Tíminn - 29.01.1981, Blaðsíða 11
IÞROTTIR
15
Fimmtudagur 29. janúar 1981
IÞROTTIR
Áhugaleysi í fyrirrúmi í leik
íslenska landsliðsins *
töpuðu í*gærkvöldi fyrir
Frökkum 21:22 i landsleik
í handknattleik
Stefán Halldúrsson sést hér á
myndinni hafa snúið á vörn
Frakka og skorað. Islending-
ar töpuðu samt viðureigninni
gegn Frökkum og hafa i
iangan tima ekki leikið eins
léiega og í gærkvöldi.
Timamynd Rébert.
Hugi hefur
verið meiddur
„Þetta voru mistök á
mistök ofan, við lékum
langt undir getu. Ég veit
ekki skýringuna á
þessu.
Það var engin
stemmning, hvorki i
vörn né sókn. Sóknin var
mjög gilióppótt. Við átt-
um fullt af tækifærum
sem við nýttum ekki”,
sagði Axel Axelsson,
fyrirliði íslenska lands-
liðsins i handknattleik.
tsland tapaði i gærkvöldi fyrir
Frökkum með einu marki, 21:22,
eftir að landinn hafði haft yfir
12:10 i hálfleik.
island lék einn sinn lélegasta
leik i langan tima. Það virtist eins
og enginn maður i liðinu hefði
áhuga á þvi sem hann var að
gera. 1 fyrsta skipti i langan tima
fengu leikmennirnir að leika svo-
kallaðan frjálsan handknattleik,
voru ekki bundnir i leikkerfi, en
það virtist ekki skipta máli, ráð-
leysið var algjört.
Leikurinn var mjög jafn i byrj-
un, en um miðjan fyrri hálfleik
komust Islendingar tveimur
mörkum yfir. Það var sist þeim
að þakka, heldur miklu fremur
lélegum kafla hjá Frökkum.
Fljótlega i siðari hálfleik kom
að hruni islenska liðsins. Er 6
min. voru liðnar af hálfleiknum
var staðan 15:13, en þá kom enn
verri kafli á slæma kafla. Island
skoraði ekki mark i 10 min. og
staðan breyttist úr 15:13 i 15:17
fyrir Frakka.
Bjarni minnkaði muninn i eitt
mark en Frakkar svara strax
með öðru marki og staðan 18:17.
Þá lét Axel verja frá sér viti og
Frakkar fengu gullið tækifæri á
að komast þremur mörkum yfir
en tókst ekki.
Brynjar minnkar muninn i eitt
mark og Þorbergur jafnar 18:18
og 7 min. til leiksloka.
Siðan ná Frakkar tveggja
marka forskoti og orðið útséð um
hveryrðu úrslitin. Bjarni skoraði
siðan siðasta markið nokkrum
sekúndum fyrir leikslok.
Allir leikmenn islenska liðsins
léku undir getu, markverðirnir,
þeir Kristján og Einar, vörðu
varla bolta. Aðeins eitt skot var
varið i fyrri hálfleik.
Það er ekkert vafamál, að á
góðum degi getur islenska liðið
unnið Frakka, en spurningin er
hvort og hvenær þessi góði öagur
muni koma. Eftir B-keppnina?
Þjálfari Frakka var að vonum
ánægður meðsigur sinna manna i
leiknum og sagði: „Það er alltaf
gaman að sigra og þá sérstaklega
hér á Islandi. Ég bjóst nú ekki við
sigri þar sem liðið hefur verið á
erfiöri æfingaferð i Búlgariu
undanfarið.
Ég veit að islenska liðið getur
leikið betur en það gerði i kvöld
og þeir eru betri en við, en ég
vona að við komumst upp að hlið
þeirra i B-keppninni i Frakk-
landi”.
Flest mörk Islands gerðu
Bjarni og Sigurður, 5 hvor, Sig-
urður öll úr vitum.
Hjá Frökkum var Geoffrey
markhæstur með 6 mörk og var
hann jafnframt besti maður liðs-
ins. röp—.
leður æfingaskór
Verð kr. 289.00
Póstsendum
Sportvöruvers/un
INGÓLFS ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 44, Sími 11783
• snéri sig á fæti
Hugi Harðarson sundkappinn
snjalli frá Selfossi hefur um
nokkurra mánaða skeið dvalið i
Sviþjóð með fjölskyldu sinni og
æft sund af kappi.
Faðir hans Hörður Óskarsson
fyrrum formaður Sundsambands
Islands starfar þar ytra sem
iþróttakennari við iþróttaskóla.
Hugi var kominn i mjög gott
form og hafði æft af kappi en þá
varð smá óhapp, eða eins og faðir
hans segir: „Hann álpaðist á
handboltaæfingu og sneri á sér
löppina”.
Hugi hefur þvi undanfarnar
vikur haldið sig f jarri lauginni, en
er nú á batavegi og býst við að
geta byrjað að æfa um mánaða-
mótin. röp-. Hugi Harðarson.
pumn
Hinlr heimsfrægu
Vlado Stenzel
Sundknattleiksmenn
fara að bleyta i sér
• Reykjavíkurmótiö hefst í næstu viku
Mikil rólegheit hafa
verið i sundknattleikn-
um undanfarið, ekkert
mót hefur verið haldið
siðan i vor, er íslands-
mótið fór fram i Laug-
ardalslauginni.
Nú stendur til að
halda Reykjavikurmót-
ið og mun það hefjast 3.
febrúar með leik Ægis
og KR, 11. febrúar leika
siðan KR og Ármann og
fyrri umferðinni lýkur
siðan 16. febrúar með
leik Ægis og Ármanns.
Aðeins þrjú lið taka þátt i mót-
inu, Armann, Ægir og KR, eitt
sundfélag enn hefur þó haft sund-
knattleik á dagskrá hjá sér, Sund-
félag Hafnarfjarðar og hafa þeir
áttkost á þvi að taka þátt i mótinu
sem gestir, en ekki verður að þvi
að þessu sinni.
Hafnfirðingar hafa misst frá
sér aðaldriffjöður sina i sund-
knattleiknum, ólaf Gunnlaugs-
son. Hann hefur gengið aftur i
raðir KR-inga, en með þeim lék
hann áður en hann gekk til liðs við
SH.
Tveir Egyptar, sem búsettir
eru hér á landi, þjálfa og leika
sundknattleik með KR og Ar-
manni. Þetta eru bræður og hafa
þeir báðir leikið sundknattleik i
Egyptalandiog annar þeirra sem
þjálfar og leikúr með Armanni,
hefur leikið með egypska lands-
liðinu.
Allir leikirnir i Reykjavikur-
mótinu munu fara fram i Sund-
höll Reykjavikur og hefjast kl. 21.
Núverandi Reykjavikurmeist-
arar eru Ármenningar en þeir
urðu einnig tslandsmeistarar sl.
sumar.
rop—.
Það er mikill buslugangur þegar kappleikir fara fram I sundknattleik, menn koma klóraðir og jafnvei
skýlulausir upp úr lauginni og dómurum hent út ilaug. Hér er iþróttagrein, sem vert er aö fylgjast með.