Tíminn - 27.05.1981, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 27. mai, 1081
©ímtnm
'5
fréttir
Alvarlegt ástand á leiguíbúðamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu:
NÆR EIH ÞÚSIIND LEIGUUM-
SÓKNIR HM FELAGSMALARAÐI
B„Astandið á leiguibúða-
markaðnum hefur verið afskap-
lega erfitt i vetur”, sagði Gunnar
Þorláksson, hjá Félagsmálaráði
borgarinnar.
Hjá Félagsmálaráði liggja nú
töluvert á fjórða hundrað um-
sóknir um ibúðir frá fólki undir 67
ára. Þar við bætast um 500 um-
sóknir einstaklinga og um 100
umsóknir hjóna eldri en 67 ára.
Astæður hins mikla vanda nú
telur Gunnar frekar þær að
óvenjulega litið sé um leiguhús-
næði heldur en að fólki sem þarf
að leigja hafi fjölgað hlutfalls-
lega. T.d. hafi umsóknir hjá ráð-
inu oft verið álika margar og nú,
en þá hafi verið meiri hreyfing á
ibúðunum.
Þetta komi m.a. til af þvi hve
langt sé siðan byggðar hafi verið
leiguibúðir i borginni. Á móti hafi
að visu komið bygging og sala
Verkamannabústaða er leyst hafi
mörg mál hjá Félagsmálastofn-
un. Talsvert af leigutökum
borgarinnar hafi keypt VB-ibúðir
og rýmt þá fyrir þeim sem lakar
eru settir og hafa ekki tök á að
kaupa.
Inn i þessa mynd taldi Gunnar
lika örugglega koma minnkandi
áhuga einkaaðila á að leigja út
húsnæði, sem fólk gæti svo ráðið i
af hvaða ástæðum sé.
En fái fólk einusinni húsnæði
hjá bænum, getur þaö þá haldið
þvi alla ævina hversu sem hagur
þess vænkast, var Gunnar spurð-
ur. Hann sagði reglur um leigu-
rétt nú nýlega endurskoðaðar
m.a. varðandi ákveðin tekju-
mörk, sem koma eigi i veg fyrir
þann möguleika. A þetta hefði
fyrst reynt á s.l. ári er Félags-
málaráð hafi sagt 25 aðilum er
búa i borgarhúsnæði upp leigunni,
til rýmingar á þessu ári, vegna of
góðra fjárhagsaðstæðna. Það sé
lika alveg ljóst, að leiguibúðir
borgarinnar eigi að nýtast sem
meðferðarlegt úrræði. Félags-
málaráð hefði þá farið sér hægt i
uppsögnum að undanförnu vegna
þess hve ástandið á leigu-
markaðinum hafi verið bágborið.
Jafnvel þótt sumir núverandi
„Æ fleiri ráða
ekki við kaup”
— segir starfsmadur
Leigjendasamtakanna
■ ,,Við höfum aðeins tekið
félagsmenn á skrá, en það gengur
ekkert að útvega þeim ibúðir”,
sagði Einar Guðjónsson á skrif-
stofu Leigjendasamtakanna.
Hann sagði ástandið hafa verið
mjög slæmt i allan vetur.
Þetta ástand sagði hann þá hjá
félaginu álita að stafaði af mikl-
um hluta af þeirri pólitik er rekin
hafi verið að allir eigi að kaupa og
eiga sitt húsnæði. Þegar siðan
hafi farið að kreppa að og kjörin
að þyngjast svo mjög á lána-
markaðinum, þá verði sifellt
fleiri og fleiri sem ekki ráða við
að kaupa. Þeim sem þurfi að
leigja hafi þvi fjölgað hlutfalls-
lega.
Einar sagði auglýsingar eftir
húsnæði i blöðunum segja nokkra
sögu um kjörin. T.d. sjáist aug-
lýst sem svo, ,,get greitt 3 þús. á
mánuði og árið fyrirfram fyrir
3ja herbergja ibúð”. Hinsvegar
sagði hann að sem betur fer
leigðu margir á tiltölulega sann-
gjörnu verði. Vildu það sem kalla
mætti gott fólk i sinar ibúðir og
leigja þær þá til frambúðar. Það
sé fyrst og fremst á skammtima-
leigumarkaðinum sem ástandið
sé nánast djöfullegt. Oft væri þá
um að ræða fólk sem væri að slig-
ast undan lánum, flytti þá úr
ibúðunum og leigði þær með
gifurlegri fyrirframgreiðslu i eitt
ár eða svo til að bjarga sér.
Einar telur lög og reglur þver-
brotin i sliku ástandi sem hér riki.
Lögin um húsaleigusamninga
hafi t.d. átt að leysa einhvern
vanda, en þau hafi bara komið
áður en aðstaða var fyrir hendi til
að fylgja þeim eftir.
— HEI
„Er verra en
oftast ádur”
— segir lögfrædingur
Húseigendafélagsins
■ „Éghefþaðá tilfinningunni að
ástandið á leiguibúðamarkaðin-
um sé verra en oftast áður”,
sagði Sigurður Guðjónsson, lög-
fræðingur Húseigendafélagsins.
Framboðið sé nú minna en oft áð-
ur.
Þá túlkun á veröstöðvunar-
lögunum, að húsaleigu mætti ekki
hækka, sagði hann hafa komið
miklu róti á markaðinn og skapað
leiðindaástand. Með þvi væri for-
sendunum fyrir mánaðargreiðsl-
um eiginlega kippt i burtu. Þetta
komi svo harðast niður á þeim er
sist skyldi, þ.e. þeim er yfirleitt
leigja fyrir sanngjarnar
mánaðargreiðslur er hækkað hafi
i samræmi við visitölu húsnæðis-
kostnaöar. Þegar svo sé komið
aftan að þessu fólki á fyrrnefndan
hátt, hvekkist það og sjái sér ekki
annan kost en að taka aftur upp
fyrirframgreiöslurnar, til að
tryggja verðgildi leigunnar.
Sigurður sagði þær tölur sem
heyrst heföu um húsaleigu t.d. i
Sjónvarpinu nýlega væru tvöfalt
hærri en hann hefði i huga og bor-
ið hafi á góma i samtölum viö
fjölmargt fólk er haft hafi saman
við Húseigendafélagið. Þessir
„hörðu” leigusalar hafi greini-
lega allt sitt á þurru gegn um eitt-
hvað annað.
En hvernig stendur á þessari
húsnæðiseklu i borg þar sem
hundruð ibúða eru byggðar ár-
lega en ibúum fjölgar ekki árum
saman?
Það hlyti að vera rökrétt álykt-
un að talsvert af ibúðum standi
tómar, sagöi Sigurður. Þannig
væri t.d. vitað um mikið af ibúð-
um utanbæjarfólks. Ennfremur
þyki mörgum orðiö ófýsilegt að
eiga ibúðir til aö leigja út og reyni
þá frekar að selja þær.
— HEI
leigjenda búi við verulega betri eigi hjá ráðinu, þýði það ekki almenna markaðinn viö núver-
kost en ýmsir þeir sem umsóknir endilega að þeir ráði við að fara á andi aðstæöur. — HEI
■ Langt slöan byggöar hafa veriö leigulbúöir
STÚDENTAGJÖFIN í ÁR
ER CROSS PENNI
Á ÞAÐ FER EKKI
A MILLI MÁLA
1 PENNAVIÐGERÐIN
Póstsendum. Ingólisstræti 2. Simi 13271.