Ísafold - 28.01.1926, Blaðsíða 4

Ísafold - 28.01.1926, Blaðsíða 4
4 ÍSAFOLD Annars gott heilsnfar austan- fjalls, alla leið austur í Skafta- “fell.ssýslu. Kvefsótt hefir stungið ’s|er niður, en ekkert líkt því sem hjér í Reykjavík. Taugaveiki í Reykjavík. Fjrrir nokkru kom upp tauga- v^j í húsi nr. 32 B við Hverfis- Sjúklingarnir tveir, og háð- ir' fluttir í farsóttahúsið. Litlu fanst maður uppi á Ála- TÍSjjfc með taugaveiki í fyrstu bf|*j*n; hafði hann dvaiið í þessu húsi við Hverfisgötu, og vjjp nýkominn uppeftir. Hann og strax fiuttur á farsótta- Teljum við lijeraðslæknir ‘ÁfSíossi alls enga hættu búna af kómu þessa manns þangað. Síðan !i /ffa fjórar manneskjur verið fúfttar í farsóttahúsið úr sama, ííyerfisgötuhúsinu (32 B), allar eijJRwað lasnar, en ekkf enn sann að um taugaveiki sje að ræða. f’i^r fyrstu sjúklingarnir hafa Ö- tvjýætt taugaveiki; en veikin va3S* °g upptökin á huldu. ItÖSynjað barnakvef í Reykjavík. Kvefsóttin í Reykjavík legst nú aðallega á börn, og er ill- kýujuð í börnum á 1. og 2. ári. Hafa þau mörg fengið lungna- bqjgu og nokkur dáið. Þrátt fyr- ir mikil, dagleg mök við Hafnar- fjðrð, hefir þessi illkynjaða ikvef- sóft ekki borist þangað, og hyergi spurst til hennar annars- stáðar. Hjeraðslæknir telurþetta „iaHlenda" kvefsótt. Að norðan. Hjeraðslæknir á Akureyri seg- ir mislinga á slæðingi og rauða hunda. Annars gott lieilsufar. Af Vesturlandi. „Taugaveikin í Djúpinu búin. Hjer gott heilsufar, aðeins mjög vægir rauðir hundar. Hlaupabóla og gula á Þingeyri. Fyrir nokkru síðan gekk skæð lungnabólga á Bíldudal; dó þrent í sama húsi“, -segir hjeraðslæknir. 25. janúar 1926. G. B. Khöfn, 17. jan. FB. Vetrarharka á Norður-ítalíu. Símað er frá Rómaborg, að vetrarharka og snjóþyngsli sjeu afar mikil um alla Norður-ítalíu. Frostið er sumstaðar um 20 gráður, og hefir víða haft alvar- 1 egar afleiðingar. Vínsmyglið í Bandaríkjunum. Simað er frá Washington, að síðara missiri ársins hafi 25 smyglaraskip verið handsömuð í opnu hafi. Sum geysistór. Atvinnuleysið \ Berlín. Símað er frá Berlín, að 20. Lver maður í borginni sje at- vinnulaus. Khöfn 19. jan. FB. Bensínsprenging. Símað er frá Berlín, að kviknað Jiafi í bensíni, er geymt var í ilcjallara húss nolkkurs. Húsið hentist hátt í loft upp og tvístr- «ðist.'Tíu biðu bana, en 80 særð- **ust. Sænskir jafnaðarmenn og kom- múnistar sameinast. Símað er frá Stokkhólmi að flokksstjóm Socialdemokrata hafi su^ykt, að flokksbrot kommún- ista, er stjórnast af Höglund (?) sameinist Soeialdemokrötum. Ein af dætrum Rússakeisara lifandi? Símað er frá Berlín, að því sje haldið þar fram af ýmsum, að ein af dætrum Rússakeisara sje lifandi og hafi búið þar í borg- inni átta ár. Þýkir ósennilegt. Khöfn 20. jan. FB. Alræði Mussolinis. Símað er frá Rómaborg, að Mussolini hafi bannað andstæð- ingunum þingsetu, nema þeir við- uúkenni takmarkalaust Fascism- ann. Er þingræðinu þar með al- gerlega stungið undir stól. Mönn- um í Norður-ítalíu hefir verið skipað að taka sjer ítölsk nöfn, beri þeir heiti af erlendum upp- runa. Khöfn, 21. jan. FB. Pjármálaógöngur Frakka. Símað er frá París, að ekkert samkomulað hafi enn náðst um fjárlagafrumvörpin. Fjármála- ráðherrann hefir lýst því yfir, að það sje alveg óhjákvæmilegt, að ná samkomulaginu fyrir 1. febrúar. Briand reynir að koma þingmönnum í gott skap, með því að bjóðast til þess að hækka þingfararkaupið úr 27,000 í 42,- 000 íranka. Khöfn 22. jan. FB. Heilsusamlegt? Símað er frá Berlín, að nú sje hæstmóðins að reyna að svelta sig sem allra lengst og er álitið heilsu samlegt. Maður nokkur ætlaði að svelta sig í 42 daga. Neytti hann einskis í 35 daga, en gafst upp og liggur nú dauðvona. Khöfn, 23. jan. FB. Óeirðir á takmörkum Póllands og Rússlands. Símað er frá Varsjá, að á hin- um pólsk-rússnesku landamær- um, Ukraine og Hvíta-Rússlands, hafi borið á talsverðum óeirðum. Herlið er notað til þess að bæla ífiður óeirðirnar. Menn ætla ó- oirðirnar runnar af þeim- rótum, að nokkrir menn, er grunaðir voru um andróður gegn stjórn- inni, voru dæmdir til dauða. Vilhjálmur Stefánsson. Símað er frá New York City, að Vilhjálmur Stefánsson eigi að taka þátt í hinni fyrirhuguðu pólför, er Ford 'kostar. Ástandið í Þýskalandi 1917—’18. Símað er frá Berlín, að socia- listinn Dittmann, er var meðlim- ur opinberrar rannsóknarnefndar, er reyndi ífð grafa fyrir ræturn- a: á því, hvers vegna pýskaland gafst upp 1918, hafi komið fram með ógeðslegar upplýsingar um grimd herstjórnarinnar árið 1917, þegar fór að blása móti. Herrjett- urinn framdi vísvitandi dómsmorð til þess að bæla niður óánægju hermannanna. Undirmenn lifðu við hræðilegan aðbúnað, en yfir- menn í allsnægtum. Khöfn, 26. jan. FB. Álit gengisnefndarinnar norsku. Símað er frá Oslo, að gengis- nefnd, er sett var á laggirnar í haust, til þess að íhuga, hvort hægt væri að festa gengi krón- unnar eða hvort bæri að reyna til að hækka hana upp í gullverð, hefir samið álit, sem enn er ekki komið út. Kvisast hefir, að nefndin þori enga ákvörðun að taka, nema festa krónuna í nú- verandi gildi, — en aðeins til bráðabirgða, og bíða síðan á- tekta. Frá heimskautaförum. Símað er frá New York City, að Roald Amundsen hafi sagt í viðtali við amerískan blaðamann, er birt var í amerísku blaði, að hann álíti jafn líklegt að Cook hafi komist á Norðurpólinn og Peary. Blöðin eru stórreið, þar sem Cook er fjárglæframaður og braskari, og skilja Amundsen því þannig, að hvorugur þeirra hafi komist á pólinn. Byggingarefni Heii fyrirliggjaœdi: 100 ára afmæli Benedikts Sveinssonar alþ.forseta og sýslu- manns var 20. þ.m. Voru fán- ar dregnir á stöng á opinberum byggingum víða í bænum til minn ingar um það. Indriði Einarsson rithöfundur, ritaði góða grein í „Vísi“ um Benedikt. Forsetar Alþingis fóru suður í kirkjugarð á aldarafmæli Bene- j dikts Sveinssonar og lögðu sveig á leiði hans. „Nýi sáttmáli", bók Sigurðar Þórðarsonar er uppseld og verður prentuð aftur innan skams. Tóbaksverslunin. Mikil sam- kepni er að verða í tóbaksverslun- inni nú, síðan verslunin varð frjáls, eins og sjá má daglega á auglýsingum í blöðunum. Þrátt fyrir hækkaðan toll hefir Morgbl. heyrt að verð á tóbaki yfirleitt hafi lækkað, og sýnir það eu;n einu sinni ágæti hinnar frjálsu verslunar. „íslendingurinn' ‘ sökk eins og kunnugt er fyrir nokkru inn á Eiðsvík, og það með undanlegum hætti, svo að menn skildu ekki í. Hefir það verið órannsakað enn. Nýlega fór kafari frá „Hamri1 ‘ I inn á Eiðsvík til þess að rannsaka | af hverju skipið hefði sokkið. Varð hann einskis vísari. Er nú í ráði að reyna að ná tog- aranum upp. Samsæti það er Jóhannesi Jó- hannessyni bæ.jarfógeta og fjöl- skyldu hans var haldið í fyrra- kvöld, var mjög fjölment, yfir 120 manns. Aðalræðuna til bæjar- fógeta flutti dr. Jón Helgason biskup, en sjera Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur til bæjarfógeta- frúarinnar og Hjalti Jónsson framkv.stj. til barna þeirra. — Margar fleiri ræður voru fluttar þarna og meðal þeirra er töluðu var forsætisráðherra. Bæjarfógeta var afhentur veglegur göngustaf- ur, sem gjöf frá þeim, er f sam- sætinu voru; hafði ungfi Soffía Stefánsdóttir myndákeri skorið stafinn iit. Fagurt fordæmi. Á sextugasta afmælisdegi sínum 17. þ. m. gaf bæjarfógeti Jóhannes Jóhannes- son 750 krónur í Bræðrasjóð Mentaskólans. Er það sama upp- 'hæð sem bæjarfógeti hafði feng- Ijð í námsstyrk úr landssjóði, þeg- ar hann var í skóla. Þessi gjöf bæjarfógeta er fagurt fordæmi og ekki ólíklegt að margir feti þar í fótspor hans. Er það hvort- tveggja, að með gjöf sem þessari minnast menn með þakklæti styrksins frá námsárunum, og Ofnar frá Bomholm, eldavjelar frá Bomholm, þvottapottar, rör 9”—24”, hnjerör með og án loks, maskínuhringir og rörmúffur, eldf. stein 1”—iy2” og 2”, eldf. leir. þakpappi, „Víkingur“, panelpappi, gólfpappi, þakjára, (bárujárn og sljett), þakaaum, pappasaum, saum ferk., 1—6”, gaddavír, málningavörur alsk. C. Behrens. Hafnarstræti 21. Sími 21. styrkja Bræðrasjóð, sem kemur sjer mjög vel fyrir fátæka og efnilega námsmenn nú og á kom- andi árum. En til Stúdentagarðsins gaf hann eitt herbergi — 5000 kr. Afnotarjett af herberginu fá Seyðfirðingar. Umsækjendur um Dvergasteins- prestakall eru þessir: sr. Sveinn Víkingur í Köldukinn, sr. Þor- varður Þormar í jEIofteigi, sr. Hálfdán Helgason að Mosfelli, sr. Sigurjón Jónsson, Kirkjubæ. Kirkjusaga íslands á dönsku eftir biskup dr. Jón Helgason, í haust 1925, hefir tapasfc hestur, fagurjarpur að lit, fallegur, dökkur í fax og tagl með klaufarhóf á báð- um framfótum; klárgengur,. bráðviljugur, ungur. Finn- andi er vinsamlega beðinn að láta mig sem fyrst vita- Ytra-Hól í Vestur-Landeyjum. Jónas Jónsson- Fyrir fjórum árum kom út á dönsku kirkjusaga íslands frá siðaskiftum til vorra tíma, eftir biskupinn, með fjölda af mynd- um („Islands Kirke fra Refor- mationen til vore Dage. G.E.C. Gads Forlag, Kaupmannahöfn 1922). Nú hefir höf. einnig sam- ið kirkjusögu íslands frá upp- hafi fram að siðaskiftum, og kom hún út í Khöfn rjett fyrir jólin. „Islands Kirke fra dens Grundlæggelse til Reformatio- nen“. Er þetta nýja bindi 300 bls. í stóru broti, og þannig 3 örkum stærra en bindið, sem á undan var komið. Eru í því 34 myndir og frágangur allur svo vandaður sem mest má verða. Hafa nú Norðurlandaþjóðirnar eignast Kirkjusögu íslands frá upphafi til vorra tíma á tungu, <sem þær geta fært sjer í nyt, og hana all-ítarlega, þar sem bæði bindín saman eru 552 blaðsíður í stóru postillubroti, eða 341/2 örk. Bæjarstjómarkosning fór fram hjer í Revkjavík þ. 23. þ. m. Voru listar tveir, ' jafnaðarmanna og andstæðinga þeirra. Fengi: jafnaðarmenn 2516 atkvæði., en andstæðingar þeirra 3820. Talið er víst að Tímamenn hafi allir greitt jafnaðarmönnum atkvæði sitt. Um 3000 greiddu eklci atkv. er voru á kjörskrá. Þar á meðal nokkur hundruð sjómanna, síls. eru fylgismenn jafnaðarmanna og Bolsa, en meginþorrinn af þess- Þakkarávarp. Innilegt hjartans þakklæti vilj- um við hjermeð votta öllum þeir* Stokkseyringum og öðrum, sem á einn eða annafl hátt hafa rjett okkur hjálparhönd, bæði með fje- gjöfum og annari drengilegri að- stöð í hinum þungbæru veikind- um og langvarandi sjúkrahúss- vist mannssins míns, Jósteins Kristjánssonar, Hausthúsum á Stokkseyri. Biðjum við algóðan guð 'að launa þessum okkar velgjörðar- mönnum af rílcdómi náðar sinnar, þá er þeim liggur mest á, og; hann sjer þeim best henta. Hausthúsum á Stokkseyri, 10. janúar 1926. Ingibjörg Einarsdóttir, Jósteinn Kristjánsson. Flóna Islands 2. útgáfa, er komin út. Kostar í kápu kr. 12.50, shirt- ingsbandi kr. 15.00, í skinnbandi kr. 17.50—19.00. Bókin sendist hvert á land sem er gegn póst- kröfu. Fæst á afgr. Morgunbl-* Austurstræti 5. Aðalútsölumaðnr er Steinarr St. Stefánsson, Aðal- stræti 12, Reykjavík. Pósthólf 922. um 3000 eru vitanlega andstæð- ingar jafnaðarmanna, þó ekk» sæktu þeir kosningu í þetta sinn.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.