Tíminn - 28.06.1980, Blaðsíða 7
Laugardagur 28. júnl 1980.
7
Starfsemi stuðningsmanna forseta-
frambjóðendanna á kjördag
Svanhildur Halldórsdóttir á kosningaskrifstofu Vigdísar.
STUÐNINGSMENN
VIGDÍSAR
JSS — Stuðningsmenn Vig-
disar Finnbogadóttur verða
með allmikla starfsemi á
kjördag eins og stuðnings-
menn annarra forsetafram-
bjóðenda.
Aðalskrifstofan á Laugavegi
17 veröur opin, og sama máli
gegnir um hverfaskrifstofur i
Garðastræti 21, Vesturbergi
199 og i Austurveri. Þarna
verða kjósendum veittar allar
umbeðnar upplýsingar, auk
þess sem bilaþjónusta stendur
til boða.
A kjördag veröur opið hús I
Lindarbæ. Þar verða kaffi-
veitingar. Klukkan 10 um
kvöldiö verður opið hús i
Klúbbnum að Lækjarteig 2,
fyrir alla þá sem þar vilja
mæta. Veröur þar fylgst meö
talningu og horft á kosninga-
sjónvarp.
Þorvaldur Mawby á kosningaskrifstofu Alberts
STUÐNINGSMENN
ALBERTS
JSS — Stuðningsmenn Alberts
Guðmundssonar verða með
opnar skrifstofur á Lækjar-
lorgi og i Drafnarfelli á kjör-
dag.
Þeir veröa einnig með bíla-
þjónustu i öllum hverfum
Reykjavikur, auk þess sem
allar umbeðnar upplýsingar
verða veittar á skrifstofunum.
A kjördag verður opið fyrir
stuönings- og starfsmenn i
Þórskaffi milli kl. 2-6. Húsið
verður siðan opnað aftur kl. 9
um kvöldið og hefst þá kosn-
ingavaka. Þar verður fylgst
með talningu og horft á kosn-
ingasjónvarp.
STUÐNINGSMENN PÉTURS
JSS — Stuöningsmenn Péturs J.
Thorsteinssonar verða með
opnar hverfaskrifstofur á kjör-
dag, auk aðalskrifstofu að
Vesturgötu 17. Eru hverfaskrif-
stofurnar fyrir öll hverfi
borgarinnar aö Vesturgötu 3,
Grensásvegi 11 og Fremristekk
1.
Þar geta kjósendur fengiö
upplýsingar um ýmsa þætti
kosninganna, svo sem um kjör-
skrá, þ.e. hvar hverjum beri að
kjósa.
1 Sigtúni nánar tiltekiö 1 stóra
salnum, verður opið hús á kjör-
dag. Þar veröa veitingar á boð-
stólum, auk þess sem stuönings-
mönnum og velunnurum gefst
tækifæri til að spjalla saman.
Uppi I Sigtúni verður bilaþjón-
usta o.fl. Enn hefur ekki verið
ákveðið, hvort stuðningsmenn
Péturs veröa meö kosninga-
vöku, en viömælandi Timans á
kosningaskrifstofunni kvaðst
reikna með aö svo yrði.
Óskar Friöriksson á kosningaskrifstofu Péturs.
STUÐNINGSMENN GUÐLAUGS
A kjördegi, sunnudaginn 29.
júni n.k., munu stuðningsmenn
Guðlaugs Þorvaldssonar veita
kjósendum almenna kjördags-
þjónustu. Miðstöð þeirrar.þjón
ustu verður að Brautarholti 2.
Þjónusta þessi verður i megin-
atriðum þriþætt:
1 fyrsta lagi verðum viö með
bilaþjónustu sem starfrækt
veröur frá sunnudagsmorgni til
loka kjördags.
I ööru lagi verðum við með
upplýsingar um kjörskrá, þar
sem við svörum spurningum
kjósenda um það hvar þeir eigi
að kjósa.
1 þriðja lagi aðstoðum við
kjósendur sem þurfa aö kjósa
utankjörfundar og komum
atkvæðum þeirra áleiðis til
viökomandi kjörstjórnar.
Upplýsingar um alla sima
skrifstofunnar á kjördag verða i
dagblöðunum á kjördag.
Fyrir utan þessa almennu
þjónustu við kjósendur verðum
við með opið hús á Hótel Sögu
eftir hádegi á kjördag fram á
kvöld. Þar verða kaffi- og köku-
veitingar allan daginn. Stuön-
ingsmenn munu sjálfir leggja til
allar veitingar á staönum. Auk
þess er gert ráð fyrir að á Hótel
Sögu veröi yfir daginn ýmsar fyrir þá sem starfaö hafa fyrir
uppákomur til skemmtunar. Aö Guölaug Þorvaldsson á kjördag.
loknum kjördegi kl. 11.00 e.h. Kosningavakan verður á Hótel
munum við hafa kosningavöku Sögu.
Óskar Magnússon ásamt öðrum á kosningaskrifstofu Guðiaugs.
Forsetakosningarnar:
Kosiö í 15
kjördeildum
— í Reykjavik
JSS — A morgun verða kjör-
staðir I Reykjavik opnaðir kl. 9
og verða þeir opnir til kl. 23.
Kosið verður á 15 stöðum, þ.e. í
12 skólum, auk þess sem kjör-
deildir verða á Hrafnistu, elli-
heimilinu Grund og I Sjálfs-
bjargarhusinu. Eftir kl. 23 hefst
talning atkvæða og verður
samtals talið á átta stöðum.
Ctvarp og sjónvarp munu
ekki láta sitt eftir liggja með að
flytja landsmönnum fréttir af
talningunni og verða frétta
menn beggja á öllum talninga-
stöðunum. Verða nýjustu tölur
lesnar samtlmis i útvarpi og
sjónvarpi.
1 útvarpi veröa leikin létt lög
milli kosningafrétta og einnig
rætt við frambjóöendur eftir
birtingu fyrstu talna. 1
sjónvarpi verður svipaður
háttur hafður á og I aiþingis-
kosningum. Kosningaspáin
verður á sinum stað og eftir
birtingu fyrstu talna verður rætt
viö frambjóðendur. Einnig
veröur rætt við Kristján Eldjárn
forseta tslands, Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra,
auk þess sem fulltrúar fram-
bjóöenda koma fram. Þá veröur
rætt við kjósendur, kosninga-
skrifstofur heimsóttar og ýmis
legt annaö til skemmtunar
veröur á skjánum fyr.r þá t-nl-
mörgu sem ekki kemur dur á
auga á kosninganótt
Kosningaútvarpið stendur
alla aðfaranótt mánudags, en
ekki er vitað hversu leng;
útsending sjónvarps stendur að
þessu sinni.