Ísafold - 29.12.1915, Blaðsíða 1

Ísafold - 29.12.1915, Blaðsíða 1
n Kemor At tvisvar i vikn. Verð Arg. 4 kr., erlendis 5 kr. eða 1'/« dollar; borg- iit fyrir miðjan júli erlendis fyrirfram. Lansasala 5 a. eint. XLII. árg. | ísafoldarprentsmiðja Rltstjörl: Úlafur BIBrnsson. Talsimi nr. 455 Reykjavík, miðvikudaginn 29. desember 1915. Uppsðgn (skrifl.) bnndin við Araroót, er ógild nema kom- in sé til ótgefanda fyrir 1. oktbr. og sé kanpandi sknid- laus við blaðið. -« 103. tölublaö árin 1707-1709. (Frh.) En nú gat Karl konungur eigi haldið lengur og lágu margar orsakir til þess. Rússar höfðu nú tekið sér óvinnandi vígstöðvar á háls- um nokkrum austan ár sem þar er. Sænski herinn var orðinn dauðþreytt- ur af löngum göngum og nætur- vökum og auk þess voru vistabirgðir hans af skornum skamti. Hin djarfa fyrirætlun um það að fara rakleitt til Moskva, var að minsta kosti um sinn fráleit — það sá Karl konungur sjálfur í fyrsta skifti á æfinni var honum nú komin sú þraut að hönd- um, er hann var ekki fær um að leysa og í fyrsta skifti á æfi sinni varð hann nú hikandi og hugsjúkur út af því að geta eigi framkvæmt það, sem hmn hafði ætlað sér. Hann hafði fram að þessu verið vanur því að hafa sinn vilja fram hvernig sem ástatt var, en leggja sig ekki eftir at- vikunum. Þá gerðust og þau undur, að Karl XII., sem jafnan hafði farið eftir sínum eigin geðþótta og eigi spurt aðra til ráða, tók nú að spyrja herfor- inga sína um það hvað gera skyldi. A tv imur dögum kom hann tvisvar á fund Gyllenkrooks í tjaldi hans og spurði hann hvað honum sýndist um þaðhvert honum sýndist skyldi stefnt. Gyllenkrook svaraði og sagði að hann gæti ekkert til málanna lagt vegna þess að hann vissi ekki um það hverjar væru fyrirætlanir konungsins. »Eg hefi engar fyrirætlanir«, svar- aði konungur þá, en af gömlum vana hélt Gyllenkrook að konungur talaði í spaugi. Þó komst hann brátt að raun um að svo var eigi. Hann sá, að konungi var alvara; fyrir ætlanir hans höfðu orðið að engu þegar það varð ljóst að ómögulegt var að kom- ast til Moskva. Brá GyÚenkrook þá mjög í brún og svaraði hann þv að það væri ekki á sínu valdi að ráða fram úr sliku vandamáli og yrði konungar að ráðgast um það við æðsta hershöfðingjann og Piper greifa. En er konungur skýrði honum frá því að þeim væri bráðum allar leið- ir ókunnar þar syðra, lofaði Gyllen- krook því að ihuga málið og afla sér nákvæmari vitneskju um alla vegi þar i nánd. Siðan fór hann rakleitt á fund þeirra Rehnsköls og Piper ti þess að segja þeim frá viðræðum sínum og konungs. Þeir Piper og Rehnsköld höfðu lengi verið óvinir og varð nú fjandskapur þeirra ti mikillar ógæfu fyrir Svía. Rehn- sköld sagði að þá er hann hefði reynt að tala við Piper um málið, hefði hann aðeins svarað. >Það er bezt að djöfull sá, er ráðið hefir til þessa, ráði einnig framvegisf. A hinn bóginn sagði Piper að hann hefði orðið að hafa milligöngutnann til þess að ráðfæra sig við Rehnsköld Fjand- skapur þeirra hafði risið af þvi að þegar Piper hafði beðið konunginn »að hugsa sig vel um og æða ekki iram með slíkum ofmetnaði* þá íafði Rehnsköldsýnthonum fullkomna 'tilsvirðingu. Piper var alveg á sama máli og Gyllenkrook með það, að bezt mundi að halda til baka yfir 3níepr og reyna að ná þar höndum saman við Lewenhaupt eða herinn i 5óllandi. En Karl konungur mátti ekki heyra það nefnt. Þótti honum sem það mundi verða sér himinhróp-, andi skömm. En sökum þess að jað vat nú augljóst að herinn gat eigi komist til Smolensk, var ekki um annað að gera en halda suður á bóginn til Severíen og Ukraine. >ar mátti vænta allsnægta, og auk sess hafði Kósakkahöfðinginn Mazepa jrásinnis boðið Karli konungi að koma til sín, en Karl hafði ekkert skeytt um þau boð fyr. En nú, þegar í nauðirnar rak, var sá kost- urinn valinn, að fara á fund Mazepa, eigi svo mjög til þess að hjálpa hon- um, eða leita hjálpar hans — því Karl XII- var vanur því að treysta sjálfum sér og engum öðrum. En það varð að koma hernum eitthvað þangað, þar sem hann gat fundið lífsviðurværi, og í Ukraine hafði enn eigi veaið herjað. Það var nú ætl- unin, að þar skyldi herinn sitja i náðum um veturinn og halda svo norður til Moskva um vorið og njóta þá bæði styrks af upphlaups- mönnum á Suður-Rússlandi og her- sveitum þeirra Stanislásar og Krassau. Nú var ekki lengur viðlit, að leggja leiðina um Smolensk — það sést bezt á þvi, að Karl konungur skyldi hætta við það. Það sést einnig á skýrslum brezka sendiherrans í Moskva. Hann segir að keisarinn hafi fengið þýzkan verkfræðing til þess að athuga vegina milli Efri-Vinu og Efri-Dnjepr, og komist að þeirri niðurstöðu, að það mnndi ómögu- legt fyrir óvinaher að sækja þar fram, bæði vegna þess að Rússar höfðu þar mörg ágæt vígi, gerð af náttúrunnar höndum, og eins vegna hins, að landið var alt í auðn. * * * Hér hefst þá hið þriðja og siðasta tímabil í þessari herferð Karls XII. Þegar hætt var við að fara til Ple- skov og þaðan reyndist ómögulegt að komast beina leið til Moskva, átti að reyna hvort eigi mundi hægt, með tilstyrk þeirra bandamanna sem konugur bjóst við að hitta i sunn- anverðu Rússlandi, að komast þaðan i höggfæri við keisarann. Og þetta var áreiðanlega eina úrræðið, fyrst Sviar komust eigi lengra en til Ta- torsk og Karl konungur vildi eigi snúa við. En er til framkvæmdanna kom, varð Karli konungi sú regin-skyssa á, að biða ekki eftir Lewenhaupt. Honum var þó kunnugt um það, að Lewenhaupt var skamt á brott hjá Dnjepr, átti svo sem fimm dagleið- ir þangað, er sænski herinn var fyr- ir. Gyllenbrook sá glögt hver hætta gat stafað af þvi, ef Rússum tækist að komast i milli herja Svia og hann bauðst til þess að sjá hern- um fyrir nægum vistum i viku enn, ef konungur vildi biða í Tatarsk. En það var ekki við það komandi. Það er eigi gott að vita, hvernig í. að skýra »þessa óskiljanlegu blindni«, eins og einn herfræðingur hefir kom- ist að orði um þetta efni. Ef til vill hefir konungur verið orðinn leiður á þvi, að Mazepa var stöðugt að biðja hann um það að koma sér til hjálpar, og ef til vill er það satt, sem sagt er, að öfundarmaður Lewen- haupts hafi talið konungi trú um, að Lewenhaupt mundi ekki verða skotaskuld úr því, að ryðja sér braut suður um landið, og keisarinn mundi ekki þora að ráðast á hann. Ef til vill eru og enn aðrar orsakir til þess að konungur lagði svo skyndi- lega af stað frá Tatorsk, en það er óráðin gáta og verður sennilega alt af óráðin gáta. Konungur gerði sendimann á fund Lewenhaupts og bað hann hraða ferðum sem mest og fara beinustu leið til þess að ná aðalhernum. Einnig sendi hann Lagerkrona á undan sér með 4000 manns, til þess að taka vígin í Se- ve(ien. Og svo lagði hann sjálfur á stað til Tatorsk hinn 15. septem- ber og stefndi nú suður á bóginn. Þetta var upphaf ógæfu Karls conungs. Þegar hann stefndi her sinum suður á bóginn, varð langt í milli þeirra Lewenhaupts, svo keis- arinn sá sér tækifæri til að ráðast á íer hans, og það varð upphafið að linum endanlega ósigri. Það er afnan vandi að tala um það, hvern- ig mundi hafa getað farið. En manni getur þó naumast missýnst það, að Karl konungur hefði stað- ið mjög ólíkt að vígi, ef hann hefði beðið eftir Lewenhaupt, því hann hafði bæði mikinn her og gnægð af vistum. En nú lét konungur Lewenhaupt og her hans sigla sinn eigin sjó fram í opinn dauðann, og síðan rak hvert óhapp- ið annað. Þegar konungur var rétt kominn suður yfir ána Soz fékk hann þær fregnir, að Lagerkrona, sem var alls eigi því starfi vaxinn er honum hafði verið falið, nefði vilst og síðan vanrækt að ná hinu sterka vlgi Starodub nógu snemma, svo að rússneska hershðfðingjanum Ifland tókst að senda þangað öflugt hjálparlið. Gyllenkrook hafði og ráðið konungi frá því að velja Lager- krona til þessarar farar og benti á fjóra aðra herforingja, sem voru miklu hæfari honum, en konungur hafði mikið dálæti á Lagerkrona og lét hann þvi fara. Um vigið Nov- gorod Severskj fór líkt og um Staro- dub. Svíar komu of seint þangað. Rússum hafði því tekist að ná fót- festu i Severien áður en Karl kon- ungur kom þangað og með því var för Lagerkrona orðin til einkis, þv. hún var gerð til þess að ná góðum vígstöðvum og á þann hátt komið i veg fyrir það, að Rússar eyddu bygðina. Rétt á eftir kom og sú harmsaga að keisarinn hefði ráðist á Lewen- haupt með ofurefli liðs milli Dnjepr og Soz og unnið sigur á honum 29. september eftir blóðugan bardaga. Orusta sú stóð i nánd við Lesna og varð Lewenhaupt að yfirgefa fall- byssur sinar og vistaforða og fara undan á flótta yfir ár og ófærur með leyfarnar af her sinum, þangað til hann náði konunginum. Öll aerför Lewenhaupts hafði og verið mjög á huldu. Þegar hann kom á l und konungs vorið 1708 i Radosz- cowice, voru honum að eins gefnar l’yrirskipanir til bráðabirgða, en hann :’ékk enga vitneskju um það hvernig lerförinni átti að haga. Hann fór )á til Liflands og i öndverðum júnimánuði fékk hann svo skipun um það frá konungi, að leggja á stað um miðjan þann mánuð til þess að sameinast aðalhernum. En sök- um þass að hann var óviðbúinn og rurfti að flytja mikið með sér, dróst i:ör hans fram undir mánaðamót, og för hans gekk seint, bæði vegna jess hve mikinn flutning hann hafði meðferðis — matbirgðir handa öll- um hernum til sex vikna — og vegna þess að vegirnir voru hálf- ófærir af bleytu. Þó átti hann ekki ófarnar nema svo sem 10 —15 mílur til Tatorsk, er konungur fann upp á þvi óhapparáði að halda suður á bóginn og gaf þannig Rússum tæki- l’æri til þess að ráðast á Lewenhaupt. Og það var ekkert undarlegt, þótt Lewenhaupt biði þar ósigur. Hitt var furðulegra að honum skyldi tak- ast að bjarga rúmum helming liðs síns og komast með það til konungs- ins, þrátt fyrir óteljandi örðugleika. Konungur tók hinum hrausta her- foringja vel,\ en let hann eigi hafa nein yfirráð framvegis. Hann fylgd- ist með hernum, en fanst sér vera ofaukið. Hér við bættist nú og það að Lybecker hafði farið herför frá Finn- landi inn í Ingemannaland, en það var en það varð hin mesta fýluför. Honum tókst að visu að komast með her sinn suður yfir Neva, en í stað þess að halda rakleitt til Pét- ursborgar, sem þá var lítið víggirt og keisarinn óttaðist mjög um, hélt Lybecker vestur á bóginn og háði þar nokkrar smáorustur við Rússa. Þá kom til hans lygafregn um það, að Rússar stefndu að honum óvlg- um her og varð hann svo hræddur við að hann hraðaði ferðum sem mest hann mátti heim til Finnlands aftur. Hann kom hernum að visu heilu og höldnu heim sjóleiðis, en hest- ana gat hann eigi flutt með og voru þeir því drepnir þúsundum saman, og öll herförin bar vott um sorg- legan ódugnað Lybeckers. Péturs- borg var nú úr allri hættu og keis- arinn gat nú beitt öllum sínum her gegn Karli XII. i Ukraine. Þessi miklu óhöpp, sem komu þannig hvert á eftir öðru, unnu mikinn bilbug á Karli konungi, þótt honum væri ekki fisjað saman. í fyrsta skifti á æfinni sá hann óham- ingjuna færast nær og það gerði hann bæði kvíðafullan og hikandi. Gyllenkrook segir að hann hafi ekki getað sofið um nætur og hafi hann oft staðið á fætur og farið á fund herforingja sinna til þess að eyða ótta sínum með því að tala við þá um hitt og þetta. Er keisarinn lét halda fagnaðarveizlur í tilefni af sigrum sínum. Hann kallaði jafnan Lesna móður Poltava og átti þar við það, að ósigur Lewenhaupts hefði verið undanfari ósigursins hjá Poltava. Eftir vanrækslu Lagerkrona og ósigur Lewenhaupts, var eigi um annað að gera en halda lengra suð- ur á bóginn og komast til Mazepa, þvi konungur neitaði algerlega að snúa aftur og Rússar voru nú jafn- vel farnir að brenna bygðina í norð- anverðu Ukraine-héraði. Hjá Mazepa bjóst hann við að geta setið í friði og haft nógar vistir handa hernum. En hér biðu hans ný vonbrigði, því Kósakkahöfðinginn gat eigi stað- ið við loforð sin, þegar á átti að herða — enda hafði Karl XII aldrei treyst þeim svo mjög, sem sumir sagnaritarar hafa viljað láta vera. Sú lýsing, sem vér fáum af Ivan Stephanovitj Mazepa eftir nýrri sögu- rannsóknum, er sú að hann hafi verið einn af hinum mörgu æfin- týramönnum, sem vaxið hafa upp þar syðra, Hann var fæddur i Litla- Rússlandi, en af því hann var son- ur pólsks aðalsmanns þá var hann alinn upp við hirð Jóhanns Kasimirs í Póllandi og lærði þar heldri manna siði. Það er mælt að hann hafi lent þar i æfintýrum, sem Byron hafi síðan haft fyrir yrkisefni. En enda þótt Mazepa væri pólskur að ætt og ynni Póllandi, veittist honum sú upphefð að vera gerður að foringja Kósakkanna i Ukraine. Með ýms- um brögðum hafði honum tekist þar að gera sig traustan i sessi og vinna sér hylli Péturs mikla. En nú var Mazepa farinn að eldast — kominn á áttræðisaldur — og hann óttaðist það að hann mundi eigi mikið lengur njóta hylli keisarans. Bjóst hann við því að Mensjikov fursti, sem hafði yfirstjórn Rússahers á þeim slóðum, mundi rægja sig við keisarann. Var hann svarinn óvinur Mensjikov og það eigi að ástæðu- lausu, því furstinn neytti hertignar sinnar til þess að hafa hönd í bagga með landsstjórn Mazepa. Auk þess sauð uppreistarhugurinn í Ukraine- búum. Vildu þeir eigi viðurkenna yfirráð Rússa, en vildu hafa þar sjálfstætt ríki milli Tyrklands, Rúss- lands og Póllands. Stóru-Rússar kúguðu Litlu Rússa á allan hátt og neyddu þá til þess með valdi að vinna að því að koma upp vígjum umhverfis Kænugarð. Kósakkaher- sveítirnar voru kvaddar til víga langt á burtu og það var í almæli að keisarinn ætlaði að breyta herskipu- lagi þeirra og láta þær vera sömu lögum háðar og aðrar hersveitir rik- isins 0. s. frv. í fáum orðum: Það voru ærnar ástæður til þess þótt Ukrainebúar væru ekki ánægðir. Stanislás konungur í Póllandi hafði þegar er hann tók við konungdómi reynt að vinna Mazepa til fylgis við sig, en hafði ekkert orðið ágengt i því efni. En nú þoldi Mazepa ekki mátið lengur og bauðst til að svíkja keisarann. Meðan Karl konungur hélt kyrru fyrir i Saxlandi eftir að hafa knésett Ágúst konung, virtist Mazepa sem hann mundi verða giftudrýgri en keisarinn og gerði þá Mazepa mann á fund Stanislásar með leynd til þess að bjóða þeim Karli liðveizlu

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.