Ísafold - 08.12.1925, Side 4
isAPOLD
Niðursuðuhús „Mjólkurfje-
lagsins Mjallar“, brennur
til kaldra kola.
öllu lauslegu bjargað úr húsinu.
Ag morgni 2. des.kl.7 kom upp eld-
ur í verksmiðjuhúsi Mj(Slkurfje-
lagsins Mjallar á Beigalda í
Borgarfirði. Brann það til kaldra
kola, nema útveggir, sem voru úr
•teini.
Eldurinn kom upp í bensíni, er
geymt var í timburskúr, áföstum
-við húsið. í honum voru geymt:
kol og olía, svo eldfim efni voru
þegar strax fyrir, og magnaðist
eldurinn því fljótt og barst í aðal
húsið. Varð ekkert við hann ráð-
ið’
Húsið var 25X10 álnir að stærð
og alt úr timbri, nema útveggir.
Það var vátrygt fyrir um 80 þús.
krónur.
í því var m. a. hálfs mánaðar
framleiðsla af niðursoðinni mjólk.
Bjargaðist hún öll, og alt laus-
legt úr húsinu. En vjelum varð
ekki bjargað, og er talið að þær
hafi skemst all mikið.
„Cardinal“-málið.
Málið er útkljáð.
Pyrir skömmu var sagt frá því
hjer í blaðinu, að enskur togari,
„Cardinal' ‘ að nafni, sem strand-
varnarskipið „Þór‘ ‘ tók að ólög-
legum veiðum fyrir Norðurlandi,
hefði strolcið af Akureyrarhöfn
eftir að dómur var upp kveðinn,
áður en honum varð fullnægt.
Utanrílcisstjórnin tók málið að
ejer, og hefir það nú verið útkljáð
á þann hátt, að sektin, 10 þúsund
gullkrónur, var greidd og fyrir
afla og veiðarfæri voru greiddar
nál. 5Y2 þús. krónur; er þetta
rúmlega meðalverð, miðað við
það sem fengist hefir fyrir sölu
afla og veiðarfæra á uppboði hjer
heima. Beðið var afsökunar á
framferði skipstjóra, og þarmeð
er málið útkljáð.
Samvinnubankinn danski.
Eftir afar miklar bollalegging-
ar og þjark, er nú ákveðið að
bankinn verði endurreistur í nýrri
mjmd, og er húist við að hinn
nýi banki taki til starfa innan
skamms.
GREINARGERÐ.
Háttv. ritstj. Heimskringlu!
Jeg hefi sjeð blað yðar frá 12.
f.m., sem flytur grein nokkra um
Miðdalsnámuna eftir „ísafold“.
Af því að öllum, sem til þekkja,
hlýtur að skiljast, að greinin vík-
ur máli sínu að nokkru levti að
mjer, bið jeg yður að flytja ör-
stutta athugasemd.
pað er gefið í skyn, að tafist
hafi fyrir námuvinnu 1 Miðdal
vegna þess að eignarheimildin
muni ekki hafa verið í lagi. Til
þess atriðis er því' að svara, að
allar heimildir mínar eru þing-
lesnar í sýslubókunum í Hafnar-
firði. Ennfremur skal það tekið
fram, að jeg hefi gert fyrir löngu
síðan bindandi kaupsamning um
eignir þær og rjettindi, sem hjer
er átt við. Loks hefi jeg gefið út
afsal til námufjelagsins á grund-
velli þessa kaupsamnings. A hinn
bóginn þurfti fjelagið, eftir ís-
lenskum lögum, að leita undan-
þágu til Islandsstjórnar, til þess
að reka námuna, svo framarlega
sem yfirtala hlutafjár væri ekki
innlend.
Stjórnin tók ágætlega í þetta,
en Hollendingur sá, sem greinin
getur um, virtist ætla, að hann
gæti fengið undanþáguna fyrir
fjelag, sem ekki var orðið til, en
það gat stjórnin auðvitað ebki
með sínum besta vilja látið í tje.
Eftir því sem jeg veit best, er
ekkert hollenskt fjelag myndað
enn.
Annars þykir mjer rjett að
skýra frá því, gagnvart Isafold-
argreininni, að það er af alt öðr-
úm ástæðum, að hlje er sem stend
úr á vinnunni í Miðdal. Fjelagið
hafði sjálft sett erlendan vísinda-
mann í dómarasæti um verðmæti
námunnar, en út af feikna miklum
auglýsingum um námuna í þýsk-
um hlöðum, mun hann hafa dreg-
ið að sjer hendina.
Jeg vil að endingu benda á, að
náman hefir verið unnin og rann-
sökuð með uppgreftri og mann-
virkjum um tveggja ára tíma, án
þess að nokkur maður hafi mót-
mælt. Þetta atriði eitt sýnir ræki-
lega hæfuleysi uppspunans um
brest á eignarheimildum.
Fyrir þá, sem fylgjast vilja með
framgangi þessa fyrirtækis, vil
jeg bæta því við, að jeg hefi
nýlega átt tal við verkstjórann
sjálfan, sem unnið hefir að nám-
unfii, og er af öllum álitinn mjög
samviskusamur og rjettsýnn mað-
ur, enda í miklu áliti meðal stjett-
arbræðra sinna, og lýsti hann yfir
fullkominni trú sinni á mikilleik
og verðmæti námunnar.
Jeg bið ísafold vinsamlega að
taka þessa grein upp sem leið-
rjetting, þegar hún berst blað-
inu.
New York, 25. sept. 1925.
Einar Benediktsson.
Aths. Til þess að koma í veg
fyrir misskilning skal það tekið
fram, að allar þær upplýsingar,
sem Mbl. og ísafold fluttu um
Miðdalsnámuna, voru eftir verk-
stjóranum sem þar vann, sem að
dómi hr. E. B. er maður „sam-
viskusamur og rjettsýnn“.
Heilsufarsfrjettir.
Útbrotataugaveikin í Noregi.
Engar nýjar frjettir hafa bor-
ist af þeirri sótt, enda geri jeg
ráð fyrir að nú sje tekið fyrir
hana.
1. des. 1925.
G. B.
Smyglaraskipið
r
1
Vestmannaeyjum.
Fiskikaup.
Vjer eram kaupendur að fiski fúL'verkuðnm, hálfverkuðum o©
app úr salti 4 ðllum útskipunarhöfnum í kringum landið.
GJÖRIÐ OSS TILBOÐ.
Útvegum með stuttum fyrirvara heiia kolafarma með iægsts
verði hv-ert aem er á landinu.
Bræöurnir Proppé
Reykjavik.
Síðastl. föstudag var dómur
upp kveðinn í smyglaramálinu í
Véstmannaeyjum. Var skipstjór-
inn, Jónas Rekdal, dæmdur í 4000
kr. sekt og 2 mán. einfalt fangelsi.
Bjarni Jónss. og Kristinn Stefánss.
voru dæmdir hvor um sig í 3000
,kr. sekt. Alt áfengi og skip var
gert upptækt og ákveðið eign rík-
issjóðs. Er talið líklegt að mál-
inu verði áfrýjað til hæstarjettar
Útsvörin á ísafirði eru um 14
þús. kr. hærri en þau, sem jafnað
var niður í fyrra. Alls um 180
þús. Hæst útsvar þar er 16.500 kr.
— á Samein. ísl. verslunum,
Dánarfregn úr Skagafirði. Sig-
urður Gunnlaugsson verslunarm.
á Sauðárkrók andaðist nýlega. —
Fjekk hjartaslag.
Fyrir skömmu dó að Bakka í
Hólmi Guðlaug, ekkja Gottskálks
Egilssonar.
Barnaveiki í Reykjavík.
2 sjúklingar vikuna sem leið.
Þar að auki talsvert um kvef og
hálsbólgu. .
Taugaveiki í Hafnarfirði.
Tveir veikir, báðir á sama heim-
ili, haldið að veikin hafi borist
þangað norðan af Siglufirði, en
þó engan veginn víst að svo sje.
Taugaveikin á ísafirði
virðist vera um garð gengin. Hef-
ir engin veikst nú í hálfan mán-
uð.
Mænusótt á Siglufirði?
Þar veiktist barn, 3 ára gam-
alt, fyrir nokkrum dögum, af
„máttleysisveiki". Var haldið að
um mænusótt væri að ræða. En
eftir síðustu frjettum að dæma,
tel jeg vafasamt að svo sje.
1. des. 1925.
G. B.
Frjettir víðsvegar að.
Klæðaverksmiðjan Gefjun á Ak-
ureyri hefir hæst útsvar þar í
sveit, samkv. nýútkominni niður-
jöfnun, kr. 6000.
Kvenfjelagið Framtíðin á Akur-
eyri hefir forgöngu í því máli að
koma þar upp Elliheimili.
Forstofuþjófnaðir. Undanfarnar
vikur hefir á því borið að stolið
hefir verið yfirhöfnum og öðru
lauslegu úr forstofum á Akureyri.
Ebkert hefir komist upp um það
hver væri valdur að þessum þjófn
aði.
Dánarfregn. Sigurður Árnason
bóndi að Steinmóðarbæ í V.-Eyja-
fjallahreppi andaðist þ. 29. f. m.
Hann var 89 ára gamall. Hafði
búið í 60 ár, mestan eða allan
tímann þarna á sömu jörðinni.
f Garðsjó veiddist á þriðja
hundrað af þorski í 7 net á föstu-
daginn var. Þar hefir verið reit-
ingur á' lóð undanfarið.
fþróttanámsskeið hefir staðið
yfir síðastliðna viku á Eyrar-
bakka. Hafa tekið þátt' í því 40
nemendur, 16 stúlkur og 24 karl-
menn. Kennari er Sigurður
Greipsson. Þessa viku kennar
hann í Ölvesinu.
Reitingsafli hefir verið á Eyr-
arbakka undanfárið, þegar farið
hefir verið á sjó, en það hefir
verið mjög sjaldan. Aðalvertíð
byrjar þar ekki fyr en í febrúar-
lok. En þó fara nokkrir bátar til
Sandgerðis á hverjum vetri þeg-
ar vertíð hefst þar, en síðan heim,
er vertíð byrjar eystra.
Dálítill afli hefir verið á Stokks
eyri undanfarið, en sjósókn er
lítið stúnduð þar, enn sem komið
er.
Þorlákur Helgason, sonur Helga
Sveinssonar, var í fyrra mánuði
kosinn formaður stúdentafjelags-
ins í Þrándheimi; að því er norsk
blöð skýra frá. Hann stundar
verkfræðisnám.
Afli við Djúpið. Ágætur afli er
í ísafjarðardjúpi, að því er
símað var. Þar veiðist altaf
síld til báta.
Aukning togaraflotans. Hann
eykst að minsta kosti um 5 skip
nú næstu mánuði. Belgaum-fje-
lagið fær einn togara, er heitir
Jupiter. Er hann lagður á stað
frá Englandi. Þá fær iitgerðarfje-
lagið Geir & Th. Th. einn togara
í stað Leifs hepna. Heitir hann
Eu-íkur rauði. Sleipnisf jelagið fær
tvo nýja togara. Er annar keypt-
ur í Hollandi, og mun verða til-
búinn eftir nokkurn tíma, eða í
vortíðarbyrjun, en hinn er bygður
að nýju, og mun ekki verða til-
búinn fyr en eftir nokkra mán-
uði. Loks fær Alliance einn tog-
ara. Heyrst hefir að von sje á
fieiri togurum nýjum. En Isaf. er
ókunnugt um sönnun á því.
Fullveldisdagsins 1. des. var
niinst með hátíðahöldum, er stú-
dentar gengust fyrir. Stúdentar
gengu í skrúðgöngu að háskólan-
um; þar hjelt Sveinn Björnsson
fyrv. sendiherra ræðu. Síðar um
daginn var skemtun haldin í Iðnó.
Hjelt Árni Pálsson bókav., þar
eftirtektarverða ræðu. Stúdenta-
blaðið var selt á götum bæjarins
allan daginn.
Kaupdeilunni lokið. Þann 2. þ.
mán. náðist samkomulag í kaup-
aéilunni milli útgerðarmanna og
háseta, og var samninprur gerður
til þriggja ára. Á búreikningavísi-
tala hagstofunnar að ráða kaup-
inu, og auk þess fengu sjómenn
nokkrar ívilnanjr : sumarfrí, 'leyst-
ir undan þeirri kvöð að standa
vörð um borð, meðan verið er að
búa skipið í næstu veiðiför.
Frambjóðendur í Gullbr.- og
Kjósarsýslu eru ákveðnir: Ólafur
Thórs framkv.stj. af hálfu íhalds-
flokksins, og' af hálfu jafnaðar-
manna Haraldur Guðmundsson
| frá Gufudal. Sig. Eggerz hefir
|við .og við verið að hlaupa úr
bankanum og, gá til veðurs, en
honum hefir sýnst .hann blikaður.
Myndaverk Einars Jónssonar.
Bók með myndum af helstu lista-
verkum Einars Jónssonar hefir
verið prentuð í Höfn, og er henn-
ar von í bókaverslanirnar næstu
daga. Er prentun og frágangur
allur mjög vandaður. —
Fontenay sendiherra hefir ný-
lega í „Geografisk Selskab“ í
Höfn, haldið fyrirlestur (með
myndasýningu) um Vatnajökuls-
f?rð sína síðastl. sumar.
Smásöluverð i Reykjavík. Hag-
stofan birtir í síðustu Hagtíðind-
um yfirlit yfir smásöluverð í
Reykjavík í október og nóvember
þessa árs. Ef verðið á öllum þeim
vörum, sem yfirlitið tilgreinir, er
talið 100 í júlímánuði 1924, þá
hefir það verið 460 í október 1920,
312 í okt. 1924, 292 í júlí 1925,
279 í okt. 1925 og 273 í nóvbr.
1925. I síðastliðinum októbermán-
uði var verðið því að meðaltali
rúml. 4% lægra heldur en í júlí-
mánuði, og rúmlega 11% lægra.
heldur en í okt. í fyrra, en 179%
hærrá en rjett fyrir stríðið.
Hagstofan getur þess, að við
þennan útreikning sje það að at-
huga, að tekið hafi verið meðaltal
af verðhækkun allra varanna, án
þess, að gerður sje nokkur grein-
armnuur á því, hvort þær eru
inikið notaðar eða lítið.
Aðsóknin að togurunum. Ensk-
ur ferðamaður, er skrifar um ís-
land' og lýsir bæði sveitalífi og
kaupstaða, segir frá því og undr-
ast yfir, að svo fast sæki íslensk-
ir bændasynir að komast á togara,
að þeir gangi hiklaust í þjónustu
útlendinga, ef þeir fái ékki at-
vínnu á íslensku togurunum.
Tryggvi Þórhallsson hefir feng-
ið nóg af hundavaðs-öslinu í þing-
tíðindin á dögunum. Hann hefir
nú gefist upp, og er hættur bull-
inu um varalögregluna. Um leið
og hann leggur frá sjer pennann,
kemst hann svo að orði um sjálf-
an sig: „Er engin yon til að svo
sauðheimskur maður geti botnað
í varalögreglunni“. En þessi af-
aökun Tr. Þ. er of seint fram
komin, og leysir hann ekki undan
því að verða stimplaður opinber
ósannindamaður frammi fyrir al-
þjóð, fyrir skrif hans um málið.
Sumarbústaðir í sveiitum. Nú
birtir yfir búskaparhugmyndum
Hriflumanns. Hugsjónir hans eru
að nota sveitirnar til sumardvalar
banda kaupstaðamönnum (sbr.
54. tbl. Tímans).
í Laufási. Þegar Tryggvi Þór-
hallsson gefur mönnum að borða,
lætur hann þá skrifa langar þakk-
lætisgreinar til sín í Tímann.
Prestskosning í Bolungarvík. —
Við talningu atkvæða reynd-
ist sjera Páll Sigurðsson prestur
í Norður-Dakota löglega kosinn
með 208 atkvæðum. Sjera Böðvar
á Rafnseyri fjekk 137: 380 voru
á kjörs'krá.
Prestskosning í Vallanesi. Þar
er löglega kosinn sjera Sigurður
Þórðarson, settur prestur í Valla-
nesi, með 115 atkVæðum. Sjera
Þorvarður þormar í Hofteigí
fjekk 10. Alls voru 191 á kjör-
skrá.
Verðpóstpokinn, er saknað var
í Esju, kom fram litlu síðar. •—
Hafði hann verið skakt merktur
á Húsavík: Raufarhöfn, í stað
Reykjavík. Pokinn var á Þórs-
höfn. Um þjófnað var því ekkí
að ræða, sem betur fór.
4