Ísafold - 18.09.1928, Side 4

Ísafold - 18.09.1928, Side 4
4 í S A F 0 L D Bókamenn! Ný bók: í leikslok eftir Axel Thorsteinsson. UMMÆLI: Höfundurinn innritaðist í kanadiska herinn 1918 og fylgdist með herdeild sinni til Englands, Belgíu, Frakk- lands og Þýskalands. Gerast sögurnar í áðurnefndum löndum. Þær eru hugsnæmar og ljúfar og hlaupa upp í fangið á lesaranum, eins og saklaus smábörn, sem hann hefir ánægju af að veffja örmum. Sumstaðar er sagt frá átakan- legum atvikum svo sem í frásögninni af „belgisku rósinni“, sem sagði við hermennina: „Þið lifið. Við deyjum. Við að- eins höldum áfram að deyja“. Eða frásögnin af litlu þýskurunum, horuðum og hungruðum .. ..“. — (Dagur). „Allir hafa gott af að lesa þessar sögur og vonandi ná þær mikilli útbreiðslu. Þar er ekki lögð áhersla á sjerkennilegan stíl eða málskrúð: Umbúðirnar eru aukaatriði, efnið er aðalatriði. Frásögnin er öll ljett, lipur og al- þýðleg. — Allar eru sögurnar, sem vonlegt er, dökkar. Þær eru allar harmsögur, en þó bregður fyrir í þeim birtu af nýjum degi, gleði hermannanna, kærleik þeirra til ástvinanna, þráin eftir heimilunum. Friðarþráin er sterkust. Sögur þær er segja frá skelfingum ófriðarins, sem saklaus börnin urðu fyrir, eru harmlegastar og Axel er líka lagið að setja þær í þann búning að tilfinningar lesandans komast við.“ — (Alþýðublaðið). Bókin er sex arkir, prentuð á vandaðan pappír. Verð kr. 2.00. Miðuð' við orðafjölda er bókin afaródýr. Orðaf jöldinn er álíka og í sumum Fimm króna bókum. Það er orðaf jöldinn, en ekki pappírsþykt og brot, sem er rjett- ur mælikvarði á verði bókanna. Bókin fæst hjá öllum bóksölum. Ljóðaþýðingar II. bindi er í prentun og verður væntanlega komið til allra bóksala fyrir jól. Um þýðingar Steingríms er svo að orði komist í Lögrjettu (Sn. J.): Það mun tæplega verða um það deilt að> af öllum íslenskum skáldum hefir Steingrímur verið mestur snillingur að þýða erlend ljóð. Hægt er að benda á mis- hepnaðar þýðingar eftir hann, en þær eru nauðafáar. Hinar eru aftur á móti margar, sem eru gerðar af svo mikilli list að þangað verður komist en ekki lengra. Tökum t. d. „Excelsior“ eftir Longfellow. Á engu máli er til fullkomn- ari þýðing á nokkru ljóði en þýðing Steingríms á því fagra kvæði. — Talið er að enskar þýðingar á Lorelei skifti hundruðum, en þó er víst, að engin þeirra þolir samanburð við þýðinguna sem Steingrímur gerði.“ Rökkur, V. árg. I þessum árgangi eru sex æfintýri,, sem Stgr. Th. þýddi. Ekkert þeirra hefir verið prentað áður. Ekkert þessara æfintýra er í Æfintýrabókinni. Þá er og í þessum árgangi saga, eftir Einar Þorkelsson, nokk- ur kvæði, eftir A. Th. og Richard Beck, og auk þess ýmsar fróðleiksgreinar með myndum. VI. árg. Rökkurs kemur út í heilu lagi í vetur. Verð V. árg. kr. 3.00. Pantist frá afgreiðslunni eða frá bóksölum. 2. 3. og 4. árg. Rökkurs enn fáanlegir frá afgreiðslunni fyrir kr. 3.00 allir, ef teknir allir í einu. Greifinn frá Monte Christo. Því miður hefir útgáfu þessarar sögu seinkað. Það varð að koma II. bindi Ljóðaþýðinganna út fyrst. Eru menn beðnir velvirðingar á drættinum. Nýtt hefti af Greifanum kemur að forfalla- lausu í vetur og síðan verður útgáfunni haldið áfram eins hratt og með nokkru móti er unt. Bókamenn eru beðnir að minnast þess að hin sjerstöku vildarkjör um bókakaup, sem áður hafa verið aug- lýst í ísafold gilda enn. Menn geta sem sje fengið allar útgáfubækur undirritaðs burðargjaldsfrítt fyrir einar tólf krónur, ef þeir panta þær beint frá útgefandanum. Þessar eru bækurnar: Ljóðaþýðingar I. bindi, Sakúntala, Savitri, Æfintýrabókin, Æfintýri íslendings, Rökkur, fimm árgangar, Útlagaljóð, Greifinn frá Monte Christo 2. Hefti, Redd- Hannesarríma. Auk þess Sunnudagsblaðið II. og III. meðan endist. Bækur þær sem útkoma hjá mjer frá 1. jan 1928 ekki meðtaldar og verða þær undir engum kringumstæðum seldar á sama hátt, þar eð verð þeirra er þegar í byrjun haft svo lágt og með nokkru móti er unt. Bókamenn, sem ætla sjer að eignast ofannefndar bækur ættu því að panta þær allar í einu. Með því fá þeir þær fyrir neðan hálfvirði. — Tilboð þetta’gildir til áramóta aðeins. Eftir þann tíma aðóins með bókhlöðuverði. Athugið því, að pöntun yðar berist undirrituðum í seinasta lagi fyrir áramót. Axel Thorsteinsson II - Sellandsstfg 20. Pósthólf 956. — Reykjavík. Garðar Gíslason 6 Humber Place, Hull, annast innkaup á erlendum vörum. og afllu Islenekra afurða. ráða í þessu efni, enda ekki við að búast þar sem forsætisráðherra vor hefir auglýst það um öll Norð- urlönd, að íslendingar væru stað- ráðnir í að stýfa gjaldeyri sinn. Pierre S. Dupont, amerískur auð maður, lagði nýlega 50.000 dollara í kosningarsjóð demokrata í Banda- ríkjunum. Mr. Dupont er republik- ani, en ákvað að styðja Albert Smith vegna afstöðu hans til bann málsins. — (F'B). Forvextir hækka. Frá Stokkhólmi er símað: Ríkis- bankinn hefir hækkað forvexti frá fjórum upp í hálfan fimta prócent. Nobelverðlaunin hækka. Sænsk blöð skýra frá því, að Nobelverðlaunin verði framvegis kr. 156,938; er það 25 þús. kr. meira en verið hefir undanfarið. Stafar hækkun þessi af skatta- ívilnun. Frá sjómannastarfinu. Forstöðu- maður sjómannastofunnar á Siglu- firði 2 undanfarin sumur, hr. A. Norheim frá Haugasundi, kom hingað með Islandi að norðan. Með an hann býður hjer eftir Lyru til Noregs ætlar hann að flytja nokk- ur kristileg erindi hjer í bænum og í Hafnarfirði. Fyrsta erindið var 16. þ. m. í húsi K. F. TJ. M. Hr. Norheim var 20 ár í siglingum áð'ur en hann fór að starfa að trú- málum. Árin 1911 til 1917 var hann 1. vjelstjóri á stóru norsku skipi, sem flutti vörur til Frakk- lands og Englands stríðsárin og komst þá oft í krappan dans. Haustið 1914 t. d.. bjargaði skip lians 48 Englendingum, sem sátu naktir á bát úti á regin hafi. Þýskt tundurskeyti hafði grandað skipinu, sem þeir voru á, og af 590 mönnum, komust þessir einir af, þeir höfðu varpað af sjer klæð- um og synt að bátnum, og setið í honum tímum saman áður en þeim var bjargað. Hr. Norheim á silfurbikar frá ensku stjórninni, sem björguoarlaun frá þeim degi. Það furðuðu sig sumir á því að hann skyldi sleppa vjelstjórastöð- unni og gjörast prjedikari við ekki einu sinni hálf laun á móts við það sem hann hafð áður, en hann er sannfærður um að það er guðs vilji. — Sem sagt hann hefir frá mörgu að segja, og ekkert kostar það nema „ómakið" til fundar- salsins. — S. Á. Gíslason. „Nætur-fluga?“ Ólafur Gíslason framkvæmdarstjóri í Yiðey, er enn í dag sannfærður um að hann og samferðamaður hans á dögunum, hafi sjeð flugvjel á sveimi lijer yfir Flóanum. Nú er komin af stað önnur fregn um dularfulla flugvjel, er á að hafa sjest á sveimi hátt á lofti hjer yfir bæn- um kl. 12% aðfaranótt þriðjudags. Á hún að hafa verið með tveim skærúm Ijósum. Mrnda-útvarp. Á loftskeytasýningu sem haldin var í Berlín um síðustu mánaða- mót, voru sýnd mörg allra nýjustu tæki á þessu sviði. Þar voru m. a. sýnd hin undraverðu verkfæri er senda og taka á móti myndum úr loftinu. Ein aðferð til þess er kend við dr. Karolus. Er hún all margbrot- in. Einfaldari aðferð er kend við Ungverjann Mikalys. Báðar að- ferðirnar eru þó sagðar að standa til bóta, gallar m. a. þeir að mynd- irnar eru ekki sem skýrastar er þær koma frá móttökuáhaldinu — og titra talsvert. Maður, sem var á sýningu þess- ari í Berlín fullyrti að innan fárra ára myndu móttökuáhöld mynda vera jafn algeng og móttökuáhöld þau sem nú eru notuð við útvarp og ná hljóði og hljómum úr loft- inu. Hægt er með þessum nýjustu áhöldum að varpa út myndum af atburðum jafnóðum og þeir ske, t. d. hægt að' varpa út myndum af leikendum á leiksviði, af íþrótta- sýningum og hverju sem er'. Æsingar út af Nobile. í borginni Reval í Estlandi kom nýverið fyrir atburður, er mjög hneykslaði menn. Aðalblaðið í borginni hafði birt greinar um norðurför Nobile og fór allþung- um orðum um framkonu hans. Þetta mislíkaði sendiherra Itala þar í borginni svo, að hann hringdi til' aðalritstjóra blaðsins og skamm aði hann cbótaskömmum fyrir að birta greinar þessar. .Jafnframt krafðist sendiherrann ])ess; að hann fengi þegar í stað að þreyta '„Drsebende Kys11' er bók, sem fjallar am atærsta böl mannkynsins. “JEgteskabsbogen11 er hin eina bók, sem til er, er skýr- ir til fnllnustn frá takmörkun barn- eigna samkvæmt kenningam þeirra: Dr. Malachowaki Dr. Harris og Dr. Lesser’s. Báðar eru bækur þessar með mörgam myndam. Sendar bnrðargjaldsfritt fyrir kr. 1.25 hvor, ef andvirðið, i ial. frimerkjnm, er sent með pöntnn eða gegn póst- kröfu að viðbættu burðargjaldi. Nyhedsmagasinet Afd. 21 Kbhv. 0. einvígi við ákveðinn starfsmann blaðsins. — Þessi framkoma sendi- herra þótti svo hneykslanleg, að iTtanríkisstjórnin fann ástæðu til að kvarta til ítölsku stjórnarinnar

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.