Ísafold - 15.06.1918, Blaðsíða 4
IS AFOLD
hvergi ódýrari en í verzlun
Hannesar Olafssonar & Co.
verið skýrt af formanni fossafélags-
ins »ísland«.
Nefndarálit íslandsmálanefndar
rikisþingsins danska verður væntan-
lega birt á miðvikudaginn.
Annar fundur íslandsmála'nefndar-
innar var haldinn í gær en næsti
fundur, og líklega ekki sá siðasti,
verður haldinn á mánudag.
Borgbjerg er framsögumaður ís-
landsmála-nefndarinnar i fólksþing-
inu en Krag í landsþinginu.
»Politiken« hefir birt útdrátt úr
ræðu fóns Magnússonar forsætisráð
herra á þingi hinn 30. maf. í blað
inu »Köbenhavn* gerir Knud Berlín
ræðuna að umtalsefni, og hrósar
þar stjórnmálaeinlægni forsætisrið-
herrans, en gerir athugasemdir við
ýms atriði ræðunnar.
Frá Islandsmálanefnd
danska rikisþingsins hefir það frézt,
að hún muni öll mæla með því að
menn verði sendir til íslands til
samninga.
íhaldsmenn í danska þinginu eru
ósamþykkir hinum flokkunum um
valdsvið íslandsmálanefndarinnar.
ErL simfregnir.
Frá fréttaritara ísafoldar.
Kaupmannahöfn, ódagsett.
Frá París er tikynt að frumkvæði
Frakka og Bandríkjamanna hafi hnekt
sókn Þjóðverja.
Þjóðverjar tilkynna að þeir hafi
tekið Vauxbeim, Missyauxbois og
hæðirnar fyrir vestan Chaadun. Eru
þeir komnir að herlinunni milli
Lesoulier og Dommers og hafa hand-
tekið nokkur þúsundir manna.
Zahle-stjórnin nehr fengið 70
atkv. í flokksþinginu en 62 eru i
móti.
Hernaðarástand í Moskva. Tólf
árgangur af herskyldum mönnum
kvaddir til vopna gegn afturhalds-
flokknum (reaktionists).
Khöfn, 4. júni.
Herráð bandamanna hefir vottað
Foch hershöfðingja aðdáun sina fyrir
vörn hans gegn siðustu sókn Þjóð-
verja. Kerlínan er óbreytt.
Gerðadómssamningar Breta og
Bandaríkjanna hafa verið endurnýj-
aðir.
Nýtt tundurduflasvæði hefir verið
gert í Kattegat.
Khöfn. 5 júni.
Þjóðverjar tilkynna að þeir hafi
gert sigursæl áhlaup i gærkvjjldi á
vesturvígstöðvunum fyrir sunnan
Soissons.
Franska blaðið »Le Joornal« býst
við því, að Þjóðverjar muni ekki
komast til Parisar, þó séu horfurnar
mjög vafasamar enn og stórtiðindi
í vændum.
Cooreman er orðinn forsætisráð-
herra Belp.
Frenclí lávarður heimtar 50.000
írska sjálfboðaliða í hetinn fyrir 1.
október og ef þeir fáist muni her-
skylda eigi íeidd í lög í írlandi.
Frá London er símað, að kaf-
bátar Þjóðverja hafi ge'rt vart við
sig vestur undir Ameríku. Höfninni
i New York hefir verið lokað.
Sendiherra Bandarikjanna í Dan-
mörku, dr. Egan hefir sagt af sér
embætti.
Frá Berlín er simað að her þýzka
krónprinsins hnfi ftá 27. maí tekið
650 fallbyssur að herfangi og 5500O
fanga.
Frá Berlín og Paris er simað sam-
hljóða að nú séu að eins gerð áhlaup
hér cg hvar á vigstöðvunum.
Við atkvæðagreiðslu, sem nýlega
fór fram i fulltiúaþinginn franska
um afstöðu til stjórnarinnar, utðu
377 atkvæði með Clemenceau en
110 á móti.
Khöfn. 7. júni.
Vart befir orðið við þýzk tundur
dufl innan landhelgi Bandarikjanna.
Kafbátahernaðurinn þar virðist aðeins
auka hernaðaráhugann þar vestra og
er sagt að flutningarnir til Frakk-
lands séu ohindraðir.
Matvælavandræðin í Austuriíki
eru heldur að minka.
»Allgem. Norddeutsche Zeitung*
litur svo á, að Venizelos og hans
flokkur sé i opinberum ófriði við
Þýzkaland.
Kaupmannahöfn, 8. júní.
Reuters-fréttastofa hefir birt skil-
yrði bandamanna fyrir vöruflutning-
um til Danmerkur.
Frakkar hafa stytkt stöðvar sinar
hjá Locre, Ambleny, Chezy og
Venille.
1 Austurríki er hafin stjórnbylt-
ingat-barátta.
I Moskwa eru stórkostleg samtök
geen Max mahstum.
Innan skams verður öllum útlend-
um stjórnleysingjum vísað úr landi
i Bandarikjunum.
Fehrenback er kjörinn forseti
þýzka ríkisþingsins, en þeir Dove,
Paascbe og Scheidemann varaforsetar
ií, 9. júní.
Khöfn
Varnarnefnd hefir verið skipuð í
París.
Norðmenn hafa fengið víðtæk út-
flutningsleyfi í Ameríku.
Ráðstefna er hafin i Haag milli
Breta og Þjóðverja viðvíkjandi her-
föngum.
Þjóðverjar gera áköf fótgönguliðs
áhlaup hjá Montidier og Noyon.
Frakkar hafa gert áhlaup i Elsup-
skóginum og Vrigny með góðum
árangri.
Landsþingið i Georgien, í Káka-
suslöndum Rússa, hefir lýst landið
óháð riki.
Edvard Brandes gegnir forsætis-
riðherrastörfum til bráðabirgða meðan
Zahle dvelur á heilsuhæli þriggja
vikna tíma.
Khöfn, 10. júni.
Þingmenn í neðri málstofu hol-
lenzka þingsins vilja láta Hollend-
inga beita sér fyrir því að byrjað
verði á friðarsamningum.
Frá Berlín er simað, nð Þjóð-
verjar hafi sótt fram hjá Gury og
fyrir suðvestan Noyon.
Frakkar tilkynna að Þjóðverjar
haldi áfrara hinum grimmilegustu
áhlaupum i vinstra herarmi og fylk-
ingarbrjósti. Frakkar hafa mist
Ceuilly, Resspns sur Matz og Bel-
linglise-sléttuna,
Frá Moskva er símað, að her-
sveitir Þjóðverja, sei^. höfðu Melina
á sínu valdi, hafi beðið ósigur.
Þjóðverjar tilkynna að þeir . hafi
texið borgirnar Matz, Ceuilly og
Ricquebourg á vesturvígstöðvunum
og séu komnir til Bourmont og
Mareuil. Sunnar hafa þeir’ tekið
Lassigny og farið í gegnum Thies-
• »
court-skóginn. Hafa þeir handtekið
þarna 8000 menn,
Hér í Kaupmanrahöfn er stofn.ið
alþjóða sjómannafélag. Havelock
Wilioa er for^eti.
Khöfn 11. júní.
Þjóðverjar tilkynna 1 gærkvöldi að
þeir hafi enn á ný sótt fram fyrir
sunnan og vestan Noyon gegn nýju
varaliði Frakka.
Frá Paris er símað, að bandamenn
haldi öllum stöðvum sinum nema
hjá Antoval og fyrir suðvestan Ribe
court. \
Frá Berlín er símað i kvöld, áð
Frakkar hafi gert árangurslaus gagn-
áhlaup suðvestur af Noyon og Þjóð-
verjar tekið 2000 fanga.
Kosningaumbótafrumvarp þýzku
stjórnarinnar var felt í efri deild
prússneska þingsins, en samþykt
miðlunaifrumvarp, sem ætlar mönn>
um, sem komnir eru á vissan aldur,
og embættismönnum, 2 aukaatkvæði.
Innanríkisráðherrann Jýsti þvi yfir,
að stjórnin neitaði að fallast á þe-s
ar breytingar. Búist er við þvi, að
rikisþingið verði leyst upp í haust.
Efri deild finska þingsins hefir
samþykt lagafrumvarp um konungs-
stjórn í Finnlandi. *
Khöfn. 12. júni.
Frá París er stmað, að bandamenn
hafi gert sigursæl gagnáhlaup hjá
Rudes Court og Maur og sótt fram
um 2 kilometra fyrir austan Mery
og tekið 1300 fanga.
Þjóðverjar sækja enn fast fram i
Matzdalnum.
Borgarstjórnin i Paris er að undir-
búa varnarráðstafanir.
Khöfn. 12 júni.
Þjóðverjsr tilkynna að þeir hafi
b'Otið á brk aftur áhlaup Frakka
hjá Leployron og Antheiris. Þjóð-
verjar hafa gert útrás hjá Oise fyrir
norðan Matz og handtekið þar 3000
menn. Suðvestur af Noyon hafa þeir
tekið þorpið Carlepont og eru nú
komnir að herlinu fyrir norðan
B illy og Tracylival og vestan
N impcel.
Khöfn. 13. júní.
Frá París er sfmað að bandamenn
haldi stöðvum sínum i vinstri fy,k-
ingararmi frá Saint Maur til Antheul
og i hægra fylkingararmi og sæki
fram austur af Mery og fyrir sunnan
Aisne.
Þjóðverjar gera áköf áhlaup.
Sænska utanrikisstjórnin ætlar að
reyna að komasr-afr'samningum við
bandamenn um ull þá, sem Svíar
eiga á ísiandi.
Khöfn. ódagsett.
Keisarasinnum í Rússlandi eykst
fylgi og láta þeir nú allmikið til sín
taka.
Borgarstjórinn i Sheflield á Eng-
landi hefir verið hneptur i varðhald
og ákærður fyrir það að hafa gefið
Þjóðverjum upplýsingar.
Frakkar tilkynna,að ivinstrasóknar-
armi frá Montdidier að Oise hafi
engiu breyting á orðið. Þjóðverjar
hafa farið yfir Matz-ána og etu
kotpnir að Croix Ricards-hæðum
fyrir austan Oise. Frakkar hafa
hörfað undan hjá Bailly og Namp-
celline. SuDnan við Aisne hafa
Þjóðverjar sótt fram vestan við
Dommiers og Cutry.
Austurríkismenn hafa mist vígskip
(dreadnought) sem skotið' var tundur-
skeyti.
Rússnesku fangarnir, sem geymdir
voru í Horseröd í Danmörku, hafa
verið sendir heim til sin.
Véladagbók
(Maskindagbog) handa skipum, gefin út að
tilhlutun stjörnarráðsins, er nú komin
— út og fæst á skrifstofu Isafoldar. —
Ísafoíd — Óíafur Björnsson,
Þeir nemendar, sem ætla að sækja um inngöngu á skólann næsta
vetur, snúi sér til formanns skóbstjórnarinnar, Arna A. I»ork©Í8-
sonar í Geitaskarði fyrir 1. ágúst 1918.
í þeirri von, að A'þirgi veiti styrk þann, sem skólinn hefur ná
farið fram á, til þess að ekki þurfi að hækka meðgjöf heimavistar og
hússtjórnarstúlkna, þá auglýsist hér með, að kvennaskólinn ætlar að starfa
næstkomandi vetur með sama fyrirkomulagi og næstliðið skólaár
Meðgjöf með heimavistar — og hússtjórnarstúlkum var 65 kr. á mán-
uði.^-Skólagjald 25 kr. fyrir bekkjanemendur, en 15 kr. fyrir hússtjórn-
arnemendur.
Stúlkur þær, er ætla að sækja skólann að vetri, geri svo vel að senda
skriflegar umsóknir sínar sem fyrst til undirritaðrar forstöðukonu skólans
og taka jafnframt fram, hverrar undirbúningskenslu þær hafi notið.
Vottorð frá kennara eða fræðslunefnd er æskilegt að -fylgi umsókn-
unum.
Inntökuskilyrði sömu og undanfarin ár. Umsóknarfrestur til 15.
ágúst n. k. Skólinn starfar frá 1. okt. til 14 maí.
Reykjavík, 10 júní 1917.
Ingibjörg H. Bjarnason.
Lækningastofan.
Sökum þess að lækningastofa mín, hefir um lengri tíma, vegna
flutnings verið i ólagi og aðgerð, og eg því ekki getað tekið á móti
öllum þeim, er óskað hafi — þá tikynnist hér með, að nú starfar hún
eins og áður, eftir að eg hefi látið gera ýmsar nauðsynlegar breytingar
og umbætur.
Lækningastofan er opin frá fel. 9—12 fyrir karla, og frá
kl. 1—5 fyrir konur.
Pósthússtræti 7 hús Nathan & OlseD. 3. hæð. Simi 438.
Heima, Óðinsgötu 21. Sími 498.
Virðingarfylst
Steinunn Guðmundsdóttir
Massagelæknir.
Jörö til sölu.
Fáist viðunandi tilboð fyrir ágúst-
mánaðarlok n. k. i jörðina Fremri-
Hvestn við Arnaifjörð, fæst hún
keypt og til ábúðar i fardögum 1919.
íbúðarhús, hlaða, fjárhús, geymslu-
hús öll úr timbri járnvarin, önnur
hús úr grjóti, timbri og járni.
Af túni taða ca. 250 h., úth. ca.
800 h.; beit fyrir fleiri skepnur en
jörðin fóðrar.
Semja má fyrir ákveðinn tima við
eiganda og ábúanda jarðarinnar
Kr- Magnús Kristjánsson.
Matvöruf allskonar
seldar.
Islenzkar aMðir
keyptar.
Hannes Olafsson & Co.
Fatabúöin.
Nýjar vörur
Fjölbreytt inval.
Bykfi akkar.
Regnkápur.
Alfatnaður.
Nærfatnaður.
Manchettskyrtur.
Hálstau.
Brjósthlífar.
Sokkar
Sportbelti.
Axlabðnd.
Enskar húfur
Hattar.
Regnhlífan.
Gwingustaflr o. m. fl.
Ennfremur Pils,
Morgunkjólar og
Nærfatnaðir.
m. m. fyrir kvenfólk.
Yaadaðar vörnr! Lágt verð!
Bezt að verzla í
Fr itabúðinni *
Sími 296. Hafnarstræti 16.
\
f