Tíminn - 04.10.1981, Blaðsíða 9
Sunnudágur 4. október 1981
Samanburður á stjórn
um Geirs og Gunnars
Óþægileg spurning
■ Arvakur hf hefur látiö mál-
gagn sitt, Morgunblaðið, taka
upp sérstakan spurningaþátt,
þar sem formaður Sjálfstæðis-
flokksins og stjórnarformaöur
Árvakurs, Geir Hallgrimsson,
er látinn svara spurningum,
sem lesendur blaðsins leggja
fyrir hann um stjórnmálaá-
standið.
Eins og við má biiast, eru svör
Geirs nokkuð mismunandi.
Stundum tekst honum sæmi-
lega, en oftar eru þó svörin Ut i
hött Vitanlega fer þetta tals-
vert eftir spurningunum.
Ein af þeim spurningum, sem
formanni Sjálfstæðisflokksins
tókst illa að svara, birtist i Mbl.
24. september og var frá Helga
Kæmested (3974-9157), spurning
Helga var á þessa leið:
„Hver er sá meginmunur,
sem þU telur vera á framkvæmd
stefnu núverandi stjórnar og
þeirrar, sem þU veittir forsæti á
árunum 1974 til 1978?”
Geirsegisti svari sinu ætla að
svara i stuttu máli, og er það Ut
af fyrir sig ekki ásökunarvert.
Það er alltaf lofsvert að vera
gagnoröur. En það á ekki við
um þetta svar Geirs. Svarið er
út í hött.
Bersýnilegt er af þvi, að
spurningin hefur reynzt Geir
óþægileg. Þegar gerður er
samanburður á núverandi rikis-
stjóm og rikisstjörn Geirs Hall-
grimssonar 1974-1978, er næsta
erfitt að skilja andstöðu Geirs
og félaga hans við nlverandi
rikisstjórn. Sá samanburður
sýnir, aö þessi andstaða er ekki
sprottin af málefnalegum á-
stæðum.
Svar Geirs
1 svari Geirs kemur þetta
einkum fram, sem hann telur
sýna muninn á stjórn sinni og
núverandi rikisstjórn:
1. Núverandi stjórn hafi fram-
lengt alla viðbótarskatta, sem
hún tók við og bætt við nýjum.
Þetta er nákvæmíega það
sama og stjórn Geirs Hall-
grimssonar gerði. Hún fram-
lengdi þá skatta, sem voru i
gildi,þegarhún téíc við, og bætti
nýjum við. Meðalannars lét hún
þá skatta, sem voru lagðir á
vegna eldgossins i Vestmanna-
eyjum,renna i íikissjóð eftir aö
þeirra var ekki lengur þörf
vegna framkvæmda i Eyjum.
Sáerhins vegar munurinn, að
halli var á rikisrekstrinum flest
stjórnarár Geirs Hallgrims-
sonar, en rikisreksturinn hefur
verið nokkurn veginn hallalaus i
tiö núverandi rikisstjórnar.
2. Núverandi rikisstjóm haldi
dauðahaldi i' óraunhæf verð-
lagshöft. Hið rétta er, að
verðlagshöftin eru ekki strang-
ari nú en i stjórnartið Geirs
Hallgrimssonar. Eitt aöalráð
stjórnar Geirs gegn verðbólg-
unni var að beita ströngum
verölagshöftum. Sérstök lög
voru að visu sett um breytingar
á verðlagshöftunum, en þau
voru ekki látin koma til fram-
kvæmda i stjórnartið Geirs.
3. Núverandi rikisstjórn hafi
sett húsnæöislöggjöf, sem ekki
sé fullnægjandi. Þetta er rétt.
En húsnæöislöggjöfin, sem gilti
i stjórnartið Geirs Hallgrims-
sonar var enn meira ófullnægj-
andi.Hérhafaþvi oröiö umbæt-
ur, en að visu ekki fullnægjandi.
4. önnur stefna sé nú rikjandi
i varnarmálum en i stjórnartlð
Geirs. Stefnan er i höfuödrátt-
um hin sama. Island heldur á-
fram þátttöku i Nato og varnar-
samstarfi við Bandarikin. I
stjórnarti'ð Geirs Hallgrims-
sonar var stefnt að þvi með
nokkrum árangri að fækka
varnarliösmönnum og tak-
marka allar framkvæmdir sem
mest. 1 tið núverandi rikis-
stjórnar hefur varnarliðsmönn-
um ekki verið fækkað og'
varnarliðsframkvæmdir ekki
verið minni en áður.
5. Engar nýjar ákvarðanir
hafi verið teknar iorku- og stór-
iðjumálum á siðustu þremur ár-
um. Hið rétta er, að á siðasta
þingi voru samþykkt lög um
stórfelldari orkuvirkjanir en
nokkru sinni áður.
Undanfarin þrjú ár hafa
framkvæmdir á orkumálum
verið sizt minni en i stjómartið
Geirs Hallgrimssonar. Eina
stóriðjuframkvæmdin, sem var
samþykkt i stjórnartið Geirs,
járnblendiverksmiðjan á
Grundartanga, hafði verið
undirbúin af Magnúsi Kjartans-
syni i tið ríkisstjórnar ólafs Jó-
hannessonar, og getur þvi vart
skrifast á reikning rikisstjórnar
Geirs.
Niðurfærslan 1975-1977
Hérhafa verið rakin upp aðal-
rök Geirs Hallgrimssonar fyrir
þvi, að munur sé á rikisstjórn
hans og núverandi rikisstjóm.
Séu svör hans krufin til mergjar
kemur ótvirætt i ljós að þessi
munur er sáralitill eða enginn.
Rikisstjórn Geirs Hallgrims-
sonar var hvorki leiftursóknar-
stjórn né ihaldsstjórn, eins og
andstæðingar hennar i-Alþýðu-
bandalaginu og Alþýðuflokkn-
um hafa reynt að halda fram.
Hún var umbótasinnuð stjórn,
sem haföi að markmiöi að
draga úr verðbólgunni i áföng-
um, ánþess að kæmi tilatvinnu-
leysis.
Hér réðu að miklu leyti sömu
sjónarmið Framsóknarflokks-
ins og markað hafa stefnu og
störf núverandi rikisstjórnar.
Geir Hallgrimsson fylgdi þá að
þvi leyti fordæmi þeirra Ölafs
Thors og Bjama Benedikts-
sonar, að Sjálfstæðisflokkurinn
gæti þvi aðeins unnið meö öðr-
um flokkum, að hann legöi mörg
helztu sérsjónarmið sín til
hliðar. Geir Hailgrímsson var á
þessum árum enginn boðberi
leiftursóknar.
Það tókst á árunum 1975-1977
að koma verðbólgunni verulega
niður meö svipuðum aðferöum
og núverandi rikisstjórn hefur
beitt á þessu ári. A þessum tima
fór verðbólgan úr um 50% niður
i 26%.
Þessum góða árangri var hins
vegar kollvarpað með ógætileg-
um kjarasamningum 1977.
Reynslan frá sumrinu 1977 sýnir
þær hættur, sem vofa yfir nú, ef
ekki er skynsamlega haldið á
kjaramálum. Það skiptir ekki
aðalmáli, eins og menn héldu
þá, aö fá krónunum fjagað,
heldur aö treysta kaupmátt
krónunnar.
Geir Hallgrimsson sýndi þá,
likt og Gunnar Thoroddsen nú,
að hann hafði fullan skilning á
þvi,aðnauðsynlegt væri aðhafa
sem nánast samstarf við verka-
lýössamtökin. Hann sóttist t.d.
eftirþviaö hafa nána samvinnu
viö Björn Jónsson, þáverandi
forseta Alþýðusambandsins.
Sama stefnan
Eins og hér hefur verið rakið
er efnahagsstefnan mjög svipuö
hjá rÐrisstjórnum þeirra Geirs
Hallgrimssonar og Gunnars
Thoroddsen, eða áfanganiður-
færsla á veröbólgunni, án at-
vinnuleysis, miklar fram-
kvæmdir og félagslegar umbæt-
ur.
Þetta ereðlileg afleiðing þess,
að Framsóknarflokkurinn hefur
átt drjúgan þátt i aö marka
stefnu beggja þessara rikis-
stjórna.
Byggðastefnunni, sem hafin
var I stjórnartið ólafs Jó-
hannessonar, hefur verið fylgt
áfram i stjómartið bæði Geirs
og Gunnars.
Orkuframkvæmdir hafa verið
miklar i tið beggja þessara
rikisstjóma, eins og sést á si-
hækkandi tölu þeirra, sem ekki
þurfa að nota oliu til húsahit-
unar.
í stjórnartið beggja hefur
veriðhaldið áfram uppbyggingu
fiskiðnaðar og fiskiskipastóls,
sem hafin var i stjórnarti"ð ólafs
Jóhannessonar.
I stjórnartið beggja hafa orðið
miklar framkvæmdir i heil-
brigðismálum og byggingamál-
um.
Þannig mætti rekja þetta á-
fram. Þvi lengra, sem þetta
verður rakjð kemur það betur i
ljós, að hér er um m jög svipaðar
stjórnir að ræða, sem stafar af
þvi, að I báöum tilfellum hefur
Sjálfstæöisflokkurinn orðið aö
leggja sérsjónarmið sin til
hliðar, eins og leiftursóknina,
vegna samstarfsmanna sinna.
Innan Sjálfstæðisflokksins er
lika að finna fjölmarga menn,
sem ekki eru leiftursóknarmenn
og hafa áhuga á bæði verklegum
og félagslegum framförum.
Þessir menn eiga ekki samleiö
með þeirri leiftursóknarstefnu,
sem meirihluti flokksforustunn-
ar hefur fylgt að undanförnu.
Persónuleg óvild
Þegargerður er samanburöur
á þeim tveim rikisstjórnum,
sem verið hafa undir forustu
þeirra Geirs Hallgrimssonar og
Gunnars Thoroddsen, kemur
vissulega í ljós, að þar er um
mjög svipaðar rikisstjórnir aö
ræða. Stefnan er i megindrátt-
um hin sama og starfshættir i
samræmi við það.
Þaö er þvi næsta óskiljanlegt,
að meirihluti flokksstjórnar
Sjálfstæðisflokksins og málgögn
þau, sem styðja hana, skuli
halda uppi slikum óhróðri um
stjórn Gunnars Thoroddsen og
raun ber vitni. Bersýnilegt er,'
að það stafar ekki af málefna-
legum ástæðum. Þessir menn
og málgögn þeirra studdu stjórn
Geirs Hallgrimssonar heils-
hugar á sinum tima.
Hér er bersýnilega eingöngu
um persónulegar væringar og ó-
vild aö ræða. Andstaðan stafar
af þvi, að Geir Hallgrimsson og
fylgismenn hans skipa ekki ráö-
herrastóla i staö þeirra
Gunnars, Friðjons Þórðarsonar
og Pálma Jónssonar.
Málefnaleg staða þeirra
þremenninga er traust. Þeir
standa á sama grundvelli og
Sjálfstæöisflokkurinn stóð 1974-
1978.
Það eru Geir Hallgrimsson og -
félagar hans.sem hafavaliösér
annan grundvöll og fylgja nú
annarri stefnu og beita öðrum
vinnubrögöum en 1974-1978. Það
væri ógæfa, ef þeir létu per-
sónulegar væringar og villuljós
leiftursóknarinnar leiða sig
lengra á þeirri braut.
Stefnan, sem fylgt er nú og
fylgt var 1974-1978, er I meginat-
riðum rétt. Þess vegna verð-
skuldar rikisstjórnin viðtækan
stuðning til að geta haldið á-
fram viönáminu gegn verðbólg-
unni og tryggt jafnt atvinnu-
öryggi og kaupmátt launa i
glimunni viö erfiðleikana, sem
biöa framundan.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
8 Rikisstjórn Geirs Hallgrimssonar. 8 Rlkisstjórn Gunnars Thoroddsen.
(efri mynd) (neðri mynd)