Ísafold - 30.11.1918, Page 3
IS AFOLD
Kveðja til franska hersins
Efcir Gabriele d’Annunzio.
(ítalska skáldið fræga, Gabriele
d’Annunzio flaug til Frakklands i
byrjun októbermánaðar siðastl. og
heirnsótti Berthelot hershöfðingja,
er stjórnaði liði ítala á vesturvig-
stöðvunum. Við það tækifæri flutti
skáldið ræðu þá er hér fer á eftir
og dreifðu flugvélar henni yfir her
stöðvar Frakka).
Hershöfðingi! Eg er irmilega
hrærður af hinum stórmannlegu við-
tökum, er þér veitið mér, hermaður
hermanni, trúr trúum. Og hjarta
mitt hefir stöðugt verið þrungið af
þessari geðshræringu frá þeirri stund
er eg íór yfir Alpafjöllin vor fögru,
sem ekki skilja oss nú lengur að,
heldur tengja oss saman, frá þeirri
morgunstund er eg, boiinn af björt-
um vængjum, á sléttunni niðurundan
kannaðist eg við bros hins blíða
Frakklands — brosið sem sterkara
er en járn og eldur.
Eg flyt yður, hershöfðingi, þökk
allra Itala fyrir þá hina ströngu ást
er þér hafið vottað hermönnum vor-
nm, voru bróðurlega blóði, hinum
sælu, er fallið hafa á franskii fold,
innsiglað hin dularfullu blóðbönd og
staðfest heit sin til framtíðar vorrar.
Eg hefi áður verið hugtrúr gest-
ur hins liðandi Frakklands; i dag er
eg gestur hins sigrandi Frakklands og
er sem mér sé ofbirta í augum.
Aldrei hefir blóð hinnar fijálsu þjóð-
ar Ijómað sem nú. Það er eins og
lifandi ljómi þeirrar trúar er vér ját-
um. í dag fremur en nokkru sinni
áður berst það gegn veistu eyði-
leggingu, spillingu og svikum til að
frelsa fegurstu vonir vors kyns og
heiðra hæstu hugsjónir lifsins.
Á morgun mun það starfa að því
að rita komandi kynslóð nýjar lög-
málstöflur.
Allan vesturhluta heims — með
þeirri fegurð, helgi, hetjuandi og
vizku sem latneska orðið occidens
felur í sér hefir það samemað i
iðkun staðfestu og biðlundar.
Við Frakkland eins og það er nú
á lofsöngur hins helga manns: »Þótt
það sé óendanlega lært, þá kann
það ekki meira; þótt það sé óendan-
iega voldugt, getur það ekki gert
meira, og þótt það sé óendanlega
gjöfult, þá getur það ekki gefið
meira.«
Allar þess aldir treð öllum sínum
mikilleik virðast fölna og hverfa i
skuggann. Hver mundi dirfast að
minnast á foina hetjudáð við hinn
litilmótlegasta af loðinkinnum yðar?
Hinn lítilmótlegasti hefur sig jafn-
hátt og örlögin og örlögin eru nú
hin hæstu og stórfenglegustu er
nokkru sinni hafa gnæft yfir æði
og manndráp.
Það finnur upp hugrekki er óþekt
var Spartverjum og Rómverjum,
riddurum miðaldaljóðanna og arnar-
rekkum. Það sannar, að mannlegt
hugrekki, eins og alt annað mann-
legt nú á dögum er takmarkalaust.
í föðurlandi Guynemers halda menn
hvern dag að nú sé tindi hreystinn-
ar náð, og næsta dag hefir ný hetja
komist hærra.
Þannig hefir barátta Frakklands
þúsund sinnum og aftur þúsund
sinnum, yfirgengið frægð Lauga-
skarðs. Hér er lykillinn að föður-
landinu ekki milli íjalls og fjarðar:
hann stendur djúpt i hverju hjarta
er rís til varnar. Sé ekki vegljóst,
þá veldur því alt annað en fjaðra-
flangar Persa. Menn bryðja eitrið,
troða eidana, tárast svörtu blóði.
Brunatryggið hjá
„Nedsr!andene“
Félag þeita, sem er eitt af heims-
ins stærstu og ábyggilegustu bruna-
bótafélögum, hefir starfað hér á landi
í fjölda mörg ár og reynst hér sem
annarstaðar hið sbyggilegasta í alla
staði.
Aðalumboðsmaður:
Halldór Eiríksson,
Laufásvegi 20 — Reykjavík.
Sími 175.
Verstu vitisvistir sem Dante hefir
lýst væru sem hvíldarstaður fyrir
grímumanninn í Picardie eða Cham-
pagne. Verjeodur risi úr hverju
plógfari? Nú eru engin plógför
lengur. Verjandi tís af hverri þúfu?
Nú eru engar þúfur lengur. Nú er
ekkert annað en gleypandi gigir.
Verjandinn endurfæðist hér af sál
sinni, og sálin hans er kraftaverkið
hans.
Upp þeir sem dauðir erul Svo
kölluðuð þér einhverstaðar í nátt
myrkrinu. En hinir dauðu lágu ekki.
Þeir stóðu allir: krossfestir grafat-
laust.
Frakkland hefir ekki tima til að
gráta þá. Það getur ekki grátið. Það
getur ekki annað en banst. Það
þjáist og berst, stritar og blæðir
með oss, með þjóðunum sem ekki
verða aðskildar, með einstakri og
frjálsri þjóð, sem bál og brandur
striðsins hefir leikið um en ekki
tæmt að kröftum.
Frakklandi er það að þakka, að
nú er eitt víst: ljósið hverfur fyrir
fult og alt af trýni illþýðisins og
skin æ skærar á enni fylkinganna.
Þar sem eg hefi daglega í auð-
mýkt unnið eitthvað af trúmensku
við málstað Frakklands, hinn göfuga
uiálstað þess, er eg, hershöfðingi, ef
til vill verður þess að flytja yður
kveðju til fianska hersins, þeirrar
hinnar öflugu öldu orðstírsins er
fleytir hverri fórn og fer hátt með
öllum himinskautum.
---------— ■ „
Mannalát.
Hér í bænum lézt í fyrradag öldr-
uð merkiskona, ekkjufrú Elinborq
Friðriksdótíir, móðir frú Kristínar
Jacobsen, jóns heit. Vídalíns konsúls
og þeirra systkina. Hún var á ní-
ræðisaldri. Fyrri maður hennar var
Páll alþm. Vldalin í Viðidalstungu,
en siðari Benedikt prófastur Krist-
jánsson (i Múla). Sjálf var hún dóttir
sira Friðriks Eggerz prests (d. 1803).
Tveim dögum áður lézt i Vífils-
staðahæli sonardótrir hennar, Helqa
Vidalln, dóttir Páls heitins bónda i
Laxnesi.
Frá Þingeyri barst i gær simfregn
um, að Jóhannes Proppé kaupmaður
væri dáinn úr inflúenzu-lungnabólgu.
Drepsóttin.
Reykjavik er nú því sem næst
laus orðin úr klóm hennar. All-
margir liggja þó enn.
í Vestmannaeyjum er hún nú á
hæsta stigi. Þangað fór Valurinn að
tilhlutun stjórnarráðsins með síma-
fólk, því stöðin hafði verið starf-
rækslulaus 5 daga vegna veikindanna
og fréttalaust þaðan með öllu. Þar
Delco-ljósið
hefir rafgeymir
Notar að eins
steinoliu.
Deico-ljósið
getur notað benzin, en verk-
smiðjan mælir fyrst
og fremst mtð
Steinolíu.
Delco-ljósið er nafn á fullkomnri rafmagnsvél, sem framleiðir rafmag nmeð steinolíu.
Hvers vegna keppir heimurinn eftir
Delco-ijósinu—?
Svar:
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Delco-ljósið
Iengir lífið og gerir það þægilegt.
sparar tíma og penitiga.
er altaf tilbúið nótt og dag.
segir ekki upp starfa sínum, heldur er altaf tilbúið þegar þér óskið.
lýsir upp heimilið og gerir það vinalegt, þægilegt og bjan.
borgar sig sjálft á fáum árum.
— minsta vélin — notar að eins 1 litir af steinolíu á kl.tima og fram-
leiðir fyrir það 730 kerta ljós.
hefir geymir er gefur í viðbót 750 kerta ljós — alls á sama tima 1500
Ijós.
er því ódýrasta 1 j ó s i ð.
fæst í mismunandi stærðum, hentug fyrir einstök hús, skóla eða stærri
byggingar, verkstæði, verksmiðjur, bóndabæi, smærri þorp og kaupstaði.
er smurt á einum stað — einu sinni í viku.
-- mótorinn kældur með lofti, þarf þvi ekkert vatn, engin hætta í frosti.
er nútíðarinnar ljós.
er ljós framtiðarinnar.
er hentugt til að framleiða kraft til allskonar iðnaðar- eða heimilisþarfa,
svo sem strauningu, suðu, þvotta, vatnskrafts — úti eða inni —, hreins-
unar í húsum, mjöltunar á sveitaheimilum o. fl. o. fl.
fæst altaf hjá undirrituðum.
Rafmagnsáhöld,
Lampar allsk., Straujárn,
Könnur, Pottar o. fl,
Þetta er Delco-ljósið með geymir.
Þetta er mótor til að nota
við skilvindnr, þvottavélar o.fl.
Innsetning á rafmagnsleiðslum gerð af sérfræðingum I þeirri grein.
Sendið fyrirspurnir yðar til
Rafmagnsverzlunarinnar, Kolasundi 2.
Sigurjón Pjetursson.
Sími 137.
J. Ingvardsen.
(rafmagnsfræðingur) viðurkendur af ríkinu.
Lm C *3
cx 1 -C
c Q* tmm T3 O) cd •o s. a> *a
cd *ní £
*c« tmm c
CM 3 a>
tmm -3 C o >
3 E co
"aS m
«o I
co 1
«o
1 03
o co
o crt
o Q 03 CL
Þetta er Delco-Ijósið með geymir.
Einkasala
fyrir ísland <og Færeyjav.
eru sögð 14 mannslát af völdum
inflúenzunnar.
Austanfjalls er veikin víða mögn*
uð. Þangað hafa nokkurir lækna-
nemar verið sendir til aðstoðar lækn-
unum. Allmargir látist.
Upp um Borgarfjörð og annars-
staðar í sýktum héruðum er veikin
yfirleitt væg. Norður- og Austur-
land enn ósýkt.
Dánir í Reykjavík:
Áata Blomsterberg, húsfrú.
Carl Fondanger, prestssonur frá
Jótlandi.
Edward Jensen, danskur sjómaður.
Guðm. Kr, Eyjólfsson, ökumaðar,
Bergstaðastræti 11.
Iugvar Guðmuudsson, trésmiður,
Ingvar Johansen, bróðursonur Rolf
Johansen kaupmanns á Reyðarfirði.
Jensína ísleifsdóttir, Laufásvegi.
Katrín Guðlaugsdóttir, Tjarnarg. 8.
Magnús þorsteinsson, barn, Vita-
stfg 8.
Ragnheiður G. Gísladóttir, Vita*
stig 8.