Tíminn - 27.05.1981, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 27. mai, 1981
erlent yfirlit
7
erlendar fréttir
Kosið aftur í
Vestur-Berlín?
Frjálsir demókratar í miklum vanda
■ HINN 10. þ.m. fóru fram borg-
arstjo’rnarkosningar i Vest-
ur-Berlin. úrslita þeirra var beð-
ið með forvitni, þvi að liklegt
þótti, að þau gætu haft meiri hátt-
ar áhrif á vestur-þýzk stjórnmál.
Sósialdemókratar hafa farið
með forustu i borgarstjórn Vest-
ur-Berlinar frá striðslokum, fyrst
einir, en siðar i samvinnu við
frjálslynda demókrata. Forusta
þeirra þótti reynast sæmilega
lengi vel, en siðustu árin hefur
hún orðið fyrir skakkaföllum,
vegna ýmissa óreiðumála. Tveir
borgarstjórar hafa hrökklazt frá
af þessum ástæðum, sá siðari i
vetur. Eftir það þótti ljóst, að
erfitt yrði að komast hjá þvi að
efna til kosninga, þótt talsvert
væri eftir af kjörtimabilinu.
Kristilegir demókratar hafa
verið að vinna á i Vestur-Berlin i
undangengnum kosningum. Þvi
valda ekki aðeins framangreind
óhöpp sósialdemókrata, heldur
fólksflutningar, sem hafa verið
hagstæðir kristilegum demókröt-
um. Ungt fólk hefur flutzt frá
Berlin i vaxandi mæli, en meiri-
hluti þess hefur fylgt sósialdemó-
krötum að málum.
Helmut Schmidt taldi óhjá-
kvæmiiegt að gripa til róttækra
aðgerða, þegar ljóst var aö til
kosninga drægi i Vestur-Berlin.
Hann sendi vinsælasta manninn i
rikisstjórn sinni, Hans-Jochen
Vogel dómsmálaráðherra, til
Berlinar og lét hann taka við
borgarstjórastarfinu. Vogel hafði
m.a. unnið sér gott álit sem borg-
arstjóri i Munchen. Siðustu árin
hefur hann verið talinn manna
liklegastur til að taka við for-
mennskunni hjá sósialdemókröt-
um, þegar Schmidt léti af henni.
ÞEGAR Vogel kom til Berlinar,
sýndu skoðanakannanir, að
sósialdemókratar myndu ekki fá
nema 25% atkvæða, ef kosið væri
þá. Þegar sú tala er höfð i huga,
verður ekki annað sagt en að
Vogel hafi orðið nokkuð ágengt. 1
kosningunum 10. mai fengu
sósialdemókratar 38.4% greiddra
atkvæða, en höfðu fengið 42.7% i
siðustu borgarstjórnarkosning-
um. Þeir fengu 52 borgarfulltrúa
kjörna.
Frjálslyndir demókratar
töpuðu einnig. Þeir fengu 5.6%
greiddra atkvæða, en höfðu feng-
ið 8.1% i siðustu borgarstjórnar-
kosningum.
Avinningurinn varð verulegur
hjá kristilegum demókrötum.
Þeir fengu 47.9% greiddra at-
kvæða en höfðu fengið 42.5% i sið-
ustu borgarstjórnarkosningum.
Þeir fengu 65 borgarfulltrúa
kosna.
Þetta nægði þeim þó ekki til að
fá meirihluta. Borgarfulltrúarnir
eru alls 133. Kristilega demókrata
vantaði þvi tvo fulltrúa til viðbót-
ar til að fá hreinan meirihluta.
Það, sem gerði strik i reikning-
inn, var sigur flokks umhverfis-
verndarmanna og bandamanna
hans, sem voru ýmsir smáhópar
vinstri sinna og stjórnleysingja.
Þeir fengu 7.2% atkvæða og 9
borgarfulltrúa. 1 siðustu borgar-
stjórnarkosningum höfðu þeir
fengið 3.5% atkvæða og engan
mann kosinn. Til þess að fá full-
trúa kosinn, þarf flokkur að fá
minnst 5% greiddra atkvæða.
Umhverfisverndarmenn og
bandamenn þeirra höfðu lýst yfir
þvi, að þeir myndu ekki blanda •
blóði við aðra flokka á þann hátt
að styðja þá til valda. Hinir
flokkarnir sóttust ekki heldur eft-
ir samstarfi við þá.
Strax eftir að úrslit kosning-
anna voru kunn, lýstu
sósialdemókratar yfir þvi, að þeir
myndu verða i stjórnarandstöðu á
komandi kjörtimabili og greiöa
atkvæði gegn borgarstjóraefni
kristilegra demókrata, Richard
von Weizacker, Umhverfisvernd-
■ Richard von Weizácker
arflokkurinn gaf svipaða yfirlýs-
ingu.
BONDIN bárust þannig að full-
trúum frjálslyndra demókrata.
Einn var að hefja formlega sam-
vinnu við kristilega demókrata.
Annar var að sitja hjá við borgar-
stjórakosningarnar og tryggja
minnihlutastjórn kristilegra
demókrata á þann hátt. Sá þriðji
var að hindra kjör Weizö'cker, en
það myndi að öllum likindum
leiða til nýrra kosninga.
Frjálslyndir demókratar voru
ósammála um hvern kostinn þeir
ættu að velja. Meirihlutinn var
mótfallinn öllu samstarfi við
kristilega demókrata. Niðurstað-
an varð sú, að efna til aukaþings
flokksdeildarinnar i Vest-
ur-Berlin og leita áður ráða hjá
flokksforustunni i Bonn.
Frá Bonn komu þau ráð, að
fulltrúar flokksins skyldu sitja
hjá við atkvæðagreiðsluna um
borgarstjóra. Flokksforustan
taldi ekki ráðlegt, að frjálsir
demókratar stuðluðu að nýjum
borgarstjórnarkosningum, þvi að
þeir gætu þá hæglega misst alla
fulltrúa sina, þ.e. að atkvæðatala
þeirra yrði undir 5%.
Meirihluti flokksþingsins i
Vestur-Berlin hafnaði þessum ráð
um flokksstjórnarinnar og lagði
fyrir borgarfulltrúa flokksins að
greiða atkvæði gegn Weizácker.
Aður hafði verið hafnað tillögu
um að ganga til samstarfs við
kristilega demókrata.
Mikill ágreiningur var um þetta
og er ekki talið útilokað, að tveir
eða þrir af borgarfulltrúum
frjálslyndra demókrata sitji hjá
við atkvæðagreiðsluna og tryggi
þannig kosningu Weizácker sem
borgarstjóra. óvist er þó, að það
nægi til að afstýra kosningum.
Sennilegra er hitt, að verði
Weizácker kosinn gripi hann
fyrsta tækifæri til að efna til kosn-
inga.
Borgarstjórakosninganna i
Vestur-Berlin er nú beðið með
mikilli forvitni um allt
Vestur-Þýzkaland. Það, sem
kann nú að gerast þar, getur haft
mikil áhrif á vestur-þýzk stjórn-
mál yfirleitt.
■ Hans-Jochen Vogel óskar Richard von Weizá'cker til hamingju með
sigurinn.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Hækka olíuna
um 2 dollara
■ Fundur oliumálaráðherra
aðildarrikja OPEC, samtaka
oliuframleiðslurikja, stóð i
gær og fregnir af fundinum
hermdu að Jiklega myndi
samkomulag nást um það að
Saudi-Arabar hækkuðu verð
oliu þeirrar sem þeir fram-
leiða um tvo dollara á tunn-
una, gegn þvi að önnur riki
hækkuðu ekki oliuverð frá sér.
Saudi-Arabar hafa verið
harðlega gagnrýndir af öðrum
oliuframleiðslurikjum, fyrir
að hafa aukið oliuframleiðslu
sina töluvert, svo og að hafa
selt oliuna á þrjátiu og tvo
dollara hverja tunnu, meöan
önnur oliuriki höfðu hækkað
verð i þrjátiu og sex dollara á
hverja tunnu.
Oliumálaráðherra
Saudi-Arabiu fékkst ekki til
að staðfesta við fréttamenn i
gær, að samkomulag hefði
náðst um þetta.
Reyna stjórn-
armyndun á ný
■ Tilraunir til myndunar
nýrrar rikisstjórnar á Italiu
eru nú hafnar, eftir að siðasta
rikisstjórn varð að fara frá
völdum, i kjölfar mesta
stjórnmálahneykslis, sem
komið hefur upp þar i landi
um langt árabil.
Orsök þess að rikisstjórnin
varð að fara frá var, að birtur
var listi yfir nöfn manna, sem
sakaðir voru um aðild að
leynilegum félagsskap, sem á-
stundaði afbrotastarfsemi af
ýmsu tagi og hafði auk þess
skipulagt valdarán i landinu.
Meðal þeirra sem voru á list-
anum voru tveir ráðherrar og
fleiri áhrifamenn i stjórn
Italiu.
Að afloknum rikisstjórnar-
fundi i gærmorgun gekk for-
sætisráðherra samsteypu-
stjórnar Kristilegra Demó-
krata, Sósialdemókrata og
Lýðveldisflokksins, Arnaldo
Forlani, á fund forseta lands-
ins og baðst lausnar fyrir sig
og ráðuneyti sitt. Adolfo Sarti,
dómsmálaráðherra, hafði
þegar sagt af sér, þar sem
hann var bendlaður við leyni-
félagsskapinn.
Sú rikisstjórn, sem i gær fór
frá völdum á Italiu, var hin
fertugasta i landinu frá lokum
heimstyrjaldarinnar siðari.
Stjórnarkreppa er Itölum þvi
ekkert nýtt ástand.
Auk ráðherranna tveggja og
annarra áhrifamanna i stjórn
landsins voru um eitt þúsund
þekktir Italir nefndir sem
félagar i henni. Þeirra á
meðal voru háttsettir menn úr
hernum, svo og menn sem ný-
lega urðu uppvisir að fjár-
málabraski, meðal annars ó-
löglegum útflutningi gjaldeyr-
is.
Frankinn
hækkandi
■ Franski frankinn hækkaði
nokkuð á gjaldeyrismörkuð-
um, eftir að hafa verið i nokk-
urri lægð i kjölfar úrslita for-
setakosninganna þar i landi,
þegar Frakkar kusu sem for-
seta sósialistann Mitterand.
Talið er að yfirlýsing Helm-
ut Schmidt, kanslara
Vestur-Þýskalands, þess efnis
að rikisstjórn hans hyggðist
styðja frankann, hafi átt mik-
inn þátt i þvi að hann rétti úr
kútnum i gær.
PAKISTAN: Stjórnvöld I Pakistan hafa.aðþvier fregnir herma,
> hyggju að draga ekkju Bhuttos, fyrrum forseta Pakistan, svo
og dóttur hennar og jafnvel einnig son, fyrir rétt, sökuð um aöild
aðráni á pakistanskri flugvéi fyrir um tveim mánuðum.
FRAKKLAND: Mitterand, hinn nýi forseti Frakkiands, átti I
gær fundi með mörgum af helstu verkalýðsleiötogum landsins.
Eru fundir þessir liður i tilraunum hans tii að afla fylgis við hina
nýju rikisstjórn vinstri manna i landinu.
SOVETRIKIN: Tveir sovéskir geimfarar sneru aftur til jaröar I
gær, eftir liðlega tveggja mánaða dvöl i sovésku geimstööinni
Saluyt 6.
PÓLLAND: Eining', hin óháða verkalýöshreyfing Póllands,
sakaði i gær rússneska hermenn I Póllandi, um að hafa barið
pólskan borgara til óbóta að ósekju. Maðurinn iiggur á sjúkra-
húsi og er málið i rannsókn.
SPANN: Forsætisráðherra Spánar sagði i gær.að stjórnvöld
landsins hefðu ekki enn upplýsingar um það hverjir heföu staðið
að baki töku bankans i Barselóna um siðustu heigi, þar sem
vopnaðir menn héldu á annaö hundrað manns i gislingu liðlega
sólarhring. Hann sagði að meðal þeirra sem handteknir voru,
hefðu ekki verið neinir þjóðvarðiiðar.