Tíminn - 27.01.1981, Page 8
8
®Mtm
Minning
Hallnr Björnsson
hreppstjóri frá Rangá
F. 9. jiinl 1902
D. 27. febr. 1981
1 dag, þ. 27. jan. fer fram frá
Egilsstaöakirkju útför Halls
Björnssonar hreppstjóra frá
Rangá i Hróarstungu á Héraöi.
Hann veröur greftraöur i heima-
grafreit á Rangá þar sem gamlir
söngbræöur munu syngja yfir
moldum hans.
Hallur andaöist á Land-
spítalanum þ. 17. jan. eftir nokkra
legu, ekki mjög þunga, aö þvi er
séö varö. Fyrir tveimur árum
haföi hann veriö skorinn upp viö
þeim sjúkdómi er nú leiddi hann
til bana. Virtist hann þá ná góöri
heilsu þangaö til sl. haust aö veik-
indin tóku sig upp aö nýju.
Hallur var fæddur á Rangá 9.
júni 1902, sonur hjónanna Hólm-
friöar Eiriksdóttur frá Bót i sömu
sveitog Björns Hallssonar, bónda
á Rangá og alþingismanns.
Hallur bar nafn afa sins, Halls
Einarssonar er lengi bjó á Steins-
vaöi i Tungu og oft kenndur viö
þann bæ. Hann keypti Rangána
niöurnidda og breytti i stórbýlis-
jörö.
Nafni hans, Hallur yngri
Björnsson sótti framhaldsnám
sitt í Eiöaskóla á árunum 1922-24
og dáöi jafnan siöan skólastjór-
ann sr. Asmund Guömundsson,
siöar biskup og við aðalkennar-
ann, Guögeir Jóhannsson batst
hann ævilöngum vináttuböndum.
Eftir sköladvölina var Hallur
meö fööur sinum er þá rak stórbú
á Rangá, en brátt dró aö þvi að
hann færi að eiga meö sig sjálfur,
eins og sagt var er menn voru i
svokallaöri sjálfsmennsku, þ.e.
voru útaf fyrir sig meö gripi sina
og heyjuðu fyrir þeim. Þennan
háttinn höfðu ungir menn gjarnan
á, sem höfðu ástæður til og hugöu
siöar á sjálfstæðan búskap. Arið
1938 hóf svo Hallur sjálfstæöan
búskap á nýbýli er hlaut nafnið
Rangá 2 og var byggt útúr landi
aðaljarðarinnar. A nýbýli sinu
reisti hann sér ibúðarhús sem
hann bjó i æ siðan.
Arið 1939 gekk Hallur aö eiga
heimasætu frá Skeggjastöðum i
Fellahreppi, Gunnhildi aö nafni.
Var hún dóttir Þórarins bónda
þar Jónssonar, eins þeirra
þriggja bræöra sem gert höfðu
Skeggjastaöi aö stórbýli.
Þeim Halli og Gunnhildi varö
fimm barna auðiö. Elsta son sinn,
Björn, misstu þau aöeins tveggja
ára gamlan, hiö mesta efnisbarn.
Helga varö næsta barn þeirra,
gift Gunnari Axelssyni og hafa
þau dvalið I fööurhúsum Helgu.
Næstur I barnaröðinni var svo
annar Björn, einstakur efnispilt-
ur en hann missa þau aöeins 25
ára gamlan, sárt syrgðan af öll-
um sem hann þekktu. Þórarinn er
fjórða barna þeirra, ógiftur og bjó
með fóöur sinum. Yngst er svo
Hólmfríður, giftBaldri Sigfússyni
frá Krossi i Fellum. Hann er
húsasmiöur og eru þau búsett á
Hlöðum viö Lagarfljótsbrú.
A sinum yngri árum var hrepp-
stjórasonurinn frá Rangá með
glæsilegri mönnum á Héraöi.
Spengilegur á velli, velfarinn i
andliti og meö höföingsyfirbragö
og var þvi eigi nema von aö hann
veldist snemma til forystu. Ung-
mennafélag sveitarinnar sem
verið haföi lifvana um skeiö
endurreisti Hallur ásamt öörum
og varö formaður þess um hrið.
Þótt Hallur væri sérlega hóglátur
i allri framgöngu og ósýnt um að
látaá sér bera, völdu sveitungar
hans hann snemma til margvis-
legrar forgöngu, og tók hann
smátt og smátt við flestum þeim
störfum i þágu sveitar sinnar sem
Björn faöir hans haföi gengt um
langa hriö. 1 sýslunefnd var hann
valinn 1937 og sat þar óslitiö til
1978, i hreppsnefnd var hann i 20
ár og þar af 8sem oddviti sveitar-
innar. Viö hreppstjórastarfinu
tók Hallur af föður sinum 1956, en
þá hafði Björn gegnt þvi um
hálfrar aldarskeiö. Umboösmaö-
ur Brunabótafélags fslands var
Hallur frá 1948 og fulltrúi sveitar
sinnar á aöalfundum Búnaðar-
sambands Austurlands frá 1959
svo og á aöalfundum Kaupfélags
Héraösbúa sem fulltrúi deildar
félagsins i hreppnum. Enn er
ótalið eitt trúnaöarstarfið sem
oddvitar Fljótsdalshéraös völdu
hann til, en það var seta i sjúkra-
hússnefnd, sem sér um rekstur
sjúkrahússins á Egilsstöðum.
Það sem hér hefur verið upptal-
iö af trúnaöarstörfum sem Hallur
Björnsson var kjörinn til, má sjá i
uppsláttarbókum, en upptalning-
in sýnir betur og á órækari hátt en
meö ööru móti, hviliks trausts
hann naut hjá þeim er kynntust
honum. Þeir vissu aö einstök
samviskusemi hans leyföi honum
ekki aö niöast á neinu sem honum
var tiltrúaö. Enginn var hann
málsskrafsmaður á fundum,
málflutningur hans var hógvær
og hófstilltur en svo vel studdur
rökum að eftir var tekiö.
Persónulega kynntist ég ekki
Halli fyrr en ég kom út á Héraö i
námunda viö hann sem kennari
viö Alþýöuskólann á Eiöum, var
þaö haustiö 1930. Annan veturinn
er ég kenndi viö skólann var ég
samkennari Guögeirs Jóhanns-
sonar, sem áöur var nefndur.
Hann kom aftur aö skólanum um
eins vetrar skeiö áöur en hann
hvarf þaöan alfarinn. Eftir skóla-
slit bauö Guögeir mér meö sér er
hann fór til að heilsa upp á og
kveöja vini sina og nemendur i
Bót og á Rangá. 1 Bót voru tveir
nemendur hans þeir Eirikur og
Stefán Péturssynir, en á Rangá
var það Hallur Björnsson en hann
var elstur þeirra Rangárbræöra,
yngri voru þeir Björn og Eirikur
sem uröu skömmu siöar nemend-
ur minir.
I þessari fyrstu för minni vest-
ur yfir Lagarfljót kynntist
ég þessum tveimur höföings-
heimilum, i Bót og á Rangá, sem
hafa oröiö mér æ siöan ógleyman-
leg. t Bót var þaö skörungskonan
Sigriöur Eiriksdóttir er réöi hús-
um meö tilstyrk sona sinna er áð-
ur voru nefndir. Sigriöur i Bót var
mikil höföingskona sem stýrt
haföi heimili sinu i rúmlega
tuttugu ára ekkjudómi með mik-
illi reisn, — og á Rangá var það
héraöshöföinginn Björn Hallsson
er skipaði húsbóndasessinn og
Soffia siðari kona hans, Hall-
grimsdóttir.
Þótt ég, hinn litt þekkti Fljóts-
dælingur, nyti i fyrstu vináttu
þessa heimilis viö Guögeir, þá
varö þessi heimsókn upphaf ævi-
langrar vináttu við tvo þessara
frænda, þá Stefán i Bót og Hall á
Rangá, enda á svipuöu reki. A
báöum heimilunum voru til hljóö-
færi. Hólmfriöur móðir Halls
haföi áöur leikiö á hljóöfæri og nú
var þaö Stefán sem lært haföi til
hljóðfæraleiks og geröi þaö af
leikni og kunnáttu, og hann
kenndi siðan Birni yngra, frænda
sinum á Rangá.
Allir voru þessir frændur frá
Bót og Rangá sérlega söngelskir
og lagvisir og var þvi ekki nema
eölilegt að fljótlega yrði tekiö lag-
ið, siöar bættist svo I hópinn
frændi þeirra, Pétur Einarsson
frá Fjallsseli og Haraldur
Þórarinsson frá Skeggjastööum
mágur Halls, svo úr varö smákór.
I nokkur ár mátti það heita föst
venja aö Eiöakennarinn brygöi
sér vestur yfir Fljótiö aö aflokn-
um skóla á vorin og viö tækjum
lagiö saman ýmist á Rangá eöa i
Bót, okkur til ánægju og gleöi, og
kennaranum til sálubóta og ai-
Þriöjudagur 27. janúar 1981
slöppunar eftir erilsamt og lýj-
andi vetrarstarf og húsráöendur
tóku söngnum með örvandi gleði,
þótt nokkurt ónæöi fylgdi. Á eng-
an okkar söngfélaganna tel ég
hallaö, þótt haldiö sé fram að
Hallur á Rangá hafi veriö söng-
glaðastur okkar allra. Söngurinn
virtist honum hrein lifsnautn,
andardráttur til andlegrar vel-
liðunar. Langt fram á efri ár
sótti hann söngæfingar um langan
veg eftir að hann fór að syngja
meö karlakór Fljótsdalshéraös
sem Stefán frændi hans frá Bót
stofnaöi og stýröi eftir aö hann
var fluttur á Egilsstaði. Hallur
söng af sérstökum innileik og inn-
lifun f ljóö og lag, svo gat virst
sem draumlynd lund hans fengi
einhvers konar útrás i söngnum,
slæföi áhyggjur og deyföi sáran
harm, sem hann bar ávalt i
brjósti eftir horfna ástvini. Jafn-
vel á banasænginni rifjaöi hann
upp hve söngur okkar félaganna
forðum hefðu verið honum mikil
sálubót.
Eftir aö hafa þekkt þennan
horfna vin minn, Hall á Rangá
um nærfellt hálfrar aldar skeið
finnst mér hann hafa verið einna
trygglyndasti og hjartahreinasti
maður sem ég hefi kynnst. Vin-
átta slikra manna er mönnum
vissulega hamingjuauki og verö-
ur seint þökkuö.
Þegar ég nú viö brottför þessa
vinar mins héöan af heimi, rifja
upp minningarnar um hann og
ýmsa aöra, sem kannski hefur
meira borið á, koma mér i hug
ummæli þau sem höfö eru eftir
Gissuri Hallssyni er hann mælti
eftir vin sinn Þorlák Þórhallsson
biskup, en þau eru þessi:
„En svo mikiö traust höfum vér á
hans veröleikum aö ég uggi aö fá-
ir muni vonarmenn vera ef hann
er ei fullsæll, svo sem vér vitum
hann ólikastan veriö hafa öllum
mönnum öðrum i sinu góölifi”.
Gunnhildi og börnum þeirra
Halls vottum við hjónin innilega
samúð og biöjum guö aö blessa
okkur öllum, vinum hans, minn-
ingarnar um þennan dæmafáa
dreng.
Þórarinn Þórarinsson frá Eiöum.
Eiginmaður minn, laöir, tengdafaðir og afi
Olivert A. Thorstensen
lést i Borgarspitalanum sunnudaginn 25. janúar.
Jarðarförin verður auglýst siöar.
Katrin llildur Siguröardóttir,
Ölvir Thorstensen, Guöbjörg Grétarsdóttir,
Rikhard Thorstensen, Anny Berglind Árnadóttir,
Agúst Thorstensen, Bergþór Olivert Arnarsson,
örn Thorstensen.
Sigþór Karl Þórarinsson
hreppstjóri
Einarsnesi
sem lésthinn 23. þ.m. veröur jarösettur að Borg á Mýrum,
laugardaginn 31. janúar.
Athöfnin fer fram frá Borgarneskirkju kl. 14.
Sigriður Guömundsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
Guðný Sveinsdóttir
frá Sæbóli i Aðalvik
andaðist á Sjúkrahúsi tsaíjarðar 25. janúar.
Kveðjuathöfn á ísafirði og útför hennar i Reykjavik verð-
ur auglýst siöar.
Vandamenn.
Tapast
hefur brún hryssa 10 vetra frá Ragn-
heiðarstöðum i Flóa. Þeir sem hafa orðið
hennar varir vinsamlegast látið vita að
Ragnheiðarstöðum simi 99-6366 eða á
skrifstofu Fáks simi 30178.
Hestamannafélagið Fákur.
75 ára
Andrés Jakóbsson
Sjötíu og fimm ára er i dag
Andrés Jakobsson fyrrum bóndi I
Haga og siðar starfsmaður i
prentsm. Eddu.
Andrés er fæddur aö Haga i
Aöaldal 27. jan. 1906, sonur hjón-
anna Jakobs Þorgrimssonar og
Sesselju Jónasdóttur er þar
bjuggu. Þar ólst Andrés upp. Þau
urðu tiu systkinin i Haga og
þurftu þau snemma aö neyta
krafta sinna til forsjár heimilinu
og er þaö gömul saga.
Þegar Andrés var tvitugur féll
faðir hans frá og þegar á næsta
ári tók hann viö þeim parti
jaröarinnar er foreidrar hans
höfðu búiö á, en Jóna systir hans
haföi þá tveimur árum áöur hafiö
búskap á fjóröungi jaröarinnar
meö manni sinum Jóhannesi
Friölaugssyni kennara.
í Haga bjó Andrés i 35 ár, eöa
frá 1927, til 1962, á móti Jónu og
Jóhannesi og siðar Degi syni
þeirra eftir fráfall Jóhannesar
1955.
Lengi framan af naut Andrés
aðstoöar Sesselju móöur sinnar
viö búskapinn en Sesselja lést
voriö 1953, áttræö aö aldri.
Andrés giftist ekki. Hann var
heitbundinn Nönnu Eiriksdóttur
kennara frá Grasgeira, og var
hún ráðin aö Haga til hjúskapar
og búskapar er hún lést haustiö
1947. — Siðustu búskaparár sin i
Haga, hafði Andrés sambúðar-
konu, Sigriði Hjálmarsdóttur. Er
Andrés hætti búskap 1962, fluttust
þau Sigriöur til Reykjavíkur og
hefur sambúð þeirra varaö siöan.
Fljótlega eftir suöurkomuna fékk
Amdrés vinnu hjá Prentsmiðjunni
Eddu og þar vann hann siðan uns
hann varö að hætta störfum sök-
um heilsubrestsfyrirfáum árum.
Andrés hafði aldrei mikiö um-
leikis i búskap sinum, enda jarö-
næöið fremur litið, en hann bjó
laglega. Hann er maður vel gef-
inn og veltir ýmsu fyrir sér og
nýtur þess að lesa góöar bækur.
Hann hefur gaman af að fara með
vel orta stöku, enda sjálfur hag-
mæltur, þó hann fari dult meö. —
Þó að elli sé farin aö sækja aö
honum, vænti ég þess að hann fái
varist henni enn um stund.
Um leiö og ég óska frænda min-
um Andrési heilla og góðrar
heilsu, vil ég þakka langa og góöa
viðkynningu allt frá þvi viö hitt-
umst fyrst I leikjum og hlaupum á
Laxárbökkum og Gilsgrund, þeg-
ar veröldin var ung og ný fyrir
sextiu árum siöan.
Indriöi Indriöason
HURDA-
HLÍFAR
EIR - MESSING - STÁL
Hringiö og við sendum pöntunarseðil með teikningum
fyrirmóltöku.
BUKKVER
BLIKKVER
SELFOSSI
Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogur - Sími: 44040. Hrísmýri 2A - 802 Selfoss - Sími: 99-2040.