Tíminn - 14.12.1980, Blaðsíða 14

Tíminn - 14.12.1980, Blaðsíða 14
14 Sunnudagur 7. desember 1980 Umsjón: Magnús Gylfi Breiddin í íslenska poppinu Eins og sjá má af þeim plöt- um íslenkum sem teknar eru til umfjöllunar i Nútimanum kenn- ir þar ýmissa grasa Þetta á ekki bara viö um þær plötur sem hér eru til umfjöllunar heldur viröist plötuútgáfa I ár vera óvenju fjölbreytt. Fyrsta ber þar að nefna ungu hljómsveitimar okkar, ,,Þeyr”, „Fræbblana” og „Mezzoforte” sem allar hafa sent frá sér plötu um þessi jól og er vist óhætt að Rokkaðí skugga bombunnar Utangarðsmenn/ Geislavirkir segja að allar lofa þær gdðu um framhaldið. Utangarðsmenn eru að vissu leyti nokkuð sér á parti hvað það varðar að varla er hægt aö segja aö hún sé ung eða gömul hljómsveit, svo það verður latið liggja milli hluta. En engu að siður hafa þeir með sinni fyrstu breiðskifu vakið verulega athygli. Nokkrar létt- arog skemmtilegar plötur, það sem stundum hefur verið kall- að á erlendum tungumálum „easy listening”, eru komnar út. Geimsteinn hefur sent frá þær munu koma úr annarri átt / Meðan allaballar á Islandi hrista hausa hissa / verður klakinn sprengdur i smátt.” (Bldðiðer rautt) Við blaðamenn förum ekki varhluta af ádeilu þeirra félaga og er lag þeirra „The Big Print” góð sneið. Mergjaðir textar þar sem ekki er verið að fara i kringum hlutina og kraftmikið rokk og reggae er það sem fólk mun finna á þessari plötu. Það er vonandi að Utangarðsmenn hafa ekki sprungið á limminu þvi ég er einn af þeim sem set plötuna aftur á fóninn. Þeir koma á fullu út úr tóminu eins og jarnbrautarlest og skella á hlustum þinum. Textar þeirra og lög hrista duglega upp i þér i heilar þrjátiu og sex og hálfa minútu og þegar þessu er lokið liöur þér eins og músinni sem stóö á brautarpallinum þegar eimreiöin fór hjá. Samt setur þú plötuna á aftur og vilt meira. Slikt er aödráttarafl og áhrifa vald þessarar fyrstu plötu „Utanga rösmanna”. Margir kunna að segja aö þetta hafi veriö gert áður, það er rokkið, en menn veröa aö átta sig á þvi að hér er um islenska grúbbu aö ræða og ég vil leyfa mér að efast um að betur hafi verið rokkað á islenskri plötu hin seinni ár. 1 þá rúma sex mánuði sem Utan- garðsmenn hafa starfað saman hefur þeim tekist að þróa slikt tónlistarsamband að unun er á aö hlusta. Bassaleikarinn og trommarinn vinna saman sem ein hönd og gitarleikararnir, bræöurnir Mike og Danny Pollock, njóta sin verulega vel i forgrunninum. Söngur Bubba er skemmtilegur og hæfir tónlist- inni vel, enda er hann gjarn . á aö gæöa hann tilfinningu. Á piötunni er að finna 15 lög, sambland af rokklögum og reggae. 011 eru lögin og textarn- ir eftir meölimi hljómsveitar- innar, utan eitt „Sigurður er sjómaöur”, sem Utangarðs- menn standa ekki freistinguna og fikta örlitið við. Það sem athyglisverðast er þó við plötuna er umfjöllunarefni hennar. Þeir félagar láta ekkert tækifæri ónotað til að minna okkur á þá hættu sem stafar af vigbúnaöarkapphlaupinu og möguleikann á kjarnorkustriði og þar með endalokum veraldar. „Hvert bam sem fæðist i dag / á minni og minni möguleika aö lifa / Hver þritugur maður i dag / er meö falsaðanmiða.” (Hiroshima) j Þvi fer fjarri að eina yrkisefn- ið á plötunni sé striö, heldur senda Utangarösmenn skeyti i allar áttir. „Sprengjur munu fljúga, hljóðmúrinn kljúfa, / en Tilgáta að skilningi Messoforte/ í hakanum hakan ; v* 1 Frissí | N ! N k vl í Bjöjsi Ey|«' Ég er aö velta þvi fyrir mér hvort ekki sé dulin merking I heiti þessarar plötu. Þaö sem er í hakanum er verið aö búa til. Hakinn er þaö kallaö sem býr til stafina I þeim gömlu prentköss- um sem tiökuöust hér á árum áöur. Hakinn raðar stöfum niö- ur á skipulegan hátt þannig aö úr megi lesa einhverja merk- ingu. Þvi er þaö aö ég er aö velta þvi fyrir mér hvort hljóm- sveitin sé meö þessu aö segja aö hún sé ,,t hakanum”, þ.e. hún sé i mótun. Hvort þetta sé nú rétt túlkun eöa ekki eöa hvort yfir- leitt eigi aö vera aö túlka heiti hljómplatna skal látiö liggja milli hluta, en engu aö siöur held ég aö þetta sé bara fjári góö tilgáta hjá mér. Allavega er þaö sú tilfinning sem ég fæ er hlustað er á nýja plötu þeirra Mezzoforte manna. Þeir hafa greinilega þroskast talsvert frá þvi aö þeir gáfu út sina fyrstu plötu, en eru ekki enn a.m.k. fullþroskaöir Þeir spila enn sem fyrr svo- kallaö jazzrokk. 011 lög þeirra eru „instrumental”, en Ellen Kristjánsdóttir og Shady Owens radda tvö lög, Miðnæturhrað- lestin og Stjörnuhrap. Það eru ekki margar hljómsveitir sem spila þessa tegund tónlistar hér á landi en Mezzoforte er góður fulltrúi Jiessarar stefnu. Hljóð- færaleikur þeirra er allur með ágætum. Saxófónleikur setur talsverðan svip á plötuna en um hann sjá þeir Kristinn Svavars- sér plöguna „Með ÞREM” þar sem nokkrir af okkar „gamal- reyndustu” poppurum koma við sögu. Hljómsveitin Pónik sann- aði það með nýjustu plötu sinni að þeir eru siður en svo dauðuir úr öllum æðum. Barnaplötur eru árlegur viöburður á þessum árstima, en þó nokkurrar nýbreytni gætir að þessu sinni. Orn og örlygur gefur i fyrsta sinn út plötu, „Pilu Pinu Platan” og Gylfi Ægisson og fleiri sem hingaö til hafa verið þekktir fyrir annað en að raula son og Ron Asprey, og tekst þeim vel upp. Þeir Frissi, Bjössi, Eyþór, Jói, og Gulli eru sem sagt enn i hakanum en i verulegri framför. Góð vísa Ý msir/Kvöldvísa barnagælur hafa gefið út hin sigildu ævintýri um Hans og Grétu og Rauðhettu. Bræðurnir Halli og Laddi hafa lagt sitt af mörkum til að létta landsmönn- um skammdegið og nú bætist nýr i þann hóp skemmtikrafta, en það er útvarpsþátturinn „Ullen Dullen Doff” i öllu sinu veldi. Þar koma við sögu hjóna- kornin Gi'sli Rúnar og Edda, Jónas Jónasson og Randver Þorláksson. Siðast en ekki sist er að nefna jólaplöturnar i ár. Gunnar Þórðarson hefur sent frásér plötuna „I hátiðarskapi” ásamt valinkunnu aðstoðarfólki og barnastjarnan Katla Maria er einnig með jólaplötu „Jóla- gjöf ég fæ”. Af þessari yfirborðskenndu upptalningu er ljóst aö ekki er að örvænta um stöðnun i islenska poppinu á meðan slik breidd er i útgáfustarfseminni. En þvi miður verði ég vist að gera orð spámannsins að min- um „Ekkieru alltaf jól”. Tangó lífsins Pónik/Útvarp Lítið hefur farið fyrir einni af athyglisverðustu plötunni á islenska plötu- markaðnum þetta árið. Er hér átt við „Kvöld- vísa" sem Torfi ólafsson hefur gef ið út og hefur að geyma eigin tónsmíðar við Ijoö Steins Steinarr. Það má telja til verulegra undantekninga að ein- staklingar taki á sig þá áhættu sem er þvi sam- fara að gefa út plötu að ég tali nú ekki um ef maðurinn er tiltölulega óþekktur. Engu að síður hefur Torfi ráðist í þetta og nú er ávöxturinn kom- inn á markaðinn og er árangurinn framar öllum vonum. Tónlist hans virðist falla ein- staklega vel viö ljóð Steins og er þetta hin áheyrilegásta plata. Flytjendur tónlistar eru þeir menn sem aö öllu jöfnu kalla sig Mezzoforte og einnig aðstoðaöi Kristinn Svavarsson þá i einu lagi. Margir af okkur kunnustu söngvurum syngja á plötunni en söngvarar eru: Eirikur Hauks- son, Ingibjörg Ingadóttir Jóhann Helgason, Jóhann G. Jóhannsson og Sigurður K. Sigurðsson. Þau ljóö eftir Stein sem flutt eru á plötunni eru: Kvöldvisa, Atlantis, Útburður, Heimferð, 1 kirkjugarði, I draumi sérhvers manns, Sýnir, Húsið viö veginn, Minnismerki óþekkta her- mannsins og Húsiö viö Hávalla- götu Það er ánægjulegt út af fyrir sig þegar einhver tekur þaö upp hjá sjálfum sér aö gefa út á plötu það sem hann hefur áhuga á. Það eykur enn á ánægjuna þegar svo vel tekst til sem i þetta skipti. Ég er að velta fyrir mér hvernig I ósköpunum Jóhann G. Jóhannsson gat séö bankaverk- fallið fyrir. t einum textanum á plötunni eftir Jóhann segir nefnilega: „Varla nokkurn mann er lengur hægt að slá/ og i bönkunum allt lokað, ekki krónu að fá /svo ég bið þig drottinn um hjálp i guðanna bænum” (Bæn- heyrðu mig). En aö öllu gamni siepptu þá hafa þeir Pónik menn sent frá sér plötu og sögöu sumir að það hefði ekki mátt vera seinna vænna, þvi nú er aðeins einn af upprunalegum meðlimum hljómsveitarinnar eftir, (Jlfar Sigmarsson. Platan ber heitið „Ctvarp” og er það vel viðeigandi á þessu hálfrar aldra afmæii okkar ást- kæra útvarps. „Landsliðið”, eins og Ragn- hildur Glsladóttir réttilega nefndi þá um daginn i blaöavið- tali, eiga nokkur lög á þessari plötu. „Landsliðið” eru þeir Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson og Jóhann G. Jóhannsson önnur lög og aörir textar eru eftir meölimi hljóm- sveitarinnar eöa kunningja þeirra, Gylfi Ægisson á þar eitt lag og texta. Þessi plata fellur undir þá skilgreiningu að vera „easy listening” og sem slik er hún góð. Augljóst er að mikið hefur verið vandað til þessarar útgáfu og að laga og textaval er þaulhugsað. Hljóðfæraleikur er allur með ágætum og reyndar njóta þeir félagar aðstoðar ekki ómerkari tónlistafólks en Manuelu Wiesler og Graham Smith svo einhverjir séu nefndir. Skemmtilegan blæ gefur það plötunni að þeir félagar Sverrir Guðjónsson. Ari E. Jónsson og Hallberg Svavarsson skyldu skipta með sér söng á plötunni. Þó verður að geta þess hér aö mest ber á söng Sverris og kemst hann vel frá sinu og gaman var að heyra aftur i Ara Jónssyni. Þetta er plata sem vert er að veita at- hygli. Pónik eru: Kristinn Sigmarsson, gitar, trompet, röddun. Úlfar Sigmarsson, hljómborð, röddun. Sverrir Guðjónsson, söngur, slagverk. Ari Elfar Jónsson, trommur, söngur, slagverk. Hallberg Svavarsson, bassi söngur. Tónleikar ársins? Barðir til róbóta” Þrjár af okkar áhugaverðustu nýju hljómsveitum hafa ákveðið að gefa aðdáendum sinum og öðrum sem hafa áhuga nýstár- lega jólagjör. Þær ætla að halda hljómleika I Gamla BIói mið- vikudaginn 17. desember n.k. Þetta eru hljómsveitirnar Utangarðsmenn, Fræbblarnir og Þeyr. Allar eiga þær það sammerkt aö hafa nýlega sent frá sér slnar fyrstu breiösklfur. Athygli vekur aö hljómleikarnir eru haldnir i Gamla BIói, staöur sem ekki hefur verið mikið not- aður undir rokktónleika. Veröur gaman aö sjá hvernig þessar ungu hljómsveitir spjara sig á staðsem greinilega er byggöur I „Hollywood-stælnum”, eins og einn aðstandenda hljómleik- anna orðaði það. Forsala aðgöngumiða er þeg- ar hafin og er hún I Fálkanum h.f. að Laugavegi 24. Yfirskrift þessara hljómleika er: „Barðir til róbóta”.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.