Tíminn - 19.07.1980, Blaðsíða 7

Tíminn - 19.07.1980, Blaðsíða 7
Tímaklíkan og áhrif þriggja hreyfinga á f r ams óknar s t ef nuna t riti Hannesar Jónssonar um Framsóknarstefnuna kemur greini- lega fram.hversu mikinn þátt hugsjónir búnaöarfélaganna, samvinnu- hreyfingar og ungmennafélaganna áttu I mótun Framsóknarstefn- unnar, svo sem eftirfarandi kaflar úr ritinu sýna. Erfitt er nú aö meta, hver örlög Framsóknarflokksins heföu orö- iö, ef áhrifa Jónasar Jónssonar frá Hriflu heföi ekki fariö aö gæta innan flokksins fljótlega eftir stofnun hans. Ljóst er þó, aö meö stofnun þingflokksins 16. desem- ber 1916 og samþykkt stefnuskrár fyrir Framsóknarflokkinn 12. janúar 1917, var flokkurinn oröinn og búinn aö móta sér stefnu án þess aö Jónas Jónsson ætti þar beina aöild. — Þar meö er þó ekki öll sagan sögö. Eftir var aö stofna til blaöaútgáfu flokknum til stuönings og efna til samtaka meöal kjósenda út um allt land. Þaö varö hlutverk Jónasar Jóns- sonar og annarra utanþings- manna, einkum hinnar svoköll- uöu Timakliku.aö hafa forgöngu um þaö. Timaklikan var sex manna áhugaliö, sem gekkst fyrir stofn- un Timans og hóf öflugt út- breiöslustarf fyrir Framsóknar- flokkinn. 1 þessu sex manna áhugaliöi voru Jónas Jónsson frá Hriflu, kennari viö Kennaraskól- ann, Hallgrimur Kristinsson, for- stjóri SIS, Aöalsteinn Kristinsson, framkvæmdastjóri SIS, Guö- brandur Magnússon, prentari, Tryggvi Þórhallsson, guö- fræöingur og Jón Arnason frá Stóra-Vatnsskaröi, fram- kvæmdastjóri útflutningsdeildar SIS, og Siguröur Kristinsson, for- stjóri SIS, eftir aö Hallgrimur Kristinsson lést áriö 1923. Allt frá þvi á árinu 1915 höföu Jónas frá Hriflu, Jón H. Þor- bergsson á Laxamýri, og Sigur- geir Friöriksson, bóksali, unniö aö þvi aö stofna vikublaö. Jón H. Þorbergsson feröaöist um landiö á vegum Búnaöarfélags Islands og dreiföi hann þá aö sögn Þor- steins M. Jónssonar stefnuskrár- miöa fyrir blaöiö. Arangur undirbúningsstarfsins varö sá, aö um útgáfu blaösins var stofnaö félag 20—30 manna vlöa um land, sem allir lofuðu nokkrum f járframlögum til styrktar blaöinu. Þessi framlög voru þó aöeins innheimt I eitt skipti. Fyrstu útgáfustjórn Timans skipuöu Guöbrandur Magnússon, Hallgrlmur Kristinsson og Jónas Jónsson. Fyrsta tölublaöiðkom út 17. mars 1917 undir ritstjórn Guö- brands Magnússonar. Atta mán- uöum slöar tók Tryggvi Þórhallsson viö ritstjórninni. Tlminn var ekki aö neinu leyti undir stjórn þingflokksins og á engan hátt háöur honum. Hann haföi sjáfstæöan f járhag og blaðið var ekki gefiö út formlega sem málgagn Framsóknarflokksins, enda tiökaöist ekki á þeim árum aö flokkar gæfu út blöö heldur voru þau I einkaeign. Stefnu og skrifum Timans réö útgáfustjórn blaösins, þeir Guðbrandur Magnússon, Hallgrimur Krist- insson og Jónas Jónsson og Tima- klikan svonefnda, sem hélt reglu- lega fundi, þar sem rætt var um blaðið og flokkinn, en I Tlmaklik- unni voru hinir raunverulegu stjórnendur og forráöamenn Tlmans þar til hann varö form- lega eign Framsóknarflokksins og yfirlýst málgagn hans áriö 1938. Þaö var hlutverk Timans og forráöamanna hans aö kynna Framsóknarflokkinn og túlka stefnu hans fyrir þjóöinni, halda uppi vörn og sókn fyrir flokkinn, stefnu hans og störf ráöherra hans, en Siguröur Jónsson varö atvinnumálaráöherra fyrir flokk- inn 4. janúar 1917 I samstjórn Heimastjórnar-, Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins undir for- sæti Jóns Magnússonar aöeins þrem vikum eftir aö flokkurinn var stofnaöur. Varö Tlminn fljótlega öflugt baráttutæki til sóknar og varnar fyrir Framsóknarflokkinn, sam- vinnusamtökin og bændastéttina. Leiö ekki á löngu þar til blaöiö var oröiö eitt af áhrifameiri blöö- um landsins og náöi mjög mikilli útbreiöslu, einkum þó i sveitun- um. Jónas Jónsson skrifaöi meira I Tlmann en nokkur annar maöur I fjölda mörg ár allt frá stofnun biaðsins. Uröu margar greinar hans vlðfrægar og I framkvæmd virtist svo sem Tlmaklikan væri hiö leiöandi afl Framsóknar- flokksins lengi framan af. Bar þá stundum nokkuö á milli sjónar- miöa Timakllkunnar og þing- flokksins, einkum þó áöur en þeir Jónas Jónsson og Tryggvi Þór- hallsson tóku sæti á Alþingi. Um þaö segir Þorsteinn M. Jónsson svo i Stofnsögu Framsóknarflokksins: ,,Þó veröur aö játa, aö sam- vinnan á milli þingflokksins og Timans var ekki nógu náin á fyrstu árum þeirra. Timanum réöu ungir hugsjónarmenn, vig- reifir og djarfir.en e.t.v. stundum ekki nægjanlega gætnir. En meirihluti þingflokksins voru aldraðir menn, llfsreyndir og gætnir”. Áhrif þriggja hreyfinga Tveir fyrstu ritstjórar Tímans, Guöbrandur Magnússon og Tryggvi Þórhallsson, voru I for- ystusveit ungmennafélaganna og Tryggvi Þórhallsson hafði veriö formaöur Ungmennafélags Reykjavlkur, áður en hann varö ritstjóri Tímans. Jónas Jónsson var aftur á móti ritstjóri Tlmarits ungmennafélagannaum árabil og var jafnframt mikill áhugamaöur um samvinnumál. Þessi helming- ur Timaklikunnar var þvl úr for- ystuliöi ungmennafélagshreyf- ingarinnar. Hinir þrlr meðlimir Timaklik- unnar — Hallgrlmur Kristinsson, Aöalsteinn Kristinsson og Jón Arnason.og siöar Siguröur Krist- insson Ceftir lát Hallgrims 1923) — voru allir framkvæmdastjórar og forstjórar Sambands Islenskra samvinnufélaga og I fararbroddi Sam vinnuhreyf ingarinnar. 1 þingflokknum voru aftur á móti forystumenn úr búnaöar- samtökunum og samvinnumenn. Þótt Framsóknarflokkurinn væri stundum af andstæöingunum ásakaöur um aö vera aöeins sam- tök 8 þingmanna og 6 Tlmaklíku- manna er ekki vafi á því, aö hann átti traust fylgi I öllum þeim félagsmálahreyfingum, sem forystumenn hans höföu mótast af, þ.e. I samvinnuhreyfingunni, ungmennafélagshreyfingunni og búnaöarhreyfingunni. Hugsjónir þessara hreyfinga enduróma aftur og aftur I stefnu- yfirlýsingum Framsóknarflokks og sjást greinilega I hinni þjób- félagslegu afstööu hans. Þess TÍMAKLÍKAN Jónas Jónsson Guðbrandur Magnússon Tryggvi Þórhallron Hallgrímur Kristinsson Aðalsteinn Kristinsson Jón Árnason vegna skal gerb lausleg grein fyrir kjarnanum I markmiðum þessara hreyfinga, þótt ekki veröi farið út I aö greina ýtarlega frá sögu og stefnumiðum þeirra. Búnaðar- félögin Fjórar meginstoðir runnu undir Búnaðarfélag Islands vib stofnun þess áriö 1899. Búnaðarfélag Suöuramtsins, Búnaðarsjóöirnir, hreppabúnaðarfélögin og búnaðarskólarnir. Meginmarkmið Búnaöarfélags Islands var aö vinna aö eflingu landbúnaöarins, vera málsvari bændastéttarinnar, beita sér fyrir nýmælum og framförum i land- búnaði, efla rannsóknir sem miöi aö verklegum framförum i land- búnaöi, vera rlkisstjárnum til ráöuneytis I landbúnaöarmálum, gæta hagsmuna bændastéttar- innar og gefa út fræöslurit um landbúnað. Þetta var sú hugsjónafræðilega arfleifö, sem bændafulltrúarnir i hópi stofnenda Framsóknar- flokksins komu meö inn I flokk- 'inn. Má greina áhrif þeirra I fyrstu stefnuskránni og reyndar alltaf siöan. Samvinnu- hreyfingin hóf göngu sina hér á landi meö stofnun Kaupfélags Þingeyinga árið 1882 og eflist verulega við stofnun Sambands islenskra sam- vinnufélaga áriö 1902. Markmiö hennar í upphafi var aö gera bændur og framleiðendur óháöa selstööuverslunum og fjárplógs- mennsku þeirra, skapa þeim betri verslunarkjör bæöi viö sölu afuröa og innkaup til búsins. Viö vöxt og eflingu kaupfélaganna fengu þau á sig hiö alþjóölega snib samvinnufélaga samkvæmt Rochdalereglunum, en megintil- gangur þeirra er aö annast vöru- kaup og vörusölu fyrir félags- menn á sannviröi og uppræta þannig arörán af viöskiptum. Prófessor Ólafur Björnsson hefur gert á þvl athugun, hversu mikiö af verzlunum var I eigu út- lendinga á sfðari hluta 19. aldar og i byrjun þeirrar 20. Niðurstaða hans er sú, að „fyrir 1870 var meira en helmingur af föstum verzlunum hér á landi í eigu manna, er búsettir voru erlendis, einkum I Danmörku, en siðan hefur verzlunum þessum fariö si- fækkandi, þannig að fyrir heims- styrjöldina fyrri nam tala þeirra aöeins 10% af tölu verslana I heild, og slöan 1930 hafa þær mátt heita úr sögunni”. Samvinnu- félögin höföu þvi miklu hlutverki aö gegna þegar I upphafi. Þau áttu verulegan þátt I (1) aö gera verslunina innlenda (2) bæta verslunarkjörin og (3) aö festa fjármagn til reksturs og fram- kvæmda I byggöarlögunum um allt land. Kaupfélögin hafa og haft veru- leg áhrif I þá átt aö efla vöruvönd- unog vörugæöi, lækka dreifingar- kostnaö og tryggja framleiöend- um sem réttlátast verö fyrir slna vöru og útvega neytendum vöru á sannvirði. Segja má, aö kjarni samvinnu- hugsjónarinnar sé viöleitnin til þess að reka viöskipta- og fram- leiöslustarfsemi á grundvelli lýö- ræöislegrar félagsstarfsemi, sem hefur þjónustusjónarmiö en ekki sérgróöasöfnun aö aöalmark- miði, og leitast viö aö tryggja mönnum sannvirði vinnu og vöru. Hefur Framsóknarflokkurinn mótast mjög af þessum viöhorf- um samvinnustefnunnar allt frá upphafi. U ngmennaf é - lagshreyfingin Þriöja félagsmálahreyfingin, sem forystumenn Framsóknar- flokksins komu úr, ungmenna félagshreyfingin, átti rætur slnar I Ungmennafélagi Akureyrar, sem stofnaö var á nýársdag 1906. Markmið félagsins var aö reyna að safna æskulýð landsins undir eitt merki til einingar og fram- sóknar, auðvelda ungu fólki aö afla sér llkamlegs og andlegs þroska, efla með sér ættjarðarást og starfslöngun fyrir land og þjóö og vinna að fremsta megni aö þvl aö viðhalda og efla allt það, sem er þjóðlegt, rammíslenskt og horfir til gagns og sóma fyrir hina islensku þjóö. Jafnframt vildu ungmennafélögin hreinsa móöur- máliö og efla bindindis- og Iþróttastarfsemi. Mörg ungmennafélög voru stofnuð I landinu og samband ungmennafélaganna var stofnaö á Þingvöllum dagana 4.-7. ágúst 1907. Störfuðu félögin lengi meö miklum blóma aö aleflingu ein- staklingsins I frjálsu félagsstarfi, hollum iþróttum, uppbyggilegu og öflugu þjóölegu menningar- starfi. Allt, sem horfði til fram- fara fyrir islenska þjóö var þeirra baráttumál, og i ritstjórnartlð Jónasar Jónssonar varö timarit samtakanna, Skinfaxi, eitt áhrifarikasta rit á Islandi. Lét þaö sér þá ekkert framfaramál þjóöarinnar óviökomandi. Þrir áhrifarikari menn Tima- kllkunnar voru.einsog fyrr segir, forystumenn úr ungmennafélags- hreyfingunni og fluttu hugsjónir hennar með sér inn i Fram- sóknarflokkinn. Lyfsöluleyfi auglýst laust til umsóknar f Framlengdur er til 25. þ.m. umsóknar- frestur um lyfsöluleyfið við Apótek Aust- urlands, Seyðisfirði. ; Umsóknir sendist landlæknisskrifstofu. Ennfremur er innan sama umsóknar- í.4 frests lýst eftir umsóknum um stöðu for- '4' stöðumanns við sömu lyfjabúð, fari svo að H lyfsöluleyfið verði ekki veitt einstaklingi. $5: Umsóknir um það starf sendist ráðuneyt- inu, þar sem frekari upplýsingar fást um ífj starfið. M Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið jj| 15. júli 1980. ztewmmtmmmmsmmatm m

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.