Tíminn - 24.06.1980, Side 1

Tíminn - 24.06.1980, Side 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Gengið sigið um 4% — síðan fiskverðsákvörðunin var tekin — Tillögur Seðlabankans i gengismálum teknar fyrir á ríkisstjórnarfundi i dag Kás — Frá þvi að nýtt fiskverö var ákveöiö 4. jáni sl., hefur gengi Islensku krónunnar sigiö um 4%. 3% þessa gengissigs stafa frá heimild rikisstjórnar- innar til Seðlabankans fyrir nokkrum vikum um svigróm i gengismálum, en viö fiskverös- ákvöröunina voru 3% þess svig riims ónotuö. Samkvæmt heim- ildum Timans mun Tómas Árnason, viöskiptaráöherra, hafa gefiö óformlega heimild til 1% gengissigs sl. föstudag. Samanlagt er þetta þvi 4% gengissig. Forsvarsmenn frystihiisanna töldu eftir aö ákvöröun fisk- verös lá fyrir aö gengi islensku krdnunnar yröi aö siga um 10% ef bjarga ætti rekstrargrund- velli þeirra. Ef fara á aö kröfum forsvarsmanna frystihúsanna þarf þvi gengiö aö siga enn um ein 6%. Fyrir helgina lágu fyrir tillög- ur Seölabankans I gengismál- um, en þær tengjast vanda frystihúsanna, sem nefndur hef- ur veriö hér aö framan. Jóhannes Nordal, seölabanka- stjóri, sagöi I samtali viö Tim- ann I gær, aö hann gæti ekki gef- iö neinar upplýsingar um efni þeirra aö svo stöddu, enda yröu þær til umfjöllunar á fundi rlkisstjórnarinnar fyrir hádegi I dag. Tómas Arnason, viöskipta- ráöherra, vildi heldur ekki tjá sig um gengismálin I samtali viö Timann I gær. Trúlega mun rlkisstjórnin þó á fundisfnum I dag taka ákvörö- un um einhverja breytingu á gengi Islensku krónunnar, lfk- lega á bilinu 2-4%, varla meiri. Stal körfubil um miðjan dag —keyrði á tvo bila og endaði ökuferðina á húsi Kás — Blræfinn bílaþjófur var á feröinni f Kópavogi s.l.laugardag. Tók hann körfubfl sem hann rakst á trausta taki um hábjartan dag, og lagöi af staö I ökuferö. Ekki stóö hún lengi því stuttu seinna endaöi hún meö því aö hann ók á hús viö Blómaskálann I Kópa- vogi, áður haföi honum þó tekist aö beygla tvo bfla. Tlmam: G.E. 0 Ekki var neitt lát á sólinni I gær, þannig aö aödáendur heita lækjarins f Nauthólsvik uröu meö allra flesta móti. Nú er hins vegar spurningin hvort hörmungarslysin sem beint eöa óbeint má rekja til hans siðustu daga, hafi einhver áhrif á framtlö hans. Tlmamynd: Tryggvi. Verður læknum lokað? Enn óljóst um 700 millj. kr. frá Byggðasjóði HEI — „Þaö fer auðvitað aö standa okkur nokkuð fyrir þrif- um, aö vita ekki hvort viö eigum aö framkvæma I sumar fyrir hiö framboöna 700 milljón króna lán frá byggðasjóði eöa ekki, en þaö er ekki enn frágengiö svo okkur sé kunnugt um hér hjá Vegagerð- inni”, sagði einn af verkfræöing- um hennar i samtali viö Tlmann nýlega. Hins vegar sagöi hann Vegagerðina vera aö búa sig und- ir að framkvæmdir i lagningu slitlaga fyrir þaö fé sem ákveöiö var með vegaáætlun, en þaö mun vera svipuð upphæö. Timamanni kom þaö á óvart, að allt væri ennþá ófrágengiö varöandi þessar 700 milljónir, sem tilkynnt var um á vegum stjórnar Framkvæmdastofnunar fyrir nokkrum vikum, aö Byggöa- sjóöur yröi látinn veita til slit- lagageröar í sumar. Ekkitókst aö ná I stjórnarmenn eða kommisara Framkvæmda- stofnunar. En góöur heimilda- maöur taldi þessa töf stafa af þvf, aö ekki heföi „veriö fariö aö nein- um lögum varöandi þessa fjár- veitingu”. Samkvæmt vegalögum eigi allt þaö fjármagn sem veitt er til þjóövega — hvort sem þaö kemur frá ríkinu eöa einhverjum stofnunum, meö sérstakri fjáröfl- un eöa á annan hátt, — aö vera samræmt f vegaáætlun. 1 þessu tilfelli hafi verið búiö aö sam- þykkja vegaáætlun, er stjórn Framkvæmdastofnunar tilkynnti um fjárveitingu þessa upp á sitt eindæmi. Kás — Tvö slys sem beint eöa óbeint má rekja til tilvistar heita lækjarins I Nauthólsvlk uröu um helgina. t ööru tilvitdnu var um aö ræöa banaslys, þegar ungur maöur á tvitugsaldri, Pétur Theodór Jónsson, drukknaöi I Fossvogi, þegar skektu sem hann og fjórir félagar hans hugöust sigla úr Kópavogi yfir I Nauthólsvlk, hvolfdi. Þetta slys varö aðfaranótt sunnudagsins. Aöfaranótt laugardagsins fékk ungur maður svo slæmt höfuö- högg þegar hann datt I fjörunni i Nauthólsvík, aö flytja varö hann á spftala, þar sem hann liggur enn meðvitundarlaus. Samtals má nú á beinan eöa óbeinan hátt tengja sex mannslát við heita lækinn í Nauthólsvik. Ekki eru allir á eitt sáttir um hvernig bregöast eigi viö þessum vanda. Þær raddir veröa þó háværari meö hverjum deginum sem láta vilja loka læknum. „Vib erum aö hugsa um aö loka alveg fyrirheita vatniö í lækinn”, sagði Jóhannes Zöega, hitaveitustjóri, I samtali viö Tfmann I gær. Ekki hefur þó veriö tekin endanleg ákvöröun um þaö. Hvað sem sagt verður um heita 'lækinn, þá er hitt ljóst að tilvist hans hefur dregið úr innbrotum og tilrauniím til þess aö brjótast inn I sundlaugarnar i borginni svo eitthvaö sé nefnt. Og hver ér tilbúinn aö segja aö þau heföu ekki haft slys I för meö sér. Bráðabirgðalög um kjarnfóðurskatt í undirbúningi: Um 140% íækkun íjarnfóðurs HEI — Samkvæmt áreiðanlegum heimildum, munu nú vera I undir búningi bráöabirgöalög um heim- ild til aö leggja allt aö 200% kjarnfóöurgjald á cif. verö kjarn- fóöurs. Mun það . leiöa til um 140% hækkunar á útsöluveröi fóöurbætis. Þetta mun fyrst og fremst vera gert til þess aö draga úr mjrilkurframleiöslu, þar sem óttast er aö kvótakerfiö komi þar ekki aö þvf gagni sem ætlast hef- ur veriö til. Þetta munhinsvegar ekki hafa áhrif á útsöluverð landbúnaöar- afuröa, þar sem þessi skattur veröur ekki reiknaöur inn I bú- vöruverðiö. Hinsvegar mun veröa gert fáö fyrir heimild til Fram- leiösluráös tillaga aö endurgreiöa bændum hluta gjaldssin. Auk þess er talið lfklegt aö tekjur af gjaldinu verbi notaöar til ab bæta upp halla af útflutningi land- búnaöarafuröa og komi þar aö nokkru leyti I staö þess veröjöfn- unargjalds sem nú er tekiö af inn- lögöum búvörum. Rúmlega 20.000 miðar seldust á Listahátið „Ósiður að einblina á krónur og aura” JSS — Um 20 þúsund miðar voru seldir á hin ýmsu tónlistar- og leiklistaratriöi Listahátiöar og er þaö aö sögn örnólfs Árnasonar framkvæmdastjóra Listahátlöar meira en nokkru sinni fyrr. „Þaö er afskaplega erfitt aö spá nokkru um, hvernig Lista- hátiö kom út f járhagslega”, sagöi örnólfur þegar Timinn ræddi viö hann i gær. „Bæöi er, aö kostnaö- arliðir eru áætlaöir fyrirfram og eins bættum við viö ýmis konar starfsemi sem ekki var á fjár- hagsáætlun upphaflega, þannig aö þaö eru bæöi óvæntir tekju- og kostnaðarliðir, sem erfitt er aö átta sig á. Þetta tekur yfirleitt vikur ef ekki mánuði, aö reikna dæmið til enda”. Kvaö örnólfur þaö fyrir neðan allar hellur aö einblina á tap eöa gróba i sambandi við Listahátiö. Þaö tiðkaðist ekki varöandi önnur menningarfyrirtæki eins og t.d. Þjóðleikhúsib og Listasafn; Is- lands svo dæmi væru nefnd. „Þetta er eiginlega ósiöur, sem komist hefur á i sambandi viö Framhald á bls. 15 Viðskiptaráðuneytið kannar stöðu fiskútflutnings: Itarleg könnun á markaðs- möguleikum Isl. fiskafurða — Tómas Árnason, kynnir niðurstöður athugunarinnar á fundi ríkisstjórnarinnar í dag Kás — Undanfarna daga hefur viöskiptaráöuneytiö staöiö fyrir Itarlegri könnun á markaðs- möguleikum Islenskra fiskaf- uröa meö viöræðum viö alla helstu aðila sem fjalla um sölu á fiskafurðum frá landinu. Mark- miö könnunarinnar er aö leiöa f Ijos ástand og horfur I fisksölu- málum. Samkvæmt upplýsingum Tómasar Arnasonar, viöskipta ráöherra, var fyrsti fundurinn haldinn s.l. föstudag með þeim sem fjalla um sölu a' saltfiski, aöallega SIF, Sambandi ísl. fiskframleiöenda. í gærmorgun var haldinn fundur meö skreiðarframleiö-, endum. Sala á saltfiski, aöal- lega til suður-Evrópu,og skreiö til Nigeríu og lítillega til Italfu, hefur gengiö mun betur en ráö haföi verið fyrir gert, fyrr á þessu ári. Stuttu eftir hádegi í gær var haldinn fundur meö þeim aðilum sem um ísfisksölu sjá, þ.e. LltJ og Sambandinu. Isfisk- salan er mjög árstiöabundin. I fyrra var mikil aukning á Isfisk- sölum, og mun ekkert lát vera á henni I úr. Síðdegis f gær var síðan haldinn fundur með freöfisk- framleiöendum, þ.e. SH og Sambandinu. Verulegrar sölu- tregðu gætir á okkar aðalmark- aöi I Bandarlkjunum á freðfiski og þvf ljóst að leita veröur nýrra ráöa til aö leysa úr þeim yanda. „Ég mun gefa rlkisstjórninni skýrslu um þessar viöræöur viö aöila sem fjalla um fisksölumál á fundi rfkisstjórnarinnar á morgun”, sagöi Tómas Arnason, viöskiptaráöherra, I samtali viö Tlmann f gær, „og hvaö skynsamlegast muni aö gera I þessum sölumálum.”

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.