Ísafold - 11.10.1920, Blaðsíða 4
ÍSAFOLD
IV.
Nú á seÍTini árum bafa menn
fundið merkiiegt samband milli
„lágþrystisvæða“ við ísland og
„báþrystisvæða“ við Azoreyjar.
Vindstefnan norðan til í Atlanzhaf-
inu er háð samvinnu milli þessara
lágþrysti- og báþrystisvæða. En
þetta befir stórmikil áhrif á veðr-
áttufarið á meginlandi Evrópu.
Þegar t. d. meiri loftþrýstingur er
við Azoreyjar en vanalega, en aftur
á móti óvenju lítill við ísland, þá
biása tíðir, suðlægir vindar inn á
meginland álfunnar. Þessir vindar
koma af hafi og eru að jafnaði
hlýir og milda veðráttufarið.
En þegar svo ber við, *að lítill
munur er á loftþunganum við ís-
land annarsvegar og Azoreyja hins
vegar, þá kólnar veðráttan í Ev-
rópu. — Mestur er loftþungamun-
urinn venjulega milli þessara
nefndu staða í janóarmánuði. Þess
vegna er sá mánuður hlýrri í allri
vestur Evrópu en ella mundi, eftir
hnattstöðu hennar að dæma. En út
af þessu bregður stimdum og dynja
þá yfir álfuna óvenju vetarharð-
indi. Og vafalaust hafa fyrri alda
illviðraárferðiskaflar, sem að fram-
am eru nefndir, af sömu rótum
runnir. Það eru loftstraumar yfir
Atlanzhafinu, sem skapa loft-
þungasambandið sem er milli ís-
lands og Azoreyja. En loftstraum-
arnir eru háðir hafstraumunum og
þeir aftur á móti háðir færslu stað-
vindanna og loftjafnvægisbreyt-
ingum í kyrra beltinu. — En fyrsta
orsökin til lofts- og lagarstrauma
er þó eigi fundin. — Þarf vissulega
að leita hennar út fyrir jörðina, til
hinna tímabundnu hræringa sem
eiga sér stað í ljóshvolfi sólarinnar.
S. Þ.
Slysfarir.
4 menn drukna.
Frá Staðarfelli í Hvammsfirði
fóru nýlega 3 menn og einn kven-
maður óti í eyju þar á firðinum að
líta eftir heyi. Á leiðinni hvolfdi
bátnum og drukknuðu allir sem í
bonum voru. Mennirnir hétu Gestur
Magnússon, Magnús Guðfinnsson og
Þorleifur Guðmundsson. Um nafn
kvenmannsins er ekki getið. Sex
manns voru á þessu heimili og er
þetta því mikil blóðtaka fyrir það.
Nánari fregnir eru enn ekki komn-
ar með hverjum hætti þetta hörmu-
lega slys hefir borið að.
Símfregnir.
Frá fréttaritara ísafoldar.
Khöfn 1. okt.
Kolaverkfallið yfirvofandi?
Frá London er símað, að horf-
ur séu nú aftur orðnar ískyggilegri
um endalok kolanámudeilunnar og
námamenn krefjist kauphækkunar
tafarlaust.
írsku málin.
Grey greifi hefir í „Westminster
Gazette“ birt tillögur um sjálf-
stjómarfyrirkomulag fyrir írland.
Samkvæmt þeim tillögum eiga ut-
anríkisnaál og hervamamál að eins
að vera sameiginleg og Bretar að
annast stjómina meðan írar koma
sér saman um, að svo skuii vera,
og ‘þó ekki lengur en 2 ár. Tillögur
þessar hafa vakið mikla athygli og
fá stuðning vir öllum áttum, einn-
ig frá hinum gætnari frum.
Khöfn, 2. okt.
Smeining Þýzkalands og Austur-
rikis.
Frá Vín er símað, að þingið liafi
samþykt að láta fara fram innan 6
mánaða alþjóðaratkvæðagreiðslu
um sameining Austurríkis og Þýzka-
lands.
Kolaverkfallinu f restað.
Frá London er símað, að úrslita
ákvörðnn um kolaverkfallið hafi
\erið frestað til 16 október.
Her og floti Þjóðverja.
Frá Berlín er símað, að landvarn-
arherinn þýzki sje nú orðinn einar
í)0 þúsundir manna. Flotaleifarnar
hafa stöðvar í Pillan og Swine-
rnúnde.
Hernaður Wrangels.
Frá Konstantinopel er símað, að
Wrangel hafi tekið 10 þús. fanga
af bolshvíkingum umhverfis Alex-
androvsk.
Bolshvíkingastefnan og frönsku
verkamennirnir.
Frá París er símað, að á sam-
ba.ndsþingi frönsku verklýðsfélag-
anna hafi verið feld tillaga um að
ganga í bolshvíkingasambandið (3
internationale) með 1480 atkv. gegn
691.
Khöfn, 3. okt.
llagur Svía.
Frá Stockhólmi er símað, að
tekjuafgangur sænska ríkisins síð-
asta f járliagsár hafi orðið 387 milj.
króna.
Verðlag á nauðsynjavörum hefir
hækkað þar í landi ub 183% síðan
1914.
Branting verður væntanlega á-
fram við stjórn, einkum vegna utan-
rikismálanna (Álandseyjamálsins).
Frá Danmörku.
Búist er við því að bannaður
verði innflutningur á óþarfa-varn-
ingi.
Arður af hlutabréfum þjóðbank-
ans fyrir síðasta ár er ákveðinn
10%.
Khöfn 4. október.
Þýzki flotinn.
Frá London er símað að í gær
hafi verið lokið við að afhenda
bandamönnum þýzka flotann. Öll
skipin liggja nú í Forth-firðinum.
Hernaður Pólverja.
Frá Varsjá er símað, að her Pól-
verja reki flótta Bolshvíkinga og
sé kominn yfir Serwitz-*ána og hafi
tekið Novgorod herskildi. Hefir her
Bolshvíkinga hörfað undan um 100
—150 kílómetra. Pólverjar hafa
tekið 42 þúsund fanga og 160 fall-
byssur að herfangi.
Samningar Rússa og Norðmanna.
Norska blaðið Aftenposten skýr-
ir frá því, að samningum norsku
stjórnarinnar við Litvinov hafi ver-
ið slitið, og stjórnin ekki viljað
ganga að tillögum hans um við-
skiftasamband.
Stjómarfyrirkomulag Austurríkis.
Frá Vín er símað, að stjórnskip-
unanlög Austurríkis hafí verið sam-
þykt- Ríkið verður sambandsríki.
með þjóðkjörnu þingi og sambands-
þingi kosnu af sérþingum sambands
ríkjanna. Bæði þingin kjósa forset-
ann í sameiningu.
Forsetakosningin í Bandaríkjunum.
Frá New York er símað, að Wil-
son forseti hafi lýst því yfir, að
hann muni fá Harding stjórnina
í liendur þegar í stað, ef Harding
verður kosinn forseti.
Khöfn 5. október.
írsku málin.
Fra London er símað, að De
Valera („forseti írska lýðveldis-
ins“) vilji^ekki ganga að tillögum
Greys um sjálfstjórn Irlands-
<
Hungursneyðin í Kína.
Talið er að 1000 Kínverjar hrynji
niður úr hungri á hverjum degi.
t
Hernaður Wrangels.
Frá Konstantinopel er símað, að
Wrangel hers'höfðingi hafi tekið
8000 fanga af Bolshvíkingum.
Frá fjármálaráðstefnunni
í Bryssel er símað, að samþykt hafi
verið því nær í einu hljóði í verzl-
unarmálanefnd ráðstefnunnar, að
verzlunarviðskifti þjóðanna skuli
með öllu óheft.
I
Danska þingið
var sett í dag með mikilli viðhöfn
og þingmönnum Suður-Júta veittar
glæsilegar viðtökur af ful’ltrúum
þmgs og stjómar.
Khöfn 7. okt.
Bolshvíkingar lofa bót og betrun.
Símað er frá London, að Lenin-
stjórnin í Moskva lofi að hætta
baráttu fyrir Bolsíhvíkingastefn-
unni í breska a’lríkinu, jafnskjótt
sem viðskiftasamningar verði írad
irritaðir milli Bretlands og Rúss-
lands.
Asr/uith og írlandsmál.
Times segir, að Asquith vilji
veita Irlandi fullkomna nýlendu-
sjálfstjóm.
Frá Wrangel hershöfðingja.
Stjórn Wrangels er farin að láta
fiytja korn úr landi, sam'kvæmt
símfregn frá París. Frá Konstan-
tinopel er símað, að Wrangel hafi
tekið tii fanga 10 þúsundir manna
í námuhéraðinu Donnetz Yuzovska.
Burðargjald póstflutnings hækkar.
Alþjóðaþing um póstmál, sem
haldið hefir verið í Madrid, hefir
samþykt að ha*kka burðargjald
póstflutnings um 100%.
Tekjuafgangur Danmerkur.
Árið sem leið varð tekjuafgang-
ur danska ríkisins 61 milj. króna.
Tekjuhalli konunglega leikhússins
varð lx/2 milj. króna.
Litvinoff
er farinn frá Kristjaníu (til Rnss-
lands).
Vopna&lésskilmálar
milli Pólverja og Rússa ha'fa verið
undirskrifaðir. Vopnaviðskiftum
verður hætt á laugardag (þ. er í
dag).
Rvikiir-aPÐáll.
Kvæðabók er von á í vetur eftir
Þorst. Gíslason ritstjóra. Kvað aú bók
verða um 20 arkir að stærð.
Kaupmannaráð Islands í Danmörku
hefir skrifstofu í Cort Adelersgade 9 í Kaupmannahöfn. Skrifstofan
gefur félagsmönnum og öðrum ísleDzkum kaupmönnum fúslega ókeypis
upplýsingar um almenn verzlunar- iðnaðar- og samgöngumál og annað
er að verzlun lýtur.
“r Levevej
Til at agitere blandt private med vort prisbillige stærke Skole- og
Arbejds-Fodtöj söges distriktsvis en dygtig og flittig Agent. Store
Salgsmuligheder i hvert eneste Hjem. God Provision.
Dansk Patent Fodtöjsfabrik A.S.
Kvistgaard St.
Þurkar voru um helgina síðustu og
munu menn hafa reynt að nota þá til
þess að bjarga einkverju af heyjum
sínum. I gær byrjaði aftur sama vot-
viðrið. Sumstaðar þar sem engjar eru
bla.utar, kvað vera mjög erfitt að
bjarga heyinu, því að alt er þar á
floti.
Bændur hér sunnanlands kvað víða
vera m.jög illa staddir, vegna þess að
heyskapurinn hefir brugðist svo hrap-
arlega. Svo er sagt, að margir muni
verða að hætta búskap vegna heyskorts
Heyrst hefir að Hvolhreppurinn eystra
sésérstaklega illa staddur, en nákvæm-
ar fregnir höfum við ekki fengið það-
an.
Júlíus Havsteen hefir nú veirið veitt
Þingeyjarsýsla.
„Vér morðingjar1 ‘ Kambans fá góða
dóma hér í leikhúsinu. Þykir ágætlega
leikið í flestum hlutverkunum.
Harry er nýlega kominn hingað eft-
ir nokkra lykkju á leið sinni. Lagði
hann út frá Vesturlandi með fiskfarm
til Ítalíu. En er hann var kominn nokk
uð áleiðis, kom leki að skipinu, svo að
hann varð að snúa aftur. Verður að
losa úr honum allan fiskinn.
Bryggja sú, er Hauksfélagið hefir
verið að láta byggja, má nú heita full-
gerð. Eru skip fa.rin að leggjast að
henni.
Austurvöllur. Varla mun ntfkkur af
hinum smekkvísari borgurum bæjar-
ins ganga svo fram hjá Austurvelli,
að hann ekki undrist það tiltæki, að
baajarstjórnin skuli vera að teðja völl-
inn um þennan tíma og það með þykkri
nautamykju, sem á að liggja ' 7 mán-
uði áður en völlurinn getur farið að
grærika. Væntanlega á völlurinn að
auka fegurð bæjarins, en það gerir
hann sannarlega ekki, ef hann á að
ligg.ja meiri hluta árs undir skarni.
Nýr læknir. Guðm.Thoroddsen lækn-
ir er einn meðal farþega á Gullfossi.
Ætlar hann að setjast að hér í bæn-
um, að sögn. Og bætist bænum þar góð-
ur læknir. Og er það mikill ávinning-
ur.
Silfurbrúðkaup áttu nýlega þau heið
urshjón síra B.jörn B.jörnsson í Lauf-
ási og frú hans Ingibjörg Magnúsdótt-
ir, systir þeirra Jóns forsætisráðherra
og Sigurðar yfirlæknis. Eru þau hjón
framúrskarandi vel liðin af sóknarbörn
um hans og færðu þau þeim að gjöf,
bonum gullúr en henni silfur-kaffi-
borðbúnað.
Steinolíuverðið hefir nýlega verið
hækkað um 9 kr. á’ tunnu. Eru það
birgðirnar, *sem komu í september,
sem hækkaðar hafa verið í verði,
Vegna þess hve gengi dollarsins hefir
Ihækkað. Síðasta hækkunin er ná-
kvæmlega hækkun dollarsins frá því
sendingin næst áður kom hingað.
Aug. Flygenring kaupm. fór sem
erindreki allmargra síldarútgerðar-
m’anna áleiðis til Svíþjóðar nýlega til
þess að rannsaka síldina, sem í Sví-
þjóð liggur, og reyna að koma á sam-
komulagi milli seljenda og kaupenda.
Jarðarför Pálínu Björnsdóttur Jör-
undssonar frá Hrísey á Eyjafirði fór
fram s.l. þriðjud. frá dómk. Var hún
flutt hingað suður á spítala fyrir
skömmu. En lézt eftir fáa daga. Hú.n
dó úr tæringu eftir ianga legu. Pálína
heit. var efnisstúlka, rúmlega 22 ára að
aldri.
Dáinn er á Landakotsspítala Björn
Jónsson frá Akureyri, prentsmiðjueig-
andi og fyrrum ritstjóri Norðra. Kom
hann hingað á spítalann með Gullfossi
isíðast. Björn var góðum gáfum gæddur
og hafði mikinn áhuga á landsmálum
öllum. Nú upp á síðkastið, áður en
heilsufaiá hans hnignaði, hafði hann
á hendi ýms störf fyrir Fiskifélag fs-
lands norður þar og beitti sér mjög
fyrir þvi að koma á samvinnu meðal
sjómannastéttarinnar. Hann var hnig-
inn að aldri og hafði verið heitsuveill
nu um nokkurt skeið.
Guðm. Eggerz sýslumaður Árnes-
inga hefir sótt um lausn frá embætti
vegna heilsubilunar. Hann og frú hans
og dóttir fóru til Danmerkur með ís-
landi og ætla að dvelja þar fram eftir
vetri.
Háskólinn var setur 6. okt. kl. 1- e.
h. Voru viðstaddir kennarar og nem-
endur, þeir sem komnir voru til bæjar-
ins og nokkrir gestir. Guðmundur Finn
bogason rektor háskólans hélt ræðu og
ávarpaði hina nýju studenta. Skrásett-
ir voru alls 15 nemendur, 5 í lækna-
deild, 5 í lagadeild, 2 í guðfræðideild,
og 3 í heimspekisdeild- Allir stúdentar
eru ekki ennþá komnir til bæjarins og
kann að vera að fleiri verði skrásettir
síðar.
Botnía fer væntanlega frá Kaupm.-
höfn áleiðis hingað 15. þ. m.
Sterling fer héðan í hringferð vestur
og norður um land í dag kl. 2.
Hús Eimskipafélagsins var fullreist
nýlega og fánum prýtt. Verður það hið
myndarlegasta hús og hefði þó orðið
fallegra, ef það hefði verið reist 1 fullri
lengd, eins og fyrst var til ætlast.