Tíminn - 28.06.1980, Side 5

Tíminn - 28.06.1980, Side 5
Laugardagur 28. júni 1980. 5 Hestamannafélagið Sindri: Kappreiðar á Sindra- völlum Þann 28. júni n.k. veröa kappreiöar hestamannafélagsins Sindra haldnar á Sindravelli viö Pétursey. Vænta má mikillar þátttöku likt og verið hefur und- anfarin ár. Kappreiöar hefjast kl. 2 e.h. og keppt veröur I A og B fl. góöhesta, 250 m skeiöi, 800 m brokki, 250 m unghrossahlaupi, 300 m hlaupi og 800 m hlaupi. Einnig fer fram sölusýning hrossa. SU nýjung hefur veriö tekin upp aö veittir veröa farandbikarar til efsta hests i eign félagsmanns i hverri grein. Bikarana hafa nokkur fyrirtæki og einstaklingar gefiö. Einnig veröa veittir verö- launapeningar til þriggja efstu hrossa i hverri grein auk pen- ingaverölauna. Þátttökutilkynn- ingar þurfa aö hafa borist til Asmundar Sæmundssonar Hryggjum s. 99-7298 eöa Jóhanns Albertssonar Skógum s. 99-5111 fyrir fimmtudagskvöld 26. júni. Aö kvöldi kappreiöardagsins veröur siöan stiginn dans i Leik- skálum Vik i Mýrdal og mun hljómsveitin Casinó sjá um fjöriö. Stjórn hestamannafélagsins Sindra skipa nú: Formaöur Sr. Halldór Gunnarsson, Holti, Gjaldkeri Sigurlaug Gunnars- dóttir, Vik, ritari Vigfús Magnús- son, Vik. Meöstjórnendur Jónas Hermannsson, Noröur-Hvammi, Sigurbergur Magnússon, Stein- um. H.Í.: Brautskráning kandídata Afhending prófskirteina til kandídata frá Háskóla Islands fer fram viö athöfn I Háskólabfói laugardaginn 28. júni 1980 kl. 13:30. Athöfnin hefst meö samleik á flautu og sembal, Manuela Wiesler og Helga Ingólfsdóttir leika. Rektor háskólans, prófess- or Guömundur Magnússon flytur ræöu. Siöan veröur lýst kjöri heiöursdoktors og afhent doktors- bréf. Forseti heimspekideildar, dr. Alan Boucher, lýsir kjöri Har- alds Sigurössonar bókavaröar. Deildarforsetar afhenda próf- skirteini. Háskólakórinn syngur nokkur lög, stjórnandi frú Rut Magnússon. Aö þessu sinni veröa brautskráöir 278 kandidatar. St. Jósefsspitali fær úthljóðskanna að gjöf: Tímamarkandi geislagreiningar HEI — St. Jósefsspitali hefur ný- lega þegiö aö gjöf svonefndan út- hljóöskanna. Tæki þetta hcfur þá sömu eiginleika og röntgentæki, aö þaö má nota jafnt viö gegnum- lýsingar og myndatökur. Sagt er aö tæki þetta marki timamót 1 sögu geislagreiningar á Islandi aö þvi leyti, aö viö mynda- tökureru ekki notaöar jónamynd- andigeislar. Þess i staö eru notuö hátiönihljóö, svokölluö úthljóö. Úthljööin — I þeim mæli sem þau eru notuö viö myndatökur — valda ekki efnabreytingum i mannslikamanum, aöeins litils- háttar hitamyndun. Rannsóknir meö þessu tæki eru þvi sagöar al- gjörlega hættulausar og megi þvi endurtakast svo oft sem þurfa þyki. A myndum teknum meö þessu tæki, má greina á milli mismun- andi vefja og sjá hvernig æxli af- markast frá heilbrigöum vef. Skuggaefni eru ekki notuö. í sögu Gefendur úthljóöskannans eru Thorvaldsensfélagiö I Reykjavik, Kvennadeild Reykjavikurdeildar Rauöa Krossins og Kvenfélagiö Hringurinn. Tækiö er keypt frá Bandarikjunum og kostaöi 75 þús. dollara eöa rúmlega 35 milljónir ísl. króna miöaö viö núverandi gengi. BIIKKVER Skeljabrekka 4 - 200 Köpavogur - Sími: 44040. GRJÓTHLÍFAR fyrir alla bíla SÍLSALISTAR úr krómstáli BLIKKVER SELFOSS1 Hrismýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040. f/Æ/tÆ/Æ/Æ/AVÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/^ fr/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/^ \ PPcinum x í | j L ***** I KÓPAVOGUR Látid kunnáttumennina smyrja bílinn á smur- stöðinni ykkar SMURSTÖÐ ESSO Stórahjalia 2, Kópavogi Sojótfur Fanndal í fl I jtvÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/A ‘^T/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/já Auglýsing um adalskoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur Þriöjudagur l.júli R-44501 til R-44700 Miövikudagur 2. júli R-44701 til R-44900 Fimmtudagur 3. júli R-44901 til R-45100 Föstudagur 4. júli R-45101 til R-45300 Mánudagur 7. júli R-45301 til R-45500 Þriöjudagur 8. júli R-45501 til R-45700 Miðvikudagur 9. júii R-45701 til R-45900 Fimmtudagur 10. júli R-45901 til R-46100 Föstudagur 11. júli R -46101 til R-46300 Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðar sinar til bifreiðaeftirlits rikisins, Bildshöfða 8 og verður skoðun fram- kvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 til 16:00. Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur sé greiddur og vátrygging fyrir hverja bif- reið sé i gildi. Athygli skal vakin á 'þvi, að skráningar- númer skulu vera vel læsileg. Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt ökugjald á hverjum tima. Á leigubif- reiðum til mannflutninga, allt að 8 far- þega, skal vera sérstakt merki með bók- stafnum L. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum. Aðalskoðun bifreiða mun ekki fara fram á timabilinu frá 14. júli til 8. ágúst n.k. Lögreglustjórinn i Reykjavik 25; júni 1980. Sigurjón Sigurðsson. Útboð Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir til- boðum i uppsetningu og tengingu mæla- grinda, 4. hluta fyrir 350 hús. Útboðsgögn eru afhent á bæjarskrifstof- unum i Vestmannaeyjum gegn 30 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð i ráðhúsinu Vestmannaeyjum þriðjudaginn 8. júli kl. 16.00. Stjórn Veitustofnana Vestmannaeyja- bæjar Innilegar þakkir færi ég öllum þeim sem studdu mig og styrktu i veikindum minum, utanför og uppskurði i Bandarikj- unum á siðastliðnum vetri, með stórgjöf- um, góðum óskum og hlýjum handtökum. Sérstakar þakkir vil ég færa vinum min- um og ættingjum, kvenfélagskonum úr kvenfélaginu Hvöt, Lionsklúbbnum Bjarma, kvenfélaginu Iðju, spilanefnd Laxahvamms, svo og öllum þeim mörgu sem stuðluðu að þvi á einn eða annan hátt að ég gat farið til lækninga á þennan stað. Guð blessi ykkur öll. Helgi Valdimarsson Fosshóli

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.