Ísafold - 09.10.1918, Blaðsíða 4

Ísafold - 09.10.1918, Blaðsíða 4
4 ! S A H O I. D imsstyrjöldin. Friður I nándP Marin motorer tegund ð. M. F. Bezta sænsk tegund. io og 25 hestafla. Pantanir afgreiddar um hæl. Biðjið um tílboð. Einkasalar Kommanditbolaget Milton & Co., Stockholm. Hér fara á eftir helztu simfregnirnar frá því á helginni, » Eigi verður annað af þeim ráðið en að Þjóð'jerjum sé full alvara œeð friðarumleitanir sinar. Er nú beðið svars frá Wilson forseta með fainni mestu óþreyju, um veröld alla. Gerbreytingin sem orðið hefir á þýzku stjórninni, mundi eigi hafa þótt líkleg til skamms tima, að aðalráðherramir tveir eru: prinz »af blóðinu* og eidrauður jafnaðarmaður. Eitthvað meira en lítið geggjað hlýtur ástandið í Búlgariu að vera orðið, úr því svo slunginn maður og Ferdinand keisari hefir eigi treyst sér að sitjr, heidur fengið syni sínum Boris ríkisstjórn og keisaratign t faendur. Svampar og Sápa, í stórum birgðum, í heildsölu og smásölu. Sími 586. Sören Kampmann. Brenslu-spiritus fæst í Hafnarfjarðarapoteki í heildsölu og smásölu, heíi til í tunnum 180 lítra. Berlín, 5. október að kvöldi. Hinn nýi ríkiskanzlari, Prinz Max von Baden, hélt ræðu í ríkisþinginu í dag. Gerðu vinstrimenn og miðflokkurinn ágætan róm að henni og varð kanzlarinn oft að þagna meðan á samsinnishrópunum stóð. Hann mælti meðal annars á þessa: „Vegrta hins óviðjafnaníega hraustleika hers vors, er herlínín vor að vestan órofin enn þá. Getum vér því vongóðir horft fram i tfmann, en hitt má oss eigi gleymast, að það er skylda vor, að stríðið standí eigi einum degi lengur en þört er á og að vorum dómi er hægt að semja frið, án þess að heiður vor sé skertur. Með samþykki allra, sem þar til hafa verið kvaddir í ríkinu og í samráöi við bandamenn vora hefi eg því að kvöldi hins 5. október sent forseta Bandarikjanna ávarp í gegnum svissnesku stjórnina og beðið hann að gangast fyrlr friðarsamningum og setja sig í samband við allar ófriðarj>Jóðirnar í því filefni. Ávarp þetta hefir annaðhvort komið f dag, eða kemur f fyrramálið til Washington. I»að er stílað til íorseta Bandaríkjanna vegna þess, að í þingræðu sinni 8. janúar 1918 og í seinni ræðnm, sór^taklega í þeirri er hann héit í New York 27. september, hefir hann markað grundvöll alheimsfriðar á þann hátt, að vór getum vel gengið til samninga eftir honum*. Khöfn 5. okt. Frá Berlín er símað að Austur- ríki hafi farið fram á það við Hol- land, að það kæmi á friðarráðsteÍDu og hifi Holland þegar snúið sér tii ófriðarþjóðanna í því efni. Hið þýzka ráðnaeyti, undir stjórn Max voa Baden, er enn eigi full- skipað. Frá Wien er símað, að ítalir hafi hafið sókn í Albaníu, milli Osum og hafs. Austurríkismenn hafa yfir gefið Firi og Berat. Stjórnmálaflokkarnir í Austurríki vilja koma á endurbótum innan rikis- íns og gera úr því bandaiíki, með þjóðlegu sjálfstæði. Símað er að fundinn sé óbrigðul! grundvöllur undir úrslitafriðarhreyf- ingu, eftir rækilega yfirvegun. Er búist við því, að Miðríkin komi flatt upp á heiminn innan skams. Erl. simfregnir Frá fréttaritara ísafoldar. Khöfn. okt. Frá Sofía er símað að Ferdinand konungur hafi lagt niður völd í hendur ríkiserfingjans, sem þegar hafi tekið við ríkisstjórn. Frá Beigru er símað að miðflokks- þingmaðurinn Gröber, Scheidemann og Erzberger séu aukaráðherrar i nýja þýzka ráðuneytinu. Dr. Soif er utanríkisráðherra. Frá London er simað að banda- menn sæki enn fram hjá Lens og Armentieres og hafi tekið 8000 fanga. Kaupmannahöfn, 6. okt. í þingræðu sinni mælti hinn ný1 kanzlari Þjóðverja á þessa leið: »Vér föllumst á það að stefnu- skrá Wilsons sé aðgengilegur grund- völlur að friðarsamningum. Þess vegna hefi eg, með milligötigu sviss- nesku stjórnarinnar, símað forseta Bandiríkjanna á föstudagskvöld og skorað á hann að beita sér fyrir fiiði og kveðja allar ófriðarþj >ðir ti friðarfundar. Vér erum iúsir til þess að styðja að því að alþjóða- bandalag komist á, að Belgía verði endurreist og henni greiddar hernaðar- skaðabætur. Og þeir triðar samningar, sem þegar hafa verið gerðir, eiga eigi á neinn hátt að vera þessu til fyrirstöða*. Tyrkir hata einnig boðið frið. Sören Kampmann. VERZL. GORAFOSS, Laugavegi 5 hefir miklar birgðir af hárgreiðum, t. d.: horngreiður á 1.90, 2.75 og 3.50, beingreiður á 3.25 og 4.73. Eau de Cinin 3.25, Bairum 3.23 og 6.75, Burrerod Spiritus á 3.23, Skraut-Hárnálar og Speglar smáir og stórir, o. fl o. fl. * Pantanir sendar út um land gegn eftirkröfu. Sími 436. „merkúr". JTl á í g a g tt verzíunarmanna. Kemur út einu sinni í mánuði. Kostar 3 krónur árgangurinn. »Merkúr« óskar að fá útsölumenn og fasta kaupendur um land alt. Verzlunarmennl Styðjið blað yðar með ráðum og dáð. Utanáskrift blaðsins er: „M ■» kúr“. Box 157. Reykjavik. Khöfn, 6. okt. — Friðarskilyrði Wilsons eru þau, að Pólland verði gert sjáltstætt ríki, og téi hin póisku héruð Prúss- lands. Frakkar tái Elsass- Lothringen. — Serbia og Belgía verði endurreistar og engin viðskiftastyrjöld að stríðinu loknu. Khöfn, 6. okt. kl. 16,85. Wolffs fréttastofa tilkynnir opin- berlega: — Þýzka stjórnin skorar á forseta Bandaríkjanna að beitast fyrir þvi að koma á friði aftur, og fá allar ófriðar- þjóðirnar til þess að kjósa fulltrúa á friðarstefnu. Þýzka stjórnin felst á friðarskii- yrði Bandaríkjaforseta. Til þess að komast hjá frekari blóðsúthellingum, fer þýzka stjórnin fram á það, að þegar í stað sé sarnið vopnahlé á landi, sjó og í lofti. Max prins af Baden ríkiskanzlari. Khöfn 6. okt. »7orvarts« segir frá því, að rúss- neska Sovjets-stjórnin hafi upphafið friðarsamninguna við Tyrki og fari fram á að þjóðverjar upphefji Brest- Litowsk friðarsamningana. Khöfn 6. okt. Þjóðverjar halda enn undan f Champagne og Flandern. Frá Le Havre er símað að banda- menn hafi sótt fram um 14 kíló- metra á 40 kílómetra svæði og hafi handtekíð 10.000 menn og tekið 330 fallbyssur herfangi. Khöfn 7. okt. Agence Havas-fréttastofan segir að svar Frakka við friðarbeiðni Þjóð- verja munu verða ákveðið, en þvi mun ekki hraðað. Vissulega munu Frakkar neita að semja vopnahlé nema þá með þeim skilyrðum, sem Foch yfirhershöfðingi kann að selja. Frá Vínaiborg er símað, að Aust- urríki og Tyrkland hafi einnig sent vopnahlésbeiðni til Wilsons forseta. 80,000 manns hafa verið fluttar burtu úr New Jersey vegna yfirvof- andi sprengingarhættu. Uppgjöf Búlgara. Berlín, 8. okt. Frá Sofia er símað: Það hefir vakið mikinn fögnuð í landinu, að Boris skuli nú orðinn konungur því að hann er ákaflega vinsæll af alþýðu og eins meðal hersins. Konun^ur hefir nú undirskrifað sitt fyrsta konungsbréf og eru i því eftirfarandi skilyröi um vopnhlés- samningana:' Búlgarar yfirgefa öll þau héruð sem lutu Serbíu og Grikklandi áður en ófriðurinn hófst. En þau héruð, sem bandamenn hafa tekið af Búlg- urum, svo sem Strumitza, verða þeim afhent aftur. Búlgarar afvopna allan her sinn að undanteknum þremur herdeildnm og fjórum tvífylkjum riddaraliðs, sem þeir hafa til landvarnar við austur- takmörk Dobrudscha. Vopn og hergögn þess liðs, sem heim er sent hafa Búlgarar en það verður undir eftirliti bandamannahersins. Sá hluti Bútgarska hersins, sem eiuangraður var vestan við Uskub, þi cr vopnahlés-samningar voru undirritaðir 29. september verður látinn leggja niður vopn og hafa bandamenn fyrsr um sinn huld 1 þeim. Liðsforiugjar fá að halda vopnum sínum. Þýzkaland, Austurríki og Ung- verjaland fá fjögra vikna frest til þess að hverfa með her sinn á burtu úr Búlgaríu, Innan hins sama tíma '<erða og ræðismenn og fulltrúar Miðríkjanna og borgar þessara ríkja að fara á brott úr landinu. Utan af landi. Stórviðri á Siglufirði. Siglufirði í fyrradag. Afskaplegt norðvestanrok í gær og nótt og stórrigning í þrjú dægur. Vatnið hjá Hrauni i F jótum hækkaði um eina alin. Skipin »Gunnvör« og »NjálI« strönduðu, sömuleiðis sænskt síldar- flutningaskip og vélbátarnir »Georg* og »Drangey«. Talsverðar skemdir urðu á húsuaa og bryggjum. Sildaraflinn hér í surnar nemur 40 þús. áfyitum tunnum. Skilaboð til „Tímans“. Af því að eg hefi frétt að »Títn- innc haldi áfram uppteknum hæti"J, að senda okkur »tóninn« og þó sér- staklega mér, þá ætla eg að biðja þig, I jafold mín, að skila til hans, að eg muni aftur svara honuno, blessuðum! með fyrstu ferð eftir að eg hefi lesið lofsöng hans. En af því ritstjórinn virðist illa að sér í póstgöngum hér á laadi (eftir þv sem kon í ljós þegar ég var í Reykjavík síðast, þá álítur hann að við getum svarað eins fljótt og Reykvíkingar), þá bentu honum á fyrir mig að fá sér pórtáætlun á pósthúsinu og athuga hana. Svo getur hann á meðan gert hvort seœ hann vill, »jórtrað« eða »legið á' meltunnic. Helzt vildi eg hann þagnaði ekki strax. Hólmavík, 23. sept. 1918. Mavnús Pétursson. ReykjaYíknrannáll. Skipafregn: S (1 e r 1 i n g fór í hringferð f gær, með hinn mesta sæg af farþegum. Látin er f gær, hór f bæ, næatelzta dóttir frú Sigrúnar Bjarnason, Ingi- björg, á 11. ári. Var hún af fyrra hjónabandi frú Sigrúnar, dóttir Björns heit. Ólafssonar augnlæknis, hin mannvænlegasta stúlka. Fisksalan tii Eaglands. Bota- vörpungarnir hafa selt afla sina í Bretlandi upp 4 síðkastið fyrir stór- fó, þetta 7000—8000 sterlingspund, síðast Skallagrímur sinn afla á 7500 sterlingspund. Sambandssáttmálinn verður til umræðu f Stúdentafélaginu á íöstu- dagskvöld. Má þar búaBt við fjörugum um- ræðum.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.