Ísafold - 15.06.1925, Side 4
4
ISAFOLD
f jármálaráðherra efldiSt er á leið
fundinn. Tjáðu fundarmenn hon-
nm innilegar þakkir fyrir kom-
■una, alveg án tillits til flokka-
skiftinga. Fundarstjóri var fram-
an af fundinum Asmundur Guð-
mundsson skólastjóri á Eiðum,
en seinni hlutann Páll Hermanns-
son bússtjóri á Eiðum. Fundur-
inn hófst klukkan 2 síðdegis og
stóð með tveimur stuttum hvíld-
«m til klukkan 2 eftir miðnætti.
Eimskipafjelag íslands.
Árið 1924.
Aðalreikningur fjelagsins var
lagðirr fram 13. þ.m. Hefir hagur
þess batnað á árinu. Arður á ár-
inu 'hefir orðið kr. 291.972.73. —
Hefir stjórnin ákveðið að af þeirri
upphæð verði kr. 280.478.13 varið
til frádráttar á bókuðu eignar-
verðí fjelagsins, þannig skift nið-
ur: Af verði &ullfoss kr. 41.896.25,
Goðafoss kr, 100.000.00, Lagarfoss
kr. 100.000.00, húseign fjelagsins
við Pósthússtræti kr. 23.801.65,
vörugeymsluhúsi við Tryggva-
götu kr. 10.202.46, skrifstofugögn-
um kr. 4.577,77. Hreinn arður
verður því kr. 11.494.60, auk þess
sem yfirfært gar frá fyrra ári,
kr. 44,570.38. '
Helstu útgjaldaliðir á aðal-
reikningnum eru þessir: TJtgjöld
í Rví'k: (skr if stof ukostnaður o.
fl.) kr. 143.136.73, skrifstofan í
Höfn kr. 47.859.20, skrifsofan í
Hull kr. 17.302.08. — Vextir af
lánum umfram vexti af útistand-
atídi fjáreign um 103 þús. kr. og
tap á geiígismun rúmar 52 þús.
kr.
Helstu tekjurnar eru þessar:
Ágóði af rekstri Gullfoss_ talið í
þ>ús. kr.) 149 þús. kr., Goðafoss
100 þús. kr., Lagarfoss 175 þús.
kr.; tekjur af húseignum f je-
lagsins 57 þús. kr.; fyrir útgerð-
arstjórn ríkiss'kipanna hefir verið
goldið 36 þús. kr. —
Eignir fjelagsins eru nú bók-
færðar með þessu verði: Gullfoss
290 þús. kr, Goðafoss 1 milj. 250
þús. kr., Lagarfoss 370 þús. kr.
Eimskipafjelagshúsið 700 þús. kr.,
vörugeymsluhúsið við Tryggva-
götu 25 þús. kr., skrifstofugögr,
og önnur áhöld 27 þús. kr. —
Við áramót átti fjelagið kol o. fl.
til skipanna fyrir nál. 30 þús. kr.,
hafði greitt vátryggingu fyrir-
fram með nál. 25 þús. kr., átti
útistandandi hjá skuldunautum
um 127 þús. ‘kr. — Varasjóður
fjelagsins er kr. 66.632.44. —
Taflmenn vestra.
í taflsamkeppni, er háð var í
Winnipeg, vann íslenskur tafl-
flokkur, A-flokkur taflfjelagsins
„Iceland", fyrstu verðlaun. í
taflflokknum voru þeir Kristinn
Pjetursson, Agnar R. Magnússon,
Gilbert Árnason, Karl Thorláks-
son, Ólafur J. Ólafsson, sjera
Hjörtur Leó og Guðjón Kristjáns-
son. — 1 samkeppni innan tafl-
fjelagsins „Iceland“ vann Agnar
svo kallaðan „Halldórssons bikar“
og gullpening; Karl Thorláksson
silfurpening og Jón Bergmann
eirpening. — Yfirleitt er taflá-
hngi landa vestra að glæðást. —
Hafa þeir altaf átt marga tafl
menn og góða, einstöku afburða-
góða. .. , ... l! v
INNLENDAR FRJETTIR.
Frá Akureyri.
Akureyri, 10. júrií. FB.
Afli, beituskortur.
1 gær fengu bátar, er gátu róið
með nýja beitu, góðan afla, frá
5000 til 10.000 pund. Annars mjög
rýr afli undanfarið, vegna beitu-
leysis, oftast undir 1000 pund á
bát. Slæmar horfur eru á því, að
síld veiðist til beitu hjer á inn-
firðinum, vegna móryllu úr ánum.
Vatnavextir.
Óvenjulegir vatnavextir eru í
ám hjer nyrðra, einkum Eyja-
fjarðará; hólmarnir allir í kafi,
og er stórt stöðuvatn að líta frá
þjóðveginum að vestan, austur
undir fjallarætur; brúin og risið
á kofunum á Kaupangsbakka, hið
eina, sem stendur upp úr.
Skemdir af skriðúhlaupi.
Skriðuhlaup urðu allvíða um
miðbik vikunnar í Saurbæjar-
hreppi. Á tveimur bæjum, Hleið-
argarði og Skáldstöðum, urðu
miklar skemdir á túnum og engi.
Talsverðar skemdir urðu einnig
á engjum á Kolgrímustöðum, Hól-
um og Vatnsenda. Dagana á und-
an var rigning og leysingar.
Úr Skagafirði.
Á þriðjudaginn var hljóp afar-
mikill vöxtur í Hjeraðsvötnin og
hjelst þangað til á fimtudag. Ann-
að eins flóð hefir aldrei komið í
35 ár. Ferja varð skepnur allar af
Eylendinu, frá Borg og víðar, og
flytja þær á þá fáu hóla, sem upp
úr stóðu, eða upp af flatlendinu
alvég. Skemdir urðu þó ekki á bæj-
um. — Æðarvörpin gerspiltust á
nokkrum bæjum, svo sem Lóni,
Hellulandi, Hafsteinsstöðum og
Borg.
Verið er að smíða brú á vestari
ós Hjeraðsvatna. Flóðið tók „ramm-
búkka“ þaðan með öllu er honum
fylgdi, og flutti hann út á fjörð.
Afspyrnurok var af suðri. Gufu-
skipið Bisp var statt á Sauðárkróki.
Var því siglt á eftir „rammbúkkan-
um“ og náðist hann á móts við
Hofsós með tilstyrk frá mótorbátn-
um Garðari.
Uppslættir skemdust nokkuð við
brúarsmíðina.
Veiðimenn við Drangey töpuðu
allmiklu af veiðarfæinm í rokinu.
Afli er enginn á Skagafirði nú.
Þjóðmálafund boða þeir á Hólum
seint í þessum mánuði Jónasarnir
Þorbergsson og Hríflu.
Þingmálafundir Magnúsar Guð-
mundssonar eru nú úti. Hjelt hann
fjóra fundi.
Fór frá Sauðárkróki í gærmorg-
un með Bisp til ísafjarðar og kem-
ur með Díönu þaðan. Hætti við að
koma landveg.
Úr Borgarnesi.
Grasspertta er ágæt í Borgar-
firðinum og útlit fyrir að slátt-
ur byrji snemma. Laxveiði hefir
verið ágæt í Hvítá undanfarið,
en minni síðustu dagana vegna
vatnavaxta.
Fiskiganga mikil gekk inn á
Isafjarðardjúp um hvítasunnu-
leytið. Og er svo sagt að vestan,
að hlaðafli sje á báta, er nú róa
við Djúpið. Kvað vera langt síð-
an jafn góður afli hefir verið
þar og nú.
HEILBRIGÐISFRJETTIR.
vikuna 31. maí til 6. júní.
Kvefsóttin er allmögnuð enn í
Reykjavlík. Sumir af læknunum
telja hana í rjenun. Aðrir neita
því. Veikin legst nú aðallega á
börn. Hafa sum þeirra fengið
lungnabólgu og nokkur dáið. —
Annars gott heilsnfar í bænum,
og sama er að segja úr öðrum
hjeruðum þar sem til hefir spurst.
Mislingar ganga nú á Aust-
fjörðum, en fara hægt yfir, þeir
hafa og gengið að undanförnu
fyrir vestan, í Reykhólahjeraði,
ðg má vera víðar.
G. B.
Útlendir ferðamenn eru all-
margir hjer 'í bænum xun þessar
mundir, og von á mörgum með
Islandi næst. Meðal þeirra eru
tveir pjóðverjar, Sonnemann, for-
stjóri frá Bremen, og myndatöku-
maður frá Berlín, Schonger að
nafni.
Eru þeir hjer á vegum Kon-
ráðs Konráðssonar læknis. Sonne-
mann er náttúrufræðingur og hef-
ir einkum lagt stund á fuglafræði.
Ferðaðist hann hjer um land árið
1908 og ritaði þá ítarlega ferða-
sögu er heim kom. Schonger er
hjer í þeim erindum að taka lif-
andi myndir.
Bogí J?órðarson frá Lágafelli er
byrjaður að láta byggja hús við
Frakkastóg. Er í ráði að þar verði
settar upp tóvinnuvjelar.
Danskur dýrafræðingur ,Pfaff
að nafni, er nú lijer á ferð, og
ætlar að fást hjer við rannsóknir
i sumar.
Matthías pórðarson pjóðminja-
vörður, fór með Gullfossi síðast
áleiðis til Finnlands, til þess að
sitja fornfræðingafund í Helsing-
fors.
Guðmundur Björnson landlækn-
i.' og Guðjón Samúelsson húsa-
meistari. fóru vesfcur á ísafjörð
með „Esju“ síðast. Erindi húsa-
meistara er að taka út hið nýja,
veglega sjúkrahús, sem nú hefir
verið reist á ísafirði, og erindi
landlæknis að skoða sjúkrahúsið
og síðar að opna það 17. júní
n. k. Er ætlun ísfirðinga að hafa
mikla viðhöfn þegar sjúkrahúsið
verður opnað.
Aðalfundi Sambands íslenskra
samvinnufjelaga var lokið þann
10. þessa- mánaðar. Form. Sam-
bandsins var kosinn Ingólfur
Bjarnason, bóndi í Fjósátungu í
stað Ólafs heit. Briem. Fundur-
inn ákvað að Sambandið gæfi út
hin svo nefndu „samvinnu“ -blöð
framvegis.
Hey er nú flutt til bæjarins
austan úr Fljótshlíð. Svo mun
fara þegar samgöngurnar batna,
að betra þyki að nota innlenda
heyið, en að kaupa hey frá út-
löndum.
Á annað þúsund lítrar af mjólk
koma daglega hingað til bæjarins
úr Ölfusinu. Rjómi er sendur
hingað annan hvern dag, austan
a Skeiðum.
Um 100 manns vinna nú að við-
haldi og endurbótum á aðalvegun-
um austur yfir Hellisheiði, Mos-
fellsheiði og austur um Árness-
og Rangárvallasýslur. 10 bílar eru
við keyrslu í vegina. 1 sumar
Fiskikaisp.
Vjer erum kaupendur að fiski fullverkuðum, hálfverkuðum o® '
ipp úr salti á ðllum útskipunarhöfnum í kringum landið.
GJÖRIÐ OSS TILBOÐ.
Útvegum með stuttum fyrirvara heila kolafarma með lægst*
verði hvert sem er á landinu.
Bræöurnir Proppé
Reykjavfk.
verður meðal annars gert við veg-
inn milli Baldurshaga og Hólms
Unnið er þessa daga að viðgerð
á Holtaveginum þar sem hann er
verstur yfirferðar.
ÆSK AN
Barnablað með myndum. Elsta'
stærsta, útbreiddasta og ódýrasta
barnablaðið á landinu.
Afgreiðsla Þórsgötu 4
Talsími 504. P. O. Box 12
Guðlastmálið hefir nú verið
dæmt 1 undirrjetti. Yar ákærði,
Brynjólfur Bjarnason, dæmdur í
30 daga einfalt fangelsi, en dóm-
urinn var skilorðsbundinn, þann-
ig að refsingin fellur niður að 5
árum liðnum, verði skilorðinu full-
nægt.
Sláturfjelag Suðurlands. Aðal-
fundi þess var lokið 13. þ. mán.
Gerðist þar fátt markvert. Stjórn-
in var endurkosin, nema 'kvað
Kolbeinn Högnason í Kollafirði
var kosinn í stað Boga pórðar-
sonar. Yfirleitt hefir fjelaginu
vegnað vel undanfarið ár.
Elís Jónsson fyrverandi versl-
unarstjóri á Djúpavogi og kona
hans, Guðlaug Einíksdóttir, fluttu
nú í fardögum með fjölskyldu að
Skildinganesi við Skerjafjörð. —
Hafa þau tekið Skildinganes á
Teigu og ætla að stunda búskap
þar. Með þeim er faðir frú Guð-
laugar, Eiríkur hreppstjóri frá
Brú á Jökuldal, alþektur sæmd-
armaður.
9400 símskeyti voru afgreidd
hjeðan af landssímastöðinni í maí
mánuði. Eru það fleiri skeyti, en
í nokkrum öðrum einum mánuði
áður.
Ferðamannabækling um ísland
er Helgi Zoega nýlega búinn að
gefa út.
Háskólinn. Munnlegt embættis-
próf stendur nú yfir í háskólan-
um í guðfræðis- og læknadeild,
og er bráðum lokið. Fjórir stúd-
entar ganga undir próf í guð-
fræðisdeild og fjórir í læknadeild.
Munnlega prófinu í lagadeild hef-
ir verið frestað til 23. þ. mán.
Prófessorarnir hafa verið bundn-
ir í Hæstarjetti og þessvegna hef-
ir orðið að fresta prófunum.
Mentaskólinn. — Stúdentspróf
stendur þar yfir; er skriflega
prófinu lokið og munnlega prófið
byrjað. 41 ganga undir stúdents-
próf í ár, þar af eru 15 utan-
skóla. — Gagnfræðapróf stendur
einnig yfir, eru það milli 50 og
60, sem undir það próf ganga,
þar af 13 utan skóla. — Um inn-
töku í 1. bekk hafa sótt 62 ný-
sveinar, en prófum þar er ekki
lo'kið, svo eitthvað kann að slitna
iir lestinni. — Bekkjarprófum í
Mentaskólanum er lokið.
Landsmálafundir.
Fjármálaráðherra og Árni Jóns-
son frá Múla, fóru báðir með
„Esju“ til Austurlands um síð-
astliðin mánaðarmót. Hjeldu þeir
fund á Eskifirði þann 4. þ. m.,
eins og fyr er getið; fóru þaðan
að Egilsstöðum. Frjettastofuskeyti
um Egilsstaða fundinn birtist á
öðrum stað hjer í blaðinu. Frá
Egilsstöðum fóru þeir til Seyðis'
fjarðar og hjeldu þar fund. Hjelt
fjármálaráðherra síðan norður. —
Næsta fund lijelt hann á Húsa-
vík þ. 12. pá á Breiðumýri þ. 13.
Og 'í dag (15. júní), er þing-
málafundur á Akureyri, og situr
fjármálaráðherra þann fund.
Árni frá Múla er enn austur í
N.-Múlasýslu.
Of langt mál yrði, að skýra frá
umræðum á fundum þessum.
Frá hendi íhaldsþingmanna
hnigu þær allar mjög í þá áttr
að skýra meðferð þingmála, a£-
stöðu flo'kks og stjórnar til dag-
skrármála þjóðarinnar. En við þá
frásögn eykst best fylgi kjósenda
við fhaldsflokkinn og stefnu hans-
pví betur sem kjósendur kynnast
stefnu flokksins og 'helstu mönn-
um hans, því öruggara verður
fylgi flokksins. Einlsum er þetta
þó svo, þar sem gætnir bændur
eiga í hlut. '
Leiðarþing í Skagafjarðarsýslu
hjeldu þeir þingmenn kjördæmis-
ins nýlega.
Jónas frá Ilriflu boðaði til fund
ar í Borgarnesi 12. þ. mán. Pjetuf
pórðarson setti fundinn og skýrði
þingmálin frá Sínu sjónarsviði.
pví næst talaði Jónas mikið og
lengi, cnda hugsaði hann sjer gott
til glóðarinnar, því andstæðingar
hans höfðu lítið Skeytt, um að
sækja fund þenna. En Jónas nýt-
ur sín hvergi nema þar sem eng'
inn þingmaður er til þess að reka
vitleysurnar ofan í hann. par leik-
ur liugmyndaflug hans lausua1
hala.
í Borgarnesi talaði hann miki*
um ,Ræktunar- og landnámssjóðs '
frumvarp sitt. pegar honum teksf
upp við það, þá er hann í essim1
sínu. Skal á frumvarp það minst'
hjer innan skams.
Frá Borgarnesi hjelt Jónas vest'
ur í Dali. Þar mun hann rnæta
Bjarna frá Vogi. Væntanlega feí"
hann þaðan til Norðurlands.
i
Fólk deyr úr hita í Ameríku.
Símað er frá Wa^hington, a®
350 manneskjur hafi dáið af völd'
um hitans. Allir spítalar eru fu^'
ir af fólki, sem veikst hafa
völdum hans. Hitabylgjan er nú
um garð gengin, hvarf hún j
skyndilega og hún kom, og
þá til kulda.
Leit að Amundsen talin ómögule^
Símað er frá New York, a
Wilbur flotamálaráðherra Banda
ríkjanna hafi sagt, að ógerningu15
sje, að senda loftskip og
A'mundsens eins og sakir stan
—*——*—