Tíminn - 24.06.1980, Blaðsíða 6

Tíminn - 24.06.1980, Blaðsíða 6
6 Þri&judagur 24. júni 1980. (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvœmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigur&sson. Rltstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Elrikur S. Elriksson. Aug- lýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýsingar Si&umúla 15. Siml 86300. — Kvöldsimar bla&amanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Ver& f lausasölu kr. 240. -Askriftargjald kr. 4.800 á mánufti.____________BlaOaprent. j Þórarinn Þórarinsson Erlent yfirlit Dauði Ohira tryggði flokki hans sigur Efnahagsástandið í Skandinavíu Reykjavikurbréf Morgunblaðsins á sunnudaginn var, fjallaði að venju um rikisstjórnina. Þvi var lýst með mörgum orðum, að efnahagsvandinn væri mikill og vaxandi. Af Reykjavikurbréfinu mátti helzt skilja, að mestallur þessi vandi hefði orðið til á þeim tveimur árum, sem liðin eru siðan Sjalfstæðisflokkurinn lét af stjórnarforustunni, þótt verðbólga væri þá um 50%. Það mátti svo lesa á milli linanna i Reykjavikur- bréfinu, að eiginlega væri hvergi efnahagsvandi nema hér, Annað hljóð var hins vegar i strokknum á 19. siðu blaðsins, en Reykjavikurbréfið var á 16.-17. siðu. 1 grein, sem birt er á 19. siðunni, segir frá efna- hagsástandinu i Skandinaviu. M.a. segir þar: „Mikil óvissa hefur rikt i efnahagsmálum i Dan- mörku og Sviþjóð, og einnig i Noregi, þó i minna mæli sé. Sviar eru nýstaðnir upp úr allsherjarverk- falli, sem lamaði nær allt atvinnulif og á timabili leit út fyrir algera ringulreið. Sérfræðingar i Stokk- hólmi sjá fram á harðindatimabil, allt til ársins 1985. Bankastjóri i Sviþjóð orðaði það þannig: „Veislunni er lokið, reikningarnir eru að koma inn”. Til þess að öðlast efnahagslegan stöðugleika á ný, neyðast löndin til að minnka útgjöldin og halda sivaxandi launakostnaði i skefjum. Danir eiga ekki annarra kosta völ. Þeir hafa lifað vel um efni fram frá miðjum siðasta áratug og eiga i sifelldum kreppum. Bankastjóri Centralbanken, Eric Hoffmeyer, varar við þvi að litið sé á Dan- mörku erlendis sem „efnahagslega óábyrga”, og lánstraust þjóðarinnar sé i hættu. Stjórnin i Kaup- mannahöfn hefur beðið þjóðina um „umtalsverðar fórnir” i þvi augnamiði að minnka skuldabaggann, sem nú hljóðar upp á 16 milljarða dollara. í þessari áætlun verður reynt að minnka útgjöldin og skattar verða hækkaðir. Virðisaukaskattur, sem er almennur skattur á vörur og þjónustu, mun hækka úr 20 i 22%. Oliu- skattur og fasteignaskattur munu einnig hækka verulega. Sérfræðingar álita að launakostnaður verði að vera kominn niður um 11-13% fyrir 1985. Norðmenn hafa einnig neyðst til að taka upp stranga stefnu i efnahagsmálum, með aðhaldi i verðlags- og launamálum. Þó hafa Norðmenn tekjulind, sem kemur til með að auðvelda þeim vandann til muna, oliuna. Verð og eftirspurn á oliu fer vaxandi i heiminum og gróðinn af henni á eftir að vega þungt á metunum þegar lagt verður til at- lögu við skuldasummuna, sem nemur 22 milljörðum dollara. Af þessum þrem löndum standa Sviar eflaust verst að vigi. Áratuga örlæti er farið að siga ó- þyrmilega i pyngjuna. Mettekjuhalli verður á fjár- lögum næsta árs, en eyðsla umfram tekjur mun nema yfir 11% af heildareyðslunni”. En þótt ástandið sé svona ömurlegt hjá skandi- navisku þjóðunum gæti Mbl. birt enn ömurlegri lýs- ingar á ástandi þessara mála i Bretlandi og Banda- rikjunum. Staðreyndin er sú, að efnahagsvandi fer nú vax- andi um allan heim og hlýtur það ekki að bitna minnst á íslendingum, sem eru háðari utanrikisvið- skiptum en nokkur önnur þjóð. Það er þvi alveg til- gangslaust af Mbl. að ætla að kenna núverandi stjórn um aukinn vanda. Betra hlutverk væri fyrir Mbl. að reyna að draga úr ágangi þrýstihópanna i stað þess að reyna að espa þá upp á allan hátt. Þ.Þ. En erfitt getur oröiö að velja eftirmanninn Nakasone, Miyazawa og Komoto. MASAYOSHI Ohira gat dauft- ur tryggt flokki sinum sigur i þingkosningunum i Japan, en sennilega heföi honum ekki tek- izt þaö i lifanda lifi. Nær allir spádómar bentu til þess, aö flokkurinn myndi tapa veru- lega, þangaö til Ohira lézt óvænt rúmri viku fyrir kosn- ingarnar. Miklar deilur i Frjálslynda flokknum höföu leitt til þess, aö stjórn Ohira beiö ósigur viö at- kvæöagreiöslu um vantrauststil- lögu i þinginu 16. mai siöastl. Tveir fyrrverandi forsætisráö- herrar, Fukuda og Miki, létu fylgismenn sina i Frjálslynda flokknum vera fjarverandi. Þeir reiknuöu meö þvi, aö Ohira myndi þá biöjast lausnar og nýr maöur mynda stjórn, ef til vill annar hvor þeirra, þótt báðir séu þeir komnir talsvert á áttræöisaldur. Viöbrögö Ohira urðu þau, aö efna til þingkosninga innan rúms mánaðar, eöa 22. júni. Von hans var sú, aö hann gæti styrkt aöstööu sina i kosningunum og héldi þvi stjórnartaumunum áfram. Fréttaskýrendur töldu þetta ekki sennilegt, heldur spábu flokknum ósigri. Ýmis spilling- armál höföu komiö til sögu, sem tengd voru viö flokkinn og juku tortryggni i garö hans. Mestu réöi þó ef til vill þaö, að and- stæðingar Ohira i flokknum héldu aö sér höndum. Flokkur- inn gekk margklofinn til kosninganna. ALLT þetta breyttist viö frá- fall Ohira. Um mánaðamótin lagöist Ohira á spitala og sögöu læknar hans, aö hann þjáöist af ofþreytu, sem heföi orsakað minniháttar hjartaáfall. Góöar vonir væru til þess, aö hann myndi jafna sig á fáum dögum. Næstu daga benti lika flest i þá átt. Daginn fyrir andlát sitt til- kynnti Ohira aö hann myndi meta meira aö sækja fund æðstu manna iönaöarrikjanna i Fen- eyjum en taka þátt i kosninga- baráttunni. Hann var þá glaöur og reifur og gaf ýmis fyrirmæli varöandi kosningarnar. Um kvöldið lét hann lesa fyrir sig kafla úr uppáhaldsbók sinni eft- ir ameriska rithöfundinn Dale Carnegie (How to Win Friends and Influence People )JIann lést i svefni um nóttina. Viö fráfall hans féllu niöur all- ar deilur i Frjálslynda flokkn- um og klikuforingjarnir keppt- ust viö aö skora á flokksmenn að standa vel saman. Margir óháö- ir kjósendur fengu samúö meö flokknum, sem haföi oröiö fyrir þvi áfalii aö missa foringja sinn. Straumurinn, sem haföi legið frá flokknum, snerist alveg við. Þegar þetta er ritaö, eru end- Ohira var hress og gla&ur daginn á&ur en hann dó. anleg úrslit i kosningunum ekki kunn, en Ijóst er,aö Frjálslyndi flokkurinn mun a.m.k. fá 259 þingsæti af 511 alls. i si&ustu kosningum, sem fóru fram i október I fyrra, fékk hann 248 þingsæti, en auk þess studdu hann ýmsir óháöir þingmenn, svo aö rikisstjórn hans hafði stuöning 257 þingmanna. Búast má viö, aö hann muni áfram njóta stuönings nokkurra ó- háöra þingmanna. Ljóst er þvi af þessu, aö Frjálslyndi flokkurinn mun fara meö meirihlutastjórn áfram og sennilega veröur stjórnmála- ástandiö i Japan stööugra eftir en áöur. Auk fráfalls Ohira virðist tvennt hafa styrkt Frjálslynda flokkinn mest. Annaö var, aö miklar fram- farir hafa orbiö i landinu i þann aldarfjðröung, sem flokk- urinn hefur farið samfleytt meö völd. Að sjálfsögðu hefur þetta oröiö flokknum til framdráttar, þótt sumt hafi mistekizt. Hitt var þaö, aö stjórnarand- stööuflokkarnir voru ekki viö- búnir kosningum og fengu skamman tima til stefnu, þvi aö kosningarnar voru boöaðar meö rúmlega mánaöar fyrirvara. ÞAÐ þykir sennilegt, aö þaö gangi ekki vandræbalaust hjá Frjálslynda flokknum aö velja eftirmann Ohira. Margir munu gefa kost á sér, en ekki getur nema einn oröið fyrir valinu. Til þess aö losna við Fukuda og Miki úr þessu valdatafli, þykir ekki óliklegt, aö sú leið veröi valin aö velja nú mann, sem sé talsvert innan viö sjö- tugt, en þrir siöustu forsætis- ráöherrar hafa allir veriö viö það aldursmark , þegar þeir hafa oröiö forsætisráöherrar. Þrir menn hafa oftast veriö nefndir aö undanförnu sem lik- legustu forsætisráðherraefni flokksins. Þessir menn eru: Kiichi Miyazawa, fyrrv. utan- rlkisráöherra. Hann er 60 ára. Hann hefur átt mikinn þátt i aö móta stefnu flokksins i efna- hagsmálum og utanrikismál- um. Hann styöst hins vegar ekki við neina ákveöna kliku i flokknum, en hefur stuöning ýmissa yngri mann. Hann lýsti þvi yfir eftir andlát Ohira, aö hann myndi ekki sækjast eftir stjórnarforustunni, en böndin geta ekki siður borizt aö honum fyrir þaö. Yasuhiro Nakasone, fyrrver- andi v iöskiptaráöherra. Hann er 62 ára. Hann hefur vak- ið á sér sérstaka athygli sökum þess, aö hann hefur hvatt öörum frekar til þess, aö Japan- ir ykju vigbúnað sinn. Þetta gæti þó breytzt, þvi aö hann er talinn tækif ærissinnaöur. Nakasone er sagður gera sér vonir um aö fá stuðning Tanaka fyrrv. forsætisráðherra, sem er áhrifamikill I flokknum þótt hann yrði aö fara frá vegna þess, aö hann var talinn hafa þegiö mútur af Lockheed-fyrir- tækinu ameriska. Toshio Komoto, sem einnig er fyrrverandi viöskiptamálaráö- herra. Hann er 69 ára. Hann er sagöur einnig gera sér vonir um stuðning Tanaka. Þá ganga sögur um, aö Komoto og Miyazawa hafi gert meö sér samkomulag þess efn- is, aö Komoto veröi forsætisráð- herra tvö næstu árin, en siðan taki Miyazawa vib.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.