Tíminn - 24.06.1980, Síða 7
Þriðjudagur 24. júni 1980.
7
Mark gamla mannsins
Okkur er sagt að það séu stóru
búin sem fari verst út úr kvúta-
kerfinu — meira aö segja að það
komi litið við þá smærri. Ég ef-
ast um að hægt sé að fyrirgefa
þeim er svo tala á þeirri for-
sendu að þeir viti ekki hvað þeir
eruað gjöra. Það væri einum of
gróft að bregða þeim um slika
vanvisku. Það mun ætlunin að
leyfi allra bænda skerðist um
8% upp að 300 ærgildamarkinu.
Það sem umfram er 300 ærgilda
framleiðslu skerðist um 20% —
aðeins það sem er umfram 300
ærgildi. Bóndi með 1200 ærgildi
fær því rétt til aö framleiða
áfram 1000 ærgildi afuröa á
meöan bóndi með 200 ærgildi
færekkinema 184 (eða rúm 18%
af skammti stóra búsins.
Þetta er þó ekki nema einn
hluti af árásinni á smærri búin.
Vegna þessa litla framleiðslu-
magns sem þeim er úthlutað
verðaþau að halda sig alveg við
strikið sem þeim er markað, og
lenda strax yfir markið ef eitt-
hvað skánar. Ennþá minni bú
hafa ekki verið talin lifvænleg.
Þau hafa mörg búið við þá að-
stöðu að hafa ekki náð há-
marksafurðum af fé sinu. Ef
þessir bændur ætla að þróa sinn
smábúskap með meiri afurðum
af hverri kind — fara nákvæm-
lega 2 af hverjum 3 viðbótar
kjötkg. á altari hákarlanna —
með góðri aðstoð flestra fulltrúa
smábændanna sjálfra. Þá er
ekki spurt um nýtingu náttúru-
auölinda við framleiðslu á kjöti
— enda sá tilgangur löngu lagð-
ur til hliöar af forráöamönnum
— sbr. páskalambaframleiðsl-
una frægu og alla aðra tilhleyp-
ingastarfsemi á afbrigðilegum
árstima.
1 stað náttúruauðlinda kemur
árlegur rekstrarstyrkur. Þetta
er ekkert nýtt af nálinni hjá
þeim ráöamönnum sem mest
hafa fullyrt að þeir hafi aldrei
hvatt til aukinnar kjötfram-
leiðslu og stækkunar búa. Þeir
hafa til skamms tima átt óskipt
mál i þessu efni.
Seinni hluti
Formaður Tilraunaráðs land-
búnaðarins fullyrti i blaðagrein
að ég færi með rangt mál, —
þegar ég hafði eftir sauðfjár-
ræktarráðunaut að hann teldi
eðlilegt að i venjulegu árferði
væri helmingur lambanna ekki
slátrunarhæf þegar þau koma
af fjalli. Ef formaður Tilrauna
ráðsins les þetta bendi ég hon-
um á að lesa grein AGP. á bls.
260 i Handbók bænda 1975.
Ráöunauturinn er ekki einn um
þessa skoðun hjá Bf. Islands.
Þeir eru fleiri ráðgjafar okkar
sem hafa hælt sér af þvi að hafa
verið frumkvöölar að dilka-
kjötsframleiðslu á kálökrum og
i krafti sinnar aðstððu fengið
rikið til að greiða úr sinum vasa
þann aukafóöurskostnað sem
verður við að framleiða dilka-
kjöt. Þar sem eðlilegt er i venju-
legu árferði að helmingur lamb-
anna sé ekki slátrunarhæfur
þegar þau koma af fjalli.
Arangur starfs þessara
manna sjá og finna venjulegir
bændur næsta haust. Margir
þeirra hafa s.l. haust fækkað
ánum á sinum smáu búum um
8% og talið sig þá standa á jörð-
inni með hitt. Þeir sem fá út-
hlutað margföldum fram-
leiðslurétti geta fækkað sinu fé
það mikið að þeir lenda ekki yfir
strikið. Smærri bændur veröa
að halda sig alveg á linunni og
hljóta þvi að fara yfir markið i
flestum árum.
Ef dilkar verða vænni i haust
en verið hefur kemur sá sem bú-
inn var að stökkva upp i jötuna
— (af þvi að rikisvaldið var —
að beiðni nokkurra ráðamanna
— búið að brjóta jötubandið.) —
og hirðir i sinn sjóð 2 af hverjum
3 kg sem við bættust vegna
skárra sumars eða bættrar
fóðrunar. Nú þegar sauðburður
hefst veitir hver ný tvilemba
okkur ekki aukinn arö. Af
hverjum 3 viðbótar tvilembing-
um fara 2 i varginn. Þá skiptir
okkur ekki máli hvort sá vargur
veröur i kápu gömlu Skálholts-
biskupanna og snfður eyrun af
við hausinn — eða i nýrri klæð-
um og kallar markið búmark.
Markið mun verða soramark og
likjast marki gamla mannsins,
sem á þririfað og þristift og
þrettán rifur ofan i hvatt. Þetta
mark vinnst ekki i skrám frá
Játvarði, Hákoni eða Grimi.
Að minu mati á fyrst af öllu að
hætta að greiöa af opinberu fé
árlega rekstrarstyrki til fram-
leiðslu kjöts þar sem ÁGP. telur
eðlilegt að helmingur lambanna
Halldór
Þórðarson,
Laugalandi
séu ekki markaðshæf i venju-
legu árferði — þegar þau koma
af f jalli. Hvorki þar eða annars
staðar. Eins og ég benti á hér að
framan er það enginn smáakur
sem rikið ber á árlega.
Einnig á aðstórfækka fénaði á
rikisbúum, 300 ærgilda bú eiga
að fá fullt verð fyrir alla sina
framleiðslu, hver sem hún verð-
ur. Einhver smáskeröing verð-
ur ef til vill að koma á bilið frá
300 upp að visitölubúi en skerð-
ingarstiginn þvi brattari sem
ofar dregur með 100 ærgilda
þrepum. Þaö finnst ekkert rétt-
læti i þvi að hlutur smærri bú-
anna sé skertur á meðan stórbú-
um er rétt leyfi til sölu á marg-
földu magni.
Smærri bú en 300 ærgildi má
ekkert skerða — ef ekki er ætl-
uninaðútrýma þeim. Þau valda
ekki offramleiðslu. — Ég tek
fram að ég á við bú með 300 ær-
gilda bústofni. Mér skilst að
stóru búin skili minni nettóarði
af grip til bóndans — en þau
hlaða jafnt upp kjötfjallið með
hverjum gripsem þau fella. Frá
þvi sjónarmiði virðist sam-
dráttur þeirra ekki eins tilfinn-
anlegur og bústofnsskerðingin
bendir til. Svona kvótaútreikn-
ingur byggist á þvi að við séum
vissir um að offramleiðslan sé
sök smábúanna. Breytist við-
horfið auðvitað og kemur til
álita að eyða þeim — þau verða
ekki minnkuð — það er ekki
hægt.
Þá hefur stefna ráðamanna
verið rétt þegar þeir hvöttu til
bústofnsaukningar og sumar-
eldis sauðfjár á kálökrum i stað
fjallabeitar. Viö verðum að gera
upp hvora leiðina á að fara.
Hvað sem hver segir verða þær
ekki famar báöar — ef fram fer
sem horfir um markaðsmögu-
leika.
:: : ' - ■ ■ ■' : igf vé 1
Frá kynningarfundinum á Reykhólum. Kvnninffarfundui r
Vigdísar á Reykhólum Stuðningsmenn Vigdisar Finn- Barðstrendingum opinn og mikill bogadóttur gengust fyrir kynn- hluti ibúana hér sóttu fundinn. ingar og umræðufundi á Reykhól- Umræður urðu fjörugar og að um 16. júni sl. lokum drukku fundarmenn sam- Fundurinn var öllum Austur- eiginlegt kaffi.
Breytingar á helgi-
siðum kirkjunnar
— aðalefni Prestastefnunnar sem
sett verður í dag
HEI — Tillögur sem handbókar-
nefnd kirkjunnar leggur fram um
breytingar á helgisiöum kirkj-
unnar, verða aðalefni Presta-
stefnunnar, sem sett verður i dag,
og stendur þrjá daga. Búist er við
aö Prestastefnan verði fjölmenn
að þessu sinni, þótt margir þurfi
aö flýta sér heim vegna forseta-
kosninganna, enda prestar oft-
lega i kjörstjórnum.
I ofannefndum tillögum er gert
ráö fyrir lengra og itarlegra
formi hinnar venjulegu sunnu-
dagsguðsþjónustu, m.a. að
altarisganga verði þar algengari
en nú er. En þátttaka i altaris-
göngu er sögð hafa aukist m jög á
undanfömum árum. Þá er i til-
lögunum nýtt form fyrir skýrnar-
athöfn, og endurskoðað val þeirra
texta sem liggja til grundvallar
predikun guðsþjónustunnar.
Handbókarnefnd, sem skipuð
er 13 prestum og organistum, sem
munu hafa all fjölbreytilegar
skoðanir um messuform og mál-
stil, leggur þessar tillögur fram
einróma og hafa þær verið sendar
öllum prestum landsins til kynn-
ingar.
Prestastefnan hefst með guðs-
þjónustu I Dómkirkjunni kl. 10.30
i dag og munu prestar ganga
hempuklæddir til kirkju, frá
Menntaskólanum i Reykjavik.
Form guösþjónustunnar þar
verðurbyggt á þeim tillögum sem
eru aðalefni Prestastefnunnar,
eins og fyrr er getið.
Nokkrir stuðningsmenn Guðlaugs Þorvaldsson-
Kosningaskrifstofa
Guðlaugs í Bolungarvík
Þar hafði
Pétur
betur
A hverjum morgni mætist fjöl-
menni I sundlaugum Reykja-
vikur, og er þar margt rætt og
lifsgáturnar jafnan leystar dag-
lega. 1 vikunni var skoðana-
könnum um forsetakjör i pott-
flokkinum „Morgunroöinn” i -
sundlaugunum i Laugardal i
Reykjavik, en sem vænta má eru
forsetakosningarnar ofarlega á
baugi I umræðum manna um
þessar mundir, jafnt I heitu pott-
unum I laugunum sem annars
staðar.
Orslit skoðanakönnunarinnar
uröu þessi: Pétur Thorteinsson
hiaut 50,0’, Albert Guðmundsson
22,7%, Vigdis Finnbogadóttir
18,2% og Guðlaugur Þorvaldsson
9,1%.
Pottflokkurinn „Morgun-
roðinn” áformar að hafa
skoöanakönnun að nýju undir lok
næstu viku, rétt fyrir forseta-
kosningarnar.
Stuðningsmenn Guðlaugs Þor-
valdssonar i Bolungarvik hafa
opnað skrifstofu i félagsheimili
verkaiýðs- og sjómannafélags
Bolungarvikur.
Skrifstofan verður opin virka
daga frá kl. 17-22 en um helgar frá
kl. 14-19. Simi skrifstofunnar er
94-7425.
Sveifla á Selfossi
,, Þaö er ljóst að hér hefur orðið
mikil sveifla siðustu daga”, sagði
einn af stuðningsmönnum Péturs
J. Thorsteinssonar á Selfossi eft-
ir fundinn, sem Pétur og
stuöningsmenn hans héldu þar á
fimmtudagskvöld.
„Það er ekki langt siðan, að við
þurftum að leita hér að stuönings-
mönnum Péturs, en nú hefur orð-
ið á mikil breyting, og greinilegt
að fleiri og fleiri eru orðnir ákafir
stuðningsmenn hans”.
Fundurinn á Selfossi var fjöl-
sóttur^á fjórða hundrað manns
komu i iþróttahúsið, glæsilegt
mannvirki, á Selfossi.
Pétur J, Thorsteinsson.>