Ísafold - 29.08.1920, Blaðsíða 4

Ísafold - 29.08.1920, Blaðsíða 4
ISAFOLD síðast í þessurn mánuði er 200 ára j dánarafmæli hans. Fremst er ,mynd af i Yídalín. Þá er næst mjög vönduð rit- gerð um Vídalín og sérstaklega pí'édik- anir hans, eftir dr. Jón Helgason, biskup. pví næst er ýmislegt smávegis um Vídalín eftir Hannes skjalavörð' Þorsteinsson og líkræða er flutt var j yfir honum. Er (þetta alt óprentað áð- ur og sumt óþeiit þar til nú. Lokis er kvæði eftir vigslubiskup Valdemar Briem, er hann nefnir „Síðasta kveðja Jóns biskups Vídalín, eða Góð heim- von“. Alls er þessi kaíli um Vídalín 56 bls. — Ritið er 168 bls. og vandað að öl'lum frágangni, og kostar þó ekki nema 5 krónur, er kallast má ódýrt um slíkt rit nú. Ættu menn að kaupa það sem flestir, því að iþað «r í alla staði vandað og eiguLegt. Sumarvistarbörn Oddfellows, sem verið hafa uppi í Borgarfirði í sumar, komu á sunnudaginn með Skildi úr Borgarnesi. Sjötíu manns eru nú að vinnu viS rafmagnsstöðina. Ibúðarhúsið inni við Artún er nærri tilbúið og byrjað að steypa sjálft stöðvarhúsið. Tollög o. fL Verzlunarráð íslands hefir látið safna öllum gildandi toll- lögum í eina heild og gefið þau út í eérstakri bók. Hefir, svo sem kunnugt er, mikill ruglingur komist í þau lög við hinar ýmsu breytingar, sem gerðar bafa verið síðustu árin, svo það var ekki auðvelt að átta sig á biniim sér- stöku atriðum í fljótu bragði. Enn- fremur er í bókinni allar gildandi við- ekiftaráðstafanir hins opinbera, skipa- gjöld og hafnargjöld og hafnsögugjöld í Reykjavík. — Bók verzlunarráðB- ins ættu allir kaupsýslumenn að kaupa. Hún er þeim í raun og veru ómissandi. Eimreiðin, 4. hefti 26. árgangs er nýkomið út. Flytur hún að þessu sinni sögu eftir Guðm. Kamban: „Þegar konur fyrirgefa‘', smágreinar um ís- lenzkt veðráttufar með 5 myndum, eft- ir Samúel Eggertsson, Gróðrarveður, stöku eftir H. Blöndal, Bjartar nætur, kvæði eftir Stefán frá Hvítadal, Krilof og nokkrar af dæmisögum hans, eftir Ólaf Ólafsson, Sönglag við „Hreiðrið mitt“, eftir Jónas Tómasson, Utan úr heimi, Töfratrú og galdraofsóknir og Fresco-söguna. Verður heftisins ef til vill getið nánar síðar. M.b. Reginn kom frá ísafirði fyrra sunnd. eftir nær því 3 sólarhringa ferð þaðan. Fékk hann versta veður á ieiðinni og varð að liggja alt að sólar- hring á Breiðuvík norðan Látrabjargs vegna ofveðurs. Farþegar með skipinu voru m. a. Jón Oddsson skipstjóri og frú hans. Eru þau á leið til Englands. Rotturnar. Verkamaður, sem lengi hefir unnið niður á uppfyllingfu og í geymsluhúsunum þar, segir að árangar ,,Ratin“-eitmnarinnar sé mjög góður. Hefir rottum fækkað svo mjög í húa- unum, að þær varla sjást þar nú, en áður voru þær (þar í þúsundatali. Sölubúðarhús Péturs Gunnarasonar við Austurstræti er nú nær fullgert. Flytur Landstjarnan þangað bráðlega. Veitingasalur Rosenbergs á Nýja Bíó er nú allur kominn í ágætt lag. Er þar vistlegt mjög, enda hefir gestar- gangur verið þar mikill undanfarið. Veitingar eru þar ágætar og heifur og kaldur matur fæst þar allan dag- inn. Bræðumir Eggert og pórarinn skemta fólkinu. Hey kemur mikið til bæjarins bæði taða og úthey. Flugvélina er nú búið að taka sund- ur og koma henni vel fyrir undir vet- urinn. Flugmennirnir fara hóðan bráð- lega. Kristinn Sveinsson húsgagnasmiður hefir nú opnað verzlun í hinu nýja húsi Jónatans Þorsteinssonar við Vatnsstíg. En svo sem kunnugt er, var verzlun Kristins áður í hiúsinu sem brann. Frk. Ólafía Jóhannsdóttir, sem um allmörg ár hefir dvalið í Noregi, er nú nýkomin hingað, og hefir hún talað opinberlega bæði hér og í Hafnarfirði. Var gerður ágætur rómur að máli hennar. Þingmenn iþrjá eiga Reykvíkingar að kjósa í vetur fyrir næsta þing. Tvo þeirra samkv. lögum frá síðasta þingi, og einn í stað Sveins Bjömssonar, sem hefir sagt af sér þingmensku. Alveg mun óráðið hverjir verða í boði og und- irbúningur enginn hafinn. Grettissundið. pað átti að fara fram fyrra sunnudag, en fórst fyrir vegna þess að sárfáir eða engir þátt- takendur höfðu gefið sig fram. Hvað veldur? Fyrir nokkrum árum var áhug- inn á sundíþróttinni mjög almennur hér, sundskáli reistur suður við Skerja- f jörð og daglega fór stór hópur ungra karla og kvenna þangað og synti. Nú heyrist enginn minnast á sund, nema lítilsháttar í sambandi við kensluna í Laugunum. Munu þó tæplega finnast rök fyrir iþví, að íslendingum sé ónauð- synlegra að læra sund og iðka það nú, en þá varf En það vill brenna við hvað íþróttaiðkanir snertir, eins og svo margt annað í þessu landi, að menn byrja með miklum móði, en áður en varir hjaðnar áhuginn. Betur væri, að þetta væri ekki nema stundar áhuga- leysi, að því er sundinu viðvíkur, því það er oss flestum íþróttum fremur gagnlegt að kunna. Holtavegurinn, milli pjórsár og Ytri-Rangár er nú að kalla ófær vöru- flutningabifreiðum, og illfær fólks- bifreiðum. Eru skemdimar á veginum svo miklar, að tugi þúsunda króna mun þurfa við til þess að koma honum í skaplegt ástand aftur. Telja bifreiðar- stjórar sig eyða nálega eins miklu benzíni yfir Holtin, sem er um 20 kílómetra vegur, eins og héðan úr bæn- um austur að Þjórsá, sem er 70 km., og þar að auki skemmir vegurinn bif- reiðarnar. Bjarni Sæmundsson adjúnkt hefir starfað að fiskirannsóknum við Aust- urland í sumar og er nýlega kominn heim ’aftur. Rafstöð í Borgarfirði. Steingrímur Jónsson rafvirkjafræðingur fór fyrir nokkru upp að Andakílsá og athugaði þar skilyrði fyrir rafstöð til ljósa- og aflframleiðslu handa nærliggjandi bæj- um. Er foasinn talinn hentugur til virkjunar. Verða gerðar áætlanir um stöð á þessum etað, og kemur þá fyrst fram, hvort tiltækilegt verður uð leggja út í fyrirtækið. En óskandi væri, að það reyndist Meift, því nauðsyn ber til, að einhversstaðar verðv hsegt að fá reynslu í því, hvort raforkan get- ur numið burt þá erfiðleika, sem orðnir eru á íslenzkum sveitabúskap á síðustu árum. -------o------- Frú Björg Blöndal, kona Sigfúsar bókavarðar, hefir dvalið hér í 3umar, en er nú á förum til útlanda. Hefir hún hlotið styrk úr sjóði Hannesar Árnasonar fyrir næstu þrjú ár og er fyrsta konan, sem styrk fær úr þeim sjóði. Síðasti styrkþegi var prófessor Sigurður Nordal, en á undan honum próflessorarnir Á. H. Bjarnaison og Guðm. Finnbogason. Hólmsárbrúna, sem fór af í hlaup- inu sem varð í sambandi við Kötlu- gosið síðasta, er nú verið að byggja aftur. Verður hún á sama stað og gamla brúin var, en brúarstæðið hafði skemst að mun við hlaupið og verður því nýja brúin mun lengri en hin. Gert er ráð fyrir, að brú þessi verði fullger í haust. Geir Zoega vegamálastjóri er staddur þar eystra nú, og hefir eftir- lit með smíðinu. Dr. Jón Helgason biskup er nýkom- inn heim úr vísitazíuferð um Snæ- fellsnes. Vísiteraði hann í 14 kirkjum í Snæfellsprófastsdæmi og prédikaði í 8 eða 9 þeirra. Með honum var í ferð- inni Lunding, danskur stúdent, sem verið hefir gestur hans í vetur. Voru þeir 16 daga að heiman, eða litlu fleiri en kirkjurnar voru, og má það heita greið ferð. Votviðrasamt hefir verið þar vestra undanfarið og heyskapur ekki gengið vel. Ágúst H. Bjarnason prófessor kom heim með „Vínlandi“ síðast úr utan- för sinm. Hefir hann dvalið lengist af í Englandi og Sviss en 10 daga var hann í Frakklandi. Prófessorinn lætur hið bezta yfir ferð sinni. Ríkissjóðslánið fengið. Ríkissjóðs- lán það, sem leitað var í vetur, er nú innborgað og lofað að fullu. Ríkis- iskuldabréfin með tilheyrandi vaxta- miðum afhenda bankamir gegn því, að bráðabirgðaskírteinunum sé skilað aftur. Jón Jacobson yfirbókavörður og frú hans eru nú stödd í Kristjaníu og var silfurbrúðkaup þeirra fyrir nokkrum dögum. Hafa þau hjón sent ísa- fold eftirfarandi skeyti, sem vér hérmeð dátum fara til allra hlutaðeig- enda: „Hjartans þakkir fyrir allar heillaóskirnar á silfurbrúðkaupsdegi okkar. Kristín og Jón Jacobson. Reglur íþróttasambands íslands um knattspyrnumót eru nýlöga komnar út í annari útgáfu. Er þessi útgáfa nokk- uð breytt frá því sem hin fyrri var. Eru reglur þessar gagnlegar öllum knattspyrnumönnum og þeim öðrum, er áhuga hafa á knattspyrnu. Ritling- urinn fæst í Bókaverzlun Sigf úsar Ey- mundssonar. Dánarfregn. f síðastl. viku andaðist hér í bænum ekkjan Helga Sigurðar- dóttir frá Árbæ í Holtum. Misti hún mann sinn, merkisbóndann Helga Sig- urðsson, fyrir nærri þrjátíu árum og brá þá búi. Var heimili þeirra hjóna annálað fyrir rausn og myndarskap. Helga heitin fluttist á Eyrarbakka eft- ir lát manns síns og dvaldi þar allmörg ár, en þaðan fór hún hingað til bæj- arins og var búsett hér á annan tug ára. ðnnur dóttir hennar, Sigríður Helgadóttir frá Reynifelli, lézt í fyrra- vor, en hin er Ingibjörg hjúkrunar- kona, sem mörgum er að góðu kunn hér í bænum. Var hún ellistoð móður sinn- ar, sem legið hafði rúmföst í marga mánuði. Helga heitin var merkiskona hin mesta og vinsæl af öllum þeim, er hana þektu. Skipstrand. Um fyrri helgi rak danska seglskipið Hebe á land í Kefla- F, H. KREBS I medlem af Dansk Ingeniöjforening I KONSULTEREN DE INGENIÖRFIRMA for Projektering og Udbygning af: KRAFTSTATIONER, Vandkraft, Damp, Diesel, Sagegas osv. ELEKTRISKE KRAFTOVERFÖRINGS- 0G FORDELINGSANLÆG ELEKTRiSK Varme, Lys, Drivkraft m. v. 0RGAN1SATI0N AF ELEKTRIC1TETSF0RSYNÍNG KÖBENHÁVN V., Alhambravej 17. Tlgr. Adr. Elektrokrebs víkurhöfn og brotnaði mjög. Kom það þangað fyrir nokkru, fermt salti til Matth'íasar pórðarsonar, og var nær helmingur farmsins kominn á land. Ofsarok skall á og er skipverjar sáu að skipið var farið að reka, fóru þeir á skipsbátnum í land, en litlu síðar var skipið komið upp í kletta. Sveinn Björnsson sendiherra hefir keypt sér íbúðarhús (Villa) í Charlott- enlund við Kanpmannahöfn. Flugið, Svo fór að lokum, að benzín það, sem tii var hér handa flugvélinni, var ekki notað alt. Eru eftir fyrningar dálitlar til næsta árs, svo sem til klukkustundar flugs. Vélin er nú kom- in ,,í smátt“ og sézt ekki framar á lofti þetta árið. Er í ráði að Frank Fredricksson ferðist eitthvað nm Borg- arfjörð og víðar til þess að athuga lendingarstaði, áður en hann fer vest- ur um haf aftnr. Daníel Oddsson símritari er orðinn stöðvarstjóri í Vestmannaeyjum. Rottueitrnnin. Vér hittum Gísla Guðmundsson gerlafræðing að máli fyr- ir nokkru og spurðum hann nm árangur rottueitrunarinnar. Kvað hann nn eiga að eitra með allri strandlengjunni utan úr Örfirisey og alla leið að Langamesi. Pað hefði verið gert fyrir nokkru, en nauðsyn á að endurtaka eitrunina. — Hefði þegar orðið mikill árangur af fyrstu eitruninni og fjöldi dauðra rotta fundist hér vestur með sjó og á uppfyllingunni Ráðgert væri að maður frá Ratin- félaginu kæmi hingað í haust og ætti hann að sjá um að eitrað væri í öllum húsum bæjarins. Mundi bænum þá verða skift í hverfi og eitrið lagt út nm allan bæ á nokkrum dögum. Hefði slík aðferð verið höfð t. d. í Randers og nær alveg útrýmt rotu þar. Rotta hef- ir gert og gerir hér enn afskaplega mik ið tjón, svo það er mjög þarflegt að útrýma henni. Líklega mun það kosta rúm 25 þúsund kr., en það er latið í samanburði við tjónið, sem rottan gerir á hverju ári hér í bæ. Danskur prestur, Skat Hoffmeyer, er væntanlegur hingað ásamt frú sinni í októþer. Ætla þau að dvelja hér í 6 vikna tíma, og mun hann prédika hér og halda fyrirlestra. Tundurduflahættan. Varðskipið „Beskytteren“ skýrði frá á Siglufirði í síðustu viku, að til Bakkaf jarðar hafi komið inn fœreysk skúta, sem segist hafa séð nokknr tundurdufl við Langa- nes fyrra suunudag. Þetta bend- ir til þess, að tundurdufl séu ennþá á reki á þessu svæði og eru sjómenn við Austnrland ámintir nm að fara framvegis gætilega og tilkynna strax, ef þeir sjá einhver tundnrdufl. Eígendaskifti eru nú oTðin aið lög- fræðisskrifstofn Sveins Björnssonar. Reka hæstaréttarmálaflntningamenn- Aðalumboðsm.: Slg. Slgurz & Co. irnir Guðm. Ólafisson og Pétur Magn- úiaaon hana framv'egiö. Um Kína hélt dr. Kennet J. Sen, hinn kínverski vísindamaður, er dvalið hefir hér í sumar, fyrirlestur síðastiiðinn föstudag í Iðnaðarmanna- húsinu. Fyrirlesarinn er maður stór- mentaður og gáfaður, einn þeirra sona hinnar fornfrægu þjóðar Austurálf- unnar, sem dvalið hafa langvist.um í Evrópu til þess að kynnast vestrænu menningunni. Er þeim gestum flestum við brugðið fyrir námfýsi og gáfur, og (þykja bera af skólabræðrum sínum, Evrópusonunum. Dr. Sen hefir stundað nám í Bretlandi í 8 ár og einkum lagt stund á fagurfræði og heimspeki. — Fyrirlesturimi er fluttur samkvæmt beiðni nokurra manna hér í bænum, og ákvað fyrirlesarinn að ágóðinn skuli renna til Landsbókasafnsins. Þjófnaðarmál þau, sem nú er verið að rann^aka, verða stöðugt yfirgrips- meiri. Fjölgaði þeim stöðugt síðustu viku, sem einhvern hátt voru við málið riðnir. Var svo komið, að „steinninn“ var orðinn of lítill fyrir alla þá, sem nauðsyn virtist að setja í gæsluvarð- hald. Nú síðustn daga hafa farið fram fjölda margar rannsóknir. Hafa þær leitt í ljós, meðal annars, mann einn, sem játað hefir á sig að hafa keypt ýmislegt af vörum sem piltarnir höfðu hnuplað. Sá rannsóknardómari þó ekki nauðsynlegt að setja manninn í varð- hald að svo stöddu. Maður þessi er Norðmaður og hefir dvalið hér í bæ um hrið. Er enn ekki grafið fyrir ræt- nr málsins eða allir teknir, sem full- víst er um, að einhverja hlutdeild eigi í því.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.