Tíminn - 11.04.1980, Síða 7

Tíminn - 11.04.1980, Síða 7
Föstudagur 11. april 1980 7 fHtttfaro Hvaða „siðmenningu” erum við að ánetjast? Fyrir nokkru var sagt frá þvf i sjónvarpsþætti hvernig all- margir heimilisfeöur á Suður- nesjum og i Reykjavik hafa komiö upp hjá sér einkasjón- varpi i heilum hverfum og fjöl- býlishúsum og brugðiö var upp sýnum úr sjónvarpsmyndasafni þeirra. — Viðtöl voru tekin við nokkra þessarra framtakssömu manna. Voru þeir hinir ánægð- ustu yfir framtáki sinu og þeim sjónvarpsauka, sem þeir höfðu oröið sér úti um fyrir sjálfa sig, heimili sin og börn, til afþrey- ingar og „menningarauka” — Það kom lika fram að ekki voru allir jafnánægðir, sem þar áttu hlut að máli, höfðu jafnvel verið þvingaðir til þátttöku af húseig- endafélögum sinum. — A það var bent, að þessar athafnir væru lögbannaðar. Það lá þessum mönnum létt i rúmi og gerðu þeir lltið úr þvi. Ljóst var, að það fólk, sem flækst hefur um lönd og álfur og aðrirálika, hafi á ferðum sinum orðið sér úti um spólur og kasettur (eða hvað þaö nú heitir) með myndefni, sem ekki er talið sýningarhæft opinber- lega og á lágu siöferðisstigi, ef dæma má af þvi sem brugðið var upp I þættinum til sýnis. Er þetta ætlaö þessu fólki til skemmtunar og afþreytingar á siðkvöldum eftir að sjónvarp okkar er lokað eöa myndefni þess, ekki við hæfi þess. Mátti skilja að jafnframt væri þetta hugsað sem kvöldskemmtun barna þessa fólks. Flestum hugsandi mönnum mun þykja nóg af hryllings- og glæpamyndum I sjónvarpi okk- ar svo ekki sé á það bætandi. — Það fólk, sem stendur að þessu einkaframtaki er bersýnilega á annarri skoðun og vill bæta úr þvi með þessum hætti. — Ósjálfrátt kom manniihug aö þetta myndaval væri i ætt við þann kvikmyndaflokk, sem var til sýnis fyrir fáum árum þegar mesta uppistandið var gert útaf einni klámmynd, sem ekki var leyft að sýna almenningi. Eru mönnum enn I fersku minni frá þeim tlma, er við sjálft lá að Thór Vilhjálmsson læsti greipum um óharönaðan prestl- inginn, sem ekki kunni að meta menningargildi sliks mynd- efnis. — Við það tækifæri fullyrti Thor að slikar myndir og þaðan af verri gengju milli húsa og heldrimannaklúbba I Reykjavlk og viöar og þættu hiö besta skemmtiefni. — Engin varö til að henkkja þeirri fullyröingu, svo ég hafi séð eða heyrt, enda kannski ekki hægt um vik. Gaf þó sú fullyrð- ing nokkurt tilefni til umhugs- unar. Þó atferli sem þetta sé bannað með lögum þá mun erfitt að koma I veg fyrir slikt skemmti- efni I heimahúsum þar sem rikur vilji er til slikra „menn- ingariðkana”. En óhjákvæmi- lega leiðir þetta huga manns að þvi á hvaöa siðferöis- og menningarstigi það fólk er, sem velur sér slikt myndefni til dægrastyttingar, sjálfum sér og börnum sinum til siðrænnar uppbyggingar. — Og manni verður sú spurning efst I huga, hvaö sé að gerast ef stórir hópar heimilisfeðra leggjast svo lágt sem þessar fréttir gefa tilefni til að ætla. — Er siðferðismat fjölda fólks ekki á hærra stigi en þetta? — Hefur siðgæðishugsjón og dómgreind mikils hluta þjóðarinnar beðið skipbrot, þrátt fyrir yfirgripsmikla menntun og skólagöngu um fjölda ára og áratuga á barns- og uppvaxtarárum þess, að mestu á kostnað samfélagsins? — Eða eru fjölmiölarnir, ferð- lögin um viða veröld og vel- megunin aö skapa hér skríl I stórum stll, sem finnur sér þaö helst viö hæfi aö velta sér upp úr þvi, sem saurugast og siölaus- ast finnst I máli og myndum um vlða veröld? — Spyr sá er ekki veit. Breyttir tímar — breytt viðhorf Okkur sem erum orðin aldin að árum, verður hugsað til okk- ar barns- og unglingsára, og jafnvel þó styttra sé farið aftur I timann og við finnum hvað allt er orðið umbreytt. Viö minn- umst þess, aö foreldrar og heimilisfeður lögðu áherslu á aö allir á heimilunum byggju sig undir komandi nótt (og dag) meö góöu hugarfari, lestri hug- verkju og kvöldbæna. Börnum Guömundur P. Valgeirsson: j og unglingum var kennt að beina hug slnum til þess æðsta og fegursta, sem hugurinn vissi, I bæn og tilbeiðslu áður en gengiö var á vit draums og nætur. Það var siögæðisinnræt- ing þeirra tima. — Vera má aö einhverjir geri litiö úr þeirri iöju og geti bent á misjafnan árangur hennar. En ég er sannfærður um að þetta bar árangur i hugarfari og breytni alls almennings þeirrar tiðar og stuðlaði að andlegu jafnvægi þess fólks og var I heild heilladrýgri en öll félags- ráögjöf og sálfræöiþjónusta sér- fræðinga nútímans, sem fjöldi fólks á öllum aldri viröist vera I sárri þörf fyrir. Nú er komið sjónvarp á næstum hvert heimili I landinu með fjölbreyttu efni mönnum til uppbyggingar. Til þess er varið ógrynni fjár og mannafla, en þykir þó aldrei nóg. Ýmislegt gott má um þaö segja — en einnig illt. — Nær daglega höfum viö þar fyrir augum alls- kyns hryllings- og glæpamynd- ir, sem ekki er mönnum bjóð- andi að horfa á, og þó sist börn- um, en það er erfitt að varast. — Það er mikill skilsmunur á þvi að sýna slikar myndir I kvik- myndahúsum eða færa þær I öndvegi heimilanna þar sem þær vera óhjákvæmilega fyrir augum og eyrum ungra sem fullorðinna. — Jafnvel fréttir eru ekki sagðar án þess birtar séu myndir af æpandi skrll, úr öll- um heimshornum, meö reidda hnefa, öskrandi allskyns ógn- anir og vlgorð. Allt það athæfi er svo ógeðfellt, að yfir það ná engin orö og maður fyllist reiöi og viöbjóöi yfir þessum fjöl- miðli, sem leiddur hefur veriö til öndvegis á hverju heimili, og óskar oft aö hann væri kominn út I hafsauga. • — En þvi fólki, sem um- ræddur sjónvarpsþáttur sagði frá, þykir sjónvarpið ekki gera nóg aö sýningu slikra mynd. Þvi hefur það á ferðalögum sinum orðiö sér úti um tækni og auka- forða af enn siðlausara mynda- safni, sér og börnum þess til andlegrar uppbyggingar áöur en það gengur til náöa. — í þvi sambandi kemur i hug gamall málsháttur: „Uxinn fór til Eng- lands, en kom aftur naut.” — Þarf nokkurn að undra þó vlða finnist brotalöm i siðgæöi ýmissa manna? — Og maöur spyr enn: Hvað vakir fyrir þessu fólki? — Hvert er menningarskyn þess? — Þess- ara og annarra spurning mun margur spyrja i sambandi við þær upplýsingar, sem veittar voru I þessum þætti Kastljóss I sjónvarpinu, sem ég hefi hér farið nokkrum orðum um. Dátas j ónvarp 1 kjölfar þeirra upplýsinga, sem hér hefur verið fariö nokkrum orðum um, kemur svo frétt um aö hafin sé undir- skriftasöfnun undir áskorun til stjórnvalda um að láta opna fyrir útsendingar dátasjón- varpsins á Miðnesheiði. Lltur þvl út fyrir aðhér sé um sam- ræmdar aðgerðir að ræða, allar I ómenningarátt. Þeir sem sitja með sárt ennið og geta ekki komiö sér upp „einkasjón- varpi” á sama hátt og Keflvík- ingar og aðrir hugsa sér að bæta þann mismun upp meö afnotum af dátasjónvarpinu. Þegar dátasjónvarpinu var loks lokað eftir harða baráttu þeirra manna, sem ekki vildu þola þann smánarblett I menn- ingarlifi mikils hluta þjóöarinn- ar, sem það sjónvarp var, hófst upp mikið ramakvein alls konar fólks yfir þeim missi slnum. Færðu sumir það til, að baga- legt væri að missa af þvl vegna barna sinna. Það heföi veriö svo gott fyrir þau að una sér við þaö þegar foreldrarnir þurftu að skreppa frá heimilum slnum sér til skemmtunar. Nú er þess krafist, að það blessað fólk fái aftur þessa „barnagælu” slna, ásamt öðru. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um þessa bænaskrá. Hún er glöggt dæmi um þá þjóðlegu reisn, sem þessi hópur manna hefur til að bera. — 1 henni lýsir hin andlega mengun sér greini- lega. Doktor Hallgrlmur Helgason hefur skrifað athyglisverða og merka grein, sem birtist I Tlm- anum þann 29. febrúar, undir fyrirsögninni: „Sjálfstæði og sjónvarp”. Þar segir hann frá ummælum forstöðumanns Keflavikursjónvarpsins um „gæðhþess sjónvarps og undrun hans á þvl, aö Islendingar skuli sækjast eftir að horfa á slikt sjónvarpsefni. Dr. Hallgrímur færir glögg rök að þvl hver hætta felist I þvl fyrir menningu okkar og þjóðernistilfinningu að ánetjast sllku sjónvarpi og var- ar viö þeim hættum, sem það hafi i för meö sér fyrir þjóð sem vill halda sjálfstæði sínu og siömenningu. — Og hann finnur sig ekki geta borið kinnroöa- laust, hönd fyrir höfuð þjóðar, sem leggst svo lágt að gera sér aö andlegu fóðri slikt sorp. — Það er full ástæða til þess að hvetja menn til að lesa þá grein • — og lesa hana vel. Jón Ólafsson sagöist, i íslend- ingabrag sinum, ekki þekkja djöfullegra dáðlaust þing, en danskan Islending. — Það þóttu haröyrði á þeirri tlð og þess varð hann aö gjalda. En sá kjarni, sem i þeim fólst geröi sitt gagn I vakningu þjóðarinnar á þeirri tið. — Það sem hér er að gerast nú er fullkomin hliðstæða við það sem þar er lýst. Svipuð brýning á þvi fullan rétt á sér enn, þó færst hafi milli þjóöa um óæskileg áhrif. — Nú og ávallt þarf þjóðin að halda vöku sinni. — Þar má enginn undan lita. Af bókum Þörf endurútgáfa t Uppnámi. íslenskt skákrit I.- II. árg. 1901-1902. Ritstjórar Willard Fiske og Halldór Hermannsson. Endurútgáfa á Þorranum 1980. Umsjónarmaður éndurútgáfu Hólmsteinn Steingrlmsson. I upphafi þessarar aldar hóf Islandsvinurinn Daniel Willard Fiske útgáfu Islensks skáktlma- rits suður i Flórens á Itallu. Þar með hófst útgáfa skákbók- mennta'á Islenska tungu og var ritið gefið út fyrir Taflfélag Reykjavikur. Fiske mun aldrei hafa ætlaö sér aö gefa ritið út lengur en þessi tvö ár. Hug- mynd hans var sú, aö þetta timarit yröi upphafið, slðan gætu Islendingar, og þá væntan- lega Taflfélag Reykjavlkur tekið við og haldiö útgáfunni áfram. Þarna hefur Fiske karl- inn treystum of á framtakssemi mörlandans. Reyndin varð sú, að 23 ár liðu uns Islenskt skák- timarit sá aftur dagsins ljós og þá norður á Akureyri. I Uppnámi var mjög vandað skáktimarit og mér er mjög til efs að vandaðra rit hafi nokkurn tima verið gefiö út um skák á is- lensku. Það var afar fjölbreytt að efni, flutti skákfréttir, skákir, mikiö af skákþrautum og dæmum, þætti um sögu skák- listarinnar, bæði hér heima og erlendis, og Fiske gekk jafnvel svo langt að semja skáldsögur, sem birtust i ritinu. Sem eins- konar fylgirit með timaritinu gaf Fiske svo út kort með skák- dæmum og þrautum og mun hann hafa ætlast til að T.R. gæti haft nokkrar tekjur af sölu þeirra. Efni þessa fyrsta islenska skáktimarits verður ekki tiund- að hér, enda mörgum kunnugt. Þó vil ég ekki láta hjá llða að benda á mjög fróðlegar greinar um skáktafl I Grimsey, skák- félag Islendinga I Kaupmanna- höfn og greinar um sögu skák- taflsins. Loks skal getið greinarinnar,” Karl XII I Bender”, sem kalla má einstak- lega skemmtilegan skáksjón- leik. 1 Uppnámi hefur lengi veriö nær ófáanlegt nema við ofur- verði og þvi var þessi útgáfa bæði þörf og timabær. Skák- áhugamenn skipta hundruðum, ef ekki þúsundum, á Islandi og marga fýsir vafalaust að eiga þetta merka rit. Taflfélag Reykjavikur og Skáksamband Islands standa sameiginlega að endurútgáf- unni, en Hólmsteinn Stein- grímsson fyrrverandi formaður T.R. hefur annast hana. Um út- gáfuna þarf ekki að hafa mörg orð. Hún er ljósprentuö og mjög vel unnin á allan hátt, skák- hreyfingunni til mikils sóma. Hið eina, sem ég sakna, er sögu- og bókfræðileg ritgerö um Fiske og upphaf íslenskrar skákút- gáfu. Tilvalið hefði veriö aö birta sllka ritgerö I upphafi þessarar útgáfu. Um það þýðir þó ekki að sakast, en útgefend- um skulu færðar heilar þakkir fyrir þarft og gott verk. Jón Þ. Þór.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.