Ísafold


Ísafold - 02.03.1918, Qupperneq 4

Ísafold - 02.03.1918, Qupperneq 4
4 IS AFOLD freyjan, sem ballað er. HeyrðÍBt hán aldrei mögla eða kvarta, þótt byrðir hennar jyknst af þeim ástæðum. Hún var ein þeirra íslenzku kvenna sem engar fara sögur af f lifanda lífi. vinna í yfirlætisleysi og kyrþey,' en ljúka þó miklu og þörfu dagsverki, og ganga þreittar af hólmi. Sanhildur sál var jarðsunginn 5. janúar þ. á. við mikið fjölmenni. Sóknarprestur þeirra hjóna sfra ÓI. Ólafsson frikirkjupre8tnr; talaði yfir moldum hennar bæði heimahúsum og í kirkju. Söngfélagið 17. júni söng bæði heima og í kirhju og í kirkju- garði. Vinir og reglubræður þeirra hjóna báru kiatuna út úr heimahús- nm og inn í kirkjuna, en framkvæmd- arnefnd Stórstúkunnar bar hana út úr kirkjunni. Áður en kistan var borin út úr Fríkirkjunni söng Ragn- ar Kvaran kveðjuljóð frá síra Sigur- geiri syni þeirra hjóna, sem ekki gat fylgt móður Binni til moldar. Kveðju- Ijóðin öll, sem söngin voru við jarð- arförina, voru ort af Guðm. Guð- mundasyni skáld. Með Svanhildi sál fór til moldar góð íslenzk kona, sem allir, þektu, minnast með þakklæti og virðingu. kunnugur. Bæjarstjórnarfundur 21. febrúar. Eftir að fundur var settur skýrði borgarstjóri frá úrslitum bæjarstjórnar- kosninganna og að kærufrestur væri fyrir nokkru útrunninn, og engin kæra komið fram, gætu þvi hinir nýkosnu bæjarf jlltrúar tekið til starfa, nú á þessum fundi. Um leið kvaðst hann nota tækifærið til að segja þá velkomna. Var síðan gengið til dá^skrár: X. Forseti endurkosinn: Sighvatur Bjarnason, með 15 atkv. 2. Varaforseti kosinn: Benedikt Sveinsson með 13 atkv. 3. Skrifarar voru endurkosnir; Sveinn Björnsson og Þorv. Þorvarðarson. 4. í fastar nefndir vorn kosnir: Fjdrhagsnefnd: Borgarstjóri sjálfkjörinn Sighv. Bjamason 16 atkv. Jör. Brynjólfsson 16 atkv. >Þér talið eins og margir menn séu efnishyggjumenn ?* Dauð trú »Mér virðast þeir vera i meiri hluta í heiminum. Ekki sem sérstakur flokkur með föstu fyrirkomulagi, heldur sem ein- staklingar. England er dautt í and- legum skilningi. Það er eins og múmía, sem vafin er inn í kirkju- legar umbúðir. Þegar sömu hlutirn- ir, sem menn játa með vörunum, að þeir trúi, eru lagðir fram sem raun- verulegur sannltiki, þá ypta þeir öxl- um með undarlegri tortryggni. Alt þetta hæðnishjal í blöðunum, um drauga, getur ekki komið frá öðrum en þeim, sem trúa alls ekki á fram- hald lífsins. Ef þeir vissu, að ástvinir þeirra væru lifandi hinumegin, þá myndu þeir ekki velja þeim hæðnis og óþverra heiti*. Arlðandi að Sir Arthur vildi ekki lesa. ráða hverjum og einum til að hefja sjálfur rannsókn dular- fullra fyrirbrigða, að minsta kosti ekki með tilraunum. »Ef einhver hefir mist einhvern ástvin,* sagði hann, »getur honum heppnast að ná sambandi við hann með tilraun- Fasteignanefnd: Borgarstjóri sjálfkj. Ágúst Jósefsson 16 atkv. Sigurður Jónsson 15 atkv. Fátœkranefnd: Borgarstjóri sjálfkjörinn Kristján V. Guðmundsson 16 atkv. Sigurður Jónsson 16 atkv. Lára Inga Lárusdóttir 16 atkv. O afur Friðriksson 1 5 atkv. By^ingarnefnd: Borgarstjóri tjálfkiörinn Guðm. Asbjörnsson 9 atkv. Þorv. Þorvarðarson 9 atkv. Utan bæjatstjórnar: Kristinn Sigurðsson múrari. Sveinn Jónsson trésmiður. 1 heilbriqðisnefnd: Benedikt Sveínsson 9 atkv. Skattanefnd: Botgarstjóri sjálfkj. Jón Ólafsson 16 atkv. Þorv. Þorvarðarson 13 atkv. Til vara: Sveinn Björnsson. I yfirskattanefnd. Tillaga bæjarstjórnar að landstjórn- in skipi þá nefnd svo: Halldór Daníelsson yfirdómara. Eirík Briem prófessor. Pálma Pálsson yfirkennara. Til vara: Guðm. Guðmundss. fra Vegam. í verðlagsskrárnefnd: Eirík Briem prófessor. í stjórn Fiskimannasjóðsins Jón Ólafsson 15 atkv. í leikvallarnefnd: Borgarstjóri sjálfkj. Bríet Bjarnhéðinsdóitir 15 atkv. Lára Inga Lárusdóttir 9 atkv. í rafmagnsneýnd: Borgarstjóri sjálfkj. Jón Þorláksson 17 atkv. Sveinn Björnsson 14 atkv, Þorv. Þorvarðarson 14 atkv. Jör. Brynjólfsson 10 atkv. Dýrtíðarnefnd: Borgarstjóri sjálfkj. Ólafur Friðriksson 16 atkv. Sighv. Bjarnason 12 atkv. Lára Inga Lárusdóttir 10 atkv. Jón Baldvinsson 9 atkv. Áður hefir þessi nefnd verið skip- uð að eins 3 mönnum. í stjórn Jfldamótagarðsins var kosinn Ágúst Jósefsson með 14 um, eins og t. d. Mr. Wilkinson heppnaðist það nýlega, og hefir hann lýst reynslu sinni, rojög sannfærandi, i októberhefti »London Magazine**. En venjulega er ráðlegast að lesa eitthvað fyrst um málið. Það tæki of langan tiroa að lesa alt, sem um það hefir verið skrifað, áður en byrj- að er að rannsaka fyrirbrigðin upp á eigin spítur. Það er yfir höfuð gert of mikið úrfyrirbrigðunum sjálf- um. í bókmentunum getum vér fundið nógar sannanir fyrir lögmál- um tilverunnar, án nokkurra tilrauna. Það er hægt að læra stjörnufræði, án þess að nota nokkurn tima stjörnu- kiki. Þeim, sem langar til að kynnast málinu, vil eg ráða til að gerast kaup- andi blaðsins »Lightc, eða annara spíritista blaða, og byrja að lesa eitthvað af þeim bókum, sem þar er getið um. Ef menn vilja lesa eitthvað um sjálf fyrirbrigðin, þá vil eg fyrir mitt leyti benda á að lesa fyrst bók Sir Willi- am Barretts: »A þröskuldi ósýni- legs heims,« og bók Hills: »Sálar- rannsóknir*. Þá fer mann að langa í meira. Bók Desertis: »Sálar- *) Greinin þýdd af H. N. í jólablaði Morguublaðsins 1917. atkv. í stað Tryggva sál. Gunnars sonar, er áður hafði verið í stjórn hans, en enginn skipaður í stað hans fyrri. j. Kosnir voru í nefnd til að semja frumvarp til reglugerðar um lokunartíma sölubúða: Guðm. Asbjörnsson 12 atkv. Sveinn Björnsson 6 atkv. Jón Ólafsson 5 atkv. Ur hagtíðindunum. Heyskapur árið 1916. Arið 1916 heyjaðist samkvæmt búnaðarskýrslunum 692 þúsund hest- ar af töðu og 1541 þúsund hestar af útheyi. Arið á undan var töðu fengur töluvert minni, 642 þús. hestar, en útheyskapur líkur, 1531 þús. hestar. Meðalheyskapur undan- farinna 5 ára (1911—I9i5)varsam- kvæmt búnaðarskýrslunum 667 þús. hestar af töðu og 1403 þús. hestar af útheyi. í samanburði við það hefir heyskapurinn 1916 verið i betra lagi. Fuglatekja og dúntekja árið 1916. Eftirfarandi yfirlit sýnir ftiglatekj- una árið 1916, samanborið við árið á undan, samkvæmt hlunnindaskýrsl- um hreppstjóranna. 1916 1915 Lundi 222,4 þhs- 227,2 þús. Svartfugl 81,8 — 30,6 — Fýlungur 46,4 — 4Us — Súla °>5 — 0,4 — Rita i7,3 —' 13,0 — Samtals 368,4 þús. 312,4 þús. Dúntekja varð 1916 á öllu land- inu samkvæmt skýrslum hrepp- stjóranna 4355 kg, og er það meira en árið á undaú, er hún var talin 4290 kg. og töluvert meira heldur en i meðallagi, borið saman við árin þar á undan. Lax og silungaveiði árið 1916. Samkvæmt hlunninda skýrslum veiddust 10700 laxar árið 1916. Er það heldur minna heldur en árið á undan, er veiðin var 12000. Aftur á móti var silungsveiði árið 1916 alls 448 þús. silungar, og er þ.ið að tölunni til líkt og árið áður, er veiðin var 445 þús. En í raun- inni mun veiðin hafa verið töluvert r> rari, því að í henni er lalin murta úr Þingvallavatni, og hefir hún veiðst óvenjulega mikið þetta ár (172 þús., en 132 þús. árið á undan). fræðisleg heimspeki* ristir dýpst í þessum efnum. Vilji menn kynnast trúarskoðunum spíritista, þá vil eg benda á að lesa bæklingana eftir prestana Fielding Ould, C. L. Twee- dale og Arthur Chambers; Júliubréf Steads og »Kenningar andanna* eftir Stainton Moses. Eftir þenn^n lest- ur myndi vera hæfilegt að byrja sjálfur að gera tilraunir, ef meon óskuðu þess. Vilji menn kynna sér nýjatestamentið frá spiritistisku sjón- armiði, vildi eg ráðleggja að lesa bók, sem heitir: »Jesús frá Nazaret* (gefin út af Light). »Já*, sagði Sir Arthur að lokum, »lesturinn er fyrsta sporið. Að lesa, hugsa — og ef til vill að biðja. Simabjðllurnar Fyrirbrigðin sjálf eru og skeytin. ekkert annað en sima- bjöllur, til að vekja eftirtekt mann- kynsins. Það eru skeytin sjálf, sem koma með simanum, sem alt er undir komið. Þau skeyti eru hin mikla nýja opinberun handan að, langmikilvægasta framför siðustu tvöþúsund árannac. Vel hreinar léreftstuskur keyptar i Isafoldarprentsmiðju. íslenzk bókaverzlan í Yesturheimi Útsala á bókum og tíma- ritum gegn vanalegum umboðslaunum. Kaupi bækur i stærri slöttum fyrir peninga út í hönd; islenzkar myndir, póst- spjöld og aðra fáséða isl. muni. — Trygg viðskifti. Ólafur S. Thorgeirsson forleggjari og prentsmiðjueigandi 674 Sargent Ave., Winnipeg, Canada Erl. simfregnir frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl.). Khöfn 21. febr. Rússar mótmæla innrás Þjóoverja, en eru neyddir til þess, vegna þess hvernig ástatt er i landinq, að sam- þykkja það, að undirskrifa friðarskil- mála þá, er Miðrikin komu fram með i Brest Litovsk. í Dwinsk og Luzk handtóku Þjóðveijar 2500 manna og náðu mörg hundruð fallbyssum. Sækja þeir nú hratt fram frá Riga í áttina til Petrograd. Þjóðverjar hafa sent skotfæri og hergögn til finsku stjórnarinnar. Sviar hafa með vopnum skakkað leikinn á Álandseyjum. Khöfn, 22. febr. Þjóðverjar hafa tekið borgirnar Wolmar og Rowno herskildi. Hand- tóku þeir þar 9000 menn og náðu 1353 fallbyssum og ógrynnum af hergögnum. Austurrikismenn ætla að hjálpa Þjóðverjum að austan ef þess gerist þörf. Maximalistar hafa skorað á rúss- ' • neska herinn að veita viðnám, en það hefir eigi borið neinn árangur. Þjóðverjar afsegja að taka upp samningaumleitanir aftur, nema því að eins að trygging sé fengin fyrir því, að Rússar semji þá frið. Fregnir frá Paris herma það, að Frakkar hafi sótt ofurlítið fram hjá Zorrasne. Tilraunir hafa verið gerðar hér í landi með þráðlaust firðtal. Vega- lengdin var 200 kilometrar og hepn- uðust tilraunirnar ágætlega. Khöfn 23. febr. Þjóðverjar sækja enn fram á aust- urvígstöðvunum. Eistlendingar og Ukrainistar hafa gengið í lið með þeim. Seidler hefir lýst yfir því, að Austurrikismenn muni ekki taka þátt i ófriðnum gegn Rússum. Aðalnefnd þýzka rikisþingsins hefir fallist á friðarsamningana við Ukra- ine. Vopnahlé er aftur komið á á víg- stöðvum Rúmena. Sighv. Blöndahl cand. jur. Viðtalstími kl. 11—12 og 4—6. Lækjargötu 6 B. Sími 720. Pósthólf 2. Kuhlmann, Czernin og Búlgarar segja að fyrst verði að semja frið við Rúmena, áður en saminn verði friður við Rússa. Bretar hafa tekið borgina Jeriko í Gyðingalandi. Khöfn 24. febr. Þjóðverjar og Rússar hafa nú aft- ur tekið upp samninga-umleitanir með lofrskeytum. Þjóðverjar hafa tekið borgina Dubno og handtóku þar 9200 menn. Norðmenn hafa nú alveg nýlega gert fullkominn viðskiftasamning við bandamenn. Jafnaðarmenn frá öllum löndum bsndamanna sitja nú á ráðstefnu í London, til þess að ræða um friðar- kröfur og friðarsamninga. K.höfn 25. febr. Jafnaðarmenn úr bandamannalönd- unum eru nú á ráðstefnu í London Hafa þeir kunngert hver eru þau skilyrði, sem að þeirra áliti eru þau vægustu, sem uppfylla verði ef frið- ur á að komast á. Nefnd er komin til Kaupmanna- hafnar frá Finnlandi til þess að ræða um verzlunarviðskifti Dana og Finna. Þjóðverjar hafa gert eitt spænskt gufuskip upptækt og slegið eign sinni á það. Þýzki herinn nátgast nú óðum Petrograd. Herlög hafa verið sett í Petrograd. Austurríkismenn ætla að senda nýja fulltrúa á friðarfundinn í Brest- Litovsk. Khöfn, 26. febr. Frá Þýzkalandi kemur sú fregn, að Maximalistar fiafi lýst yfir þvi að þeir gengju að öllum kröfum Þjóðverja. Maximalistar hafa yfirgefið Lif- land, Eistland, og Finnland. Allir hermenn í Ukraine hafa verið send- ir heim. Frekari skilmálar verða bornir fram á ráðstefnu í Brest-Litovsk og friðarsamningar þá endanlega undir- skrifaðir. Hertling rikiskanzlari hefir mælst til þess við stjórn Belga, að hún komi fram með friðarskilmála sína. Hefir hann lýst því yfir, að friður- inn geti komist á samkvæmt 4 aðalskilyrðum Wilsons Bandarikja- forseta. Þjóðverjar hafa tekið borgirnar Pskow, Reval, Dorpal og Pernan. Þýzkt hjálparbeitiskip, strandaði á Jótlandsskaga. Skipverjar hafa allir verið kyrsettir. Sendiherrar bandamannaþjóðanna eru farnir frá Petrograd.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.