Tíminn - 04.10.1981, Page 8
Sunnudagur 4. október 1981
8
<
■ Sértrúarsöfnuður Votta
Jehóva er nú enn í sviðsljós-
inu. Einn safnaðarfélaga,
drengur rúmlega tvítugur,
sem þjáist af bráðu hvítblæði
hefur hafnað nauðsynlegri
blóðgjöf vegna þess að í
AAóse-bókum Gamla testa-
mentisins er kveðið svo á um
að menn skuli ekki neyta
blóðs. Vottar Jehóva álíta
Biblíuna vera orð guðs óum-
breytanlegt, eftir því skuli
farið bókstaflega og
skilyrðislaust. Söfnuðurinn
lítur til að mynda þróunar-
kenninguna margreyndu ó-
hýru auga. Hver er sá söfn-
uður sem knýr ungan dreng,
beint eða óbeint, til að gefa
sig dauðanum, vegna þess að
fyrir 2500 árum eða svo voru
nokkur orð skrifuð niður á
bók? Hverjir eru Vottar Je-
hóva?
refsingu eina að vera án guðs á
himnum. Sé dauði mannsins
bein afleiðing af syndafalli Ad-
ams i aldingarðinum en þarf-
laust er aö taka fram að Vottar
taka þá frásögn Bibliunnar
mjög bókstaflega.
Orrustan við
Harmageddon
Eins og vill verða með marga
sértrúarsöfnuöi eyða þeir meira
púðri iaðútskýra hinn komandi
dómsdag en flesta aöra þætti
trúarinnar. Nú er hinn „siðasti
timi” eins og áður var frá
greint, eftir aö Kristur var
krýndur — bókstaflega aö þvi er
virðist — og honum mun ljúka
meö miklum hamagangi, orr-
ustunni viö Harmageddon, þar
sem Jehóva sigraðist á her-
sveitum hins vonda og stofni ei-
lift riki sitt á jörðinni, takiö
eftir, jörðinni. Hér er hvorki
pláss né ástæða til að fara ná-
kvæmlega út I kenningar Votta
um endalok heimsins I
núverandi mynd en þeir eiga
það sameiginlegt með mörgum
öðrum sértrúarsöfnuöum að
hafa sérdeilis mikinn áhuga á
Opinberunarbók Jóhannesar og
hinum undarlegu lýsingum
þess rits. Kenna þeir og að aö-
eins smár hópur útvalinna muni
eftir dóminn fara til himna og
stjórna þaöan ásamt Kristi —
nákvæmlega talið 144 þúsundir
manna. Má i þvi sambandi geta
þess aö Vottar segja söfnuð sinn
um þessar mundir telja rúmar
tvær milljónir manna...
Kenningar Votta eru margar
og margvislegar og hefur öllum
verib hafnaö skilyrðislaust af
hinni opinberu kirkju. Kirkjan
hefur raunar lagt áherslu á að
Vottar Jehóva séu alls ekki
kristinn söfnuður og eigi ekkert
skylt viö kristna trú en Vottar
hafa jafnan svarað þvi til að
þeir byggi kenningar sinar i
einu og öllu á Bibliunni sjálfri og
rannsóknum á henni. Þó hafa
þeir gefið út sin eigin rit, skýr-
ingar á Bibliunni, enda er þaö
ekki á hvers manns færi að
fylgja eftir kenningum þeirra
nema hafa nákvæmar útskýr-
menn vita, fjölda margir sér-
trúarsöfnuðir verið sakaðir um
slikt. Enda er það efunarlaust
aö leiötogar Votta — fyrst Taze
Russell og siðan eftirmenn hans
— hafa alla jafna verið hinir
duglegustu kaupsýslumenn, i
bland við trúboðið og á söfnuð-
urinn nú miklar eignir viöa um
heim. Taze Russell sjálfur lenti
reyndar eitt sinn I málaferlum
safnaöarins. Eftir þvi sem næst
verður komist eru þaö um það
bil eitt hundrað manns hér á
landi sem viðurkenna söfnuðinn
sem andlegt yfirvald hér á jörð,
talan hundrað og þrjátiu hefur
og verið nefnd. Forstöðumaöur
safnaðar Votta Jehóva á íslandi
heitir Friðrik Gislason en auk
þess að veita söfnuðinum for-
stööu er hann skólastjóri Hótel-
■ Sértrúarsöfnuður Votta Jehóva hefur komist f sviðsljósið vegna
þess aðþeir sem heyra til söfnuðinum neita að þiggja blóðgjöf þó lif
liggi við. Þaö gera þeir til að komast i sæluriki Jehóva á jörðinni en
þar veröur svona útlits ef marka má rit þeirra.
HVERJIR ERU
VOTTAR JEHÖVA?
■ i bókstaflegri merkingu:
Vitni guðs. Eða svo kalla þeir
sig. Söfnuðurinn virtist ekki
mikils visir I upphafi, hann er
sprottinn af Bibllurannsóknum
manna i Bandarlkjunum fyrir
rétt rúmlega hundrað árum.
Maöur aö nafni Charles Taze
Russel má heita upphafsmaður-
inn en hann haföi áður flækst
milli ýmissa sértrúarsöfnuða
þar til hann aö lyktum ákvaö að
stofna sinn eigin flokk. Sér-
trúarsöfnuðir hafa löngum
blómstrað sérlega vel I Banda-
rikjunum og um þetta leyti var
sú trú rik að endurkoma Krists
væri á næsta leiti. Charles Taze
Russell tók undir þær kenningar
er hann stofnaði söfnuð sinn og
nefndi I fyrstu ártaliö 1874 en
siðar 1914. Hann birti blaöa-
grein árið 1876 sem hann nefndi
„Timar heiöingjanna: Hvenær
lýkur þeim?” og I þessari grein
leiddi hann rök að þvi að „tim-
um heiðingjanna” myndi ljúka
áriö 1914 og þaö ár yröi Kristur
krýndur á himnum. Rökin fyrir
þessari fullyrðingu fann Taze
Russell i Bibliunni en á þau hafa
ekki aörir fallist en Vottar Je-
hóva. Nefndi Taze Russell I
grein sinni ýmis undur og stór-
merki sem gerast áttu árið 1914
til marks um veldi Jehóva (en
svo nefna Vottar guð undan-
tekningarlaust) og kom fátt eitt
af þvi fram þegar á reyndi en
hins vegar hófst fyrri heims-
styrjöldin og það töldu Vottar
nægjanlega sönnun þess að hinn
siöasti timi væri hafinn en hon-
um á að ljúka með niöurkomu
frelsarans og dómsdegi. Þeir
biða nú dómsins.
Jesús skör lægri
en Jehóva
Vottar Jehóva hafa gegnum
árin orðið fyrir miklu aökasti
ýmissa kirkjudeilda og söfnuður
þeirra talinn eiga litiö skylt við
kristna kirkju. Það er alveg
rétt, og þaö viðurkenna þeir
sjálfir fúslega, að skilningur
þeirra á Bibliunni brýtur i
veigamiklum atriöum i bága viö
hefðbundna túlkun á
bókinni. Þaö sem ef til vill vekur
mesta athygli er skilningur
Votta Jehóva á hlutverki Jesú
Krists en þeir segja hann skör
lægra en guð sjálfan og álita
reyndar að kenningin um
heilaga þrenningu sé frá engum
öðrum en djöflinum komin.
Vottar álita aö Jesús hafi veriö
fyrsta sköpunarverk guðs og
áöur en hann geröist maöur hafi
hann verið erkiengillinn
Mikjáll. Jehóva er grundvallar-
atriði trúar þeirra og þeir hafa
jafnvel átt það til að stimpla
alla þá sem tilbiðja Jesú sem
hjáguöadýrkendur þótt þeir
gangi ógjarnan svo langt. Þa
telja þeir að upprisa Jesú
eftir daubann hafi ekki veriö
likamleg eins og kirkjan hefur
kennt um aldir og byggt á
Lúkasarguðspjalli öbru fremur,
heldur hafi „andinn” risið upp.
Þá trúa þeir ekki á eilift ■ lif,
heldur muni þeir einir sem
Jehóva eru þóknanlegir á dóms-
degi hljóta þennan eftirsótta
munað —eilift lif. A hinn bóginn
trúa þeir heldur ekki á eilifa for-
dæmingu hinna guðlausu eftir
dauöann heldur hljóti þeir þá
ingar i höndunum. Hefur, að
sögn þeirra sem til þekkja,
stundum viljað brenna við að rit
Votta skyggi á Bibliuna sjálfa.
Allir skyldugir
til að „vitna”
Söfnuðurinn sjálfur, Vottar
Jehóva, er ekki svo ýkja frá-
brugðinn öðrum sértrúarsöfn-
uðum aö eöli og uppbyggingu.
Lögö er mikil og rik áhersla á að
þeir sem aðhyllast skoðanir
safnaðarins taki litinn sem eng-
an þátt i öðru daglegu amstri,
raunar segja þeir berum oröum
að „kristinn maður”, og eiga
þar náttúrlega við Votta Jehóva
eingöngu, megi til aö segja
skilið við umheiminn að eins
miklu leyti og kostur er enda sé
Satan hinn ósýnilegi stjórnandi
heimsins. Hins vegar eru allir
safnaðarfélagar skyldugir til aö
taka þátt I trúboði, eöa „vitna”
einsog þaö heitir á máli þeirra,
og ganga þá Vottar i hús og
reyna að sannfæra fólk um að
þeir hafi rétt fyrir sér. Hafa
Vottar oftsinnis verið sakaðir
um óhóflega ágengni við þetta
trúboð sitt, svo og aö þeir leggi
ekki sist snörur sinar fyrir fólk
sem ekki er ákaflega sterkt
fyrir. Segir I ýmsum ritum gegn
þeim aö meö samhengislausum
tilvitnunum i Bibliuna hafi þeim
tekist að lokka ýmsa til fylgis
við sig sem varla hafi vitað um
hvað máliö snerist og siöan
reynst erfitt aö losna. Þá er
mjög algeng ásökun gegn Vott-
um að söfnuðurinn sé I raun ekki
annaö en fjárplógsstarfsemi
leiötoganna og hafa, eins og
vegna okursölu á hveiti, sem
hann sagöi fólki að væri mjög
guödómlegt hveiti og hollt fyrir
andann. Þegar að var gáö varð
ekki séð að hveiti þetta væri
svo ýkja frábrugöið ööru hveiti.
Þá hafa og komiö fram ásakanir
um aö ýmsir leiötogar Votta
heföu helsttil mikla aödáun á
hinum kvenkyns dýrkendum
safnaöarins.
Vottar láta sér alla þessa
gagnrýni og árásir I léttu rúmi
liggja, og benda á að söfnuður
Krists hafi á sinum tima sætt
miklu aðkasti og ofsóknum
hinna trúlausu. Telja þeir sig
lifa skilyröislaust eftir boðorði
Jehóva og þvi megi þeir teljast
hólpnir.
130 manns
Söfnuður Votta Jehóva hér á
landi sver sig að flestu eða öllu
leyti i ætt við móöursöfnuöinn i
Bandarlkjunum og aöra þá
söfnuði sem settir hafa verið á
stofn viöa um heim. Eins og
áður kom fram telja Vottar nú
að söfnuðurinn sé rúmlega tvær
milljónir manna I einum tvö
hundruö löndum og sæki sifellt
á. Enda ekki seinna vænna. Hér
á landi gefur söfnuðurinn út
blað, sem heitir „Varöturninn”
eftir samskonar blaði sem
móöursöfnuðurinn gefur út, og
starfrækir safnaðarheimili en
tölur um félagafjölda liggja
ekki fyrir. Munu Vottar Jehóva
ekki halda félagaskrá, né heldur
greiöi menn bein félagsgjöld,
þótt þaö sé ljóst að viss hluti af
launum hvers og eins safnaöar-
félaga renni alla jafna til
og veitingaskóla Islands. Söfn-
uður Votta Jehvóa lýtur að
sjálfsögðu ýmsum reglum mis-
munandi ströngum en höfuðá-
hersla er á samheldni safnaðar-
félaga. Vin mega Vottar Jehvóa
drekka — i hófi — enda segir:
„Hóflega drukkið vin gleður
mannsins hjarta” i bibliskum
ritum en hins vegar eru reyk-
ingar bannaðar. Er það byggt á
ritningarstaö I Bibliunni aö
menn skuli tilbiðja guð með
„hreinum anda”.
Miskunarleysi
Jehóva
Með tilliti til þess sem I upp-
hafi var drepið á — drengurinn
sem neitar aö þiggja lifsnauð-
synlega blóðgjöf — þá spurði ég
Friörik Gislason hvernig þaö
mætti vera aö Vottar Jehóva
gætu tekið einn ritningarstaö i
Gamla testamentinu, Móse-bók,
svo hátiðlega að fyrir það þyrfti
ungur maöur að láta lifið. Benti
einnig á að i Móse-bókum eru
margir kaflar sem eru vafa-
samir i meira lagi, svo sem eins
og leiðbeiningar guðs til sinnar
útvöldu þjóðar um það hvernig
fara skuli meö fanga af öðrum
kynþáttum. Eru þær leiðbein-
ingar ekki beinlinis þrungnar
miskunnsemi, reyndar er um aö
ræða grimmdarlegar skipanir
um aö engum skuli þyrmt —
ekki karlmönnum, ekki konum,
ekki börnum.
„1 þessu sambandi verður að
athuga trúarbrögð og hegöun
þessara kynþátta,” sagði Friö-
rik. „Jehóva átti ekki annars
úrkosti en aö útrýma þeim.
Þeir iökuöu mjög syndsamlegt
liferni þrátt fyrir að hafa haft
tækifæri til að breyta um lifs-
hætti. Þessir þjóðflokkar
stunduöu vændi I musterum sin-
um, liföu hömlulausu kynllfi og
fórnuöu börnum sinum fyrir
falsguði.”
Og fyrir söfnuð Votta Jehóva
fórna menn nú lifi sinu.
—U-