Tíminn - 09.09.1980, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.09.1980, Blaðsíða 6
6 Þriðjudagur 9. september 1980 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jon Sigurösson. Ristjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri Kristinn Haligrlmsson. Aug- lýsingast jóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og augiýsingar Siöumúla 15. Sími 86300. — Kvöldsímar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir ki. 20: 86387. Verö I iausasölu kr. 280. Askriftargjald kr. 5500 á mánuöi. Prentun: V^Blaöaprent._________________ ____________________________________y Þórarínn Þórarínsson Erlent yfirlit Fall Giereks varð fyrr en spáð var Spilltu vestrænir fjölmiðlar fyrir Olszowski? Albert og átökín í Sjálfstæðisflokknum t laugardagsblaði Visis er skýrt frá þvi, að á fundi hjá JC i Hafnarfirði siðastl. fimmtudagskvöld, hafi Albert Guðmundsson rætt um málefni Sjálfstæðis- flokksins og fórust m.a. orð á þessa leið: ,,Ég hef gert tilraun til að sætta þá Gunnar og Geir, en sú tilraun mistókst. Ef ekki er hægt að sætta þessa menn verða þeir báðir að fara og finna verður þriðja aflið til að taka við forystu flokksins. Það verður að sameina flokkinn á ný og enginn einn einstaklingur er meira virði en flokkurinn sjálfur.” Sú afstaða Alberts Guðmundssonar, sem birtist i þessum ummælum hans er harla eðlileg frá sjónar- miði einlægs fylgjanda Sjálfstæðisflokksins eins og Albert er. Það er að sjálfsögðu frumskilyrði þess, að eining skapist i Sjálfstæðisflokknum, að þeir Gunnar Thoroddsen og Geir Hallgrimsson sættist. Litlar likur virðast hins vegar til þess meðan Geir og stuðningsmenn hans setja það skilyrði, að Gunnar rjúfi núverandi stjórnarsamstarf og fyrr verði ekki tekið höndum saman. Slikt skilyrði af hendi Geirs er i reynd yfirlýsing þess, að hann vill ekki sættast við Gunnar. Þar sem engar likur eru á sættum af framan- greindum ástæðum, væri það næst liklegast til ein- ingar i Sjálfstæðisflokknum, að þeir Gunnar og Geir drægju sig báðir i hlé og nýr maður veldist til for- ustu. A þessu er hins vegar sá stóri hængur, að Geir vill ekki draga sig i hlé og hefur þegar lýst yfir fram- boði sinu. Meirihluti flokksstjórnarinnar og þing- flokksins virðist fylkja sér fast um hann. Það styrkir lika Geir, að þótt margt megi finna honum til foráttu sem flokksformanni, ber hann höfuð og herðar yfir þá, sem helzt hafa verið til- nefndir sem eftirmenn hans. Albert Guðmundsson er þá undanskilinn, en hann lýsti yfir þvi á áður- nefndum fundi, að hann gæfi ekki kost á sér til for- mennsku. Af framangreindum ástæðum virðast sáttahorfur i Sjálfstæðisflokknum vera harla litlar, enda virðist beinlinis stefnt að þvi af Geir og fylgismönnum hans, að sættir takist ekki. Geir setur óaðgengilegt skilyrði fyrir sáttum við Gunnar og hann vill heldur ekki draga sig i hlé sem flokksformaður. Það er ekki fyrirsjáanlegt—að þessir þröskuldar verði yfirstignir. Enn er þó of snemmt að fullyrða að þetta þurfi að leiða til stoínunar nýs flokks. Hér kemur einnig til greina, að menn yfirgefi Sjálfstæðisflokkinn án þess að nýr ílokkur komi til sögunnar. Sundurlyndið i flokknum hefur þegar haft þau áhrif, að margir hafa yfirgefið hann. Slik þróun mun áreiðanlega halda áfram. Flokksstofnun er hins vegar ekki útilokuð, ef sjálfur kjarni Sjálfstæðisflokksins splundrast. Þvert á móti er hún sennileg þá. Slik flokksstofnun gæti valdið miklum usla. Hún gæti leitt til verulegra breytinga á skipan Alþingis. Það verður þvi ekki annað sagt en að Geir og félagar nans tefli nú áhættusaman leik, sem getur reynzt Sjálfstæðisflokknum verstur áður en lýkur. Þ.Þ. Stanislaw Kania. ÞVÍ HAFÐI veriö spáð af mörgum fréttaskýrendum, að Edward Gierek myndi fljótlega hrökklast frá eftir þá atburði, sem hafa orðið i Póllandi undanfarnar vikur. Þetta var m.a. rökstutt með þvi, að hann hefði með þeim breytingum, sem hann gerði á stjórn sinni siðastl. vetur, boriö mesta ábygð á þvi, aö hinn nýi forsætisráðherra fór inn á þá brautað hækka verðlag, án þess að hafa kynnt sér nægilega hver viðbrögö verkamanna myndu verða. Þannig hefði hann og helztu ráðgjafar hans verið komnir úr tenglsum við fólkiö. Þá mætti kenna Gierek um þá stefnu, að megináherzla hefur verið lögð á uppbyggingu stór- iönaðar, en ýmis neyzluiönaður og landbúnaður mætti afgangi. Til að efla stóriðnaðinn hafi verið tekin stórlán vestan- tjalds og væri vaxta og af- borganabyrðin orðin allt of þung. Fleira var fært þvi til stuðnings, að valdatið Giereks myndi brátt ljúka. FráförGiereks kom samt fyrr en spáð hafði verið. Hin opin- bera skýring á því er sú, að hann hafi veikzt skyndilega. Hann hafi verið hjartveikur fyrirog ekki þolað hina miklu á- reynslu siðustu vikna. Veikindi hans hafi reynzt svo alvarleg, að réttþætti, að hann legði strax niður flokksforustuna og nýr maður valinn i stað hans, þar sem miðstjórnarfundur Kommúnistaflokksins stæði yf- ir. Astæða er til að taka þessari sögu um veikiridi Giereks með varfærni. Frá honum hefur engin yfirlýsing komiö, engin tilkynning um afsögn. Flest bendir þvi til, að hann hafi verið settur af. Ef til vill hefur hann veikzt eitthvað og það verið gripið tii að réttlæta afsetning- una. JAFNFRAMT þvisemfráför Giereks hafði verið spáö, hafði þvi verið spáð nokkuð sam- hljóða, hver eftirmaður hans myndi verða. Fréttaskýrendur voru nokkuð á einu máli um, að Stefán Olszowski fyrrverandi utanrikisráðherra, væri likleg- asti arftaki Giereks. Olsowsky hafði það tvennt til að bera, að hann var talinn i góðu áliti hjá Rússum og að hann hafði mælt með allróttæk- um breytingum á efnahags- stefnunni i þá átt, sem féll verkamönnum i geð. Gierek hafði á siðastl. vetri látið vikja Olszowski úr fram- kvæmdanefnd flokksins og jafn- framt látið hann hætta sem utanrikisráðherra. Hann var þá skipaður sendiherra í Austur- Berlin. ÞegarGierekgerði aftur breytingar á framkvæmda- stjórninni i síðastl. mánuði, fékk Olszowski sæti i henni að nýju. Flest benti þá til, aö hann yrði annar mesti áhrifamaður landsins næst á eftir Gierek. Það er ekki Iiklegt, að það hafi spillt fyrir Olszowski og haft af honum formannsembættið, að vestrænir fjölmiðlar hafa hælt honum að undanförnu og dregið mjög taum hans. Slikt lætur ekki vel i eyrum ráðamanna austantjalds. Vafalitið hafa Rússar ekki talið þetta með- mæli með honum. Það hefur ekki heldur bætt stöðu verkfallsmanna i Pól- landi, að bandarisk verkalýðs- samtök hafa efnt til fjársöfn- unarþeim til stuðnings og stofn- aðsjóð i þvi skyni. Muskie utan- rikisráðherra reyndi að koma i veg fyrir þetta, en ráðum hans var hafnað. Sennilega hefur ekki veriðhægtaðgera pólskum verkfallsmönnum meiri ógreiða. VALIÐ á eftirmanni Giereks kom flestum á óvart. Það féll á Stanislav Kania, sem að undan- förnu hefur borið ábyrgð á öryggisgæzlu i landinu og ann- azt samskipti rikis og kirkju. Kania, sem er 53 ára gamall, hófst til metorða i Kommúnista- flokknum eftir valdatöku Gier- eks 1970. Hann hefur unnið störf sin i kyrrþey og er þvi næstum óþekktur i Póllandi. Fréttaskýr- endur hafa þvi ekki getað fullyrt neitt um, hvaða armi flokksins Kania tilheyrir. Sumir fréttaskýrendur telja, að Kania hafi orðið fyrir valinu vegna þess, að ekki hafi orðið samkomulagum mann úr hægri armi eða vinstri armi flokksins. Val hans hafi verið málamiölun. Sumir færa Kania það til framdráttar, aö hann hafi sem yfirmaður öryggisþjónustunnar gætt þess vel, að hún hefði ekki afskipti af verkföllunum. Þá hafi hann haft áhrif á að kirkjan beitti sér fyrir sáttum. Kania hefur lýst yfir þvi, að reynt verði að bæta sambúð milli almennings og stjórnvalda og að samkomulagið við verk- fallsmenn verði haldið. Unnið veröi aö bættu samstarfi rikis og kirkju. Brésnjef var fyrsti erlendi valdamaðurinn, sem óskaði Kania til hamingju og lýsti trausti sinu á honum. Óneitanlega hafa hin snöggu formannsskipti i Kommúnista- flokki Póllands skapað nokkra óvissu. Næstu atburða i Póllandi er þvi beðið með aukinni for- vitni. Þ.Þ. Felldu vestrænir fjölmiölar Olszowski?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.