Tíminn - 29.04.1981, Blaðsíða 16

Tíminn - 29.04.1981, Blaðsíða 16
VARAHLUTIR Sendum um land allt Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Sfmi <91) 7 - 75 - 51, <91) 7 - 80 - 30. HÉDD HF. Skemmuvegi 20 HEDD HF. Mikiö úrval Opid virka daga 9-19 * Laugar- daga 10-16 -Kópavogi. Gagnkvæmt tryggingafélag Nútíma búskapur þarfnast BAUER haugsugu Guðbjörn Guðjónsson heildverslun, Kornagarði 5 Simi 85677 Vonandi er nú sá árstimi kom- inn, þegar byggingaverkamenn þurfa ekki lengur að kappklæð- ast við störf sin, en eins og allir vita getur það verið ansi napurt að vinna við byggingastörí á vetrum. Flin er þó sú flik, sem allir byggingaverkameun þurfa stöðugt aö bcra, eða ætti maöur frekar að segja höfuöfat? l>að er öryggisbjálmurinn góði, sem bjargaö hefur lifi og heilsu margs byggingaverkamanns- ins, siöan menn fóru að gera sér grein fyrir mikilvægi hans. Tímamynd — Róbert. HAGKAUPI SAMKEPPNI VIÐ JÓN LOFTSSON? — Vilja opna stórmarkað í skemmu Hafskips vestur á Granda Kás — A fundi borgarráðs i gær var lagt fram erindi frá Hag- kaup, þar sem segir að fyrir- tækið hafi hug á að kaupa skemmu sem er i eigu Hafskips vestur á Eiðsgranda, til að setja þar upp stórmarkað, og er spurt um afstööu borgaryfirvalda til þeirrar hugmyndar. Borgarráð samþykkti að visa erindinu til borgarverkfræðings til umsagnar, en samkvæmt skipulagi er gert ráð fyrir að taka það svæði sem skemman stendur á undir ibúðabyggð, fyrr en seinna. Skemma Hafskips á Eiðs- granda er örstutt frá stórmark- aði sem Jón Loftsson hefur ný- lega komið upp i húsnæði fyrir- tækisins á mótum Hringbrautar og Eiðsgranda. Það er þvi ljóst að Hagkaup stefnir að öflugri samkeppni við Jón Loftsson, nái hugmyndir þess fram að ganga, enda að risa upp fjölmennt ibúðahverfi á Eiðsgranda, Sameiginleg nýting Norömanna og íslend- inga á landgrunni við Jan Mayen: Hefur fengið frekar jákvæð- ar undirtektir að sögn Olafs Jóhannessonar, utanrikisráðherra HEI — ,,Það liggja fyrir hug- myndir um sameiginlega nýtingu Norðmanna og tslendinga á land- grunninu milli tslands og Jan Mayen, sem verið hafa til kynningar i rikisstjórninni, hjá flokkunum og i utnarikismála- nefnd. Ég get þó ekkert sagt um niðurstöðu að svo komnu máli, þar sem ég hef ekki fengið nægi- lega skýr svör ennþá frá þessum aðilum”, sagði Ólafur Jóhannes- son, utanrikisráðherra i gær. Að visu mætti segja, að þessar hug- myndir hafi fengið heldur já- kvæðar undirtektir. Þessar hugmyndir fjalla um 45 þús. ferkilómetra svæði — um 33 þús. i norskri lögsögu og 12 þús. i islenskri — þar sem helst eru taldar likur á að olia kunni að finnast i setlögum. Gengið er út frá að opinberir aðilar i Noregi mum sjá um oliuleitina á sinn kostnað. En finnist hún verði tekjum skipt þannig, að oliufyrir- tæki fái 50% en hvor þjóðanna siðan 25% teknanna. Þetta mun talið eina svæðið þar sem likur eru á að olia kunni að finnast. Ólafur sagði þarna aðeins um hugmyndir að ræða en endanleg- ar tillögurnefndarinnar liggi ekki fyrir. I nefndinni eiga sæti Elliot Richardson formaður bandarisku sendinefndarinnar á hafréttar- ráðstefnu SÞ, Hans G. Andersen, sendiherra og form. islensku sendinefndarinnar og Jens Ever- sen, hafréttarráðunautur norsku stjórnarinnar. Ólafur sagðist bú- ast viö þvi að endanlegum tillög- um verði skilað i fyrrihluta maimánaðar. Og gert sé ráð fyrir að Elliot Richardson komi hingað til lands 18. mai n.k. og fari siðan til Noregs. Helgi Ólafsson varð íslandsmeistari i gærkvöldi: „Þetta gat endað hvernig sem er” AB — Helgi Ólafsson varð is- landsmeistari i skák i gær- kveldi, en þá kl. 19 átti hann aö tefla biðskák sina við Asgeir Þ. Arnason. Ekki varð þó af tafli i þaö skiptið þvi Asgeir gaf skák- ina án þess að tefla. llelgi hlaut þvi 8 vinninga og i öðru sæti varð Elvar Guðmundsson með 7.5 vinninga. Timinn náði tali af hinum ný- bakaða Islandsmeistara i gær- kveldi og spurði hann hverju hann þakkaði þennan árangur sinn. ,,Ég þakka hann engu. Þetta hefði getað endað hvernig sem er. Ég tefldi ef til vill af meiri varkárni en aðrir, og uppskar þá samkvæmt þvi. Sigurinn gat i raun og veru lent hjá nokkrum okkar sem vorum i efstu sætun- um.” Helgi var að þvi spurður hvort einhver skákanna frá þessu skákþingi væri honum sérsták- lega minnistæð. „Nei, ekki get ég sagt það. Það var engin skák sem skar sig úr og ég held að allar minar skákir hafi verið mjög leiðinlegar.” Aðspurður sagðist Helgi ekki vera farinn að gera nein plön um það hvort hann tæki þátt i skákmótum nú á næstunni, né hvaða mót þar kæmu til greina. ----------------------► Helgi var þegar búinn að sjá vinningsleið I biðskákinni sem Asgeir gaf i gærkveldi. Timamynd — Róbert

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.