Ísafold - 01.07.1916, Page 1
Kemur út tvisAr
i viku. Verð árg.
5 kr., erlendis T1/^
kr. eða 2 dollarjborg-
ist fyrir miðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint.
J
FOLD
Uppsögn (skrifl.
bundin við áramót,
er ógild nema kom-
in . só til útgefanda
fyrir 1. oktbr. og
só kaupandi skuld-
laus við blaðið.
ísafoldarprentsmiðja.
Ritstjdri: Dlafur Ejörnsson.
Talsími nr. 455.
XLIII. árg.
Reykjavík, laugardaginn x. júlí 1916.
48. tölublað
A.Iþýöufél.bókasafn Templaraa. 8 kl. 7—B
Borgarstjóraskrifatofan opin virka daga 11—3
Bíojarfó^etaskrifatofan opin v. d. 10—2 og 4 -~7
Bœjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og Z—'7
Iðlandsbanki opinn 10—4.
K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8 Ard,—10 sibd.
Alm. fundir fid. og sd. 8A/i sibd.
iLandakotakirkja. Guðsþj. 9 og 6 A helgnm
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12.
Landsbókasafn 12—S og 6—8. ÚtlAn 1—8
L&ndsbúnab&rfélagsskrifstofan opin frA 12—2
Landsféhirbir 10—2 og 5—6.
Landsskialaeafnib hvern virkan dag kl. 12—2
. Landssiminn opinn dagiangt (8—9) virka d»ga
helga daga 10—12 og 4—7.
ListaSafnið opió hvern dag kl. 12—2
NAttúrngripasainib opib l1/*—21/* A sunnnd.
Pósthú8ið opib virka d. 9—7, sunnud. 9—1.
SÍmAbyrgb Islands 12—2 og 4—8
StjórnarrAbsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth, 3 opinn 8—12.
Vifilstabahœlib. Heimsóknartimi 12—1
I*jóÖiTienjasttfnib opib hvern dag 12—2.
Vandaðastar og ódýrastar
Likkistur
seljum við undirritaðir.
Kistur fyíirliggjandi af ýmsri gerð.
Steingr. Guðmundss. Amtm.stíg 4.
Tryggvi Arnason Njáisg. 9.
mAoi.muai3aijnii33
Klæðaverzlun
H. Andersen & Sön.
Aðalstr. 16.
Stofnsett 1888. Simi 32.
þar eru fötin saumnð flest
þar ern fataefnin bezt.
Hæst verð
greiðir kjötverzlun E. Milners,
Laugavegi 20 B,
fyrir nautgripi, eldri og yngri,
einnig kálfa.
Borgað samstundis.
Til athugunar við landskosningarnar 5. ágúst.
Það er nauðsynlegt, að allir kjósendur glöggvi sig vel á kosningar-aðferðinni við Iandskosningarnar. Skulu hér gefnar nokkrar
leiðbeiningar.
Kjörseðillinn sjálfur lítur svo út:
A-listi B-listi C-listi D-listi E-listi F-listi
Hannes Hafstein 0. s. frv. Sigurður Eggerz 0. s. frv. Erlingur Friðjónsson 0. s. frv. Sigarður Jónsson 0. s. frv. Einar Atnórsson 0. s. frv. Jósef Björnsson 0. s. frv.
Þessi seðill er afhentur hverjum kjósanda, er haun kemur inn i kjörherbergið. Fer hann síðan með seðilinn inn í kjörklefann og markar
réttan kross eða skákross framan við bókstaj þess lista á seðlinum, sem hann vill að komist að. Þeir sem ætla sér að kjósa E-listann (sjálfstæðis-
listann), setja kross eins og hér er sýnt:
A-listi B-listi C-listi D-listi X E-listi F-listi
Hannes Hafstein 0. s. frv. Sigurður Eggerz 0. s. frv. Erlingur Friðjónsson 0. s. frv. Sigurður Jónsson 0. s. frv. Einar Arnórsson 0. s. frv. Jósef Björnsson 0. s. frv.
Hægt er að breyta röðinni á list-
anum með þvi að merkja þann, sem
kjósandinn vill hafa efstan með töl-
unni x, hinn næsta með tölunni 2
fyrir framan nafnið o. s. frv.
Þegar kjósandinn er búinn að
krossa við listann sinn, einbrýtur
hann seðilinn og stingur niður í
atkvæðakassann.
Það má ekki strika við fleiri en
einn lista, ekki tölumerkja nöfn á
fleiri listum en einum. Ekki má
heldur bæta nöfnum við á Jista, né
skrifa sitt eigið uafn á listann, né
heldur nota annan lista en þann, er
kjörstjórn afhendir. Alt þetta veldur
atkvæðis-ógilding.
Fjarverandi kjósendnr. Þeir kjós-
endur, sem ekki geta verið á kjör-
fundi á þeim stað, sem þeir standa
á kiörskrá, á kjördegi, eiga að snúa
sér til viðkomandi lögreglustjóra,
hreppstjóra eða umboðsmanna þeirra
og fá hjá þeim kjörscðil, fylgibréý og
urnslag og alla vitneskju um, hvernig
þeim ber að haga sér. Aríðandi, að
menn geri þetta i tæka tíð — þeir,
er burtu fara. Þeir, sem fara norð-
ur í síld héðan, ættu t. d. að hafa
þetta hugfast.
gögr- Allirþeir.semsjálf-
stæði landsins unna og
fagna stjórnarskránni og
fánanmn nýja — þeirkjósa
E-listann.
Ofriðar-annáll.
Ritstjóra ísafoldar hafa borist ekki
fá tilmæli frá kaupendum blaðsins —
einkum út um land — um, að fá helld-
arlega frásögn um styrjöldina mánaðar-
lega eða svo. L'eir kvarta yfir, að ilt
só að átta sig til hlftar á losaralegum
símskeytum og samhengisiitlum smá-
greinum — mest um einstaka atburði.
Til þess að verða við þessum ósk-
um lesenda ísafoldar, hefir rltstjórinn
fengið glöggan og greindan rnann í
Khöfn til þess að senda blaðinu »ófrið-
ar-annál« við og við, samhengislega
frásögn um heimsstyrjöldina.
Þessi annáll hefst í blaðinu f dag —
og segir frá styrjaldarviðburðunum frá
1. maí. Að vísu hefir sumt af því,
sem þar er skráð, verið gert að um-
talsefni áður, en vór böfum þó eigi
viljað fella það úr — því það mundi
trufla samhengi frásögunnar. ,
Upprei8nin á írlandi.
1 byrjun maímán. var uppreisninni
á írlandi að slota. Mannskæðar or-
ustur voru háðar *í götum Dýflinnar
og í fleiri borgum írlands síðustu
dagana í april. Skotgrafir voru grafn-
ar í götunum, skotgarðar reistir úr
vögnum og öðru lauslegu, hús skot-
in til stórskemda o. s. frv. Talið
er, að um 4800 manns hafi tekið
þátt í uppreisDÍnni, en nokkuð á 2.
hundrað hafi beðið bana. Oeirðir
nokkrar voru og víðsvegar út um
iandið.
Undirrót uppreisnar þessarar var
engin önnur, en óánægja íra með
enska stjórn, og rígur milli þjóðanna,
sem er ævagamall og alkunnur.
Er her og lögregla hafði náð al-
gerðu taumhaldi á uppreisnarmcnn-
unum, var haldið mjög ströngum
aga á alþýðu manna. Meðal annars
var það stranglega bannað öllum, að
bera nokkur vopn á sér, nema með
sérstöku leyfi. Nokkrir af forvigis-
mönnunum voru dauðadæmdir við
herrétt og þegar teknir af lífi. Einn
þeirra, sir Roger Casement, hafði
undanfarið dvalið í Þýzkalandi, og
fyrir tilstilli Þjóðverja hafst við með-
al irskra fanga. Áform hans var, að
gangast fyrir því, að Irar gengju í
lið með Þjóðverjum. Litið varð
honum þó ágengO
Megn óánægja reis nú í írlandi
yfir 'aðförum stjórnarinnar. Þótti
sem dauðadómar væru lítt yfirveg-
aðir og ýms höft, sem lögð voru á
frelsi manna til að afstýra framrás
uppreisnarinnar, kæmu óréttlátt nið-
ur á saklausum. — Urðu allmiklar
umræður um þetta í parlamentinu.
Þótti ilt, ef gamalt þjóðahatur fengi
nú nýjan byr undir vængi.
Asquith fer til íriands.
Þ. 12. maí fór forsætisráðherrann
Asquith til Irlands.
Við brottför sína lýsti hann því
yfir í parlamentinu, að hann liti svo
á að nauðsyn bæri til, að efla sam-
hug og eindrægjpi innan hins enska
ríkis. Gamlar erjur og deiluefni
mættu ekki draga úr dáð þjóðarinn-
ar á þessum alvörutimum.
Koma hans-til írlands vakti mik-
inn fögnuð þar í landi. Kom hann
til nokkurra helztu bæjanna. Erindi
hans var augljóst, að draga úr óvild
íra gegn Englendingum og vinna að
því, að samningar kæmust á.
Er Asquith kemur aftur til Lund-
úna i maílokin, lýsir hann þvi yfir
í parlamentinu, að Lloyd George
hafi, eftir ósk ensku stjórnarinnar,
neitið því, að gerast samningamaður
milli Engla og íra. Sé það nú
ákveðið, að koma sambandsmálum
þeirra í fast horf, sem báðir megi i
framtiðinni vel við una. Er það nú
talið víst, að það sé eingöngu undir
írum komið, hvort þetta takist. Þótt
afturhaldssamari Englendingar væru
þeirrar skoðunar fyrir ófriðinn, að
það yrði þjóðarólán hið mesta, ef
írar fengju sjálfsstjórn, þá sjá þeir
nú hinir sömu berlega, að ekkert
yrði þjóðinni verra, en þurfa að sinna
óeirðum og uppreisnum á írlandi,
nota þar her manns, í stað þess að
fá þaðan nýliða til ófriðarins mikla.
Svo er að sjá, sem Lloyd George
sé starfinu vaxinn. Er það nú á
prjónunum, að hið langþráða parla-
ment verði stofnað á írlandi. Þó
er það í ráði, að það nái ekki til
landshlutans Ulster. —
Frumvarp Lloyd George til lausnar
á samb.máli íra er á þá leið, að
»Home-rule«-lögin gangi í gildi strax,
en þó svo að írsku meðlimir parla-
mentisins sem eiga þar sæti nú verði
þar áfram. Stjórn Uister verði eins
og hingað til. En þegar að ófriðinum
loknum, eigi að kalla saman fund
með fulltrúum frá öllum löndurn,
eignum og nýlendum Englendinga.
Skuli fundur sá taka til meðferðar
framtíðarstjórn enzku ríkisheildarinnar
og um ieið kveða á um sambands-
mál Irlatxds.
Almenn ánægja er yfir þessum
málalokum i Englandi, ekki sizt yfir
því að það skuli vera á prjónunum,
að alt enska rikið fái eina stjórn —
Tilky nning
Nýjar vörubirgðir eru nú komnar til
V. B. 7i
af flestum nú fáanlegum
Vefnoðarvörum,
í fjölbreyttu úrvali.
Vegna tímanlegra innkanpa getur verzlunin boðið við'skiftamönnnm sín-
um þau beztu kaup sem völ verður & í ár.
Enufremur hefir verzlunin:
Papp og ritfóng, Sólaleður og skósmíðavörur.
Vandaðar vörur. Odýrar vönxr.
Verzlunin Björn Kristjánsson, Reykjavík.
Bakarasveinn.
Duglegur bakari getur fengið atvinuu um lengri
tíma hjá Johan Sörensen hakarameistara í Vestmann-
eyjnm.
Sími V. E. 45.
vetði þvi frekar en hingað til að
einni rikisheild.
Liebknecht tekinn fastur i Berlin.
Mikla eftirtekt vakti það, er það
fréttist, að einn af helztu foringjum
jafnaðarmanna i Þýzkalandi Lieb-
knecht væri tekinn fastur á Pots-
damer Platz í Berlín við hátíðahald
jafnaðapmanna 1. maí. Hefir hann
verið málsmetandi foringi i flokki
sínum. Voru nú brotin þau lög á
honum, er hingað til hafa þótt gild,
að taka'ekki mann höndum, meðan
hann á sæti í ríkisþinginu. En þótt
hann ætti sæti í þinginu, þá var hann
og í herþjónustu. En þama á torg-
inu í Berlín var hann ekki klæddur
hermannabúningi, og var þáð talin
gild sök á hendur honum.
En varla liggur þar fiskur undir
steini. Upp á síðkastið hafði hann
verið næsta einstæður í þinginu. —
jafnvel flokksbræðrum hansvar ekki
orðið um haAi. Astæðan var sú,
að hann þótti altof berorðnr við
landa sína um ýmislegt, er honurn
fanst fara miður innan þýzka rikis-
ins á þessum siðustu og verstu tim-
um. Einkum hafði hann margsinnis
hafið máls á, að meðferð erlendra
fanga væri ósæmileg og ósamboðin