Tíminn - 19.07.1980, Page 3
Laugardagur 19. júlt 1980
3
Þrír aí
togurum
BUR inni
Kás — Annasamt hefur veriö hjá
Bæjarútgerö Reykjavikur i
þessari viku, þvi i upphafi hennar
komu þrir af fimm togurum fyrir-
tækisins meö fullfermi aö landi.
Þetta voru togararnir Ingólfur
Arnarson og Hjörleifur, sem
báöir komu meö karfa, og Jön
Baldvinsson, hinn nýi togari
BtJR, sem kom meö þorsk.
Þrátt fyrir aö togararnir hafi
komiö allir i einni bendu hefur
ekki þurft að vinna yfirvinnu hjá
BÚR svo neinu nemi, og lang
flestiraöeinslátnir vinna frá 8-17.
Ingólfur Arnarsson og Hjör-
leifur eru báðir komnir á veiöar á
ný, en Jón Baldvinsson liggur viö
bryggju þar sem liklega veröur
skipt um færiband i lest á honum.
Væntanlega heldur hann á veiðar
i næstu viku.
Timamynd Róbert.
Ingólfur Arnarson kom fyrstur inn af þeim þremur meö fullfermi af karfa.
Verslunarmannafélag Reykjavlkur:
Núverandi
ástand óviðun-
andi fyrir
alla launþega
í landinu
JSS — ,,Þaö er skoöun stjórnar og
samninganefndar V.R. aö núver-
andi ástand sé I hæsta máta óviö-
unandi fyrir alla launþega i iand-
inu og krefst þess, aö vinnuveit-
endur og rfkisvald fari nú aö
leggja sitt af mörkum, til þess aö
samningar geti tekist.”
Svo segir m.a i samþykkt sem
gerö var á fundi stjórnar og
samninganefndar Verslunar-
mannafélags Reykjavikur I
fyrradag. t samþykktinni er
seinagangur sem veriö hefur viö
gerö nýrra kjarasamninga, harö-
lega átalinn, segir aö samningar
hafi nú veriö lausir allt þetta ár
og litiö hafi miöaö i samkomu-
lagsátt. Vinnuveitendur hafi al-
fariö neitaö aö ræöa málin á ann-
an hátt en út frá eigin tillögum. í
þeim sé gert ráö fyrir aö stór-
skeröa samningsbundin réttindi,
svo sem meö þvi aö skeröa verö-
bætur á laun, afnema sjúkrasjóði
og lengja vinnutimann.
Segir loks aö launþegasamtök-
um innan ASl sé ljós sá vandi sem
viö sé að glima I efnahagsmálum
þjóöarinnar, enda hafi þau sett
fram kjarakröfur sem taki miö af
þvi ástandi.
Sænski mataræöissérfræöingurinn
Juno Borensjö, ásamt Jóhannesi Gfslasyni. Timamynd Tryggvi,
í tilefni af 25 ára afmæli heilsuhælisins I Hverageröi:
Sænskur mataræðis-
sérfræðingur hingað
mlCinrlQ — á vegum
aCIiaaUO Náttúrulækningarfélags íslands
JSS — Náttúrulækningafélag
islands hefur ráöiö til sin
sænskan matreiöslumann og
mataræöissérfræöing, sem mun
starfa á vegum félagsins þrjár
næstu vikurnar. Mun hann m.a.
halda matreiöslunámskeiö fyrir
almenning dagana 21.-24. júli og
28.-30. júli. Veröur námskeiöiö á
kvöldin milli kl. 20 og 23. Verður
fariö I fræöileg atriöi varöandi
næringarfræði og siöan fá þátt-
takendur aö taka þátt I mat-
reiöslunni. Siöan veröur spjallaö
yfir matboröinu.
Er mataræöissérfræöingurinn
hingað kominn I tilefni 25 ára
starfsafmælis Heilsuhælisins I
Hverageröi. Var hafist handa um
byggingu hælisins árið 1953 og
fyrsti áfangi tekinn I notkun þann
24. júli 1955. Fyrsti læknir hælis-
ins og aðalhvatamaður aö bygg-
ingu þess var Jónas Kristjánsson.
Hæliö tekur nú um 150 gesti og
eru þaö aöallega giktar-
sjúklingar. I tengslum viö stofn-
unina er rekin garöyrkjustöö,
sem sér hælinu aö mestu leyti
fyrir lifrænt ræktuöu grænmeti.
Framkvæmdastjóri hælisins er
Friögeir Ingimundarson og yfir-
læknir er tsak Hallgrimsson.
Ný hársnyrtistofa hefur opnaö
aö Strandgötu 37 i Hafnarfiröi þar
sem Guömundur Guögeirsson
snyrti hár Hafnfiröinga áöur, en
Guömundur er nú hættur störfum
eftir áratuga þjónustu viö bæjar
búa. Nýja stofan heitir HAR og er
eigandi hennar Hallberg Guö-
mundsson, hárskerameistari,
annar eigenda Bartskerans i
Reykjavik, en þar starfaöi Hall-
berg frá árinu 1968 aö undan-
skildu hálfu ööru ári, en þá starf-
aöi hann viö hársnyrtingu á Hotel
Continental I Oslo.
Meö Hallberg á HAR starfar
Jónína Jónsdóttir hárgreiöslu-
meistari, en hún hefur m.a. rekiö
sina eigin hárgreiöslustofu aö
Suöurgötu I Hafnarfiröi.
HAR—Hafnarfiröi veitir alla
almenna hársnyrtiþjónustu fyrir
karla og konur.
Myndin sýnir þau Hallberg og
Jóninu viöstólana i nýju stofunni.
Sinna SS og SÍS kjöt-
versluninni slælega?
HEI — „Einmitt, þar hittiröu
naglann á höfuöiö”, svaraöi
verslunarstjóri einnar af stærri
kjötverslunum borgarinnar er
hann var spuröur hvort of lltiö
væri gert fyrir sölu kindakjöts á
innanlandsmarkaöi, meö þvi aö
þaö væri nær eingöngu á boö-
stólum frosiö og niðursagað.
Verslunarstjórinn sagöist
sammála þvi áliti formanns
Kaupmannasamtakanna er
fram kom i Timanum nýlega, aö
stórauka mættisölu á kindakjöti
meö þvi aö hafa þaö á boröstól-
um tilreitt á fjölbreytilegri hátt
en nú er. Þaö heföi lika komiö
greinilega fram á matvæla-
kynningu sem gengist heföi ver-
iö fyrir I verslun hans fyrir
nokkru, að fólk væri mjög opiö
fyrir sliku. Osin heföi veriö
gifurleg.
Þaö væri hinsvegar ókleift,
sérstaklega fyrir smærri mat-
vöru- og kjötverslanir, aö
standa fyrir slikum kynningum
og sama mætti segja um til-
reiöslu kjöts á fjölbreyttari hátt.
Auövitaö ættu stóru heildsölu-
aöilarnir, Sláturfélagiö og Sam-
bandiö aö sjá um þessa hliö, en
þeir virtust bara engan áhuga
hafa á þvi. Af þessum aöilum
yröu allir aö kaupa kindakjötiö
og þar með virtust þeir ánægöir.
Aö áliti verslunarstjórans,
ættu SS og SIS aö hafa á boðstól-
um daglega þýtt kjöt tilbúiö I
Framhald á bls 19