Ísafold - 13.01.1917, Síða 4

Ísafold - 13.01.1917, Síða 4
4 ISAFOLD Tilmæli. Árið 1907 og síðar lánaði Landsban.ti íslands »Kaupfélaginu Ingólfi* á Stokkseyri og Eyrarbakka tryggmgarlaust með öllu í fyrstu, en síðar gegn tryggingu í eign, sem »Kaup- félagiö Ingólfur« átti ekkert í, stórar fjárhæðir. Þá voru gæzlustjórar bankans hr. Kristján jónsson yfirdómari og hr. Eirtkur Briem, sem er það enn. Eftir lát Ólafs heitins Arnasonar kaupm. á Stokkseyri, framkvæmdastjóra »Kaupfélagsins Ingólfur*, var ómögulegt annað að sjá, ea að settur hefði verið út heill her, sem með samvinnu sinni reyndi að halda þessum leik áfram og ná eignum bús okkar Ólafs heit., er aldrei hafði verið skift, og eignir þess aldrei verið seldar neinum, smbr. réttarskjal nr. 10 lagt fram f skiftarétti Arnessýslu 7. marz 1916, ásamt réttarskjölum nr. n og 12, lögð fram á sama tíma og stað. Voru til þess höfð mörg brögð að greipa yfir eignir búsins, en þar sem margir stjórna sama máli, fer sjaldan nema á einn veg, og leiddi þetta að eins til þess að skýra mál mitt enn betur. í skilnaðarskjölum okkar hjóna að borði og sæng, er svo ikveðið, að skuldir þær, er maðurinn (minn) hafi stofnað og fram kunni að koma siðar, skuli vera mér óviðkomandi (sjá skilnaðarskjöl að borði og sæng). Ég vil þvl ekki fara að bera tjón fyrir óhyggni bankans, er mér ekki ber það, og tel mér óskylt að borga fyrir ráðlag »Kaupfélagsins Ingólfurt, því eg átti eoga sök á þvl, sem fram fór. Það er reynt að hrekja aðstöðu mina til búsins, og er nú mál mitt komið fyrir landsyfirdóm íslands. í landsyfirdómi íslands sitja 3 velmetnir menn, eru það hr. Kristjáu Jónsson (fyrverandi gæzlustjóri Landsbankans, 1907), hr. Eggert Briem og hr. Halldór Daníelsson fyrv. bæjarfógeti. Hr. Eggert Briem yfirdómari er bróðir hr. Eiríks Briems gæzlustjóra Landsbankans (er var gæzlustjóri Landsbankans 1907 og síðar er Ingólfs lánin voru tekin út á eignir okkar hjóna af »Ingólfi« (sölulaust og heimilda). Þannig á þá bróðir annars af gæzlustjórum Landsbankans að vera dómari í máli mínu um það hvort eg skuli ná rétti mínum og næstum aleigu, og aunar gæzlustjóra frá Landsbankanum (frá þeim t(ma), sjálfur hr. Kristján Jónsson yfirdómari, að dæma sama sem eigið mál gegn mér. Herra Halldór Daníelsson, þriðji maðurinn í yfirdóminum, veit eg ekki annað en sé óháður. Auk þess sem hr. yfirdómari Eggert Briem er bróðir gæzlustjóra Eiríks Briems, er hann bróðir hr. Sigurðar Briems, sem er 3ja aðalpersónan í hinum gruggugu svokölluðu »Port Reykjavik« »svindlerium«, er koma búi okkar Ólafs heitins mikið við, og 'sem eg þekki og veit full grein á nú orðið. Má af þessu marka, að hr. yfirdómari Eggert Briem er bundinn í báða skó, þó hann sé ekki þektur að neinu misjöfnu. Eg vil sem áður ávikið ekki bíða tjón fyrir vanhyggju bankanna, að lána »Kaupfél. Ingólfur* tryggingarlaust, eða gegn tryggingu i eign, er það ekki átti löglega (eignir okkar hjóna) og mér finst næsta óviðkunnanlegt, að þeir menn sem ýmist eru venzlaðir eða sem hér hafa haft talsverða ábyrgð á yfirsjón þeirri er orðið hefir, séu nú dómarar i þessum aðgerðum. Eg vil því mælast til, að 2/g hins háa Landsyfirdóms íslands viki sæti í þessu máli (um aðstöðu mína til bús Ólafs heit. Árnasonar) og í staðinn komi algerlega óháðir menn, en hr. Halldór Daníelsson yfirdómari sitji áfram dóminn i þessu máli. Eg hefi fyrst nýlega ritað um þetta, og eg hefi snúið mér til hins háa stjórnarráðs i þessu máli, en verið svarað þvi, að það gæti ekki að gert, þar eð það væri dómaranna sjálfra að ákveða hvort þeir skyldu víkja sæti; eg hefi um leið skrifað hinum velvirtu yfirdómurum 2, um leið og eg skrifaði stjórnarráðinu um þetta mál, og tjáð þeim ósk mina; fekk eg þá ekkert svar frá þeim, eg hefi þá snúið mér til þeirra persónulega, með beiðni mína; brást annar reiður við, en hinn færðist undan. Það er því ekki hægt að sjá, hvort ætlast er til að eg missi aleigu mina, eða að bankarnir og gæzlustjórar þeirra beri ábyrgð gerða sinna og óvarfærni, en ekki alsaklaust kvenfólk af þessu. Það eru því enn tilmæli mín og áskorun, að hiniir velmetnu dómarar ryðji landsyfirdóm íslands í máli mínu, samkvæmt áskorun minni. Reykjavík 8. desember 1916. Virðingarfylst. TTlargrét ftrnason. Uvc«f‘ool opnar í dag nýjan útsölustað í Liverpool, Yesturgötu 3 inngangur á horninu. Þar fást allar vörur til útgerðar b&eði fyrir vélbáta og trawlara og alt sem s j ó m e n n þnrfa með. SJÓMENN. Mnnið að þurrasti bletturinn á sjð og landi er nndir olínfötnnnm frá ' Sigurjóni. Einkasali fyrir Island fyrir Towers fish brand Heildsala Otíuföt Smásala. eru mjúk, sterk, encfingargcð. Jiomið og skoðið. Til dæmis enskur og norskur S.jótatnaöur, Manilla, Vírmanilla, Skipsmannsgarn, Tjðrutó, Fiskilínur, öngultaumar, önglar, Lóðarbelgir, Síldarnet, Enskur og ameriskur segldúkur, Patent seglhringir, Fiskihnífar, Stálvírar frá x”—2®/4, Fótreipi, Benslavír, Blakkir allsk., Logg og Logglinur, Þokuhorn, Hliðar-, topp-, Akkersljós, Vantspennur, Áttavitar, V élapaknin gar, Smurningsolía, Lampaolía, Málning og Lakk mikið úrval, Nálar, Nálafeiti, Saumagarn, Fiskburstar og allskonar smávörnr til skipa. cTíýRomié afarmifiié úrval af: Trawlstökkum. Kápur — Buxur — Hattar — (gult, svart, brúnt.) Haupirðu góðan t)tut, bá mundu t)var þú fekst tjann. Netav. Sigurj. Pjeturssonar. Hafnarstræti 16. Munið eftir að Liverpools tr aw In e tin eru fengsælust, bezi og dbyggilegust. Sjómenní Við höfum Færeyjapeysur, Trollbuxur, Slitföt, Ullarteppi þykk, hlý. Slitfatatau. Amerísk nærföt á 4.80 settið. Areiðanlega ódýrast i bænum og fleira nauðsynlegt á sjóinn. Ttusturstræti 1 fisg. G. Gunntaugsson, & Co. Westminster cigarettur eru þektar um allan heim, Westminster cigarettur fást af mörgum tegundum, hjá kaupmönnum um alt land. Biðjið um JVestminster þvi það eru cigarettur sem allir lofa og mest eru reyktar hér á landi. Reynslan er sannleikur. Olíufötin frá okkur hafa nú fengið 9 ára reynslu hér og allir þeir sem reynt hafa þau lúka lofsorði á þau; óþektar tegundir höfum við ekki viljað taka i stað þeirra r e y n d u, þvi reynslan er sannleikur. Undir oliufötunum okkar verðið þið þurrir. Austurstræti 1. Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. cBezfa augíýsingaBíaéið cr c7safoíó.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.