Tíminn - 25.11.1980, Síða 6

Tíminn - 25.11.1980, Síða 6
6 Þriðjudagur 25. nóvember 1980. 1isr <S> tmmm Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt- ir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. —Ritstjórar: Þórar- inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrfmsson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur, Stefánsdóttir, Elisabet Jökulsdóttir, Friðrik indriðason, Frfða Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Heiður Heigadóttir, Jónas Guð- mundsson, Jónas Guðmundsson (Alþing), Kristin Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (Iþróttir). Ljósmyndir: Guðjón Einars- son.Guðjón Róbert Ágústsson. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Marla Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Slðumúla 15, Reykjavik. Slmi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldslmar: 86387,86392.—Verö I lausasölu: kr. 280. Áskriftar- gjaldá mánuöi: kr.5500,— Prentun: Blaöaprent hf. Stefnumörkun ífjöl- skylduvernd Tveir Framsóknarformenn, Haraldur ólafsson og Alexander Stefánsson, hafa lagt fram á Alþingi tillögu um stefnumótun i fjölskylduvernd. Efni tillögunnar er að Alþingi feli „rikisstjórn- inni að skipa nefnd til þess að undirbúa lögg jöf um samræmda stefnu i málum, er varða eflingu og vernd fjölskyldunnar með tilliti til mikilvægis hennar i þjóðfélaginu og gera henni kleift að sinna vel uppeldis- og umönnunarhlutverkum sinum”. í upphafi greinargerðarinnar er vikið að þeim gifurlegu þjóðfélagsbreytingum, sem hafa breytt stöðu og hlutverki fjölskyldunnar. Siðan segir: „Að undanförnu hafa átt sér stað miklar um- ræður um stefnumörkun i fjölskyldumálum. Hefur þetta verið kallað „fjölskylduvernd. Við hvað er átt með hugtakinu „fjölskyldupólitik”? Það eru úrræði til þess að stuðla að þvi, að fjölskyldan verði áfram mikilvægasti kjarni þjóðfélagsins þrátt fyrir breytta þjóðfélagshætti og án þess að slakað sé á kröfum um jafnrétti karla og kvenna. Við mótun stefnu i fjölskyldumálum skal miðað við að vernda fjölskylduna og efla hana svo hún getisinnt mikilvægum hlutverkum sinum til gagns fyrir land og lýð. Kanna þarf hvort einhver ákvæði laga og reglu- gerða beinlinis stuðli að þvi að sundra fjölskyldum eða gera þeim erfitt fyrir að halda saman. Þar verður að athuga tryggingamál, framfærslu- skyldu, dagvistunarmál, skólatima, sifjalöggjöf. Þá verður að kanna atvinnumál og vinnutima. Vinnumarkaðurinn er kröfuharður og vinnutimi hentar ekki ætið vel fjölskyldulifi, og til athugunar er hvort sveigjanlegur vinnutimi getur að ein- hverju leyti auðveldað fjölskyldulif. Skattamál og launamál hafa veruleg áhrif á f jölskylduna og þarf að athuga rækilega hvemig stefnumörkun i þeim málum hefur áhrif á fjölskyldugerð og möguleika fjölskyldna til að lifa góðu og heilbrigðu lifi. Hús- næðismál eru stór liður og áhrifamikill, sem taka þarf til athugunar i þessu sambandi. Möguleikar til iþróttaiðkana og fristundastarfs snerta fjöl- skyldur mjög mikið og stefnumörkun i þeim mál- um af hálfu opinberra aðila getur haft vemleg áhrif á fjölskyldulif. Ýmsar stofnanir koma nú i stað fjölskyldunnar og annast uppeldi og ummönnun ungra og aldinna. Enda þótt þær séu i eðli sinu hjálparstofnanir, sem eiga að taka við, þegar önnur ráð þrýtur, þá er þróunin sú, að þær taka að sér æ meira af verk- efnum fjölskyldunnar. Draga verður i efa að slikt stofnanauppeldi og slik stofnanaforsjá fyrir heilt samfélag standist”. í lok greinargerðarinnar segir: „heimili og fjöl- skylda eru sá grunnur, sem framtið hvers og eins er á reist. Það skiptir miklu að sá grunnur sé traustur”. Þ.Þ. Þórarinn Þórarinsson: Erlent yfirlit Reagan felur Meese og Baker mikil völd Þeir verða nánustu samstarfsmenn hans í Hvíta húsinu \ Reagan hafi ekki ráðfært sig öllu meira við annan mann. 1 kosningabaráttunni nú var hann eins konar hægri hönd Reagans. Eftir að Reagan lét af rikis- stjóraembættinu, varð Meese prófessor við háskólann i San Diego. Hann heldur enn em- bættinu þar, en hefur fjarveru- leyfi i ótiltekinn tima. Meese er sagður mikill starfs- maður, sem talar ekki meira en nauðsyn krefur. Hann flikar yfirleitt ekki skoðunum sinum og hefur þvi hvorki verið flokk- aður til hægri eða vinstri. Hann er talinn hafa haft áhrif á að Reagan gerði ýms frávik frá yfirlýstri hægri stefnu sinni meðan hann var rikisstjóri. Meese er giftur og eiga þau hjón tvo syni og dóttur. JAMES Addison Baker er rétt fimmtugur, fæddur 28. april 1930. Hann er fæddur og uppal- inn i Houston i Texas en þar stofnaði afi hans eitt helzta mál- flutningsfyrirtækið, Baker & Botts. Baker nam fyrst lög við há- skólann i Princeton, en siðar við lagaháskólann i Texas. Hann fékk ekki starf við fyrirtæki afa sins að námi loknu, þvi að þar gilti sú regla, að væntanlegir erfingjar mættu ekki vinna við það, þar sem þvi væri ekki ætlað að verða fjölskyldufyrirtæki. Baker fékk þvi starf hjá öðru málflutningsfyrirtæki. Baker var upphaflega demó- krati, en gekk siðar i flokk repú- blikana. Hann vann fyrir Ford i prófkjörunum 1976 og gerðist siðar kosningastjóri hans. Hann var kosningastjóri George Bush i prófkjörunum i vetur, en þeir eru nánir vinir. Eftir að Reae- an hafði verið valinn forsetaefni repúblikana en Bush varafor- setaefni, gekk Baker i lið með Reagan ogtók mjög virkan þátt I kosningabaráttunni. Reagan fékk fljótt mikið álit á honum eftir það. Það er talið, að Baker hafi ráðið mestu um, að Reagan féllst á sjónvarpseinvigi þeirra Carters, en aðrir ráðunautar hans réðu frá þvi. Nú er yfirleitt talið að það hafi orðið mikill ávinningur.fyrir Reagan. Baker hefur verið talinn frjálslyndur I skoðunum og þyk- ir val hans sýna, að Reagan ætl- ar að hafa breidd i vali sam- starfsmanna sinna. Baker er giftur og eiga þau hjónin átta börn. Leiðrétting 1 forustugrein Timans siðstl. sunnudag var sú meinlega prent- villa, að sagt var að Sjálfstæðis- flokkurinn væri að undirbúa til- lögur i samræmi við leiftursókn- ina um 35 milljarða hækkun út- gjalda. Hér átti að vera lækkun útgjalda. Meese og Anne Armstrong á blaðamannafundi. Edwin Meese og James A. Baker RONALD Reagan vinnur kappsamlega að þvi að mynda stjórn sina. Hann hefur leitað ráða margra forustumanna repúblikana og skipað nefnd þriggja náinna samstarfs- mánna sinna, sem á að vera honum sérstaklega til ráðuneyt- is. Formaður þessarar nefndar er William J. Casey, 67 ára gamall lögfræðingur, sem gegndiýmsum trúnaðarstörfum i stjórnartið Nixons. Aðrir nefndarmenn eru Paul Laxalt, 58 ára gamall öldungadeildar- maður frá Nevada, og Anne Armstrong, 52 ára gömul, sem gegndi ýmsum veigamiklum embættum i stjórnartið Nixons og Fords, unz Ford skipaði hana sendiherra Bandarikjanna i London. Anne Armstrong hóf fyrst þátttöku i stjónmálum, þegar hún vann sem sjálfboðaliði fyrir Truman i forsetakosning- unum 1948. Skömmu siðar gerð- ist hún repúblikaniog vann fyrir Eisenhower i forsetakosningun- um 1952. Reagan hefur látið i ljós, að það sé erfiðara að koma saman rikisstjórn en hann hugði. Hann segist ætla að athuga val sitt vel og reyna að rasa ekki um ráð fram. Hann vonist þó til, aðhafa tilnefnt menn i helztu ráðherra- embættin i byrjun desember. Eftir það hefst að velja menn i þau embætti i ráöuneytunum, sem losna við stjórnarskiptin. Reagan hefur gefið til kynna, að hann muni styrkja stöðu ut- anrikisráðherrans með þvi að draga úr þvi valdi, sem ráðu- nautur forsetans i öryggismál- um hefur haft hjá fyrrverandi forsetum, en hann hefur jafn- framt verið formaður svonefnds öryggisráðs rikisins. Reagan virðist þó stefna að þvi, að völdin verði áfram mest i Hvita húsinu og ráðuneytin geti ekki orðið eins konar riki i rikinu. Fyrstu embættaveiting- ar hans snertu þvi Hvita húsið. Það er nú orðið ljóst hverjum hann ætlar að verða valda- mestum þar næst á eftir honum sjálfum. Hinn 14. þ.m. lét Reagan til- kynna, að hann hefði valið Ed- win Meese sem sérstakan ráðu- naut sinn og talsmann bæði i innanrikis- og utanrikismálum. Meese virðist bersýnilega ætlað valdameiri störf en öryggis- málaráðunauturinn hafði og ætla ýmsir, að hann verði nú látinn heyra undir Meese. Sum- ir fréttaskýrendur telja, að Meese verði eins konar aðstoð- arforseti. Jafnframt þessu tilkynnti Reajan að James Addison Baker yrði starfsmannastjóri i Hvita húsinu, en það var það starf, sem Haldeman gegndi i stjórnartið Nixons og siðar Haig hershöfðingi. Samkvæmt þessu verða Meese og Baker vaidamestu menn Hvita hússins, aðrir en forsetinn. Meese mun verða enn áhrifameiri en Baker hvað stefnumörkun snertir. EDWIN MEESE er 48 ára gamall, Kaliforniumaður að uppruna. Hann lauk laganámi við háskólann i Yale 1953, en stundaði siðan framhaldsnám við lagaskólann i Berkeley. Þaðan útskrifaðist hann 1958. Skömmu siðar var Meese ráð- inn i þjónustu Reagans, sem þá var rikisstjóri. Hann var fyrst lögfræðilegur ráðunautur Reag- ans, en siðar starfsmannastjóri hans, Meese vann sér fljótt mikla tiltrú Reagans. Það er talið, að

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.