt.
kl. 8^/g. Á dagskrá verða: S k a 11 a-
m á 1. Olafur Björnsson ritstjóri hefur
máls og talar um: Skattastefnur
(Getum vór verlð án skatta og tolla?
Grundvallarstefnur skattalöggjafar o. s.
frv.). — Við því má búast. að skatta-
mál landsins verði mjög á dagskrá í
stjórnmálum vorum á næstunni og
ættu kjósendur að gera sór far um, að
fylgjast sem bezt með í öllum umræð-
um, er að þeim lúta.