Tíminn - 29.11.1980, Síða 9
Laugardagur 29. nóvember 1980
13
Bdkaútgáfan örn og örlygur hf
hefur sent frá sér bókina: Is-
lenzkar tónmenntir, eftir dr.
Hallgrlm Helgason. Meö riti
þessu er lagöur grundvöllur aö
fræöilegum tónmenntum Islands
með grundvallarrannsóknum á
þeirri elztu hljómandi arfleifö,
sem tslendingar hafa átt og
ástundaö allt til vorra daga.
Fyrir rit þetta hlaut Hallgrimur
Helgason doktorsgráðu viö há-
skólann I Ziirich I Sviss áriö 1954.
Er rit þetta fyrsta músikvisinda-
legt rit á háskólastigi, sem samiö
er af Islendingi, og þvi um braut-
ryðjandaverk að ræða.
Iformála bókarinnar segir höf-
undur m.a.:
„Við Islendingar höfum löngum
veriö hreyknir af fornbókmennt-
um okkar. Þar hefir skerfur okk-
ar til samfélags þjóöanna veriö
viðurkenndur. En menning er
ÍSLENZKAR
TÖNMENNTIR
Kvaóalög. fbrsaga þefrra
bygging og flutningsháttur
HaUgrimurHdgason
Islenskar tónmenntir
Kvæðalög, forsaga þeirra, bygging og flutn-
ingsháttur eftlr dr. Hallgrim Helgason
fjölstrengja harpa, og tjóar litt aö
knýja aöeins einn þeirra. Streng-
ur tónmennta hefir of lengi legið i
þagnargildi. Afleiðing er þjóð-
menningarlegt andvaraleysi,
skeytingarléysi um þjóöleg verð-
mæti og þar af leiðandi skortur á
menningarlegri sjálfstæðis-
stefnu, sem m.a. kemur fram i
gagnrýnislausri upptöku lánslaga
eftirýmsaerlenda höfunda, undir
yfirskini tónsettra i islenzkra
öndvegisljóöa. Þannig deyr út
ekta þjóðlegur lifandi arfur. Upp
risa undir fölsku flaggi „islenzk”
alþýöulög: og mörgum íslendingi
hefur orðið hált á þvi að kynna
erlendis þessa söngvategund und-
ir nafni íslands.”
Aðalkaflaheiti ritsins eru:
Galdraljóð, Edduljóð, Drótt-
kvæði, Fornir dansar, Uppruni
rimna, Þjóöfélagslegt gildi þeirra
og Formfræði rimnalaga.
I bókinni er einnig útdráttur
ritáskrár Hallgrims Helgasonar,
sem hefur verið mjög afkasta-
mikill höfundur bæði tónverka og
rita um tónmenntir.
Bókin tslenzkar tónmenntir er
gefin út i 599 tölusettum eintökum
sem árituð eru af höfundi. Bókin
er sett, prentuð og bundin hjá
Waldheim-Eberle i Vinarborg.
Upplag bókarinnar er aðeins
599 eintök, tölusett og árituð af
höfundi og verður bókin aðeins til
sölu hjá forlaginu.
Söguleg bók um sögulegan atburð:
Forsetakjör 1980
eftir Guðjón Friðriksson og Gunnar Elisson
Bikaútgáfan Orn og Orlygur hf.
hefur sent frá sér bókina, FOR-
SETAKJOR 1980, eftir Guðjón
Friðriksson og Gunnar Ellsson.
Eins og bókartitillinn ber með sér
fjallar þessi bók um hið sögulega
forsetakjör sem fram fór á ís-
landi 29. júni 1980, en þá var Vig-
dis Finnbogadóttir kjörin forseti
Islands, og. varð þar með fyrsta
konan sem kjörin er til þjóöhöfð-
ingjaembættis i lýðræðislegri
kosningu i heiminum.
I bók sinni reka þeir Guöjón og
Gunnar sögu forsetaembættisins
á Islandi, en taka siðan fyrir for-
setakjörið s.l. sumar. Er þar fyrst
fjallað um kosningabaráttuna,
siðan kosningarnar sjálfar, úrslit
þeirra og viðbrögð bæði hér
heima og erlendis. Þá er i bókinni
æviágrip forseta Islands, Vigdis-
ar Finnbogadóttur, fjallaö um
embættistökuna og fyrsta em-
bættisverk hennar sem forseti,
Hrafnseyrarhátiðina, er minnst
varhundruðustu ártiðar Jóns Sig-
urðssonar i ágústbyrjun.
Fjölmargar ljósmyndir eru i
bökinni, margar þeirra i lit. Méð-
al myndanna eru margar myndir
úr einkasafni forsetans, Vigdisar
Finnbogadóttur.
Bókin FORSETAKJÖR 1980
mun einnig koma út á ensku.
Nefnist sú bók Mrs. President.
Þýðingu önnuðust Sonja Diego,
Paul Richardson og Bogi Agústs-
son.
FORSETAKJÖR 1980 er sett,
umbrotin og prentuð i Odda hf. en
bundin i Sveinabókbandinu hf.
Hönnun og útlit bókarinnar önn-
uðust Guðjón Sveinbjörnsson og
Ólafur Ingi Jónsson. Teikningar á
fremstu og öftustu opnu bókar-
innar eru eftir Hring Jóhannes-
son, listmálara.
300 drykkir
Setberg hefur sent frá sér hand-
bókina 300 DRYKKIR. Þar er að
finna kokkteila, langa drykki,
toddý, bollur og óáfenga drykki,
ásamt fjölda islenskra verð-
launadrykkja. Sem sagt drykkir
við öll tækifæri.
Þessi bók er tilvalin hjáipar-
hella fyrir heimabarþjóninn. All-
ar tegundir drykkja er hægt aö
laga með litilli fyrirhöfn: stutta
og langa, 'sterka, létta og
óáfenga, kalda og heita, sigilda
og draumórafulla.
Auk uppskriftanna 300 eru i
bókinni litmyndir og teikningar.
300 DRYKKIR
Kokkteilar, langir drykklr, toddý.bollur
óáfengir...
Fjöldi íslenskra verðlaunadrykkja
S&non Sigurjónsson barþjónn í
Nausti annaðist útgáfu bókarinn-
ar.
Auglýsingasími Tímans
86-300
íslenskt
orðtakasafn
2. bindi
eftir Halldór
Halldórsson
- Önnur útgáfa aukin
Almenna bókafélagið hefur gef-
ið út I annarri aukinni útgáfu sið-
ara bindi tslenzks orðtakasafns
eftir Halldór Halldórsson, pró-
fessor. 1 fyrra kom út slik aukin
útgáfa af fyrra bindi þessa verks.
I kynningu á kápu verksins
stendur m.a. „Islenskt orötaka-
safn er samið og búið til prentun-
ar af einum fremsta málvisinda-
manni þjóðarinnar, dr. Halldóri
Halldórssyni prófessor... I ritinu
er að finna meginhluta islenskra
orðtaka, frá gömlum tima og nýj-
um, og er ferill þeirra rakinn til
upprunalegrar merkingar. ts-
lenzkt orðtakasafn ... er ómiss-
andi uppsláttarrit námsmönnum,
kennurum og öðrum, sem leita
þekkingar á tungu sinni, og jafn-
framt brunnur skemmtunar
hverjum þeim, sem skyggnast vil
aðtjaldabaki daglegs máls i' ræðu
og riti.”
Þetta annað bindi orðtaka-
safnsins er 339 bls., og af þvi er
viðbætirinn 33 bls. Bókin er unnin
I Prentsmiðjunni Odda.
Öll eru þau önnum
kafin í Erilborg
Ný Scarrybók frá
Erni og Örlygi
Bókaútgáfan örn og örlygur
hefur gefiö út bókina ÖLL ERU
ÞAU ONNUM KAFIN I ERIL-
BORG eftir Richard Scarry. Að-
dáendur þessa vinsæla barna-
bókahöfundar hafa lengi beðið
eftir þessari bók Scarrys sem er
ein .hans stærsta og vinsælasta
bók. Þýðendur bókarinnar eru
þeir Jóhann Pétur Sveinsson og
Ólafur Garðarsson.
Ihinninýju bókhittum við fyrir
ýmsar hinna þekktu og vinsælu
söguersóna úr fyrri bókum
Scarrys svo sem Lása Löggu,
Ormar einfætta og Skafta skútu-
karl, en jafnframt hafa nú komið
fjölmargir aðrir til sögunnar.
Bókin fjallar um lifið i hinni er-
ilsömu Erilborg, þar sem allir
verða að vinna hörðum höndum
til þess aö sjá fjölskyldunni fyrir
nægum mat, fötum og þaki yfir
höfuöiö. Það gerast allskyns
skoplegir og stundum alvarlegir
atburöir i Erilborg og þegar lestri
er lokið hafa börnin notiö góðrar
skemmtunar og jafnframt fræðst
talsvert um dagleg störf alls þess
fjölda sem þarna kemur við sögu.
Bókin er unnin á prentstofu G.
Benediktssonar en prentuð á Ital-
iu.
verslun
iðnaður
vinnsla
landbúnaðarafurða
vinnsla
sjávarafurða
allt
í einu
númeri
214 QO
gefur samband viö allar deildir kl. 9-18
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
AKUREYRI
- MTUHD
SÉRVERSLUN
HESTAMANNSINS
Háaleitisbraut 68
Sími 8-42-40
Austurver
S.WIVINNUTR'IGGINGAR
Ármula 3 - Reykjavik - Simi 38500
Tilboð óskast i efittaldar bifreiðar, sem
skemmst hafa i umferðaróhöppum:
Range Rover
B.M.W. 320
Datsun 120
VW1200
Mazda 323
Cortina
Daihatsu
Austin Mini
árg.1974
árg. 1976
árg.1977
árg. 1974
árg. 1978
árg. 1970
árg.1979
árg. 1974
Bifreiðarnar verða til sýnis að Skemmu-
vegi 26, Kópavogi mánudaginn 1. desem-
ber 1980 kl. 12-17.
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga
g.t., Ármúla 3, Reykjavik, fyrir kl. 17. 2.
desember ’80.
m Umsjónarmaður
'I' óskast
Umsjónarmaður óskast i fullt starf fyrir
Heilsuverndarstöð Reykjavikur svo og
annað húsnæði á vegum Heilbrigðisráðs
Rey kj avíkurborgar.
Aðeins lagtækur, umgengnisgóður og
reglusamur maður kemur til greina.
Umsónarmaður annast m.a. minni háttar
viðhald, hefur umsjón með umgengni,
ræstingum og viðhaldi.
Umsóknir er greini aldur, búsetu og
fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra,
fyrir 10. desember nk.
Sérstök umsóknareyðublöð liggja
frammi i afgreiðslunni, að Barónsstig 47.
Heilbrigðisráð Reykjavíkurborgar