Tíminn - 29.11.1980, Qupperneq 6

Tíminn - 29.11.1980, Qupperneq 6
6 Laugardagur 29. nóvember 1980 1lV <$■ %mmm Útgefandi: Framsóknarflukkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt- ir. Afgreiöslustjóri: Siguröur Brynjólfsson. — Ritstjórar: Þórar- inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurösson. Hitstjórnarfull- trúi: Oddur V. ölafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrlmsson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur, Stefánsdóttir, Elisabet Jökulsdóttir, Friörik .ndriöason, Friöa Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Heiöur IlelgaJóttir, Jónas Guö- mundsson, Jónas Guömundsson < Alþing), Kristin Leifsdóttir, Hagnar örn Pétursson (iþróttir). Ljósmyndir: Guöjón Einars- son, Guöjón Hóbert Ágústsson. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorstejnsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387,86392.—Verö I lausasölu : kr. 280. Askriftar- gjald á mánuöi: kr. 5500.— Prentun: Blaöaprent hf. Ný forusta Alþýöu- sambandsins Þing Alþýðusambandsins, sem lauk störfum i gær, getur átt eftir að marka timamót i sögu þess. í fararbrodd hafa valizt menn úr nýrri kynslóð og vafalitið með ný viðhorf og ný sjónarmið. Það hefur verið notað eitthvað gegn þeim Ás- mundi Stefánssyni og Birni Þórhallssyni, að þeir séu háskólagengnir menn. Þetta er úrelt viðhorf. Það var eðlilegt, að fyrstu frumherjar verkalýðs- samtakanna væru úr hópi verkamanna. Þó lögðu ýmsir skólagengnir menn þar hönd á plóginn. Það má nefna Héðin Valdimarsson, sem var þróttmesti leiðtoginn sem Dagsbrún hefur átt. Þeir Jónas Jónsson og Ólafur Friðriksson voru að visu ekki með háskólapróf, en þeir voru eigi að sið- ur skólagengnir á þeirra tima mælikvarða. Þeir höfðu forustu um stofnun Alþýðusambandsins og hefði það vart komizt á legg á þeim tima, ef þeirra hefði ekki notið við. Kjarabarátta verkalýðssamtakanna er nú háð á öðrum grundvelli en áður. Þá var glimt við harð- skeytta atvinnurekendur, sem högnuðust óeðlilega á vinnu starfsfólks sins. Nú er hins vegar oft glimt við atvinnurekendur, sem berjast i bökkum, svo að ekki sé meira sagt. Nú er oft og tiðum ekki minna mikilvægt að tryggja atvinnuöryggið en kaupmátt launanna. Þegar þannig er komið, skiptir miklu máli, að for- ustu verkalýðssamtakanna skipi menn með rika þekkingu á efnahagsmálum og séu fullkomlega jafningjar fulltrúa atvinnurekenda á þvi sviði. ÞeirÁsmundur Stefánsson og Björn Þórhallsson hafa lengi unnið saman og gengið vel. Hin nýja stjórn Alþýðusambandsins, sem þeir veita forustu, er eins konar þjóðstjórn. Á erfiðum og viðsjár- verðum timum er mikilvægt, að samheldni geti verið sem mest innan verkalýðssamtakanna og fullt jafnvægi milli flokkslegra sjónarmiða. Verkalýðssamtakanna biða mikil og mörg veík- efni á næstu árum. Þar þarf bæði að fást við dæg- urmál og framtiðarmál. Dægurmálin eru að tryggja atvinnuöryggið og kaupmáttinn, en það verður ekki gert, nema taumhald náist á verðbólg- unni. í þvi starfi verða verkalýðssamtökin að eiga drjúgan þátt, ásamt vinnuveitendum og rikisvald- inu. Framtiðarmálin eru að endurbæta lifeyrissjóða- kerfið og undirbúa lausn þess vanda, sem fylgir þeirri tæknibyltingu, sem nú fer um heiminn. Þar er á ferðinni stærra vandamál en menn gera sér yfirleitt ljóst enn sem komið er. Það er vel ráðið, að nýir menn skulu veljast til að fást við þessi miklu og erfiðu viðfangsefni. Nokkrir eldri menn og reyndari menn eru með i förinni, þótt ýmsir úr þeim hópi hafi dregið sig i hlé. Þannig þurfaáhugi og þekking hinna ungu og reynsla og aðgætni hinna eldri að haldast i hendur. Að óreyndu hljóta menn að gera sér góðar vonir um hina nýju stjórn Alþýðusambandsins og óska henni velfarnaðar. Þ.Þ. Þórarinn Þórarinsson: Erlent yfirlit Yfirlýsing Machels og Brésnjefs vekur umtal Hafa Rússar náð fótfestu í Mósambík? NÝLEGA er lokiö heimsókn Samora Machel, þjóöhöföingja Mosambik, til Moskvu, þar sem hann ræddi viö Brésnjef forseta og fleiri ráöamenn austur þar. Aö heimsókn Machels lokinni var birt sameiginleg yfirlýsing hans og Brésnjefs. Yfirlýsing þessi hefur vakiö talsveröa at- hygli vestrænna fréttaskýr- enda, því Machel tekur öllu meira I streng meö Brésnjef en þeir áttu von á. Sumir frétta- skýrendanna velta þvi nú fyrir sér, hvort Mósambik sé aö veröa nýtt fylgiriki Sovétrikj- anna. Fyrir Sovétrikin væri þaö vissulega mikill ávinningur, þvi aö Mósambik getur haft mikla hernaöarlega þýöingu. Strandlengja Mósambik meöfram Indlandshafi er hvorki meira né minna en 2000 milur. Þar eru ágætar hafnir eins og Maputo (áöur Lourenco Marqu- es), Beira og Nacala. Erlent riki, sem heföi aögang aö þess- um höfnum fyrir flota sinn, gæti oröiö mikils ráöandi á suöur- hluta Indlandshafs. Undan ströndinni liggja eyjar, þar sem hægt er aö hafa flugvelli og radarstöövar. Hernaöarlegar stöövar þar gætu oröiö mjög mikilvægar. Samora Machel EF LITIÐ er á útdrátt úr yfir- lýsingu þeirra Machel og Brés- njefs, sem rússneskar frétta- stofur hafa birt, mætti vissulega halda, aö samstaöa Mósambík og Sovétrikjanna væri oröin all- náin. 1 útdrætti APN segir á þessa leiö: „Báöir aöilar lýstu áhyggjum sinum vegna ástandsins I Af riku og tilraunum sem geröar væru til aö koma af staö deilum og til ihlutunar i innanrikismál rikja þar, jafnframt þvi sem Banda- rikin héldu áfram aö auka vig- búnaö sinn á þessum slóöum. „Allt þetta ógnar friöi og öryggi rikja i' Afriku”, segir i álits- geröinni. Aöilar bentu á nauösyn þess aö slökunarstefnan næöi fót- festu i öllum heimshlutum, þar á meöal i Afriku. Þeir bentu á nauösyn þess aö gera Afriku aö kjarnorkulausu svæöi og lýstu stuöningi sinum viö kröfur strandrikja viö Indlandshaf um aö friölýsa bæri þaö haf fyrir öllum hernaöaraögeröum og aö fjarlægja bæri þaöan allar erlendar herstöövar, en allt þetta dgnaöi öryggi og sjálf- stæöi strandrikjanna i þessum heimshluta. Sovétrikin og Mosambik for- dæma þá stefnu aö eyöileggja slökunina og hefja nýja hring- rás vigbúnaöarkapphlaups, og benda á aö mikla nauösyn beri til aö viöhalda þeirri slökun i alþjóöasamskiptum sem áunnizt hafi, og aö efla beri alþjóölega samvinnu. Báöir aöilar fordæmdu harö- lega hervæöingarstefnu Banda- rikjanna og hernaöarumsvif þeirra viö Persaflóa og i Miö- Austurlöndum. Aöilar létu I ljós miklar áhyggjur vegna styrj- aldarinnar milli Irans og Iraks og sögöu aö brýna nauösyn bæri til aö finna pólitiska lausn á henni hiöallra fyrsta.yröu rikin sjálf aö setjast aö samninga- boröi og finna lausn á ágrein- ingsefnum sinum, án utan- aökomandi ihlutunar. Aöilar létu I ljós samstööu sina meö afgönsku þjóöinni, sem reynir aö viöhaida sjálfstæöi fööur- lands sins. Aöilar lýstu einnig samstööu sinni meö baráttu þjóöa Vletnam, Kamputseu og Laos gegn heimsvaldastefnu og afturhaldi, og fyrir friöi i Suöaustur-Asiu.” SÉ ÞESSI útdráttur athug- aöur nánar, kemur i ljós, aö sitt- hvaö vantar i yfirlýsinguna, sem RUssar heföu gjama viljaö hafa I henni. Þaö er t.d. ekkert beint vikiö aö Kinverjum, en Kinverjar hafa veitt Mósambik verulega aöstoð. Þaö kemur hvergi fram neinn stuöningur viö Eþiópiu, sem Rússar reyna aö koma aö sem viðast. Þaö er lika opinbert leyndarmál, aö Mósambik hefur veitt hinni sósialisku upp- reisnarhreyfingu i Eritreu verulega aöstoö. Þaö, sem segir um Afgan- Machel og Brésnjef istan, má lika túlka á ýmsa vegu. Þá er hvergi minnzt á Zim- babwe, en Machel fór lofsam- legum oröum um stjórnina bar i ræðum, sem hann hélt I Moskvu. Uppreisnarhreyfingin, sem sigraöi i' Zimbabwe, hafði bæki- stoðvar sinar i Mósambik og naut styrks Kinverja. Hin hreyfingin, sem beiö ósigur, haföi bækistöövar sinar i Zam- biu og var studd af Rússum. Valdhafar Mósambik sýndu meö þessu, aö þeir vildu ekki siöur eiga gott samstarf viö Kinverja en RUssa og viö þaö hafa þeir siöarnefndu taliö rétt aö sætta sig. Orörómur hefur ööru hvoru gosiö upp um þaö, aö Rússar væru búnir að fá hernaöarlegar bækistöövar i Mósambik, en Machel hefur jafnan svaraö meö þvi aö bjóöa erlendum blaöamönnum aö heimsækja umrædda staöi, en þeir jafnan gripiö i tómt. Samvinna Sovétrikjanna og Mósambik rekur rætur til þess, aö Rússar veittu uppreisnar- hreyfingunni gegn yfirráöum Portúgala, Fremlimo, sem nú er stjórnarflokkurinn, veru- legan stuöning, en vesturveldin studdu Portúgal i lengstu lög. Eftir aö Mósambik öölaöist sjálfstæöi 1975, hélt aöstoð Rússa ekki aöeins áfram, heldur jókst.Vestrænu rikin hafa veitt Mósambik litia aöstoð, aö undanskildum Noröurlöndum. Þaö hefur frá upphafi verið yfirlýst stefna Machels, aö Mósambik væri óháö riki, sem ætti ekki aöild aö neinum hernaöarlegum bandalögum. Mikil áherzla hefur veriö lögö á friölýsingu Indlandshafs, eins og yfirlýsing þeirra Brésnjefs og Machels ber merki. För Machels til Moskvu og yfirlýsing hans og Brésnjefs, mun ekki sizt rekja rætur til þess, aö vestræn riki hafa mjög sparað stuöning sinn viö Mósambík. Þaö hefur ýtt stjórn- inni þar til meira samstarfs viö Rússa en ella. En þaö þarf ekki aö þýöa, aö hún vilji vera háö Rússum eöa sé þaö. Þetta myndi vafalitiö koma betur I ljós, ef þau vestræn rfki, sem mest mega sin, hættu aö einangra Mósambik og veittu landinu aukna aöstoö. Gömul tortryggni i garö þeirra ræður miklu um, aö Machel hefur hallaö sér aö Rússum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.