Tíminn - 29.04.1981, Blaðsíða 11

Tíminn - 29.04.1981, Blaðsíða 11
Miövikudagur 29. aprll 1981 19 ÍÞRÓTTIR I Vaxandí notkun örvandi og róandi lyfja í íþróttumj HG — Notkun örvandi og róandi lyíja i iþrótt- um hefur aukist það vérulega á undanförn- um árum, að íþrótta- samband Islands hefur nu skipað nefnd til að endurskipuleggja og herða reglur um notk- un lyfja i Iþróttum. Þetta kom fram i máli Alfreðs Þorstéinssónar á fundi sem framá- menn ISÍ héldu með fréttamönnum i gær. Þaö er gert aö skilyröi i mörg- um greinum iþrótta aö lyfja- prófanir fari fram fyrir keppni, og eru dæmi bess aö keppendur Ný hert íslensk lög hafi veriö sviptir metum og verölaunum löngu eftir aö keppni er lokiö ef uppvist hefur veriö aö þeir hafi neytt örvandi lyfja. Viöurlög viö notkun lyfja i Iþróttum eru mjög hörö og er til dæmis eins og hálfs árs keppnis- bann viö fyrsta broti, en hægt er aö sækja um náöun eftir eitt ár. Veröi keppandi staöinn aö verki i annaö sícipti fær hann þriggja ára keppnisbann. Astæöa þess aö veriö er aö heröa eftirlit I þessu sambandi hérlendis er ekki eingöngu sú aö fylgjast betur meö islensku iþróttafólki, heldur til þess aö geta haft gott eftirlit meö þeim erlendu keppendum sem hingaö koma til keppni á alþjóölegum mótum. Fyrsta lyfjaprófunin sem hér var framkvæmd var áriö 1973, en islenskur iþrótta- maöur hefur aldrei til þessa veriö tekinn fyrir notkun örv- andi lyfja. Iþróttasamband Is- lands hefur gert samning viö Huddinge sjúkrahúsiö I Stokk- hólmi um rannsókn þeirra sýna sem tekin eru á þess vegum. Til dæmis voru teknar fimmtán lyfjaprufur hér á Noröurlanda- móti unglinga I lyftingum siöast liöiö haust. Þess má geta aö iþróttasambönd hinna Noröur- landanna hafa einnig gert samninga viö Huddinge sjúkra- húsiö um úrskurö lyfjasýna frá þeim. Badminton skal það heita — en ekki hnit HG — Badmintonfólk er mjög mótfalliö þvi aö oröiö hnit sé notaö i staðinn fyrir badminton. Þaö er I rauninni enginn fótur fyrir þvi aö kalla þessa iþrótt hnit, þvi þegar þetta var boriö undir atkvæöi á sinum tlma féll sú tillaga á jöfnum atkvæöum 1:1 en tiu sátu hjá. Þaö var fyrir tilstuölan Akureyringa aö tillaga um þessa nafnabreytingu var borin upp á sinum tima, og báru þeir aöallega fyrir sig aö oröiö badminton væri er- lent nafn og ekki nema sjálf- sagt aö finna islenskt heiti á þessari skemmtilegu iþrótt. En badminton er þetta kall- aö um allan heim og er Iþróttin nefnd eftir fyrstu borginni sem þaö var leikiö i, en þaö var borgin Badminton á Indlandi._____ fh! Evrópukeppni Leikið var áfram i gærkvöldi um réttinn til aö taka þátt i Evrópukeppni i handknatt- leik á komandi vetri og má segja að FH hafi gulltryggt sér rétt til að leika fyrir is- iands hönd i þeirri keppni, er þeir sigruðu Viking örugg- lega 25:18 og KR og Haukar skildu jafnir i sömu keppni 19:19. HG — I maimánuði fer fram norræn lands- keppni fatlaðra i trimmi með þátttöku sex Norðurlandaþjóða. Markmið keppninnar er að fá fatlað fólk til þátt- töku I iþróttum. Þátttökuþjóðirnar eru auk Is- lendinga, Danir, Sviar, Finnar, Norðmenn og Færeyingar. Keppnisgreinar eru sex, ganga, sund, skokk, hjólreiðar, kajak- róður og hjólastólaakstur. Hver keppandi má aðeins keppa i einni grein hvern dág, og fær hann eitt stig fyrir að ljúka hverri grein. Þar sem fólksfjöldi Norðurland- anna er mjög mismunandi eru Islendingar 36, Norðmenn tvö og Danir 1,6 o.s.frv. Ákveðið var að þátttakendur yrðu hálfa klukku- stund með hverja æfingu með þvi að taka sér nauðsynlegar hvildir inn á milli. Alltfatlað fólk á rétt til þátttöku i keppninni og gildir einu hvort maðurinn er fatlaður i skamman tima eða ekki. Til dæmis telst handleggsbrot- inn maður til fatlaðra þann tima sem hann er frá vegna veikinda sinna. Erfitt getur verið að skil- greina hver sé fatlaður og hver ekki. Þannig eru heyrnarlausir og blindir, þroskaheftir og gigtveikir gjaldgengir i þessa keppni svo að eitthvaðsénefnt. Fatlaður maður sem er I hjólastól og getur ekki ekið sjálfur má hafa með sér að- stoðarmann og fá þá báðir stig i keppninni. Keppni þessari var komið á fót af samtökum iþróttasambanda á ■Nórðurlöndum. íþróttasamband fatlaðra hefur veg og vanda af þessari keppni fyrir Islands hönd, og hafa þeir ráðið til sin Sigurö R. Guðmundsson skólastjóra til að sjá um framkvæmd keppninnar. Allar nánari upplýsingar um keppnina er að fá hjá Sigurði Magnússyni formanni iþrótta- sambands fatlaðra. íþróttasam- band fatlaðra hvetur alla sem geta stuðlað að sigri islands i keppninni, eða geta auðveldað fötluðum þátttöku i keppninni að leggjast á eitt um aö gera hlut Is- lands sem mestan i þessari keppni. Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að auka áhuga fatlaðra eins og unnt er á ibróttum. Dómarinn hjálpaði Vík- ingum með aukastigið — þegar þeir unnu Ármann 3:0 í Reykjavíkurmótinu HG — Víkingur hlaut aukastig annað liða í Reyk javíkurmótin u í knattspyrnu í gærkvöldi með því að sigra Ármann 3:0. Það voru þó Ármenn- ingar sem voru öllu at- kvæðameiri í byrjun leiks- ins og strax á annarri minútu áttu þeir skot sem Diðrik markvörður Víkinga varði/ en frá hon- um fór boltinn upp í þver- slá og út. A sautjándu minútu spiluðu Ar- menningar sig nokkuö laglega i gegnum vörn Vikings og áttu þrumuskot sem hafnaöi i innan- veröri stönginni og út. A 43. minútu kemst einn Vikingur inn fyrir vörn Armanns og var brugöið, vitaspyrna var þvi dæmdá Armenninga og kom það i hlut Helga Helgasonar aö fram- kvæma hana. Markvörður Ár- manns Sigurður Hannesson gerði sér litið fyrir og varði skot Helga en hélt ekki knettinum sem barst fyrirfætur Helga á ný en Sigurður varði öðru sinni, Jóhannes Þor- björnsson kom nú til hjálpar Helga og lyfti knettinum yfir markvörð Armanns þar sem hann lá á jörðinni 1:0. Staðan i leikhléi var þvi 1:0 fyrir Viking. Siöari hálfleikur var frekar tiðindalitill framan af, og skiptust liðin á að sækja. A tuttugustu minútu sleppir dómarinn svo augljósri vitaspyrnu á Viking, brot sem hver og einn hinna tutt- ugu áhorfenda sá greinilega. En það voruþvi miður ekki hans einu leiðinlegu mistök i leiknum. Á 24. minUtu er brotið nokkuö gróflega á einum Armenninganna á miöj- um leikvellinum en ekkert er dæmt, Vikingar bruna upp völlinn og Lárus Guðmundsson fær knöttinn fyrir innan vörn Ar- manns og skoraði örugglega 2:0. Sterkan rangstööufnyk lagði af þessu marki en dómarinn var á Framhald á bls. 23 Norðurlandameistaramót í fimleikum kvenna: íslenskar með HG — Norðurlanda- meistaramót I fimleik- íim kvenna fer fram i Finnlandi dagana 2. og 3. mai og verða islensk- ar stúlkur nú meðal þátttakenda I fyrsta sinn. Þaö eru átta stúlkur frá tveimur félögum sem sendar veröa.fimm þeirra munu keppa og hinar þrjár eru til vara. Bæöi veröur keppt I flokkakeppni og einstaklingskeppni. Þaö eru merk timamót fyrir fimleika- fólk aö senda nú keppendur 1511- um flokkum til keppni. Dagana 15. og 16. mai fer svo fram Norðurlandameistaramót pilta i fimleikum einnig I Finn- landi. Þrir piltar verða fulltrúar íslands I þeirri keppni, og má meöal annarra minnast á Jónas Tryggvason sem kemur beint frá Moskvu til keppninnar en þar stundar hann bæöi æfingar og nám. Laugardaginn 2. mai fer svo fram vormót Fimleikasam- bandsins á Akureyri. Keppt veröur i sex áhaldagreinum stúlkna, en i þeirri keppni verö- ur engin aldursflokkaskipting, og ætti þaö aö geta gert keppni ennþá skemmtilegri. Hjá drengjum veröur keppt á fjór- um áhöldum i staö sex. Mót þetta er fyrst og fremst hugsaö sem kynningarmót á iþróttinni og til aö auka áhuga iseöal hinna yngri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.