Tíminn - 29.01.1981, Page 3

Tíminn - 29.01.1981, Page 3
Fimmtudagur 29. janúar 1981 3 Úttekt á A-Grænlands- þorskstofninum í mars nk. AM — 1 mars nk. mun á vegum Alþjóða hafrannsóknarráðsins fara fram úttekt á þorskstofnin- um við A-Grænland, en sú vinnunefnd, sem stjórna mun rannsókninni, er undir stjórn dr. Sigfúsar Schopka fiskifræðings. Sigfús sagði er við ræddum við hann i gær að þorskstofninn við A-Grænland væri fremur lit- ill og það magn ekki mjög stór- vægilegt sem þar hefur veiðst, þótt nokkur óvissa riki um heildartölur siðustu árin. Þessi stofn hefur samt alltaf haft ein- hver áhrif á vertiðarfisk Islend- inga, þar sem samgangur er á milli islenska og grænlenska stofnsins og mögulegt að þau tengsl komi enn betur i ljós við rannsóknina. Á árunum 1965-72 var ársaflinn um 15-30 þúsund tonn á ári, en fór minnkandi eft- ir það og var aðeins nokkur þús- und tonn til 1977, en fært var út og EBE setti reglur um að Grænlendingar einir mættu stunda þar beinar þorskveiðar, þótt séð væri i gegn um fingur við aukaafla með karfaveiðum annarra þjóða. Skv. skýrslum fiskifræðinga frá Efnahags- bankalagslöndum er þó að sjá sem þarna hafi farið fram tals- vert meiri veiðar en opinberar tölur sýna eftir 1977, þannig að eftir 1977 hafi afli orðið um 20-30 þúsund tonn. Eðlilegt er að áhugi Islend- inga á þessum veiðum aukist, vegna þeirra kröfu V-Þjóðverja, sem hátt hefur borið að undan- förnu að mega stunda veiðar á þessum stofni,hver svo sem úr- slit verða. Bátakjaradeilan: Lifeyris- málin i undirnefnd AB — Fulltrúar sjómanna og út- gerðarmanna komu saman til fundarhjá sáttasemjara i gær ki. 16 eftir tæplega hálfs mánaðar hlé á viðræðum. Á fundinum var ákveðið að setja lifeyrismálið i undirnefnd, og tekin ákvörðun um að ræða aðra samningaliði á næsta fundi sem hefur verið boð- aður kl. 16 i dag. Fulltrúar starfsfólks rikisverk- smiðjanna og vinnumálanefnd rikisins funduðu einnig hjá sátta- semjara i gær til kl. 18.30. Rædd voru ýmis efnisatriði samnings- ins, önnur en bein launaflokka- röðun, en ósamið er um hana hjá vélstjórunum enn. Halldór Björnsson sagði i gærkvöldi að málin myndu sennilega skýrast talsvert i dag. Næsti fundur samningsaðila hefst nú kl. 9.30 i dag. Frumvarp á Alþingi: Starfsemi Slökkviliðs Reykjavikur árið 1980: Útköllum fækkar um 25% — enginn stórbruni varö á sl ári hækkunum JSG — Þeir Birgir Isleifur Gunnarsson og Albert Guðmundsson hafa lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á álagningu aðflutningsgjalda og söluskatts á bensin. Leggja þeir til að þessir skattar verði fram- vegis ekki reiknaðir sem hlutfall af bensinverði á hverjum tima, en verði þess i stað miðaðir við ákveðna grunntölu, og hækki sið- an i samræmi við hækkun visitölu byggingakostnaðar. Tilgangurinn með frumvarpinu er ekki að minnka skattheimtu rikisins af bensini, heldur að koma i veg fyrir að rikissjóður hagnist sérstaklega af erlendum verðhækkunum á bensini. Samtals nema opinber gjöld nú um 55,1% af útsöluverði bensins. Kás. — Við samanburð á útkalla- fjölda Slökkviliðs Revkiavíkur árin 1979 og 1980 kemur i ljós að það hefur orðið talsverð fækk- un á útköllum á sl. ári. Voru þau 474 árið 1979, en aðeins 353 á síð- asta ári. Er þetta um 25% fækkun frá árinu 1979. Fjöldi útkalla þar sem slökkvi- liðið þurfti að slökkva eld minnk- aði einnig úr 398 i 271. Ekkert meiri háttar brunatjón varð á ár- inu 1980, en þrir menn fórust i eldsvoða á árinu, á móti fjórum árið 1979. Fjöldi sjúkraflutninga var mjög svipaður árið 1980 og und- anfarin ár eða rúmlega 10 þús. Atvinnumálanefnd Suðurnesja: Atvinnuástand Ríkið hagn- ist ekki af bensín- Nýr flokkur spariskírteina ríkissjóös að fjárhæð 20 millj. nýkr.: Hver vill lána í „kassann” okkar allra? HEI — Enn einu 'sinni vantar blessaðan kassann okkar allra — rlkissjóð — góðan skammt af krónum, og nú að sjálfsögðu ný- krónum. t tilefni af þvi hefst n.k. mánudag 2. febrúar sala verð- ryggðra spariskírteina rikissjóðs i I. fl. 1981, samtals að fjárhæð 20.000.000 nýkróna. Upphæð þeirri sem þegnarnir ákveða að lána rikissjóði með þessu móti á að verja til opinberra framkvæmda á grundvelli lánsfjáráætlunar rikisstjórnarinnar fyrir yfir- standandi ár. Samkvæmt tilkynningu Seðla- bankans eru kjör skirteinanna svipuð og skirteina i 2. fl. 1980. Höfuðstóll og vextir eru verð- tryggðir miðað við lánskjaravisi- tölu 1. febr., þ.e. 215. Skirteinin eru bundin fyrstu 5 árin en siðan innleysanleg hvenær sem er næstu 17 árin, þ.e. til ársins 2003. Skirteinin eru framtalsskyld, en um skattskyldu fer eftir ákvæð- um skattalaga á hverjum tima. Samkvæmt núgildandi skattalög- um eru bæði bextir og verðbætur taldar til tekna, en eru einnig að fullu frádráttarbærar frá tekjum manna og þar með skattfrjálsar, séu þær ekki tengdar atvinnu- rekstri. Skirteinin eru nú gefin út i fjór- um verðgildum, þ.e. 500, 1.000, 5.000. og 10.000 nýkrónum. Ótvírætt samband á milli bensínverðs og notkunar — bensfnnotkun fer minnkandi eftir því sem verðið hækkar FRI — 1 nýjasta frcttabréfi Verk- fræðingafélags Islands er birt könnun yfir samband bensinverðs og bensinnotkunar hér á landi ár- in 1971 til 1979. Þar kemur fram að ótvirætt samband er þarna á milli og fer notkunin minnkandi eftir þvi sem verðið hækkar. I fréttabréfinu segir ma.a: Til að draga úr bensinnotkun hefur viða verið beitt sérstökum aðhaldsaðgerðum, svo sem skömmtun á bensini og lækkun á hámarks aksturshraða. Islensk stjórnvöld hafa ekki gripið til slikra ráða, en þrátt íyrir það hef- ur bensinnotkun farið minnkandi, sé skoðuð meðalnotkun á bil. Við leit að orsökum minnkandi bensinnotkunar hér á landi er þvi eðlilegt að kanna hvort bensin- verðið sé hér ekki megináhrifa- valdur. Athugun, sem gerð var af hreinni forvitni, leiddi i ljós að fyrir hendi er ótvirætt samband bensinverðs og bensinnotkunar. ekki eins slæmt og gefið er í skyn FRI — Atvinnumálanefnd Suð- urnesja samþykkti bókun á fundi sinum þann 26. jan. sl. þar sem kemur m.a. fram, að at- vinnuástand á Suðurnesjum sé ekki jafn slæmt og gefið hefur verið I skyn. Bókunin er svohljóðandi: Undanfarið hefur komið fram i fjölmiðlum að atvinnuástand á Suðurnesjum sé mjög slæmt og jafnvelgefið i skyn, að fólk flytji burt af svæðinu i stórum stil, vegna atvinnuleysis. Af þessu tilefni upplýsa full- trúar i nefndinni, að 23. janúar 1981 voru 49 manns á atvinnu- leysisskrá i Keflavik, en það er færra en var fyrir viku og allar likur á þvi, að þegar vertið verður komin i fullan gang, verði ekki um atvinnuleysi að ræða. Á skrá i Njarðvik eru 9, Garði 2, Vogum 4, en enginn i Grindavik, Sandgerði og Höfn- um. Margir af þeim sem eru á skrá eru vörubifreiðastjórar. Bensínnotkun og bens£nver6 árin 1971 1979. Ar Framfærslu- vísitala 1. jan.'59= 100 (Ársmeðaltal Bensínnotkun samtals Millj. lítra Bensínnotkun á^bíl og ár. lítrar CMeðaltal) Bensínverð Nýkr./)íter (Ársmeðaltal) Bensínverð verðlag ^1978 Nýkr./)íter (Ársmeðaltal) Bensínkostnaöur á bíl og ár._ verðlag 1978 Nýkr. 1971 334,9 77,5 1 756 0.160 1.14 2 002 1972 369,5 84,9 1. 745 0.160 1,03 1 797 1973 451,5 95,1 1.757 0.214 1,13 1 985 1974 645,7 104,4 1 736 0.363 1,34 2 326 1975 961,9 103,6 1,623 0.565 1,40 2 272 1976 1.271,3 104,5 1 616 0.696 1,31 2.117 1977 1.658,5 114,4 1 685 0.846 1,22 2^ 0 56 1978 2.389,5 121,5 1 670 1.369 1,37 2 288 1979 3.475,7 119,3 1 520 2.733 1,88 2.858 A þessari töflu sjást þau tölfræðilegu frumgögn sem komu viö sögu könnunarinnar. Samanburður á milli ára er gerður á grunvelli visitölu framfærslukostnaðar (1. jan. 1959-100) og verðlagi ársins 1978. Reiknað er i n.kr.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.