Ísafold - 19.01.1918, Blaðsíða 1
Keruur út tvisvar
< viku. Veiðárg.
5 kr., erlendis 7^/j
kr. eða 2 dollarjborg-
!st fyrir Baiðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint
XLV. árg.
Reyk)avik, laugajdaginn 19. janúar. 1918.
Uppsögn (8krlfl.
bundin vlð áram^t,
er ógild nema kom-
in só til útgofanda
fyrir 1. oktbr og
sé kaupandi skuld-
laus vlð blaðið.
3. tölnb' ð
Kvennaskólinn.
Siðara námsskeiðið í hússtjórnardeild skólans hefst 1. raarz n. k.
— ef nógu margir nemendur gefa sig fram — og stendur yfir til 1. júni.
Skólagjaldið er 15 kr. alls en meðgjöf 65 kr. á mánuði.
Umsóknir séu komnar til forstöðukonu skólans í síðasta lagi x. febr. n.k
Reykjavik, 14. jan. 1918.
Ingibjðrg H. Bjarnason.
M
§|
Stöðugleiki
WILLYS-OVERLAND
bifreiðar ern bygðar og seldar undir:
Binni yfirstjórn
Binni verksmiðjustjóm
Binni innkaupadeild
Binni söludeild
Binni heild timboðsmanna
Þessar bifreiðar eru smíðaðar i stærra úrvali
en nokkrar aðrar bifreiðar sem smiðaðar eru af
einni verksmiðjn.
Það eru til Overland eða Willys-Knight bif-
reiðar sem henta hverjum kaupanda.
Einu gildir hvert þér veljið létta 4 cylindra,
stóra 4 cylindra eða Willys-Knight bifreið — því
þér fáið það sem bezt er í hverjum flokki. Allar
hafa þær jafnt orðið aðnjótandi Overlands sparnaðar,
fjármagns og mikilleika.
Athugið þessar þifreiðar áður en þér kaupið yð-
ur bifreið. Verða til sýnis hjá umboðsmanni vorum
svo fljótt sem ástæður leyfa.
Willys-Overland bifreiaðr eru:
Stór 4 cylindra Litlu 4 cylindra '”Willys Knight
Overland Overland 4 og 8 cylindra
5 og 7 manna. j og 4 manna. 5 og 7 manna.
Umboðsmaður vor er
Jðnafan Porsfeinsson,
Heykjavík,
m
■0%
m
"0
®f
|
m
The Willys-Overland Company, Toledo, Ohio, U. S. A.
Manuíacturera of Willys-Knight and Overland Motor Cara
and Light Lorriea
I
;r
%
N*
M i n n i s 1 i s t i.
éJþýðufél.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—8
borKarHtjóraskrifst. opin dapl. 10-»12 og 1 —8
Bæjarfógetaskriístofan opin v. d. 10—12 og 1—B
Bæjarpjaldkerinn Lauíésv. 5 kl. 10—12 og 1—B
ífllandsbanki opinn 10—4.
JLIT.U.M. Leatrar-og skriffltofa 8árd.—10 sibd.
Alm. fundir fid. og fld. 8ll% siMt
Landakotskirkja. Gubsþj. 9 og 6 á heignm
Landakotflspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12
Landsbókaflafn 12—8 og B—8. Útlán 1—B
LandsbúnaBarfélagsflkrifstofan opin frá 12—2
Landsfóhirbir 10—12 og 4—B.
Landsfliminn opinn dagiangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
iástasafnió opib á sunnudögum kl. 12—2.
• -túrugripasafnib opib 1 >/t—2*/i á sunnud.
Póflthúsib opib virka d. 9—7, sunnud. 9—1.
Suthábyrgb Islands kl. 1—B.
Btjórnarráhfl8kriffttofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.8 opinn 8—12.
VifilstabahæliO. Heimsóknartimi 12—1
I>ióhmenja8afnib opib sd., 12*/*—l1/*
JÞjóbskjalasafnib op^b sunnud., þriðjud. og
fimtulaga kl. 1^-2.
Hvernig litið er á stjórn
vora út um land.
Eina málgagnið, sem borið hefir
■við að verja vandræðastjórnina, og
þó aðallega einn manninn úr henni,
hefir verið að reyna að telja fólki
trú um, að óánægjan með hana væri
aðallega i Reykjavík. Út um land
væri alt öðru máli að gegna. Þar
væri gerðir hennar metnar réttilega,
þar ætti hún fylgi, og mætti ekki
mikið byggja á goluþytnum í höf-
uðstaðnum um gildi stjórnarinnar
Og verðleika.
En það er nú að koma betur og
betur í Ijós, að þetta málgagn, einn-
ig í þessu efni, fer með blekkingar
og hindurvitni. Hvaðanæfa af land-
mu berast bréfin frá merkum og
gætnum mönnum, þar sem ávalt
kveður við sama tónninn, að stjórn-
in sé með öliu óhæf, að enginn fá-
ist til að mæla henni bót, að brýn-
asta þjóðarnauðsyn knýi á dyrnar
Og heimti stjórnina frá hið fyrsta,
að aukaþing mundi margborga sig i
bráð og lengd, þótt ekki ynnist þvi
annað á, en að losa landið við þá
þríhöfðuðu. Og gremjan, sem hug-
ina fyllir, er ljós af þeim orðatil-
tækjum, sem valin eru i einkabréf-
um. Þar er svo hörðum orðum farið
um landsstjórnina og athæfi hennar,
að maður kinnokar sér við að birta
þau opinberlega.
Aítur á móti þykir oss rétt að
birta hér grein, sem stendur í bl.
>íslendingur« á Akureyri þ. 28. des.,
með því að margir lesendur vorir
munu eigi sjá það blað, en ætla má,
að grein þessi muni eigi ótiúr speg-
111 af skoðunum almennings norðan-
lands á landsstjórninni. Greinin
hljóðar svo:
AB hverju stefnir?
Spurning þessi mun óefað vaka í
'huga allra hugsandi manna: Að
hverju stefnir óstjórn sú og hlut-
drægni hinnar núríkjandi stjórnar,
roluskapur, ósjálfstæði og óforsjálni
hins núverandi alþingis, ef ekki verð-
ur tekið í taumana með kollvörpun
hvorutveggja?
Á hve miklum tréfótum að hvoru-
tveggja veltur, er öllum Ijóst, svo
um það þarf eVki mörg orð. Alþingi
síðastliðið sumar sýndi frámunalegt
skeytingarleysi og óvarfærni á ýms-
um sviðum í fjármálefnum landsins;
bruðlaði, ekki einungis með væntan-
legar tekjur þess, heldur lika vænt-
anleg stórlán, sem það fól stjórninni
að taka, mjög óforsjáiega og óþarft.
Jós fé út á báðar hendur til bitlinga,
óþarfra embættastofnana, fyrirtækja,
sem alls engin ástæða var til að ráð-
ast í, meðan alheimsófriðurinn hélzt,
borgaði sjálfu sér ferðareikninga, sem
virðast vera umfram alla sanngirni,
athugaði að litlu leyti gerðir stjórn-
arinnar, lét hana óáreitta sitja í valda-
sessinum, þrátt fyrir það, þó að ýtrasta
þörf væri fyrir hendi, að kollvarpa
henni, sökum ráðdeildarleysis og jafn-
vei hlutdrægni gegn suœuaa atvinnu-
grtinum landsms, vanrækslu nauð-
syolegra framkvæmda m. m., eyddi
tima þingsins í ónauðsynlegt og ó-
merkilegt lagasmíði, sem betri tima
gat beðið, en lét svo nauðsynlegar
dýrtiðarráðstafanir sitja á hakanum.
Landsstjórnin fálmar sig áfram i
blindni, að kalla má, hvað margar
óhjákvæmilegar framkvæmdir snertir,
svo til einskis gagns varð. Hún virð-
ist sýna hlutdrægni á háu stigi gegn
tveimur máttarstoðum landsins, kaup-
mönnum og útvegsmönnum, í stað
þess að láta þær njótt jafnréttis við
lasidbúnaðinn, hafandi sér við hönd
— sem ráðunauta — menn, sem
skoða má sem angurgapa, sem drepa
vilja hinar nefndu máttarstoðir, sveim-
andi í blindni eftir þeirra rangsleitnu
bendingum, steypandi landinu i ó-
botnandi landsverzlunarskuldir, sem
landsmenn um óútreiknanlegan ára-
fjölda verða undir að stynja, sem á-
nauðngir þrælar erlendra lánardrotna.
Öil framkvæmd og stjórn lands-
vetzlunarinnar virðist hafa verið i
bjánalegu handaskoli og eftirlitsleysi
frá stjórnarinnar háifu. í stað þess
að styðja dugandi kanpsýslumenn
með ráði og dáð til þess að sjá
landinu fyrir nauðsynlegum forða af
öllu, sem þörf krafðist, og hafa yfir-
ráð með hámarksverði og skiftingu
á þeim eftir réttum mælikvarða, hef-
ir hún látið reka landssjóðsverzlun-
ina með frábærri óreglu og óná-
kvæmnj, eftir þeirri hliðinni að dæína,
sem að almenningi snýr.
Að hverju stefnir spyr margur.
Þeirri spurningu er ómögulegt að
svara, svo ábyggilegt sé, en ekki
kæmi mér það á óvart, .þó að af-
leiðing þeirrar óstjórnar, sem nú
ríkir hér í æðsta valdasessi, yrði sú
hin sama sem i Noregi fyrir rúm-
um 1000 árum, þegar Haraldur lúfa
braut Noreg undir sig með ofbeldi,
að margir beztn menn þjóðarinnar
stökkvi úr landi að ófriðnum lokn
um, einkum hinir ötulustu og hæf-
ustu kaup’.ýslumenn, kjarnínr úr ut-
vegsmönnum, svo og stór hópur
Alþýðufræðsla Studentafélagsins.
Funk Yerkfræðingur
heldur fyrirlestur (á ísleuzku) um
þjóðbúskap þjóðverja
1 ófriðnum
sunuudag 20. jan. kl. 5 síðd.
í Iðnaðarmannahúsinu.
Inngangur 20 aurar.
hinnar uppvaxandi kynslóðar, þvi
að íslendingar kunna því illa, að
eg hygg, að láta ofbjóða rétti sin-
um með rangsleitni, ánauð og rétt-
arbrotum. Og þá má stjórnin sýna
meiri stjórnsemi og meiri fjármála-
kænsku, en hún hingað til hefir sýnt,
ef landbúnaðinum ekki finst þungt
að borga allar miljónirnar, sem á
herðum landsins hvila, til erlendra
og innlendra lánardrotna.
Það mun margur segja, að tilgáta
sú, að menn stökkvi úr landi brott,
sé á engum röknm bygð; til þess
komi alls ekki. En eg vil biðja þá
hina sömn að skoða framtiðarhorfur
landsins með athygli, og þá munu
þeir sjá, að það, sem eg hefi bent
á s 'm hugsanlegt, er í rauninni mjög
líkleg afleiðing óstjórnar þeirrar,
sem nú rikir i landinu, ef ekki verð-
ur þegar á næsta ári, 1918, kipt í
taumana með umsteypu á þingi og
stjórn. Þaim mönnum, sem nú við
stjórnarvöldin sitja, er alls ekki til
þess treystandi að frelsa landið frá
tortlmingu. Enda virðist núverandi
stjórn hafa mist traust margra, að
minsta kosti kaupmanna og útvegs-
manna undantekningarlaust, og mig
uggir að hún sé horfin fylgi margra
bænda, sem eigi eru blindaðir aí
flokkarig. Þeir sjá að hverju stefnir
Þjóðin verður að vakna, brjóta af
sér óstjórnarhlekkina, og reyna að
bjarga sér út úr þeim foraðsógöng-
um, sem hún nú hefir ratað í, ef
mögulegt er, annars er þjóðerni,
sjálfstæði og heiður hennar í veði.
Við verðum að vera samtaka nm
að velja þá menn til þingsetu, sem
við treystum að drengskap og sam-
vizkusemi, og aðeins þá til að mynda
nýja stjórn, sem hafa vilja, dug, dáð
og þekkingu til að bæta úr yfir-
sjónum fvrirrennara sinna að svo
miklu leyti sem hægt er, en pað
verður erjitt verh, eins og nú er í
pottinn búið.
íslenzka þjóðin verður að vakna,
taka saman höndum, starfa sem einn
maður til að bæta það, sem brotið
er, svo að hún tortímist ekki.
Líf hennar sem framfara smáþjóð
er í veði. Það verðum vér að at-
f Snorri Jónsson
kaupmaður á Oddeyri er nýlátinu.
Var hann einn af helztu og bezt
metnu borgurum Akureyrar. Bana-
mein hans var krabbamein.
Erabætti.
Sigurjón Markússon sýslumaðnr
Skaftfellinga hefir fengið veiting fyrir
Suður-múlasýslu frá 1. júni að telja
J,f"frsmter Skaftafellssýsla auglýst
iaus.
Bæjarstjórnarkosningin
í Hafnarfirði fór svo, að hinn
svonefndi verkamanna-listi hlaut 145
atkv. og kom að 2 mönnum, þeim
Davíði Kristjánssyni trésmiði og
Gísla Kristjánssyni verkm. Ennfrem-
ur voru kosnir í bæjarstjórnina þeir
Einar Þorgilsson kaupm. með 133
atkv. (B. listi) og Þórður Edílonsson
læknir með 93 atkv. (D. listi.)