Tíminn - 25.11.1980, Síða 2

Tíminn - 25.11.1980, Síða 2
2 Þriöjudagur 25. nóvember 1980. Landlæknir fylgjandi flúortöflugjöf í skólum landsins: Túnnskemmdir bama í Noregi minnkuðu um 50% BSt — „Þaö er borin von aö þaö takist aö bæta tannheilsu lands- manna aö verulegu ráöi nema gripiö sé til fyrirbyggjandi aö- feröa i þvi sambandi svo sem meö reglulegri flúortöflugjöf til barna”, sagöi Ólafur ólafsson landlæknir er blaöamaöur Tim- ans haföi tal af honum vegna nýútkominnar skýrslu sem landlæknisembættiö hefur gefiö út og nefnist „Tannlæknisþjón- usta á islandi”. Skýrslan er unnin af Magnúsi R. Gislasyni tannlækni. Aö sögn landlæknis er langt komiðathugunum á vatnsbólum á landinu til rannsókna á flúor- magni vatnsins. Þær rannsóknir fara fram i samvinnu viö heil- brigðiseftirlitið og Tryggingar- stofnun rikisins. Landlæknir sagðist leggja áherslu á að regluleg flúortöfiu- gjöf færi fram i skólum i landinu en erfitt yrði að eiga við það að flúórb*ia drykkjarvatnið, þó þess væri sums staðar þörf. Norðmenn hafa gefið börnum flúortoflur i skólum i um 7-8 ár sagði landlæknir og haldið gdðar skýrslur um árangurinn, enda er hann glæsilegur — allt að 50% minnkun á tann- skemmdum varð á þessum ár- um hjá skólabörnum i Noregi. Þessi skýrsla um tannlæknis- þjdnustu á íslandi greinir frá könnun á fjölda tannlækna staðsetningu tannlæknigatækja, ástandi þeirra og húsnæðis tií tannlækninga á tslandi, aðal- lega þó utan þéttbýliskjarnanna i Reykjavik og á Akureyri. ttUefniaf þessari skýrslu var flestum sveitarstjórnum skrifaö bréf og mælst til aö endurbætur færu fram á þeim þáttum tann- lækninga sem helst væri ábóta- vant. í fyrsta lagi að sveitarstjdrnir hefðu forgöngu um útvegun tannlæknatækja, þar sem skort- ur á þeim væri aðalvandamálið eða að endurnýjum yröi gerð þar sem gömul og óhentug tæki væru i' notkun. 1 öðru lagi að komið væri á fót skólatannlækningum, þar sem tannlæknar væru á staðnum og tæki væru fyrir hendi. Nú er verið að ganga frá út- gáfu bæklinga sem fjalla um fyrirbyggjandi starf varðandi tannhirðu og flúorgjöf. Þessir bæklingar eru unnir af Þorgrimi Jónssyni tryggingatannlækni og gefnir út i samvinnu land- 1 æ kn is em b æ 11 is in s og Tryggingarstofnunar rikisins. Vaxtahækkun fyrir áramót „Förum að lögum” — segir Daviö Ólafsson Seðlabankastjóri AB — Eins og kunnugt er þá er ákvæöi i hinum svokölluöu Ólafslögum sem kveöa á um aö raunvöxtum skuli náö i árslok 1980. Enn vantar u.þ.b. 10% á aö vextirnir séu raunvextir. Tim- inn snéri sér til Daviös Ólafs- sonar Seölabankastjóra og spuröi hann hvort vaxtahækk- ana væri aö vænta nú á næstu vikum. „Um það get ég ekkert sagt. Að Ólafslögum óbreyttum verö- um viö aö sjálfsögðu aö fara eft- ir lögunum, en forsætisráðherra lýsti þvi yfir i stefnuræðu sinni að rikisstjórnin hefði það til at- hugunar að framlengja frestinn til að ná raunvöxtum um eitt til tvö misseri. Til þess þarf laga- breytingu, en hún er ekki enn farin að sjá dagsins ljós,” var svar Daviðs Ólafssonar. „Frestun ligg- ur í loftinu” — sagöi Tómas Árnason viðskiptaráðherra JSG/AB — „Frestun á lögunum um raunvextina hefur ekki ver- iö ákveöin, en hún er eitt af þeim atriöum sem fyrirhuguö eru sem aögeröir I efnahags- málum,” sagöi Tómas Árnason viöskiptaráöherra i viötaii viö Timann er hann var inntur eftir þvi hvort rikisstjórnin heföi tek- iö ákvöröun um aö fresta fram- kvæmd laganna. Tómas sagöi jafnframt aö legiö heföi i loftinu aö lengja aölögunartimann i sambandi viö fullar veröbætur á lánum. Þar heföi veriö talaö um svona eitt til tvö misseri, en þau mál væru ekki enn fullfrágeng- in. Tómas sagði að til þess að þessi frestun næöi fram að ganga þyrfti lagabreytingu, og hún þyrfti að koma til fyrir ára- mót, þvi I lögunum er ákvæði sem segir til um aö raunvöxtum skuli náð fyrir árslok 1980. Stéttabaráttuhópurmn: „Samábyrgð með auðvaldinu... — sett í stað baráttu hagsmunum HEI — Nú um helgina var haldin ráöstefna vinstri andstööunnar I verkalýöshreyfingunni, sem nefnir sig STÉTTABARATTU- HÓPINN, aö þvi er segir I til- kynningu frá hópnum. 1 samþykkt ráðstefnunnar segir m.a., að Verkalýðshreyfingin hafi veriö á undanhaldi s.l. 3 ár. Hvað eftir annaö hafi hagsmunir verkafólks lotiö i lægra haldi fyrir sameiginlegum aögerðum rikis- valds og atvinnurekenda. Orsak- anna til undanhaldsins segir hópurinn fyrst og fremst að leita innan verkalýöshreyfingarinnar sjálfrar, til þeirrar stefnu, að samábyrgö meö auðvaldinu sé sett i staö baráttu sem eingöngu grundvallist á hagsmunum verkafólksins sjálfs. Þessari óheillaþróun vill Stéttar er grundvallast á verkafólks” baráttuhópurinn snúa viö og hyggst vinna aö nýrri stefnu inn- an verkalýðshreyfingarinnar. Meginatriði þeirrar stefnu eru sögö: Aö verkalýðshreyfingin hætti að taka tillit til hagsmuna atvinnurekenda, að starfsemi verkalýðshreyfingarinnar verði óháð rikisvaldinu og að virku lýð- ræði verði komið á I hreyfingunni, sem feli i sér stööuga þátttöku verkafólks i mótun baráttunnar og skapaöir veröi möguleikar til þess að verkafólk geti haft stöð- ugt eftirlit með geröum forystu sinnar. Þátttakendur á ráöstefnunni hafa opið hús kl. 20.30 að Hall- veigarstöðum mánudags-, þriöju- dags-, og miövikudagskvöld á meöan ASt-þingið stendur yfir. Þar ætla þeir aö ræöa mál sem eru á dagskrá þingsins og leggja á ráðin. Leitarmenn aö störfum um helgina. Tlmamynd —GE K0NAN SEM HVARF ERKDMINFRAM EKJ — Mikil leit var gerð um r helgina aö 43 ára gamalli konu, ' Huldu Haröardóttur til heimilis | aö Reynimel 58. Hulda haföi fariö I af heimili slnu eftir kl. 10 á laugardagsmorgun. SVF-deildirnar Ingólfur og Al- ! bert leituðu að Huldu, einnig ! skátasveitir úr Reykjavik, Hafnarfiröi og Kópavogi. Leitað var á auðum svæðum frá Sunda- höfn og út með allri strönd út Sel- ■ tjarnarnesið inn Skerjafjörð, um- hverfis Kársnes og útá Alftanes. | Þá var fenginn sporhundur til í ieitarinnar og hann rakti slóð frá i Reynimel að fjörunni við Ægis- : siðu | Hulda fannst siðan laust fyrir j hádegi á mánudag, i gær, i kjallaranum heima hjá sér. Hússtjórnarskóli Reykjavíkur Sólvallagötu 12 Umsóknir um hússtjórnardeild sem hefst 5. jan, þurfa að berast sem fyrst eða eigi siðar en 15. des. öll námskeið i matreiðslu, fatasaumi vefnaðiog jurtalitun erufullskipuð til jóla. Námskeið eftir áramót verða auglýst i byrjun janúar. Skólastjóri. VARIST STEIN- SKEMMDIR OG LEKA KLÆÐIÐ MEÐ BLIKKI. FRAMLEIÐUM ALLAR GERÐIR BLIKKHLÍFA. y^T) BUKKVER Y^) se1lfo?sYER Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Sími: 44040. Hrismýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.