Tíminn - 14.12.1980, Side 3

Tíminn - 14.12.1980, Side 3
Auglýsingastofan SGS Sunnudagur 14. desember 1980 HliMiií 3 IMWISMKM VK> ALUtA HÆFI Pílu pínu platan Gefin hefur veriö út hljómplata meö hinum skemmti- legu söngvum um litlu músina Pftu pínu. Umsjón meö plötunni hefur hin þekkta dægurlagasöngkona Ragn- hildur Gísladóttir og syngur hún sjálf lögin, ásamt þeim Margréti Heigu Jóhannsdóttur og Heiödísi Noröfjörð, sem jafnframt rekur söguna á plötunni. Nokkrir þekktustu hljóöfæraleikarar yngri kynslóöar- innar annast undirleik. Hvað segja bændur nú? eftir Jón S. Bjarnason frá Garðsvík, höfund bókarinn- ar Bændablóö sem út kom í fyrra. Bók sem ber svip af leiftrandi frásagnargleöi höfundarins og snjöllu oröfæri hans. Hór segir m.a. frá eyöibyggöinni í Fjörðum og fólkinu sem þar bjó síöast, bændum og burgeisum, göngum og eftirleitum, skammvinnri skólagöngu, kviöristu og kvennamálum, spéfuglum og spaklegum andans mönnum. Þessi bók er þjóöleg, fróöleg og skemmtileg. Kólumbus eftir Felipe Fernández-Armesto er ný bók í bóka- flokknum Frömuöir landafunda. Er bókin í þýöingu Kristínar Thorlacius, en umsjónarmaður með bóka- flokki þessum er Örnólfur Thorlacius. Þetta er merk bók prýdd fjölda mynda, og mikill fengur fyrir þá sem hafa áhuga á sögulegum fróöleik. Fjallar bókin um hinn mikla landkönnuö, Kólumbus, siglingar hans yfir Atlantshafiö og fund Ameríku. Sunnefumálin Eftir breska rithöfundinn Dominic Cooper í þýöingu Franzicu Gunnarsdóttur. Skáldsaga sem hefur aö uppistööu eitt þekktasta sakamál á ísiandi, hin svokölluöu Sunnefumál, sem geröust á ofanveröri 18. öld. Höfundurinn dvaldi hérlendis meöan hann vann aö bókinni og tekst á einkar trúveröugan hátt að bregöa upp mynd af þvf ömurlega ástandi sem ríkti á Islandi á þessum árum eldgosa og drepsótta. Þetta er saga sem hlutverkum er skfpt milli hörku og grimmdar, mannlegra tilfinninga og mannlegs breyskleika. Þýöing Franzicu Gunnarsdóttur hefur hlotiö mikiö lof gagnrýnenda. Valdatafl í Valhöll eftir Anders Hansen og Hrein Loftsson. Sannarlega * bók í brennidepli, sem fjallar um þau átök sem átt hafa sér staö í Sjálfstæðisflokknum og leiddu loks til stjórnarmyndunar dr. Gunnars Thoroddsens. í bók- inni er þetta valdatafl rakiö frá upphafi og mun þar ýmislegt koma verulega á óvart. í bókinni eru fleiri tugir Ijósmynda, sem margar hverjar hafa ekki birst áöur. Hvaö gerðist á íslandi 1979 Stór og glæsileg bók eftir Steinar J. Lúövíksson sem fjallar um innlenda atburöi ársins 1979. Bók þessi er ómetanleg heimild og bregöur upp á skýran og skemmtilegan hátt í máli og myndum, því sem geröist á íslandi á því herrans ári 1979. Hér er í senn heimildarrit sem öölast æ meira gildi meö árunum og skemmtlleg lesning öllurn þeim sem vilja fylgjast meö og hafa aögang aö heimildum um samtíma atburöi, sem þeir sjálfir tóku þátt í eöa voru áhorfendur aö meö einum eða öðrum hætti. Myndritstjóri bókarlnn- ar er Gunnar V. Andrésson. Einn á móti milljón Ný skáldsaga eftir Jón Birgi Pétursson. Jón Birgir fékk mikið lof fyrir sögu sína Vitniö sem hvarf, er út kom í fyrra. í þessari bók fær lögreglumaöurinn „Rauöa Ijónið" erfitt verkefni til úrlausnar og berst leikurinn víöa m.a. til Rotterdam í Hollandi. Þetta er mögnuö sakamálasaga, sem enginn leggur frá sér fyrr en að lestri loknum. Litlu matreiðslubækurnar Út eru komnar tvær nýjar bækur í hinum geysivin- sæla bókaflokki: Litlu matreiöslubækurnar. Eru þetta bækurnar Grænmetisréttir og Svínakjöt. Áöur hafa komiö út sex slíkar bækur. Hver bók fjallar um afmarkaö sviö matargeröar og eru þægilegar og auöveldar í notkun. Þessar bækur eru allar litprent- aöar og fylgir hverri uppskrift heilsíöumynd af viðkomandi rétti. y Sérstæö barnabók eftir hinn kunna og vinsæla rithöfund Kristján Einarsson frá Djúpalæk. Bókin fjallar um músabyggöina í Lyngbrekku og er aöalpersónan hin litla og lífsglaöa Píia pína. Bókin er meö söngvum eftir Heiödísi Noröfjörö, og mynd- skreytt af Pétri Halldórssyni. Tvímælalaust ein skemmtilegasta og fallegasta barnabókin sem er á markaönum aö þessu sinni. Dægurlaga söngkonan dregur Ný skáldsaga eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skálda- læk. Þessi saaa er eins og fvrri söaur Snjólaugar viöburöarík, fjörleg og skemmtileg og þeim kostum gædd aö vera viö hæfi allra aldursflokka. Aöalsögu- hetjan er í þeirri stöðu sem margar stúlkur dreymir um, en samt er hún vansæl. Þáttaskil veröa í lífi hennar, er hún veröur aö taka viö heimili systur sinnar sem býr úti á landi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.