Ísafold - 15.07.1925, Side 4

Ísafold - 15.07.1925, Side 4
ÍSAFOLD r 4 Fi akklandi, pýskalandi og Belgíu aukist. petta hefir auðvitað verið Bretum hið mesta áhyggjuefni og íillum er nú Ijóst, hvað í veði er. Mac Donald ætlaði sjer að bæta úr atvinnuleysisbölinu í hendings- kasti, en svo illkynjuðu þjóðar- meini verður ekki vísað á bug með orðum einum. Baldwin setti sjer sama mark og fyrirrennari 3ians, en atvinnuleysið í Englandi liefir aukist stórkostlega frá því hann tók við. Ekki alls fyrir löngu veittist verkamannaflokkurinn að stjórninni fyrir aðgerðarleysi hennar í þessu vandamáli. Mac Donald bar fram vantraustsyfir- lýsingu á Baldwinsstjórnina, en vantraustsyfirlýsingin var feld, enda lítið vit að veitast að stjórn- inni fyrir þessar sakir. Baldwin er í engum efa um, að þetta er velferðarmál, sem snertir alla þjóð ina, og hann mun eflaust gera það sem í hans valdi stendur til að fyrra landið vandræðum þeim, sem geta leitt af þessu. Málið er margbrotið. T.d. er fyrirkomulag- ið á námunum og vinsluaðferðin úrelt og ótímabær. Námurnar eru eign hinna miklu jarðeigenda, sem leigja þær einst. mönnum og fjel. peir, sem hafa þær á leigu, hafa vanrækt að koma nýtísku sniði á aðferðirnar; þeir sáu í kostnað hins líðandi dags, notuðu gamlar vjelar og áhöld sem lengst, þótt þetta væri í rauninni þeim sjálf- um í óhag og stórhnekkir fyrir framleiðsluna yfirleitt. Nú kemur þetta þeim sjálfum í koll. Yfirleitt virðist England eiga erfiða daga í vændum á öðrum sviðum atvinnuvega sinna. Járn- brautirnar eiga erfitt með að bera sig. — Pjöldi skipasmíðastöðva 'standa auðar. Pantanirnar hafa upp á síðkastið lent í vösum þýskra skipasmíðastöðvaeigenda. Ýmsar iðnaðargreinir búa við þröngan kost. Þrátt fyrir skrif- leg loforð hafa bolsjevikar breytt út kenningar sínar í Englandi og gert verkamenn óþjálli viður- eignar en annars mundi hafa ver- ið. Tilfinningar margra þeirra fyrir þjóðarheildinni hefir sljófg- ast. Og utan landsins eru að ger- ast atburðir, sem Bretar verða að hafa vakandi auga á. Kína vill hrinda útlendingum af sjer. Tak- ist Kínverjum þetta að meira eða minna leyti, mun verða órótt sum- staðar annarstaðar, þar sem Eng- lendingar eiga ítök. T. S. Silfurframleiðslan. Mexikó er það ríki, sem fram- leiðir mest af silfri í veröldinni. Ár ið 1923 voru framleiddar 90 milj. unsur (unsa er 31,1 gramm). Er það mesta framleiðslan, sem ver- ið hefir frá því 1911. Næst Mexi- ko eru það Bandaríkin, sem hafa mesta silfurframleiðslu. Nam hún þar 65 milj. unsum 1923. par næst kom Kanada með 17 milj.; öll önnur ríki til samans höfðu 40 milj. unsur. Öll silfurframleiðslan í veröldinni var því 1923 212 miljónir unsur, eða 65,932 kíló. Árið 1911 hafði silfurframleiðslan komist hæst; þá var hún 226 milj. unsur, eða 70.286 kg. — Vegna þessarar miklu silfurframleiðslu 1923, hefir verðið á silfrinu lækk- að allmikið síðustu tvö árin. Kússar, sem í landflótta eru, hafa í hyggju að taka höndum saman móti bolsastjóminni. Símað er frá París, að ráðgert sje, að mynda þar rússneskt þing, er 3 milj. Rússa, er landflótta eru, sendi fulltrúa á. Ennfremur er í ráði að mynda herforingjaráð á meðal þeirra Rússa, er búa í París, undir forystu Nikolai stórfursta. Stefnan auðvitað andstæð stjórn- inni. Rússa-bolsar óánægðir með Bretann. Símað er frá Berlín, að sím- fregnir hafi borist þangað frá Moskwa, að slíti England stjórn- málasambandi við Rússland og láti Bretar ekki Rússa afekifta- lausa í Kína, þá sje hætta á að lendi í styrjöld milli þessara ríkja. • I 1 Horfir til vandræða fyrir Frökkum í Marokkó. Símað er frá Parrs, að ástandið í Marokkó sje ákaflega alvarlegt. Liautey hershöfðingi krefst stór- kostlegs liðsauka. Stjórnin hefir útnefnt nýjan yfirhershöfðingja yfir Marofckóhernum, þar sem Liautey verði að annast stjórn landsins inn á við og út á við. Geti hann ekki lengur annast yfirherstjórnina að auki. Spánver- jar og Frakkar ætla að leggja siglingabaam á Marokkóstrendur. Abdel Krim veit þetta og berst þess vegna ákaflega nú. í Viðsjár með pjóðverjum og Pólverjum. Símað er frá Berlín, að það hafi leitt af tollstríði milli Póllands og pýskalands, að Pólverjar hafi gert 27,000 pjóðverja landræka úr Efri-Schlesíu. pjóðverjar hafa goldið í sömu mynt með því að reka 7000 Pólverja úr pýskalandi. Amundsen kominn til Osló. Mikill fagnaður. Símað er frá Osló, að Amund- sen hafi verið tekið með miklum fögnuði. Mikill hluti borgarbúa var staddur úti, þegar flugvjelin bar yfir borgina, og kváðu þá við dynjandi fagnaðaróp fjöldans. — Síðar fóru fram ræðuhöld og söng- ur Amundsen til heiðurs. — 1 kvöld situr hann konungsveislu. ( Segja Kínverjar Bretum stríð á hendur? Símað er frá Berlín, að fregn- ir hafi borist um það, frá Peking, að kínverska stjórnin hafi í huga að segja Englandi stríð á hendur. Norska stjómin völt. Símað er frá Osló, að ráðuneyti Mowinckels sje nú aftur í hættu statt, vegna frumvarps um hækk- un skatta. \ Veiðar Norðmanna við Grænland. Símað er frá Osló, að í veiði- för Davidssunds hafi 30 skip tekið þátt. Geysileg uppgrip af stór- þorski. Skipin eru seglskip með hjálparvjelum; tvö gufuskip eru þar einnig. Fóru þau með salt. Forvextir lækka í Frakklandi. Símað er frá París, að þjóð- bankinn hafi lækkað forvexti úr 7% niður í 6%. Síldveiðin að byrja fyrir Norðurlandi. Góðar horfur. ísafold átti tal við frjettamann sinn á Siglufirði 10. þ. mán. Segir hann síldveiði í byrjun og horfur góðar. Alla leið frá Langanesi vestur að Horni, verða menn var- ir við síld, en hún er stygg, og hefir hún ekki enn náðst í herpi- nætur, svo teljandi sje. Eitt skip hefir komið til Hjalteyrar með 300 tn. En talsvert hefir veiðst af síld í reknet. Fá bátar þetta 1 tn. í net, og þykir það gott á þessum tíma árs. 1 fyrrinótt munu hafa komið um 3—400 tn. af rek- netasíld til Siglufjarðar. Verðlag á síldinni er nú á Siglu- firði um 11 kr. fyrir ísaltaða tn., eða 17 kr. fyrir málið. Síld er seld verksmiðjum til bræðslu fyr- ir 12 kr. málið. Yfirleitt er mjög mikill undir- búningur undir útgerð frá Siglu- firði í ár. Hefir fremur verið ekla á fiskimönnum til skipanna, en nægilegur vinnukraftur mun vera þangað kominn að salta og ynna af hendi nauðsynlega vinnu í landi. Síldarverksmiðjan á Flateyri hefir 2 „barka“ liggjandi á Siglu- firði, til þess að flytja á þeim síld vestur, er keypt verður þar handá verksmiðjunni. Allmikið hefir borið á því und- anfarna daga að rekistefnur hafi orðið út af ólöglegum innflutn- ingi til Siglufjarðar á tunnum og salti, matvælum og jafnvel á- fcngi, með flutningaskipum þeim, sem þangað hafa komið. Fiskikaup. Vjer erum kaupendur að fiski fullverkuðum, hálfverkuðum o# mpp úr salti á Bllum útskipunarhöfnum í kringum landið. GJÖRIÐ OSS TILBOÐ. Útvegum með stuttum fyrirvara heila kolafarma meS lægst# verði hvert sem er & landinu. Bræöurnir Proppé Reykjavik. Sóknarbörnin færðu honum skraut ritað ávarp og gullúr og festi, sem viðurkenningu fyrir hið ágæta starf hans í þágu safnaðarins. Frá ísafirði. ísafirði 7. júlí. FB. Aflafrjettir o. fl. Vorvertíð lokið á Vestfjörðum. Afli á stærri vjelbáta í tæpu með- allagi. Fróði, skipstjóri porsteinn Eyfirðingur, hæstur með 250000 pund. Smærri vjelbátar fiskað stór illa, en árabátar ágætlega. Togar- arnir ísfirsku eru nú hættir að i sinni. Ha'fsteinn hefir aflað 866 föt, en Hávarður ísfirðingur 776. — Leiðarþing hjelt þingmaðurinn 1 gærkvöldi. Síldveiðin. Hrönn kom hingað í dag. með 400 tunnur og Gissur hvíti með 500 tunnur til Hesteyrar. Er þetta fyrsta herpinótaveiðin. Skipin voru að veiðum á Reykjarfjarðar- ál. Frá Akureyri. 10. þ. m. Aflafrjettir. Síldveiðin byrjuð, og er búist við að flest skip verði komin á veiðar upp úr helginni. Tregða á að fá fiskimenn. Fiskafli ágætur á útmiðum. Maður slasast til bana, Maður varð nýlega undir mótor- bát á Húsavík. Kramdist til bana. Hjet Jón Jónsson frá Tröllakoti. Lætur eftir sig fjögur ungbörn. Hann var ekkjumaður. 25 ára prestsafmæli sjera Geirs Sæmundssonar vígslubiskups. Sjera Geir Sæmundsson átti 25 ára prestsafmæli í Akureyrar- prestakalli síðastl. sunnudag. — Austurrískur óðalsbóndi. Með Gullfossi síðast kom austurrískur íslandsvinur, óðalseigandi Egger frá Kárnthen í Steiermark hing- að í kynnisför. Ætlar hann að ferðast hjer um Suðurlandsundir- lendi og Borgarfjörð til að kynn- ast staðháttum og landbúnaði. — Hann er besti vinur Jadens-hjóna. Gefa þau honum meðmæli sín hing að til ýmsra kunningja sinna og ei það full sönnun þess, að hjer ber góðan gest að garði. „Einokunarverslun Dana á ís- landi 1602—1787,“ bók Jóns Að- ils próf., á nú að þýða á dönsku. Er það dansk-íslenska fjelagið, er ætlar að gefa bókina út, en kaup- mannafjelagið danska, sambands- sjóðurinn, og dans-íslenska fjelag- ið veita fje til útgáfunnar. Frið- rik Ásmundsson Brekkan rithöf- undur sjer um útgáfuna. Sveinbjöm Högnason frá Hvoli í Mýrdal hefir nýlega lokið guð- fræðisprófi við Hafnarháskóla með hárri 1. einkunn. Sveinbjörn las aðallega fræði gamla testamentis- ins og í því sambitadi gömlu mál- in. Sveinbjörn var meðal farþega á Gullfossi síðast. — Hann hugsar sjer að dvelja í pýskalandi næsta ár til framhaldsnáms. Landlæknir-fór með Esju síðast áleiðis norður til Akureyrar. Guð- jón Samúelsson fór norður með Botníu. Verður nú gert út um hvar heilsuhæli Norðurlands á að vera. Helst talað um Hrafnagil. Úr Eyjafirði var símað nýlega, að þar væri nú mjög lítill þorsk- afli, þó næg væri beita. Hefir vor- vertíð brugðist að mestu leyti norður þar, svo að til vandræða horfir með vjelbátaútgerð, bæti síldveiðin ekki úr, eða fiskafli síð- ar í haust. Mjög fáir bátar munu vera farnir að láta reka með net ennþá að staðaldri. Gunnar Gunnarsson hreppstjóri á Ljótsstöðum í Vopnafirði, faðir Gunnars skálds, er um þessar mundir í Danmörku í heimsókn hjá syni sínum. Forberg landssímastjóri er ný- kominn heim frá Vestfjörðum. — Tvær nýjar stöðvar verða opnaðar þessa daga, Laugaból og Núpur í Dýrafirði. Bók Amundsens um pólflugið kemur út í haust. Gyldendal gef- ur hana út. Önnur pflagrímsför Norður- landabúa hefst frá Khöfn þann 9. sept. Óvíst hvort hinir kaþólsku biskupar Norðurlanda verða með í förinni. Tilhögun ferðarinnar verður mjög svipuð og hún var í fyrstu förinni í vor. Friðrik Ásmundsson Brekkan, íslensika skáldið, sem skrifað hefir smásögur á dönsku, og nu síðast skáldsöguna „TJlveungernes Bro- der“, er nýgiftur. Kona hans heitir Estrid Fallberg. ÆSK AN Barnablað með mvndum. Elsta® etærsta, útbreiddaeta. og ódýrasta barnablaðið á landinu. Afgreiðsla Þórsgötu 4 Talsími 504. P. O Box 12 plllllllllllllllllllllllllllllllllllllll = Þeir = sem ætla að gerast kaup- endur == = ÍSAFOLDAR H! r== geri svo vel og tilkynni . —■ = afgreiðslunni það hið fyrsta IHI Isafold kostar eln- 1 ar 5 kr. árgangurinn : Gjafir til landsspítalasjóðsins: Greitt af Sig. Baldvinssyni, Seyð- isfirði, kr. 187,70; ágóði af skemt- un á Akranesi 19. júní, kr. 195,00 J safnað á Flateyri kr. 265,00. —> Söngflokkur stúdentafjelagsins danska kom hingað með Gullfossi síðast og dvaldi hjer í höfuðstaðm um tæpa viku. Alls voru um 40 söngmenn í förinni. Hjeldu þeir, hjer eina 5 samsöngva og auk þess einn úti. Bæjarstjórn Reykja- víkur bauð þeim til Þingvalla einn daginn. Stúdentafjelagið íslenská- hjelt þeim samsæti fyrsta daginu sem þeir voru hjer. Allan tímann.; voru þeir gestir bæjarbúa. ■Söngur þeirra vakti almenná aðdáun. Þeir fóru með Goðafossi norður um land lieimleiðis. Flokkur þýskra mentaskólanem- enda og stúdenta, 11 talsins, undir forustu teiknikennari hr. Behm, kom hingað í gærmorgun með e.s. Lyra frá Noregi. Ætla þeir að ferðast fótgangandi um landið. —* Eru þeir ágætlega útbúnir; hafá svefnpoka, tjöld og nesti til! margra daga. Fimleikaflokkar tveir frá íþróttá fjelagi Reykjavíkur — 8 karl- menn og 8 stúlkur — fóru í byrj- un þessa mánaðar í ferð kringunf landið. Sýndu flofekarnir fimleiká á ísafirði, Akureyri, Húsavík, Seyðisfirði og ef til vill víðar. Fengu þeir alstaðar ágætar við- tökur og þótti þeim takast mjög vel sýningarnar. Stúlkurnar komá hingað með Esju næst, en karl- mennirnir sýna enn á nokkruih stöðum á Austurlandi. Dánarfregn. 2. þ. m. andaðist að 'heimili dóttur sinnar hjer í bænum, sjera Brynjólfur Jónsson frá Ólafsvöllum. Hann kom til bæjarins laust fyrir prestastefn- una og ætlaði að sitja hana. Hon- um varð kalt á leiðinni hingað og lagðist skömmu eftir að hann kom í lungnabólgu, er dróg hann tií dauða. 9. þ. m. andaðist að Þverhamrí í Breiðdal, Ari Brynjólfsson, fyrv- alþingismaður.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.