Tíminn - 14.12.1980, Blaðsíða 12

Tíminn - 14.12.1980, Blaðsíða 12
12 Sunnudagur 14. desember 1980 maður beið i skini gasljósanna undir trjánum fyrir utan. Hann var kominn til þess að kveðja skáldiö. Lögregluþjónn vísaði honum inn og fletti dúknum ofan af Dan Andersson. „Þarna sá ég Dan Andersson, sem ég haföi svo oft dvalizt hjá I huganum bæði daga og nætur, — þarna sá ég hann I fyrsta og slöasta sinn”, sagði þessi maöur um komu sfna i likhúsið. Þetta var Ivar Lo-Johansson. Lik Dans Andersson var flutt i heimabyggðina til greftrunar. Ungur verkfræðingur Lars Arvid Eugen Vestman, kom með kistu til Stokkhólms til þess að sækja það. Þeir, sem báru hann til graf- ar, drukku kaffi úti á grænni ver- önd hússins, þar sem hann og Olga kona hans, bjuggu, og á þessari sömu verönd hafði gest- um verið veitt i brúðkaupsveizlu þeirra. Kennarinn trúaði faðir Dans, sagði: „Dan var eini hjáguðinn, sem ég hef haft á ævinni, og nú hefur guö tekið hann frá mér”. Tæpum sjö mánuöum eftir út- förina ól Olga dóttur, Móniku. Hún var eina barn þeirra hjóna. Dan Andersson kynntist aldrei öðru en fátækt. Hann ólst upp við mikla einveru i miklu strjálbýli, þar sem fólk geymdi i minni sér hvers konar sagnir og sögur og gamla alþýöusöngva. Allt var þetta iðulega rifjað upp i skálum snauðra, þrælkaðra og drykk- felldra skógarhöggsmanna við rjúkandi kolagrafir og heima i kotunum. Hann vandist snemma miklu erfiði,lenti I harðræðum og öölaöist bitra lifsreynslu. Oft speglaöist sorg i kyrrum augum hans, en þó var hann líka fullur af leik og gamansemi, þegar svo snerist. Rödd hans var rödd skóg- anna, hreinsuð og skirð og fáguð, kveikjan sótt til skógarhöggs- manna og sjómanna sem hann starfaöi með. Gamalt fólk i Gónesi minnist hans enn frá þeim fáu misserum er hann átti þar heima. Oft kom hann út I garðinn, þegar veöur var gott og lék þar á fiðlu sina, börnum I grenndinni til skemmtunar, en hundi nágrann- ans sem varla linnti spangóli til mikils ama. Hann orti kvæði á merkisdögum fólksog las þau svo innilega I samkvæmum að fólk klökknaði. Sumum gaf hann bæk- ur sinar áritaðar þegar þær komu út. „Ég minnist siðasta dags hans heima” segir Valborg Eiriksson, sem fyrrum var simastúlka. „Hann tók sig til og málaði kofa, þar sem hann ætlaði aö vera, þeg- ar hann vildi vera einn og ótruflaður og þegar hann kom þaban var hann allur útklindur i málningu jafnvel i framan. Hann þvoði sér og hafði fataskipti i miklum flýti, honum lá svo á, hann ætlaði að ná lestinni til Stokkhólms”. Þótt átta bækur eftir Dan Anderson kæmu út á meöan hann var á lifi var tæpast, að hann sæi sér farborða. Sjálfum reiknaðist honum svo til, að hann hefði borið sex hundruð og sjötlu krónur úr být- um siðustu árin. „Það skiptir engu máli, þótt buxurnar séu slitnar og skórnir götugir”, sagði hann. „Það er annab sem bætir það upp: sú gleöi að fá að lifa og yrkja”. Frægð hans varð mikil — þegar hann var dauöur. Tveim árum eftir fráfall hans voru verk hans gefin út I fjórum bindum og söngvar hans um naub og fögnuð innna snauðu og fótumtroðnu, sem engan málsvara áttu, fóru um landið eins og þytur úr regn- þungum skógi. Enginn hafði fyrr bundið tilfinningar einmanans, sem hvergi á sér vist hæli nema á berangrinum, svo haglega i orð. Skáldið frá Loussa komst á hvers manns varir. Dan varð að þjóðsögu. Og landamærin stöövuðu ekki þessa söngva. Þeir eru meira að segja sungnir á spænsku I Ameriku, Paraguay og Mexikó. I heimabyggð hans hefur verið stofnað sérstakt félag til þess að vaka yfir minningu þessa manns, sem eiginlega átti ekkert nema bakpokann sinn og fiðluna. Þar er haldinn árlega sérstakur Loussa- dagur, sem er helgaður honum. Hinir talfærustu ræðumenn klæða kennarasoninn i viðhafnar- skrúða, ofnum úr fögrum oröum. Sumt er ekki með öllu skiljanlegt þeim, sem hópast saman framan við gamla húsiö hans, til þess aö hlýða á. Annaö skilja menn bet- ur: „Hann gaf okkur undur náttúr- unnar, gula stör mýranna, þungt sefið við ströndina, lyngheiðarnar i Loussa, þar sem vindurinn þýtur og býflugurnar suða.isilögð vötn- in og snarkandi bálið, gulliroðna sólin, villirósirnar, sem hrópa til okkar og ilm smárans við veg- inn”. Þannig sannaðist það á honum sjálfum, er hann forðum kvað um óvissa för sjómanns um veraldar- hafiö: „Kannski dauðinn bak við kóralrif þig hrifsi i hramminn bráða — þetta er hrotti en ærlegt skinn og syng hó og hæ”. Blásýruhótel maddömu Karinar Jónsdóttur stendur enn við Bruggaragötu. 'j&M Tilkynning til söluskatts- greiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi að gjalddagi söluskatts fyrir nóvem- bermánuð er 15. desember. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna rikis- sjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti. Fjármálaráðuneytið 8. desember 1980 Jólahapp- drætti SUF Vinningar: þriöjudaginn 2. des. nr. 3201 miövikudaginn 3. des. nr. 198 fimmtudaginn 4. des. nr. 762 föstudaginn 5. des. nr. 3869 laugardaginn 6. des. nr. 4615 sunnudaginn 7. des. nr. 4761 mánudaginn 8. des. nr. 4276 þriöjudaginn 9. des. nr. 1145 miövikudaginn 10. des. nr. 2251 Jólahappdrætti SUF Vinningur dagsins nr. 1038 laugardaginn 13. des. nr. 3077 föstudaginn 12. des. nr. 3248 fimmtudaginn 11. des. nr. 2422 sterkog stflhrein KirkiMMdi. ifmi 1SM3. tJtsölustaöir: Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Sóló húsgögn hf. Kirkjusandi Versl. Bjarg hf. Akranesi Húsg.versl. Patreksfjaröar, Patreksfiröi J.L. húsið Stykkishólmi J.L. húsið Borgarnesi Húsgagnaversl. tsafjarðar, tsafirði Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri Vöruhús KEA, Akureyri Vörubær, Akureyri Versl. Askja hf. Húsavik Lykill, Reyðarflrði Bústoð hf. Keflavfk. SVú»n kuldahúfur Islenskar, kínverskar og finnskar skinn kuldahúfur á börn og fulloröna. yfir 20 gerðir fyrirliggjandi. »1 j (illjLj - "ffTTj RAfllÍAOERÐfN Hafnarstræti 19 Auglýsið í Timanum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.