Tíminn - 29.11.1980, Side 5
5
Laugardagur 29. nóvember 1980
Árnagarði berst vegleg gjöf:
EBUÐ FYRIR FRÆÐIMENN
í NORRÆNUM FRÆÐUM
EKJ — llandritastofnun Arna
Magnússonar hefir veriö gefin
höföingleg gjöf, sem er ibúö
Þöru Vigfúsdóttur og Kristins
E. Andréssonar. Af þvi tilefni
var efnt til blaöamannafundar,
þar sem Jónas Kristjánsson
rakti ævi og störf Kristins og tók
viö Iyklum aö Ibúöinni úr hönd
Höllu Hallgrimsdóttur, fóstur-
dóttur Þóru.
Þóra S. Vigfúsdóttir andaðist
fyrr á þessu ári, og arfleiddi
Stofriun Árna Magnússonar aö
ibúðsinni að Hvassaleiti 30hér i
borg. Þaðskilyrði fylgir gjöfinni
að ibúðin verði notuð sem
heimili fyrir erlenda eða inn-
lenda fræðimenn sem vinna að
norrænum fræðum. Ibúðin er
gefin til minningar um eigin-
mann Þóru, Kristinn E. Andrés-
son, og skal vera við hann
tengd. <
Kristinn E. Andrésson var
mikill áhugamaður um endur-
heimt handritanna frá Dan-
mörku. Hann átti sæti i
,,samninganefnd Dana og Islend-
inga, af hálfu Sósialistaflokks-
ins eftir heimsstyrjöldina, og
beitti sér þar af alefli að lausn
handritamálsins. Siðar sat hann
i handritanefndinni sem hér
starfaði uns lausn var fengin á
handritamálinu 1961, er danska
þingið samþykkti afhendingu
handritanna. Bæði hjónin voru
sem endranær einhuga i þessu
tbúöin er f þessu húsi viö Hvassaleiti 30
máli og Stofnun Arna Magnús-
sonar mun kenna ibúðina við
þau bæði.
„Ekki þarf að orðlengja hvi-
likur fengur Arnastofnun og is-
lenskum fræðum er að þessari
gjöf,” sagði dr. Jónas
Kristjánsson er hann þakkaði
gjöfina. „Jafnframt þvi sem
handritin berast heim til Islands
fjölgar stöðugt þeim erlendum
fræðimönnum sem hingað leita
um lengri eða skemmri tima til
rannsóknarstarfa við stofnun-
ina. Vinnuskilyrði eru góð i
Arnagarði, en fram að þessu
hefur ekki verið unnt að bjóða
erlendum gestum neitt húsnæði
til ibúðar. Nú er úr þvi bætt með
þessari höfðinglegu gjöf. Og
handritafræðingar eru boðnir
velkomnir, ekki aðeins til starfa
i Arnastofnun á íslandi heldur
og til vistar i ibúð Þóru og Krist-
ins. Fyrst um sinn munu búa
þar erlendir fræðimenn.”
„Mér segir svo hugur um aö
Ibúðin verði fullsetin,” sagði
Jónas ennfremur, „en ef okkur
Hjónin Kristinn E. Andresson
og frú Þóra S. Vigfúsdóttir, en
Þóra arfleiddi Arnagarö aö ibúö
þeirra hjóna i minningu Kristins
E. Andréssonar.
tekst ekki að fylla hana af hand-
ritafræðingum, þá ber þess að
gæta að Árnastofnun svo ná-
tengd sem hún er Háskóla Is-
lands, mun ljá skólanum afnot
af ibúðinni”.
Þrir menn skulu ákveða
hverjir búa i ibúðinni á hverjum
tima, sem eru: Forstöðumaður
Stofnunar Arna Magnússonar,
einn tilnefndur af háskólarektor
og einn af stjórn Bókmennta-
félags Máls og Menningar, en
eins og alþjóð veit, þá stofnaði
Kristinn E. Andrésson það fé-
lag.
Beinar greiöslur lána og bóta til bænda:
Undirbúningi ekki lokið
— þingsályktanir ótímasettar
JSG — Tvær fyrirspurnir um
framkvæmd þingsáiyktana ann-
ars vegar um greiöslu afurðalána
og rekstrariána og hins vegar
greiöslu útfiutningsbóta og niöur-
greiöslna, beint til bænda, voru
ræddar á Alþingi á þriðjudag.
Eyjólfur Konráö Jónsson bar
fram þessar fyrirspurnir, en hann
haföi staðið aö fyrrnefnduin
þingsályktunum, sem samþykkt-
ar voru á Alþingi i mai 1979.
Tómas Árnason, viðskipta-
ráðherra, svaraði fyrri fyrir-
spurninni, og sagði frá bréfa-
skiptum landbúnaðarráðuneytis
og þriggja banka, Búnaðarbanka,
Landsbanka og Seðlabanka um
hvernig reglur mætti setja til að
tryggja að bændur fengju afurðar
og rekstrarlán ihendur um leið og
þau væru veitt. Bankarnir telja
ýmsa annmarka á að taka upp
beinu greiðslurnar. í fyrsta lagi
Stærsta
skipulega átakið
í kynningu á
landinu og
útflutningi þess
AM — Nú er ákveöið aö
Feröamálaráö, Flugleiöir,
samtök útflytjenda og utan-
rikisþjónustan standi fyrir
mjög viötækri og almennri
kynningu á Islandi og út-
flutningsvörum á næsta ári i
fjórum löndum.
Heimir Hannesson for-
maður Ferðamálaráðs sagði
okkur aðhér ræddi um þrjár
borgir i Sviþjóð, amk. tvær
borgir i Þýskalandi, tvær
borgir i Bandarikjunum og
tvær borgir i Bretlandi.
Verður þetta hið stærsta og
skipulegasta átak sem til
þessa hefur verið gert i slik-
um efnum.
Þá sagði Heimir ákveðið
að meðan stendur á heim-
sókn forseta Islands til Dan-
merkur sem fyrirhuguð er i
vetur, muni ráðiö efna til
umfangsmikillar kynningar
á Islandi i Danmörku.
telja þeir að eingöngu sé hægt að
veita afurðalánin til sláturleyfis-
hafa, þar sem þeir hafa i vörslu
sinni vörurnar er lánað er út á.
Þar með er ekki sagt að andvirði
lánanna gætu ekki runnið beint til
bænda, mæltu lántakendur svo
fyrir um. 1 öðru lagi telja
bankarnir nær útiiokað að hver
bóndi verði lántakandi rekstrar-
lánanna: sllkt hefði mikla vinnu
og kostnað i för með sér fyrir
bændur og lánastofnanir. Þá væri
þess að gæta að rekstrarlán væru
greidd af afurðalánum, sem
greidd eru út á haustin og þvi
væri eðlilegt að lántakandi
beggja lána væri sá sami, þ.e.
sláturleyfishafar eða umboðs-
menn þeirra.
Viðskiptaráðherra skýrði frá
þvi að nefnd sem vinnur að
endurskoðun á afurða og
rekstrarlánum, og i eiga sæti
m.a. fulltrúar þingflokka, Stétta-
sambands bænda, sláturleyfis-
hafa, Seðlabanka Islands,
Búnaðarbanka Islands, og Lands-
banka tslands, hefði fengið það
hlutverk að gera tillögu um
breytingar á afgreiðslu lánanna i
samræmi við ályktun Alþingis.
Formaður nefndarinnar er Vil-
hjálmur Hjálmarsson.
Pálmi Jónsson, landbúnaðar-
ráðherra, svaraði siðari fyrir-
spurninni um greiðslur út-
flutningsbóta og niðurgreiðslna,
og sagði enn ekki hafa fundist
heppilegt fyrirkomulag um bein-
ar greiðslur þeirra. Leit að sliku
fyrirkomulagi væri i höndum
Framleiðsluráðs landbúnaðarins,
en verkið gengi hægt vegna skorts
á vinnuafli hjá ráðinu. Hann
nefndi þó að i bráðabirgðakönnun
Framleiðsluráðsins hefði komið
fram að við að taka upp beinu
greiðslurnar gæti kostnaður auk-
ist nokkuð, þannig að litrinn af
mjólk hækkaði um 70 krónur, en
kiló af dilkakjöti um 486 krónur.
( Eyjólfur Konráð kvað allt of
'langan tima hafa liðið án þess að
vilja Alþingis hafi verið komið i
framkvæmd. Hann kvað bankana
eiga aðhlita þvi sem Alþingi hefði
mælt fyrir um. Páll Pétursson
sagði að sér kæmi ekki á óvart þó
nokkurn tima þyrfti til að koma
þingsályktuninni um útflutnings-
bætur og niðurgreiðslur i fram-
kvæmd. Allar umsagnir um hana
hefðu verið neikvæðar og bændur
hvergitekiðundirhana. „Égverð
þvi að biðja Eyjólf Konráð um að
sýna nokkra biðlund”, sagði Páll,
„en að segja að lög landsins séu
brotin þó að ekki sé búið að fram-
kvæma þetta er nú of langt
gengið, þvi eins og komið hefur
fram var tillagan ótimasett og
svona heldur i lausara lagi”.
,Hagkvæm
orkunotk-
un í sjáv-
arútvegi’
Prófessor Valdimar
K. Jónsson flytur
fyrirlestur á vegum
Verkfræöistofnunar
Háskóla íslands
þriðjudaginn 2. desem-
ber. Fyrirlesturinn
nefnist „Hagkvæm
orkunotkun í sjávarút-
vegi" og fjallar um
svartoliunotkun,
siglingarhraða og rétta
notkun á skrúfum m.a.
Fyrirlesturinn verður
haldinn i húsi verkfræði- og
raunvisindadeildar Háskóla
tslands við Hjarðarhaga i
stofu 158 og hefst kl. 17:15.
Þessi fyrirlestur er annar i
röð fyrirlestra til kynningar
á starfsemi Verkfræðistofn-
unar. Næsta fyrirlestur held-
ur dr. Þorgeir Pálsson, dó-
sent, 22. janúar 1981 og fjall-
ar um tölvukerfi islensku
flugstjórnarmiðstöðvarinn-
ar.
Vaidimar K. Jónsson.
Nýskipaður sendiherra Ungverjalands, Dr. Laszlo Nagy afhenti i gær for-
seta íslands trúnaðarbréf sitt að viðstöddum Ólafi Jóhannessyni utanríkis-
ráðherra.
Siðdegis þá sendiherrann boð forseta að Bessastöðum ásamt fleiri gestum.