Tíminn - 05.02.1981, Qupperneq 1

Tíminn - 05.02.1981, Qupperneq 1
Tónleikar Fjórðu áskriftartónleikar Tón- listarfélags Akureyrar verða i Borgarbiói laugardaginn 7. febrúar kl. 17.00. Pianóleikarinn Martin Ber- kofsky leikur fimm sónötur eftir Beethoven, þar á meðal Tungl- skinssónötuna svonefndu. Þetta eru fjórðu tónleikar listamanns- ins á Akureyri, en auk þess leikur hann á Sauðárkróki sunnudaginn 8. febrúar kl. 16.00 Berkofsky er nú búsettur i Paris og hefur hald- ið marga tónleika undanfarið, bæði i Vinarborg, Búdapest, i Englandi og viðar. S.l. haust lék hann konsert fyrir tvö pianó og hljómsveit eftir Max Bruch ásamt önnu Málfriði Sigurðar- dóttur i Trier i Þýskalandi. Marg- ir sjónvarpsáhorfendur muna sjálfsagt eftir þætti um Ber- kofsky, sem islenska sjónvarpið lét gera og var sýndur i desem- berbyrjun s.l. Martin Berkofsky kemur hing- að á vegum Tónlistarskóla Akur- eyrar og heldur námskeið fyrir pianónemendur og kennara skól- ans dagana 9.-14 febrúar. Á Akureyri verður sala að- göngumiða i Bókabúðinni Huld og við innganginn. Fréttatilkynning. Sænskur vísnasöngv- ari syngur á Akureyri Hinn viðkunni sænski visna- söngvari, Thorstein Bergman kemur til Akureyrar og heldur tónleika i Amtsbókasafninu mánudaginn 9. febrúar, og hefj- ast tónleikarnir kl. 20.30. Thorstein Bergman hefur um árabil notið mikilla vinsælda, jafnt sem flytjanda eigin ljóða og laga, og einnig ljóða eftir skáldin Dan Anderson, Nils Ferlin, svo einhverjir séu nefndir. Thorstein Bergman fæddist i Harnösand, smábæ norðarlega i Sviþjóð, árið 1942. Hann lærði ungur að handleika gitar, og fékk snemma áhuga á kvæðasöng. Árið 1965 kom hann fram i sjón- varpsþætti hjá hinum vinsæla sjónvarpsmanni Lennart Hyland, og tókst svo vel upp að fljótlega var gefin út hljómplata með hon- um, sem hafnaði strax ofarlega á sænska vinsældalistanum. Frá þeim tima starfar Thorstein sem visnasöngvari, og hafa hljómplöt- ur hans selst i tugum þúsunda eintaka i heimalandi hans og viðar. Til landsins kemur Thorstein Bergman á vegum Norræna húss- ins og Menningar- og fræðslu- sambands alþýðu, en tónleikarnir á Akureyri eru haldnir i sam- vinnu milli Tónlistarfélagsins á Akureyri og Menningar- og fræðslusambandsins. Aðgöngumiðasala fer fram við innganginn i Amtsbókasafninu, og hefst salan 1 klst. fyrir tón- leika. BYGGÐA-TÍMINN Fimmtudagur 5. febrúar 1981 t I Fjöldi þroskaheftra á landinu ókunnur, en... j Gæti verið á annað ■prósent þjóðarinnar UU h^nrlrnkiXln nn (Xlnrfr. - A. 1 X « n nn ,'n. , m i m l/onn in Cfll Q í\ f O Q KKm KoCC oA UlYt ó Ct fZlt Í Koi tT9 <xri 1 HV — „Þroskahjálp er félags- skapur, sem hefur það að mark- miði, eins og segir I lögum þess, að berjast fyrir réttindum og vinna að málefnum þroska- heftra i landinu. Tryggja þeim fulla jafnréttisstöðu á við aðra þjóðfélagsþegna. Segja má að þetta sé megininntakið, en jafn- framt segir i lögunum, að þvi beri félaginu að koma fram sem leiðandi aðiii gagnvart stjórn- vöidum, og það má segja að þar höfum við lagt mesta áherslu á starfið til þessa, það er að hafa áhrif á iöggjöf. Stærsta baráttu- málið hefur frá upphafi verið það að sett yrði heildarlöggjöf um málefni þroskaheftra i land- inu”, sagði Eggert Jóhannes- son, formaður stjórnar Lands- samtakanna Þroskahjálpar, þegar Byggða-Timinn for- vitnaðist hjá honum um sam- tökin og störf þeirra úti á lands- byggðinni. „Þessi löggjöf náöist I gegn á siöasta ári”, sagði Eggert enn- fremur, „sem auðvitað var mikill sigur fyrir samtökin. Við erum mjög ánægö með þá lög- gjöf, þótt auðvitað þurfi sifellt að huga að endurnýjun þar á. I þessari nýju löggjöf eru ákaflega merk nýmæli, þar sem kveðið er á um stofnun svo- nefndra svæðisstjórna. Landinu verður skipt samkvæmt kjör- dæmaskiptingunni og á hverju svæði á aö vera starfandi st jórn heimamanna, sem faliö er ákveðiö frumkvæði og eftirlit. Þar er félagasamtökunum tryggö aðild, þannig aö þaö er mjög nauðsynlegt að það sé öflug starfsemi áhugamanna á hverju svæði fyrir sig. 1% þjóðarinnar? Það hefur vafist ofurlitiö fyrir fólki hverjir séu þroskaheftir og hverjir ekki. Þar af leiðandi einnig fyrir hverja Þroskahjálp starfaði. í þessum nýju lögum er reynt aö skýra þetta og ef ég man rétt segir þar, að þroska- heftur sé hver sá sem ekki geti án sérstakrar aöstoðar náð eðli- legum andlegum eða likamleg- um þroska. Okkar skjólstæðing- ar hafa til þessa orðið lang-mest þeir sem daglega eru nefndir vangefnir, það er þeir sem eru andlega fatlaðir. Það er vegna þess aö þeir sem eru likamlega fatlaðir, en andlega heilir, hafa haft sinn eigin félagsskap. Við skulum þó fara ákaflega varlega I að draga skýr mörk þarna á milli. Meðal annars vegna þess að viða úti á landi eru svo fáir einstaklingar, að þar er ekki möguleiki á að reka nema eitt félag. Fólk veröur að standa saman I einum hóp. Areiöanlegar tölur um fjölda þroskaheftra I landinu eru ekki til. Þó má gera ráð fyrir aö þeir séu eitthvað á þriðja þúsund, eða um eitt prósent þjóðarinnar. Þetta er þó nánast ágiskun. Þarna er einmitt eitt af hlut- verkum svæöisstjórnanna, að framkvæma nákvæma könnun á þessu og þvi ættu áreiðanlegar tölur aö liggja fyrir innan skamms. Sérkennslan veik Þótt framangreind löggjöf sé oröin staðreynd á pappirunum, er þó mikið starf eftir. Bæði þarf að framfylgja þvi að þau verði virk i raun, svo og að aðlaga hana þeim aðstæðum sem rikja á hverjum stað á hverjum tlma. Jafnframt þarf aö starfa að öðr- Eggert Jóhannesson um þáttum löggjafar og fylgja eftir ýmiss konar réttindamál- um. Eitt af þvi sem f að vinna að, eru málefni sérkennslunnar og þá innan ramma grunnskóla- laganna. Staða hennar er I dag ákaflega veik, I það minnsta viða úti á landsbyggðinni. Það hefur veriö ákaflega sterk til- hneiging hjá stjórnvöldum I menntamálum, að setja alla hluti niður I stórar stofnanir og hiö sama hefur gilt um sér- kennslumál. Þannig er aöeins einn stenst skóli á landinu ekki gagnvart i dag, neinni kenningu, að taka börn frá heimilum sinum og setja þau niður i stórar stofnanir I fram- andi umhverfi. Það rýfur öll tengsl við fjölskylduna og um- hverfið. Sérstaklega er þetta öskjuhliöarskóli I Reykjavik, þess, að um ágæti þeirra eru ákaflega skiptar skoðanir. Jafn- framt eru menn ekki á eitt sáttir um það hvers konar stofnanir á að byggja upp. Það er ljóst að nauðsyn er á rekstri einhvers konar stofnana. Ég hef sjálfur trú á þvi og það virðist ætla aö verða rikjandi stefna, að við eil- um að byggja miklu smærri ein- ingar en gert hefur veriö. Þaö er einingar, sem væru munnær þvi aö vera heimili, þar sem dveld- ust nokkrir einstaklingar, undir misjafnlega miklu eftirliti, eftir þörfum hvers og eins. Stofnanir af þessu tagi eru komnar upp, bæði á Akureyri og i Reykjavlk, og hafa gefist mjög vel. Athvarf i Reykjavik Ef viö vikjum loks að einstiSc- um framkvæmdum, þá má þar nefna aðstöðu þá sem komið hefur verið upp I Reykjavik, fyrir fólk utan af landi. Það sýndi sig aö nauösynlegt væri að skapa einhverja aðstöðu á höfuðborgarsvæðinu fyrir það fólk utan af landsbyggðinni, sem þarf aö leita sérfræðiað- stoðar i Reykjavlk. Þess vegna komum við á fót nú i haust gilstiheimili I Kópavogi. Þar getur fólk utan af landi dvalist meðan það er með aðstandend- ur sina i meðferð. Þessi stofnun er rekin með daggjöldum frá rikinu og hefur reynst mjög vel. Staðreyndin er sú, að þótt við litum algerlega fram hjá þeim kostnaði sem fylgir hótelvist i Reykjavik fyrir þessa aöila, þá er slik dvöl ákaf- lega erfiö. Þeim mun erfiöari sem fötlunin er meiri, en alltaf erfitt. 1 mörgum tilvikum er jafnvel allsendis ómögulegt aö dveljast þannig i einu herbergi, eldhússlaus og allslaus, með þroskahefta einstaklinga, sem þurfa mikla umönnun. sem sinnir þessu verkefni aö Orlofsheiltlili einhverju marki. Þó er þetta til á Akureyri lika. Þetta er staða sem veröur að breytast og hlýtur raunar að gera það innan skamms. Það varasamt meö þroskaheft börn, þvi þau eru viökvæmari en aörir einstaklingar og erfiðara aö út- skýra breytingar fyrir þeim. Þessu máli verður aö taka á fljótt, raunar strax á þessu ári. Mér þykir þaö einsýnt, að þessum kennslumálum verði að koma fyrir innan grunnskól- anna. Frændþjóö okkar Danir eru þegar búnir aö koma sinum málum I það horf, og nú eru allir þroskaheftir þar I venjulegum skólum, en njóta sérkennslu, ut- an erfiðustu tilfellin. Þessa leið hljótum við einnig að vel ja, eftir þvi sem kostur er. Ei nhvers konar stofnanir Þegar minnst er á stofnanir fyrir þroskahefta, ber að geta önnur framkvæmd, sem framundan er og við höfum mikinn hug á, er aö koma upp sumardvalarheimili fyrir þroskahefta. Þá bæði þroska- hefta sem kæmu frá stofnunum, svo og og ekki siður einstaklinga frá einkaheimilum. Okkur hefur dreymt um aö geta, I tengslum við þetta, skipulagt sumarbúðasvæði, þar sem einstök félög gætu reist or- lofshús hvert fyrirsig. Þar gæti opnast möguleiki fyrir foreldra, sem eru með þroskaheft börn á sinu framfæri, til þess aö koma þeim fyrir til skammtimadval- ar i öruggri gæslu. 1 mörgum tilvikum hefur þetta fólk ekki komist i sumarleyfi árum sam- an, en þarna myndi opriast leið tíl þess. Þarna gæti haldiö áfram órofin sú þjálfun sem þroskahefti einstaklingurinn þyrfti, þannig aö hann missti ekki neitt niöur. Jafnframt þvi að þetta væri tilbreyting fyrir alla aðila. Þessi mál eru komin mun lengra á hinum Noröurlöndun- um. Hjá okkur eru þau ekki komin lengra en svo, aö við höf- um ekki einu sinni fengiö vist land undir starfsemina enn.” Fréttatilkynning.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.