Tíminn - 29.11.1980, Side 3

Tíminn - 29.11.1980, Side 3
Laugardagur 29. nóvember 1980 tar ■ ' ^ 3 AB — 1 dag er merkisdagur I út- gerðar- og fiskvinnslusögu Djúpavogs. Klukkan 14.00 i dag verður frystihúsið á Djúpavogi, Búlandstindur hf. vigt við hátlð- lega athöfn. Viðstaddir athöfnina verðá auk fbúa Djúpavogs, heistu framámenn samvinnu- hreyfingarinnar, fyrrverandi framkvæmdastjórar frystihúss- ins, fyrrverandi og núverandi þingmenn kjördæmisins og for- stjóri Fiskveiðasjóðs. Frystihús þetta verður eitt full- komnasta frystihús landsins, tölvuvætt og tæknilega fullkomið. Það er vel viðeigandi að vígsla þessifari nú fram,þviá þessuári eru 60 ár liðin frá stofnun Kaupfé- lags Berufjarðar, en það er ein- mitt einn aðaleigandi frystihúss- ins. Landsþing FÍB: Djúpivogur: Nj it frys itihús Búlandstinds Ví{ rt forn ílega Leiðrétting t viðtali við Erlend Einars- son forstjóra Sambandsins i blaðinu I gær urðu þau mis- tök að orð féll niður I einni setningunni þannig að merk- ing hennar breyttist. Setn- ingin var: „Það vita allir sem setja sig inn í málin, að I flestum tilfellum koma tekjurnar sem nægja til þess að”... en þarna á orðið „ekki” að koma á eftir „tekjurnar” Biðjum við veivirðingar á þessum mistökum. Tímarit Þroska- hjálpar komið út EKJ — Starfsemi Landssamtak- anna Þroskahjálpar er margþætt. Samtökin gefa út m.a. timarit sem kemur út einu sinni á ári. Timaritið er mest kynningarrit, á starfsemi, þjónustu og nýjungum sem koma, gagnmerkt fyrir að- standendur þroskaheftra ernauð- synlegt að vita skil á. t nýjasta hefti Þroskahjálpar eru birt ný lög sem tóku gildi i byrjun þessa árs, sem marka mikil timamót, i' málum þroska- heftra, þar sem miðað er að þvi að þroskaheftir skuli njóta sama jafnréttis i reynd á við aðra þjóð- félagsþegna. 1 timaritinu eru kynntar þjónustustofnanir þroskaheftra, fréttir frá Lands- þingi 1979, grein um nám og störf þroskaþjálfa, grein um árið 1981, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa valið: Ar fatlaðra, og fleira efni. Cr myndiðatima i Öskjuhliðarskóla á notkun bílbelta Frá Landsþingi F.t.B. sem haldið var f Borgarnesi Breyting á rekstri Norrænu félaganna — samþykkt á fundi Sambandsstjórnarinnar — Framkvæmdastjóranum sagt upp starfi BSt — A fundi I stjórn Sambands Norrænu félaganna a tslandi, sem haldinn var sl. laugardag, var samþykkt ályktun um breytingu á rekstri Norrænu félaganna á tslandi. i ályktun- inni, sem samþykkt var sam- hljóöa á fundinum, fólst m.a., aö framkvæmdastjóra Sambands- ins, var sagt upp störfum. Alyktunin cr svohljóðandi: „Sambandsstjórn Norrænu féiaganna á islandi telur brýna nauðsyn á aö endurskipuleggja skrifstofuhald og rekstur Nor- ræna félagsins með hiiðsjón af þeim mikla kostnaði, sem nú- verandi skipan hefur i för með sér. óhjákvæmilegt er, að hjá félaginu starfi áfram skrifstofu- maöur I fullu starfi, auk þess sem nauðsynlegt má telja, að stjórnarmaður i framkvæmda- ráði sinni ýmsum fram- kvæmdastörfum. Þar sem framkvæmdaráð hefur nú ákveðið að tölvuvæða hluta af skrifstofustörfum félagsins tel- ur sambandsstjórn ekki þörf á, aö i þágu þess starfi sérstakur framkvæmdastjóri allt árið um kring, svo sem átt hefur sér stað undanfarln ár. Þess vegna ákveður sambandsstjórnin að leysa framkvæmdastjórann frá störfum, frá og með í. desem- ber n.k., en hann njóti launa i þrjá mánuði frá og með 1. des. 1980 aö telja, samkvæmt al- mennri venju, þó hvorki bif- reiöastyrks né simakostnaöar.” Þessi tillaga var samþykkt samhljóða á fundinum af þeim sem þennan fund sátu, en þeir voru: Grétar Unnsteinsson, skólastjóri i Hveragerði, Gylfi Þ. Gislason fv. ráðh., form. Norræna félagsins i Reykjavik, Vilhjálmur Skúlason, prófessor i Hafnarfiröi, Þorvaldur Þor- valdsson, kennari á Akranesi, Karl Jeppesen, sem er i fram- kvæmdastjórninni og Hjálmar ólafsson, ólafur Guðmundsson, skólastjóri á Egilsstöðum. Auk þess er i stjórninni Báröur Hall- dórsson á Akureyri, en hann var veðurtepptur, en hann heyröi tillöguna simleiðis og sam- þykkti hana þannig. BS— Það kom fram á landsþingi Félags islenskra bifreiöaeigenda, scm haldið var i Borgarnesi 7.-9. nóvember s.L, að tsland er eitt Norðurianda þar sem ekki hefur orðið fækkun á slysum i umferð- inni undanfarin ár. Mikið var rætt á þinginu um hvcrjar væru helstu orsakir hinnar háu tiðni umferða- slysa hér á landi. Gerðar voru samþykktir um öryggismál og eru þessar helstar: Samþykkt var ályktun þess efnis, að mælt skuli með, að notk- un bilbelta verði lögboðin. Hvatt var til að aukin verði lög- gæsla i umferðinni og tækni- búnaður á þvi sviði gerður sem bestur. Lögð verði aukin áhersla á nán- ari rannsóknir á orsökum um- ferðarslysa, og itrekaðar voru ábendingar F.t.B.um að taka upp „punktakerfi” i sambandi við eftirlit með umferðarlagabrot- um. Reglum um ökuleyfis- sviptingar verði breytt, og taka þurfi upp aukna skyndiskoðun bifreiða. Landsþingið lagði mikla áherslu á það, að hraðað veröi lagningu bundins slitlags á vegi landsins, og benti þingið m.a. á, að arðsemi bundins slitlags á vegi er meöal arðvænlegustu fjárfest- inga sem völ er á og kemur allri þjóðinni að gagni. Landsþing F.l.B. 1980 átelur harðlega þær geigvænlegu skattaálögur, sem lagðar eru á bifreiðaeigendur og verðhækkan- ir sem orðið hafa á bensini að undanförnu. Mörg önnur mál voru rædd á þinginu og kosnar nefndir til aö fara með veigamestu mála- flokka. Ný stjórn var kosin og hlutu þessir kosningu: Arinbjörn Kol- beinsson læknir, Tómas H. Sveinsson viðskiptafræöingur, Sturla Þórðai;son lögfræðingur, Daviö Gunnarsson verkfræðing ur, Þórarinn Óskarsson deildar- stjóri. Gestur landsþingsins að þessu sinni var ólafur Ólafsson land- læknir, og flutti hann erindi um umferðarslys og notkun bilbelta. Fulltrúar á þinginu voru alls 31 frá öllum héruðum landsins.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.