Ísafold - 03.11.1925, Blaðsíða 4
- 4
1 S A F 0 L D
Okuhraði bifreiða.
Tryggvi Magnússon er einn af
Kinum efnilegn ungu listamönn-
■«m vorum. Hann hefir lagt fyrir
sig allskonar teikningar, meira en
flestir aðrir listamanna vorra.
Tfndaufarnar vikur hefir Tryggvi
teiknað myndir í aukablað Morg-
nnblaðsins sem kemur út á sunnu-
dögum, og nefnt er „Lesbók“
Morgunblaðsins.
H.jer eru tvær teikningar eftir
Tryggva, er tákna bifreiðaakstur-
inn á götum höfuðstaðarins. Eins
og nærri má geta, má ekki taka
þessar teikningar alt of „bókstaf-
lega.“
Hraðinn samkvæmt lögreglusamþyktinni.
Oft hefir ökuhraði bifreiðanna
verið gerður að umtalsefni hjer í
blöðum. Sjaldan hefir verið minst
á lögreglusamþyktina í því sam-
brndi. Fáir þekkja ákvæði henn-
ar, viðvíkjandi ökuhraðanum. —
Þau voru gerð þegar bifreiðaakst-
ur var hjer á bernskuskeiði, og
rnönnum, fanst með öllu óþarft að
iara nokkurntíma harðara en
biessuð hrossin höfðu farið áður.
Lögreglusamþyktin ákveður bif-
reiðahraða eftir því.
Fundið er að því, hve bifreiðar
þeysi hart um götur bæjarins. -—
En hvernig færi, ef fylgt væri
lögreglusamþyktinni ?
Iíefir Tryggvi Magnússon dreg-
ið upp á blað, hvernig hann lítur
á málið.
Nú.geta menn valið um hvað
þeir kjósa heldur — flýtirinn eða
löghlýðnina.
-0-OQO--0-
f niðurjöfnunamefnd á Akur-
ej'ri er nýkosinn án gagnsóknar,
Einar Gunnarsson, verslunarstjóri
í stað Halldórs Friðjónssonar,
ritstjóra.
Málsókn hótar Brynleifur templ
ari Gunnlaugi Tr. Jónssyni á Ak-
ureyri, út af ummælum í íslend-
irgi. — Þetta er ungt og leikur
sjer.
Dómur í hjeraði f jell nýlega í
landamerkjamáli miklu milli Galt-
arholts og Svignaskarðs í Borg-
arfirði. Galtarholtsbóndinn vann.
Nýbýli og landnám. Á laugar-
daginn kemur, verður fundur hald
inn að Tryggvaskála. Þar kemur
stjórn fjelagsins „Landnám“ til
skrafs og ráðagerða við nefnd
eina, sem Flóaáveitufjelagið hef-
ir kosið til þess að athuga hvern-
ig koma eigi upp nýbýlum í Fló-
anum, þegar áveitan er komin í
lag. —
Reitingsafli er í verstöðvunum
austan fjalls, þegar á sjó gefur.
Sama er að frjetta frá Eyjafirði.
Ungmennafjelagshús, veglegt og
vandað, var vígt um fyrri helgi
á Sauðárkróki. Er mikið fram-
tak og dugnaður í ungmennafje-
lagi því er þar starfar. Aðal-fram-
kvæmdamenn í f jelaginu eru m. a.
Eysteinn Bjarnason Jónssonar frá
Vogi, Valgarð Blöndal, Páll Jóns-
son, snikkari.
Hjeraðsvötnin rifu' farveg í
bakkana norðan við Vindheima-
brekkur í flóðunum í sumar. Var
ekkert sýnna en þau myndu ryðja
sjer þar mikinn farveg, ef ekk-
ert yrði gert því til varnar. En
með því móti er hætt við, að þau
geti gert hinn mesta usla í Hólm-
inum.
Nú undanfarið hafa margir
menn verið í vinnu við að gera
þarna fyrirhleðslu og varnargarð.
Verkstjóri er þar Lúðvík Kemp.
Hefir vegamálastjóri sagt fyrir
um hvernig verkið skuli vinna.
Hjer á dögunum fótbrotnaði þar
emn verkamanna Friðrik Sigfús-
son (frá Pyttagerði). Valt steinn
ofan á hann.
Jakob Krisitinsson og frú hans,
voru meðal farþega á Botníu til
utlanda í gær. Ætla þau fyrst um
Leith til Lundúna, þaðan til Par-
ísar, og til ítalíu. Ætlar frúin að
vera í ítalíu meðan sjera Jakob
fer til Egyptalands og Indlands.
Ætlar hann að dvelja hálfsmán-
aðartíma í Egyptalandi og sex
vikna tíma í Indlandi.
Landhelgisbrot. Islands Falk
kom inn nýlega með þrjá tog-
ara, er hann hafði hitt að ólög-
legum veiðum fyrir sunnan land.
Voru togararnir allir þýskir og
heita: „Neufundland“, H. C. 106
frá Cuxhaven, skipstjóri Otto
Taueri. Hann var kærður fyrir
„hlerabrot“ nú, en dæmdur fyrir
samskonar brot á Eskifirði 1907,
og fjekk þess vegna 7000 kr. sekt
nú. Annar togarinn hjet „Jupi-
ter“, P. G. 301 frá Geestemunde,
skipstjóri Hermann Heuer. Var
kærður fyrir ólöglegar veiðar og
dæmdur í 12500 kr. sekt. Sá
þriðji hjet „Ernst 'Wittpfennkig“
P. G. 302 frá Geestemiinde, skip-
stjóri Friedrich Seemund. Var
hann einnig kærður fyrir ólög-
legar veiðar og dæmdur í 12500
kr. sekt. Afli og veiðarfæri var
gert upptækt í öllum botnvörp-
ungunum. Skipstjórinn á „Neu-
fundland“ áfrýjar dómi sínum til
hæstarjettar, hinir ekki.
„Straumhvörf í stjórnmálum
Evrópu", grein Tryggva Svein-
björnsson, er býrjar hjer í blað-
inu í dag, hefir tafist, kom ekki
hingað fyr en með Gullfossi. En
þó fundurinn í Locarno sje nú um
garð genginn, og aðalárangur hans
sje nú kunnur hjer, mun lesend-
um ísaf. kærkomið að fá þetta
yfirlit Tryggva. Án efa er þessi
fundur í Loearno merkasti fund-
urinn, sem haldinn hefir verið síð-
an vopnahlje komst á.
Námsskeið heldur Búnaðarfje-
lag íslands um þessar mundir fyr-
ir trúnaðarmenn sína, þá er meta
og mæla jarðabætur samkvæmt
jarðræktarlögunum o. fl. Um leið
er námsskeið fyrir eftirlitsmenn,
fyrir „eftirlits- og fóðurbirgðafje-
lög.“ Námsskeið þessi byrjuðu í
vikunni sem leið. Nokkrir þátt-
takendur koma þó ekki fyrri en
með Esju í þessari viku. Þeir
verða als um 30. •
Kaupfjelag Reykvíkinga. — í
Alþýðublaðinu hótar stjórn
kaupfjelagsins þeim viðskiftavin-
um sínum, og öðrum, er skulda
fjelaginu, málsókn, ef eigi verði
búið að greiða skuldina, eða
semja um greiðslu fyrir 15. nóv.
n.k. Dálaglegur verslunarmáti
að tarna; fyrst að stofna til
skuldaverslunar, og svo, þegar
það er búið, þá ’að afhenda mál-
færslumanninum allan ' skuldalist-
ann, og skipa honum að inn-
heimta! Hvað mundi samvinnu-
skólastjórinn segja um kaupmann,
sem þannig færi að?
Fjárhagsáætlun ísafjarðar-
kaupstaðar.
ísafirði 29. okt. ’25. FB.
Bæjarstjórnin afgreiddi fjár-
hagsáætlun í gærkvöldi: Tekjur
alls 384 þús. Útsvör 161 þúsund,
í fyrra 149 þús. Af nýmælum
stendur til viðgerð á vatnsveit-
unni, 10 þús., til stofnunar kúa-
bús á Seljalandi 5 þús. Kosning
fór fram á 1 manni í niðurjöfn-
unarnefnd. Ketill Guðmundsson
var sjálfkjörinn af lista Alþýðu-
flokksins.
Vjei ernm kaupendur að fiski fullverkuðum, hálfverkuðum o®
app úr salti á ðllum útskipunarhöfnum í kringum landið.
GJÖRIÐ OSS TILBOÐ.
Útvegnm með stuttum fyrirvara heiía kolafarma með l«g»tat
verði hvert sem er á landinu.
ÐræOurnir Proppé
Reykjavik.
Alþjóðabandalagið og Balkan-
málin.
Símað er frá París, að fram-
kvæmdarráð Alþjóðabandalagsins
hafi í hyggju að koma upp gerð-
ardómstól fyrir Balkanríkin, er úr-
skurði í deilumálum þeirra, er upp
kunna að koma í framtíðinni. Af-
skifti Alþjóðabandalagsins af
grísk-búlgörsku þrætunum og
hinni yfirvofandi styrjöld milli
þeirra hefir stórum aukið álit Al-
þjóðabandalagsins.
Skothríð Frakka á Damaskus.
Alt í báli.
Símað er frá London, að ná-
kvæmar upplýsingar hafi nú bor-
ist þangað um skothríð Frakka á
Damaskus. Þrjá þúsundir manna
voru drepnar og fjöldi særður. —
Aldagamlar byggingar eru í rúst-
um eftir skothríðina. Ákafleg æs-
ing meðal íbúanna. Uppreistar-
hreyfingin breiðist út eins og eld-
ur í sinu. Bresku og amerísku
sendiherrarnir krefjast geysilegra
skaðabóta.
RafgeymiPy
„Delco-Light“, 25 Cellur til sölu.
Einstakar Sellur fást keyptar. —
Rafgeymirinn er notaður, en fæst
með tækifærisverði. A. S. í. vísar
á.
Hryðjuverkin í Bessarabíu.
Rúmenar haía myrt á 3. þúsund
manns án dóms og laga.
Borg á sjávarbotni?
Símað er frá Moswka, að versl-
unarskip á leið til Persíu, hafi
sjeð borg á hafsbotni í Kaspiska
flóa. Götur og byggingar sáust
greinilega.
Óeirðir enn í Kína.
Símað er frá Peking, að borg-
arastyrjöld sje hafin víðsvegar
um ríkið og er orsökin deilur milli
landstjóranna.
Frá því var skýrt í blaðaskeytum
hjer fyrir nokkru síðan, að Rú-
menar hefðu á þessu ári,gert sig
seká í ægilegum hryðjuverkum.
Sögusagnir þessar eru hafðar eftir
tiðindamanni „Daliy Chronicle“,
sem er í Berlín.
Honum segist þannig frá:
Tildrög þessara hryðjuverka
byrjuðu fyrir ári síðan.
í bæ einum fámennum í Bessara-
bíu, sem heitir Nikolajevo, bar
það til í fyrrahaust, að hermenn
nokkrir drápu bónda einn. Vildi
bóndinn eigi láta hermönnunum í
tje matvæli endurgjaldslaust. —
Höfðu hermenn engin umyrði um
þetta, en skutu hann til bana.
Morð þetta vakti mikla eftir-
tekt og æsingar meðal almennings
þar' í hjeraðinu. En í stað þess að
yfirvöldin tækju morðingjana
höndum, tóku þau málstað þeirra.
Óánægja almennings vegna morðs-
ins skoðuðu yfirvöldin sem upp-
reisnaranda, sem beint væri gegn
sjer. Brátt fór að bera á margs-
konar óeirðum. Þegar þær tóku
að magnast, ákvað stjórnin að
„taka föstum tökum“ á málmu.
Afskifti yfirvaldanna urðu meðal
annars þau, að bærinn Nikolajeva
var skotinn í rúst, svo og tveir
aðrir bæir í nágrenni hans. 200
bæjarbúar fjellu í þeim bardög-
um, en 89 manns, sem flúðu í
ki’rkju, voru dregnir út úr kirkj-
unni og höggnir.
Að því búnu var send út frjett
um það, að stjórnin hefði unnið
sigur á uppreisnarmönnum. par
var frá því sagt, að 2000 uppreisn-
armenn væru þegar líflátnir. —
Kunnugir segja, að yfirvöldin hafi
tekið upp margskonar siði mið-
aldaharðstjóra; margir „uppreisn-
Er þvegið úr Persil
víðar en á íslandi?
Verksmiðjur Henkel & Co.,
Diiseldorf, sem búa til Persil, nol a
tii þess 8 potta eða katla. Hvert
þessara íláta tekur 8 járnbrautar-
vagna, en hver vagn tekur 15 ton,
eða til saman 960 tonn. Þetta er
framleitt á hverjum degi af þess-
ari einu vörutegun. Það samsvar-
ar 300 förmum í Gullfoss á ári.
Enda er Persil eina þvottaefnið,
sem not'að er um allan heim.
Dettur nú nokkrum^í hug, að
þetta sje tilviljun ein, eða verk
auglýsinganna, ef varan væri ekki
annað eins ágæti og Persil er.
Það er ekki einungis, að Persil
spari tíma og erfiði, heldur sparar
það fataslit að miklum mun og
sótthreinsar þvottinn að auki. —
Efnarannsóknarstofur allra ríkja,
þar sem Persil er selt, votta, að
Persil sje algjörlega skaðlaust fyr-
ir tauið.
Ótal eftirlíkingar eru gerðar af
Persil, en þær eru eins og eftir-
líkingar eru yanar að vera, — um-
biiðir og nafn er auðvelt að stæla.
Persi er ekki Persil, athugið það.
Notið ekki önnur þvottaefni á
milli bg kennið svo Persil um, er
þvotturinn gulnar eða slitnar.
Persil inniheldur ekkert klór.
Persil er ekki sápuduft og getui'
aldrei orðið selt eins ódýrt og þau.
Ef þjer viljið þvo úr sápudufti, þá
er „Dixin“ ágætt. En það er ekki
sjálfvinnandi þvottaefni, fremur
en önnur sápuduft, þótt þau sjeu
seld sem slík.
Notið það besta,' það verður alt-
af ódýrast.
Á íslandi er notað árlega um
200.000 pakkar af Persil, en það
mun tvöfaldast á næstu árum.
Biðjið Persil og þjer fáið
það rjetta, hvar sem þjer verslið.
Inc.
armenn“ hafi verið píndir og líkin
skorin í parta og sett almenningi
til sýnis.
Svo magnaðir voru bardagarnir,
að mælt er að 60 ferkílómetrar af
blómlegum bygðum hafi gersam-
lega eyðst.
Um síðustu mánaðamót sat hátt
á 5. hundrað manns í fangelsum
í bænum Kisjinev. Voru þeir á-
kærðir fyrir hluttöku í „uppreisn-
inni“ og biðu dóms. Alt útlit var
á því, eftir því sem tíðindamaður
„Daily Chronicle" sagði frá, að
dómur sá, sem þessir menn fengju,
væri fyrirfram ákveðinn, því í
dómnum áttu sæti nokkrir ill-
ræmdir hermenn, sem höfðu það
í huga, og myndu eigi svífast þess,
að stytta þeim öllum aldur, sem
þar biðu varnarlausir.